Morgunblaðið - 26.01.1997, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.01.1997, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ PÁLL ÁSMUNDSSON + Páll Einar Ásmundsson var fæddur á Hríshóli í Reykhólasveit, Austur-Barða- strandarsýslu, 13. febrúar 1912. Hann lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 20. janúar síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Arbæjar- kirkju 24. janúar. Pípulykt og karamellur er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka, en Palli átti alltaf til stóran poka fullan af dýrindis karamellum þegar ég kom í heimsókn. Hann var alltaf góður við okkur krakkana og vildi allt fyrir okkur gera. Það var fyr- ir tilstilli Palla að ég byrjaði ung- ur að vinna fyrir mér á sumrin. Fyrst kom hann mér í vinnu sem sendill á Alþýðublaðinu og síðan vann ég nokkur sumur með hon- um í timbrinu hjá Slippnum. Það var því ekki síst honum að þakka að ég lærði fljótt að það þarf að hafa fyrir hlutunum. Umræður um stjómmál voru aldrei langt undan þegar Palli var annars vegar, því hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á þeim. Hann fór ekki dult með skoðanir sínar og strax á unga aldri fékk ég mikla og góða fræðslu um helstu afkima stjómmálanna. Af Palla lærði ég þá stóm lexíu að maður á að hafa skoðanir á hlutunum. Gummi. Kynni mín og Palla hófust 1989 þegar ég kynntist Gumma, ömmubarni Maríu, sambýliskonu hans. Strax í upphafi tóku Palli og María vel á móti mér og vildu allt fyrir mig gera. Palli minnti mig mikið á afa mína sem ég missti mjög ung. Hann var eini afinn sem Gummi maðurinn minn kynntist og var fyrirmyndin sem hann leit upp til. Reyndust þeir hvor öðrum mjög vel, sérstaklega þegar á þurfti að halda. Mér er enn þann dag í dag mjög minnisstætt þegar ég fór í mínar fyrstu heimsóknir með Gumma á Grundarstíginn. Reynd- ar urðu þær heimsóknir ekki eins margar og ég hefði viljað, en urðu þeim mun fleiri á Grund eftir að hann fluttist þangað 1992. Það voru stoltir foreldrar sem komu með frumburðinn sinn, hann Böðvar, á Grundina tæpum mánuði eftir fæðingu hans 1993. Ekki var Palli síður stoltur lang- afi þar sem hann gekk um gólfið með sveininn og raulaði fyrir hann. Ekki var Palli síður stoltur rúmu ári síðar þegar við komum með yngri drenginn, Magnús, einnig í heimsókn. En alltaf vildi Palli fá drengina í fangið og ganga með þá um gólf og raula fyrir þá hvort sem þeir voru róleg- ir og góðir eða órólegir. Oftast voru þeir þó rólegir og góðir og ætíð var Palli undrandi á hvemig við fómm að því að hafa þá svona góða. Var jafnvel svekktur af því hann gæti ekki notað nógu oft á þá „töfraþulumar" sínar til að róa þá niður. Ósjaldan vora til ein- hveijir molar í skúffunni hjá Palla þegar ormarnir komu við eftir að þeir eltust og vora það glaðir snáðar sem tóku við þeim og sett- ust á rúmið hans afa og borðuðu þá, eða bara skoðuðu sig um í herberginu hans. Það verður erfitt að skýra út fyrir ungu sveinunum að Palli afi sé núna dáinn og farinn til himna. Þeir vora þó það heppnir að fá að kynnast langafa sínum því allt- af reyndum við að koma því við að heimsækja Palla og Maríu a.m.k. hálfsmánaðarlega svo þau gætu kynnst drengjunum báðum og ekki síst að drengimir fengju að kjmnast þeim. Mínar heim- sóknir til þeirra í vetur urðu færri en ég hefði