Morgunblaðið - 26.01.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 39
MINNINGAR
ÁRNÝ MAGNEA
HILMARSDÓTTIR
+ Árný Magnea Hilmarsdóttir
var fædd í Víkum á Skaga
14. mars 1944, en ólst upp á
Hofi í Skagahreppi. Hún lést á
heimili sínu í Hafnarfirði 3. jan-
úar siðastiiðinn og fór útför
hennar fram frá Hafnarfjarð-
arkirkju 10. janúar.
Elsku amma mín.
Ég fékk alltof stutt að njóta
nærveru þinnar. Samt áttum við
margar yndislegar stundir saman,
því þú varst alltaf tilbúin að passa
mig þegar þess þurfti með og þú
tókst alltaf svo hlýlega á móti mér
með þínu fallega brosi.
Mamma og pabbi munu hjálpa
mér að muna alltaf eftir þér því
betri ömmu er ekki hægt að hugsa
sér.
Ég bið Guð að styrkja afa, pabba
og Öllu frænku í þeirra miklu sorg.
Ég veit að vorið kemur,
og veturinn líður senn.
Kvæðið er um konu,
en hvorki um guð né menn.
Hún minnti á kvæði og kossa
og kvöldin björt og löng
og hvíta, fleyga fugla
og ijaðraþyt og söng.
Og svipur hennar sýndi,
hvað sál hennar var góð.
Það hló af ást og æsku,
hið unga villiblóð.
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor.
Því hún var mild og máttug
og minnti á jarðneskt vor.
(Davíð Stefánsson)
Karolína Hilmarsdóttir.
ÞORSTEINN
FRIÐRIKSSON
+ Þorsteinn Friðriksson var
fæddur á Hálsi í Svarfaðar-
dalshreppi í Eyjafirði 9. sept-
ember 1945. Hann lést á Akur-
eyri 18. janúar siðastliðinn og
fór útför hans fram frá Möðru-
vallakirkju í Hörgárdal 25. jan-
úar.
Með þessum orðum Jónasar Hall-
grímssonar langar okkur að minn-
ast Þorsteins Friðrikssonar, sem
lést 18. janúar síðastliðinn.
Sízt vil eg tala um svefn við þig;
þreyttum anda er þægt að blunda
og þannig bíða sælli funda;
það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér, vinur, í fegra heim;
krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
Við þökkum Þorsteini fyrir sam-
starfið og góð kynni á Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins. Aðstand-
endum hans færum við samúðar-
kveðjur.
Samstarfsfólk Rf Akureyri.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
ERFI
DRYKKJLR
Látið okkur annast
erfidrykkjuna.
Fyrstaflokks þjónusta
og veitingar.
Rúmgóð og þœgileg
salarkynni.
Upplýsingar í síma 552-9900
BORGAR
APÓTEK
Álftamýri 1-5
GRAFARVOGS
APÓTEK
Hverafold 1-5
eru opin til kl. 22
"ár
Næturafgreiðsiu
eftir kl. 22 annast
Borgar Apótek
12 • 111 ' A ■■■■ 1
| m nni
Slgurbjörn Skarphéðlntson lg.lt. Þðrður Ingvmson Suðurlandsbraut 46, 2. hæð. 108 Rvík. Gft li E. Útlarsson, Þórður Jðnsson i
Opið hús í dag, sunnudag,
Melhaga 11 frá kl. 15.00 - 17.00
Glæsileg 5 herb. íbúð ca 100 fm (þakfbúð) á 3. hæð í góðu
steinhúsi á einum besta stað í vesturbænum. Mikið endurnýjuð
eign. Suðursvalir. Áhv. ca 3,7 millj. Byggingarsjóður ríkisins. Verð
9,5 millj. Guðlaugur og Ragnhildur taka á móti gestum í dag.
Verið velkomin.
ODDNY STEINUNN
SIG URÐARDÓTTIR
+ Oddný Steinunn Sigurðar-
dóttir fæddist í Reykjavík
9. september 1934. Hún lést á
heimili sínu í Reykjavík 7. jan-
úar síðastliðinn og fór útför
hennar fram 16. janúar.
Nokkrar línur langar mig að setja
á blað um þessa sæmdarkonu, mág-
konu mína Oddnýju Sigurðardóttur.
Við skulum fara svona 30-35 ár
aftur í tímann. Þá bjuggu Oddný
og Jón á Otrateignum og þangað
kom maður oft. „Maður kom við,“
eins og sagt var í þá daga. Þar var
lítið eða ekkert stress og alltaf tími
til að rabba saman. Jón var hættur
á sjónum og kominn í land og byij-
aður að versla. Oddný sá um börn
og bú eins og henni var lagið. Fór
hún ákaflega létt með öll störf,
hvort heldur var innan eða utan
heimilis. Enda var hennar lundarfar
einstakt. Einstök rólegheit Oddnýj-
ar ásamt hennar ljúfa brosi voru
hennar góðu eigir.leikar og leystu
allan vanda. Fólki leið vel í návist
hennar.
