Morgunblaðið - 26.01.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.01.1997, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ STEINÞÓR Skúlason. Myndin er tekin í afgreiðslusal þar sem ekki er krafa um að bera hárnet. Morgunbiaðið/Þorkeii MARKAÐSSTAÐA SLÁ TURFÉLA GS SUÐUR- LANDS ER STERK VIÐSKIFn AIVINNULÍF ÁSUNNUDEGI ►Steinþór Skúlason er fæddur í Reykjavík og lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1978. Hann lauk prófi frá Háskóla Islands í vélaverkfræði og mastersprófi frá Stanford-háskóla í Kaliforníu árið 1983 í iðnaðarverkfræði. Steinþór starfaði tæpt ár hjá Plast- prenti en var svo ráðinn framleiðslustjóri hjá Sláturfé- lagi Suðurlands, sem um þessar mundir á níutíu ára af- mæli. Forstjóri SS hefur Steinþór verið frá árinu 1988. Hann er kvæntur Hónnu Kristínu Pétursdóttur fótaað- gerðafræðingi og eiga þau þrjár dætur. eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur STEINÞÓR Skúlason kveðst hafa sótt um starf fram- leiðslustjóra sem auglýst var í blöðum árið 1984. „Mér datt ekki í hug að ég ætti möguleika á að hreppa þetta starf svo ungur og reynslulaus sem ég var og nýkominn frá prófborði. En ég var boðaður í viðtal og ráðinn og það var að mínu mati djörf ráðn- ing. Ég er ekki viss um að ég myndi í dag ráða mann eins og mig í slíkt starf. Forstjóri var þá Jón Bergs. Hann var þriðji forstjóri Sláturfé- lags Suðurlands," segir Steinþór. Þess ber að geta að á undan Jóni Bergs var faðir hans Helgi Bergs forstjóri SS. Hann tók við því starfi árið 1924 og gegndi því þar til hann lést árið 1957. Hannes Thor- arensen var fyrsti forstjóri SS, hann hætti störfum árið 1924 er hann varð forstjóri Áfengisverslunar rík- isins. „Það var dálítið erfítt að koma inn í svona gamalt félag með grón- ar hefðir, allir hinir voru miklu eldri en ég. En fljótlega tókst mjög gott samstarf með öllum aðilum. Á þess- um árum voru að verða breytingar í smásöluversluninni fyrst og fremst Það var veikleiki hjá félag- inu að vera að keppa við sina við- skiptavini í smásölunni, það var ekki hægt að beita sér að fullu við þær kringumstæður og hið sama var upp á teningnum í sambandi við framleiðsluna, þetta skapaði ákveðinn hagsmunaárekstur," segir Steinþór. Hann gat þess að um 1988 hafí Sláturfélag Suðurlands verið komið í verulegar þrengingar. „í kjölfar þess varð stefnubreyting hjá félaginu. Allt kostaði þetta viss átök og mannaskipti. Ákveðið var að félagið skyldi einbeita sér að framleiðslu og verslun á heildsölu- stigi og gengið var í að selja smá- sölueiningarnar," segir Steinþór. „Við vorum kannski aðeins of sein- ir í því, verðið sem fékkst fyrir ein- ingarnar var ekki hátt og þær dreifðust milli ýmissa aðila. Stærsti hluti verslananna fór út á árunum 1988-89. Þetta var á verðbólgutím- um þegar niðursveiflu gætti í þjóð- félaginu. Hinni nýju línu var svo fýlgt. Við drógum okkur líka út úr sútunariðnaðinum og urðum að horfast í augu við það að við réðum ekki við að ljúka byggingu stórhýs- is sem ráðist hafði verið í inni í Laugarnesi. Það hús var selt ríkinu og framleiðsluna fluttum við svo til Hvolsvallar. Það var eins kon- ar vendipunktur í endurreisn félagsins. Illspár hafa ekki ræst Margir spáðu illa fyrir þeirri ákvörðun að fara með framleiðsluna á Hvolsvöll, burt frá okkar aðal- markaði. En þetta hefur gengið vel. Við tókum sláturhús sem var illa nýtt á þessum tíma og aðlöguð- um það okkar þörfum. Fram til þessa hafði enginn rekið svona viða- mikla framleiðslu svo fjarri markað- inum, á þeim forsendum reistu menn hina slæmu spá. En reynslan hefur sýnt að þetta gengur vonum framar. Stór þáttur í þeirri vel- gengni er sá að félagið hafði já- kvæða ímynd í huga þorra fólks og naut velvilja innan bankakerfísins og annars staðar og það gaf okkur tíma til að vinna okkur út úr þreng- ingunum. Loks naut félagið þess að starfsfólk sýndi því mikla holl- ustu, sumir lögðu á sig að flytja austur á Hvolsvöll og taka þátt í öllum þessum breytingum. í þriðja lagi má nefna það að félagið er samvinnufélag og naut þess að flestir eigendur sættu sig við greiðsludrátt á afurðum á þessum þrengingartímum, að öðrum kosti hefðu mál ekki skipast svo vel sem raun ber vitni.