viljað, ástæðan var að ég notaði tímann meðan feðg- amir vora úti til að læra fyrir skólann. Palli var mjög áhuga- samur um það sem ég var að gera og ætíð fékk ég kveðjur frá honum, þó svo ég sæi mér ekki alltaf fært að fara í heimsókn með köllunum mínum. Eldri sonur minn var duglegur að flytja mér kveðjurnar og segja fréttir af langafa sínum og langömmu. Það var erfið heimsókn sem við áttum til hans á laugardaginn var. Þá sáum við að hverju stefndi en við vitum að hann er hvíldinni feginn en samt er erfitt til þess að hugsa að við eigum ekki eftir að sjá hann oftar. Það verður eflaust erfitt fyrir Maríu næstu vikumar því núna er hún búin að missa tvo menn frá sér en fær ekki að njóta hvíldarinnar sjálf sem hún biður þó alltaf um í hvert skipti sem við komum í heimsókn. Hún gerði sér þó grein fyrir því þegar við fóram með hana í heim- sókn til Palla á laugardaginn að stutt væri eftir af hans jarðlífí og talaði um það við hann og sagðist mundu vonandi koma fljótt til hans. Elsku Palli, við þökkum þér fyrir aila þá hlýju og ánægju sem þú hefur veitt okkur í gegnum árin, við munum sakna þín mikið og heimsóknanna til þín á Grand- ina, minningarnar munu greipast í huga okkar og ætíð dvelja þar. Þú sagðir okkur oft sögur af ferð- um þínum til ókunnra landa hér áður fyrr þegar þú varst á sjón- um. Við lítum svo á að nú sé komið að enn einni ferðinni þinni og væntanlega segir þú okkur frá henni þegar við komum til þín seinna. Því segjum við núna góða ferð og sjáumst síðar. Arndís, Guðmundur, Böðvar og Magnús. iIÓLl FASTEIGN ASALA Skipholti 50B, 2. hæð t.v. 511-1600 Við sérhæfum okkur í atvinnuhúsnæði. Hjú okkur er úrvaiið. Guðlaugur Örn Þorsteinsson, rekstrarverkfræðingur og Viðar Kristinsson, sölumaður. L EIGULISTINN Fax 562 2330 ATVINNUHUSN LEIGUMIÐLUN 511-1600 Til leigu Bláu húsin Hagkvæm og eftirsótt ca 100 fm skrifstofueining í bláu húsunum við Suðurfandsbraut. Húsnæðið skiptist í eitt skrifstherb., móttöku, kaffiaðstöðu og opið vinnurými. Hagstæð áhvílandi lán. Bolholt Lrtið og nett ca 88 fm skrifstofu- og lagerrými á 2. hæð í lyftuhúsi til sölu eða leigu. Tilvalið fyrir litla heildsölu eða þjónustufyrirtæki. Verð 3,4 millj. Áhv. 1,3 millj. Suðurgata Ágætt 94 fm rými á jarðh. í miðbæ Rvíkur sem getur nýst undir ýmsa þjónustu. Húsn. skiptist í 3 rými þ.ám. eldhúsaðstöðu. Verð 4,9 millj. Ekkert áhv. Við Hafnarfjarðarhöfn Nánast fullb. 658 fm iðn. og skrifshúsn. á einum besta stað nál. Hafnarfjarðarhöfn. Vinnusalurinn er ca 432 fm með tvennum innkeyrsludyrum og með allt að 6,5 m. lofthæð. Framhluti hússins er 226 fm á tveimur hæðum. Á efri hæð er innr. skrifstrými. en neðri hæðina má nýta undir bæði skrifstofur og verslun. Verð 30,5 millj. Mikið áhv. Hlíðarsmári - Kóp. Um 160 fm verslhúsn. á jarðhæð í nýju húsnæði í Miðjunni. Um er að ræða endaeiningu með glugga á þrjá vegu sem sjást vel frá næriiggjandi umferðargötu. Eignin verður afh. tilb. til innr. Stórhöfði Glæsil. ca 710 fm skrifstofuhúsn. með sérinng. á 2. hæð í þessu sérstaka húsi sem stendur fyrir ofan Gullinbrú. í húsn. eru 20 skrifstherb., góð móttaka, fundarherb. o.fl. Parket. Fallegt útsýni. Húsnæði með sterkt auglýsingagildi, góða aðkomu og næg bílastæði. Áhv. 25 millj. Iðnaðarhúsnæði Um er að ræða ca 1400 fm iðnaðar/lagerrými með 140 fm millilofti. 