Stundum fórum við hjónin út
með Oddnýju og Jóni hér áður fyrr,
á árshátíðir og fleira. Þá vorum við
öll ung og gaman að skemmta sér.
En aldrei var neinu ofgert í þeim
efnum. Einatt kom maður við á
Otrateignum og var Oddný þá ekki
lengi að koma með ilmandi kaffið,
eins og alltaf þegar þau hjónin voru
sótt heim.
Nú fóru tímar að breytast. Þau
fluttu í Austurgerðið og byggðu þar
gott heimili. Heimilið stækkaði,
verslunin stækkaði og börnin uxu
úr grasi. En Oddný breyttist ekk-
ert. Æðruleysi þessarar konu var
einstakt. Þau hjónin fóru talsvert
til sólarlanda á veturna og haustin
og hittum við Katrín þau nokkrum
sinnum í þeim ferðum. Oddnýju
þótti gott að vera á suðrænum slóð-
um. Sól, hiti og eitthvað til að busla
í var hennar yndi. Á sumrin var
það garðurinn heima hjá henni sem
tók við. Þar gerðust góðir hlutir.
Að finna móður jörð milli handa sér
er jú lífsins draumur. En svo fyrir
þremur árum kom sú frétt að Oddný
hefði greinst með vott af krabba-
meini. Allt virtist ganga að óskum
með lækningu og enn kom í ljós
æðruleysi og skilningur Oddnýjar á
að takast á við veikindi sín. En það
dugði ekki til og fyrir nokkrum
mánuðum var sýnt hvert stefndi.
Hún andaðist svo á heimili sínu að
kvöldi 7. þessa mánaðar.
Blessuð sé minning Oddnýjar
Sigurðardóttur.
Guðmundur Júlíusson.
1 J boösdagar! i Púöar - Lampar ' 20 - 30% afsláttur
iittolo pp I Laugavegi 24. FINLAND lVd 1 Vl sími 562 4525
Goti aðgengi er í allar áttir og stutt í þjónustu, skóla
og dagheimiii.
Lóð verður fullfrágengin og hiti verður í stétt. Þetta
er eitt hús meö öllu. Hér þarf engu að bæta við eða
framkvæma áður en flutt er inn. Enginn falinn
kostnaður. Bara lyklarnir og flytja inn. En því miður
eru þetta bara 10 íbúðir svo það er betra að segja
LJ wnÆ.\liÝÆ\l
Okkur langar til að upplýsa þig um eitt best
varðveitta leyndarmálið á bygginga-
markaðnum í dag en ekki segja
neinum!
í Kópavogi við Funalind 15 er
verið að reisa líltið einstakt
fjölbýlishús með 10 Æj
ihiiðiim i.s&Tiiíb mmsm
Frágangur á þessu búsi er
öðruvisi en þu atl aö venjnst
slíkum húsum á íslandi. ;
...... „ ,
Husið er alit klætt að utan með ^
áli. Gluggar eru samsettir ál-og
timburgluggar með 3földu gleri.
Viðhaldspeningarnir þínir fara því í
utanlandsferðir eða annaö það sem þér hentar betur.
Að innan er húsið allt hið vandaðasta. Sameign er
opin. björt og skemmtileg. Allir innveggir eru klæddir
með tvöföldu gipsi og einangraðir með steinull, sem
gefur mjög góða hljóðeinangrun, engin
sprungumyndun og gipsið er dautt efni sem veldur
ekki ofnæmi.
Innréttingar og hurðir eru lir kirsuberjavið og eru
vönduð íslenskt framleiðsla. Sér þvottahús fylgir
hverri íbúð. Baðherbergi er fiísalagt í hólf og gólf.
Þar er einnig að finna vandaða baðinnréttingu, góð
blöndunartæki, já og konur athugið á baðinu er vegg-
hengt klósett sem auðveldar verulega þritin fyrir
karlinn. Skápar eru í öllum herbergjum og í forstofu.
Á gólfi verður vandað gegnheilt parket. íbúðirnar
eru ríkulega búnar sjónvarps-, síma- og
rafmagnstenglum. Vönduð eldunartæki fylgja í eldliúsi.
íbúðirnar eru stærri og rúmbetri en gengur og gerist.
Stórar svalir fylgja íbúöunum á efri hæðum og sér
lóð fylgir íbúðum á jarðhæð.
Staðsetninn er mióswædi!; á hhfnAhnrnaretcpnimi
engum frá þessu, heldur drífa sig beint og festa sér
eina af þessum einstöku íbúðum.
Reykjavíkurvegi 60 - 220 Hafnarfirði
Sími 565-5522 - Fax 565-4744