“ Sláturfélag Suðurlands er fram- leiðslusamvinnufélag bænda á Suð- ur- og Suðvesturlandi að Hvítá í Borgarfirði. Félagsmenn eru um 1.000 virkir framleiðendur, en í heild eru félagsmenn um 3.600 og eru þá meðtaldir framleiðendur sem skipt hafa við félagið gegnum tíð- ina og eiga enn inneign í A-deild stofnsjóðs. Félaginu er skipt í fé- lagsdeildir þar sem hver deild er að jafnaði einn hreppur. Á deildar- fundum kjósa félagsmenn fulltrúa sína á aðalfund. Fimm menn sitja í stjórn félagsins og er formaður stjórnar Páll Lýðsson. Framleiðsla Sláturfélags Suðurlands fer eins og fyrr gat fram á Hvolsvelli. Aðal- sláturhús félagsins er á Selfossi en minni sláturhús eru á Kirkjubæjar- klaustri og við Laxá í Leirársveit. Skrifstofur, vörudreifing og lager eru að Fosshálsi 1. Árið 1993 leigði félagið þar húsnæði með kauprétti sem það er nú að nýta sér. Þess má geta að SS hefur umboð fyrir mörg heimsfræg vörumerki í ný- lenduvörum svo sem Marz og Snic- ker’s, Whiskas, Barilla, Oncel Ben’s, MCCormick og mörg fleiri. Hjá Sláturfélagi Suðurlands starfa frá 220 upp undir 500 manns á ári, vegna verkefna félagsins eru starfsmenn misjafnlega margir, mun fleiri vinna hjá félaginu á haustin en annan tíma ársins. Á ársgrundvelli eru ársverk hjá félag- inu um 300. „Framleiðslan hjá Sláturfélaginu hefur breyst mjög mikið á undan- förnum árum,“ segir Steinþór. „Að- stæður eins og þær voru á Skúla- götunni, meðan félagið var þar, voru þannig að þær orsökuðu ákveðna stöðnun í framleiðslu. Þeg- ar við fórum austur með framleiðsl- una opnuðust ýmsir möguleikar t.d. hvað snertir tilbúna rétti. Við höf- um gert vöruþróun að forgangs- verkefni hjá okkur á síðustu árum og við erum með margar sterkar vörulínur í framleiðslu. Má þar nefna álegg og pylsur undir vöru- merkinu SS, við erum með vörur merktar Búrfell sem eru í ódýrari kantinum, nefna má vörumerkin New Yorker’s og VSOP sem eru gæðamerki í nauta- og lambakjöti. Okkar langþekktasta vara hefur löngum verið SS vínarpylsan, sem er orðinn ríkur þáttur í matarmenn- ingu íslendinga. Loks erum við með tilbúnu réttina 1944, sem hafa náð mikilli markaðshlutdeild. Framleitt fyrir fólk hins nýja tíma Þegar framleiðsla hófst á tilbún- um réttum ákváðum við að nota ekki SS merkið. Við vildum leggja áherslu á að þessir réttir heyrðu til nýjum tímum. Markhópur þess- ara nýju rétta er fólk með nýjan lífsstíl. Stundum er sagt að ömmur okkar hafí eytt tveimur tímum í matreiðslu, mæður okkar eyddu einni klukkustund við elda- mennsku, við eyðum hálfri stund til þess arna og börnin okkar munu afgreiða matreiðsluna á fimmtán mínútum. Fólk nútímans er flest allt þátttakendur í atvinnulífinu, stendur á eigin fótum og er dug- legt við tómstundastarf, það gefur sér því ekki lengur sama tíma til matseldar í sama mæli og áður tíðkaðist. Höfða má til þessa hóps með því að segja að hann sé sjálf- ) stæður, standi á eigin fótum og það er augljós tengingin við nafnið 1944. Fyrst þótti þetta framandi nafn, 1944, en hefur unnið sér veglegan sess og er án vafa með snjallari markaðssetningu á kjöt- millj.kr. 150 Sláturfélag Suðurlands - Rekstrarniðurstöður árin 1987-1995 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.