4 innkeyrsludyr, lofthæð 5,5 m. Einnig er ca 500 fm þriskipt tengibygging með þremur innkeyrsludyrum. Góðir stækkunar- möguleikar fyrir hendi. Útísvæði er stórt og aðkoma að húsinu er góð. Eignin er til sölu/leigu i heild eða í einingum. Viðarhöfði Óinnréttað 340 fm súlulaust skrifstofuhúsnæöi á 3. hæð með 170 fm svölum og frábæru útsýni. Raf- og hitalögn fyrir hendi. Ýmis eignaskipti koma til greina. Mikið áhv. Vagnhöfði Ármúli Mjög snyrtilegt og gott 431 fm iðnaðarhúsn. með góðu útisvæði. Húsnæðið er á tveimur hæðum. Neðri hæð skiptist í vinnusal með stórum innkeyrsludyrum, smávörulager og móttökuskrifstofu. Á efri hæðinni er skrifstofurými, góð starfsmannaaðstaða og lagerrými. Eign sem hentar vel fyrir iðnað eöa heildverslun. Áhv. 4,0 millj. Gerðuberg Hér er um að ræða 600 fm húsnæði, beint á móti F.B. sem getur hentað vel undir ýmiskonar heilsurækt, s.s. nuddstofu, jógastarfsemi, sólbaösstofu eða Erobik eða þ.h. Auðvelt að skipta húsn. í 70-170 fm einingar. Hólmasel Mjög vel staðs. 184 fm verslunarhúsn. sem er að mestu eitt opið rými með tveimur inngöngum. Húsnæði með góða aðkomu og næg bilastæði sem býður upp á mikla möguleika fyrir trausta aðila í verslun eða þjónustu. Ægisgata Um 510 fm skrifstofuhúsn. á 2. og 3. hæð ásamt 456 fm iðnaðar-/lagerhúsnæði í kj. í steinsteyptu húsi nál. Reykjavíkurhöfn. Heildarleiga pr. mán. kr. 440 þús. Tunguháls Ágætlega staðsett verslunarhúsnæði í Breiðholti, alls ca 145 fm sem skiptist í 2 einingar, þar af önnur í útleigu. Mögul. á aö breyta öllu plássinu f íb. Verð 5,8 millj. Vestmannaeyjar Einstaklega vel staðs. húsn. við bryggjukant í Vestmannaeyjum. Húsið er ca 376 fm að grunnfl. með 125 fm millilofti. Tveir vinnusalir með ca 6 m. lofthæð, innkeyrsludyrum, snyrtingu o.fl. Eignin hentar vel fyrir iðnað, t.d. fiskvinnsiu. Til ieigu Skútuvogur Um 185 fm skrifstofuhúsn. á 2. hasð í heild III. Innréttað með dúk á gólfum. Pakgluggi. Tilvalið fyrir lögfræðinga eða endurskoðendur eða aðra þjónustustarfsemi. Frábær staðsetning. Snyrtilegt. Mánaðarleiga 110 þús. Um 458 fm húsnæði á jarðh. í þessu nýja og glæsil. húsi. I hluta húsnæðisins er allt að 7-8 m. lofthæð og innkeyrsludyr sem var upprunalega hannað undir stúdíó. Húsnæði með mikla möguieika. Hús verslunarinnar Gott 528 fm skrifstofuhúsn. á 5. hæð í þessu vel staðsetta og þekkta húsi. Mögul. að skipta húsn. í þrjár einingar. f húsn. eru 25 skrifstherb., móttaka, stórt fundarherb. o.fl. Snyrtilegt og gott húsn. Krókháls Rúml. 3300 fm iðnaðar- og skrifsthúsn. á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er rúml. 2100 fm iðnaðar- og geymsiuhúsn. með þremur innkdyrum og 3ja-7 metra lofthæð. Á efri hasðinni er um 1200 fm skrifstofu- og iðnaðarhúsn. Eignin getur leigst í einu lagi eða smærri einingum. Teikn. á skrifst. Miðbærínn - skrífstofa Um 65 fm skrifsthúsn. á 4. hæð í lyftuhúsi við Laugaveginn. Þrjár lokaðar skrifstofur og lítil kaffiaðstaða. Parket. Mánaðarleiga kr. 40 þús. Hringdu núna - við skoðum strax MAREN JÓNSDÓTTŒ + Maren Jónsdóttir var fædd í Ytri-Vogum í Vopnafirði 7. maí 1901. Hún lést á EIIi- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík og fór útför henn- ar fram frá Hafnarfjarðar- kirkju 19. desember. Mig langar til að minnast ást- kærrar ömmu minnar í fáeinum orðum. Þegar ég hugsa til hennar þá er eitt orð sem kemur upp í hug- ann, þekking. Amma bjó hjá frænku og frænda á Langholtsveginum og þegar ég kom til hennar í heimsókn sem lít- ill strákur var amma alltaf fús til að hlusta á mann og miðla af þekk- ingu sinni. Oft hugsaði ég með mér hvemig gat hún vitað svona mikið? Mamma og pabbi sögðu jafnan á leiðinni heim, nú hún hlustar mikið á útvarp. Og ég sem hélt að það eina í útvarpinu væri hljómlist. Amma gisti stundum hjá okkur í Goðatúninu. Hún var farin að sjá illa á þessum árum en rataði samt alltaf úr herberginu sínu fram í eldhús með rauðu töskuna sína og útvarpið í hendinni. Þar var setið löngum stundum og skeggrætt. Það var hin besta skemmtan að hlusta á hana segja frá. Hvort sem það vora stríðsárin, lífið á Eski- firði eða stjómmál líðandi stundar. Minnist þess hve mamma og amma gátu rökrætt fram og aftur um stjómmál. Þá var nú oft heitt í kolunum, slegið í borðið svona aðeins til áherslu. Ég sá hana ömmu síðasta sumar þá í sumarfríi frá Englandi. Kom með kærustu mína Caroline inn á Grund, þar sem hún dvaldi síðustu árin. Við ræddum um heima og geima en snerist fljótt að Eng- landi. Enska konungsfjölskyldan hafði þá verið mikið í fréttunum. Amma kom nú ekki af fjöllum í þeim efnum og gat sagt þessari ensku heilmikið um hennar eigin drottningu. I leiðinni varð Caroline að orði hve amma vissi mikið og að hún væri aldeilis stórmerkileg kona. Ég gat ekki verið meira sam- mála. Hún amma Maren átti sér engan líkan. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til allra í fjölskyldunni. Sveinn Geirsson. SIGRÍÐUR SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR + Sigríður Sveinbjörnsdóttir fæddist á Þórshöfn á Langanesi 30. maí 1914. Hún lést 18. janúar síðastliðinn á dvalarheimilinu Nausti á Þórs- höfn og fór útför hennar fram frá Raufarhafnarkirkju 25. janúar. Hún amma mín er farin frá okkur eða stutt amma eins og börnin mín voru vön að kalla hana, vegna þess að hún sagðist vera svo stutt að hún bæri ekki nafnið Iangamma. Það var nú ekki ama- legt að koma heim úr skólanum og fá heitt kakó og nýbakaðar pönnukökur sem amma var að baka. Hún amma var búin að vera ekkja í rúm 28 ár. Hún var oft heima hjá foreldrum mínum á vetuma og um hátíðir. Það var oft gaman að fylgjast með henni þegar hún var að taka upp jóla- pakkana sem komu frá bömunum hennar. Þá var það fastur liður þegar við hjónaleysin og bömin vorum að fara norður á mínar heimaslóðir að koma við í Berg- holti og fá sér kaffisopa og bakkelsi og jafnvel að taka hana með okkur til Þórshafnar. Hún amma var mjög barngóð. Það var alveg sama hvar hún var, alltaf voru börnin í kringum hana. Það var nú kannski ekki furða þar sem hún átti 13 böm sjálf og hún kom þeim öllum vel til manns. Hún amma var mjög nægjusöm og aidrei heyrði maður hana kvarta, það var fyrir rúmum tveimur árum að hún fór að kenna sér meins og þá var farið að stunda læknana. En enginn varð batinn. Síðast þegar við sáum gömlu konuna fyrir 5 mánuðum var hún nokkuð hress og talaði um að fara í Bergholt, sem var hennar heimili. Hún dvaldi síðustu 10 mánuðina á dvalarheimilinu Naust á Þórshöfn og var vel hugs- að um hana. Megi minning um góða ömmu verða öðram eins dýrmæt og hún varð mér. Ellý og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.