Morgunblaðið - 26.01.1997, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TTL BLAÐSINS
pað Fie
R.érr.1
ée hsp
of
'ah-í&sj.
o/z J
Grettir
Tommi og Jenni
Smáfólk
Y£5,5IR..1 THINK YOU
50LDME AF0R6ERV..
THI5 15 NOT JOE
5HLAB0TMIK‘5 5I6NATURE
'U
6ET L05T7ÍYOU 5ELL
MEAFAKEAUT06RAPH,
ANO THEN TELL ME
T0 6ET L0ST?'i
OUHAT AM I 60IN6
T0 P0 ABOUT IT?
LET ME INTROPUCE
YOU TO MY LUORLD
FAM0U5 ATTACK 006.
Já, herra ... Ég held að þú
hafir selt mér falsaða
vöru... Þetta er ekki eigin-
handaráritun Jóa Snögga.
Hypja mig! Þú selur mér
falsaða eiginhandarárit-
un og segir mér síðan
að hypja mig?!
Hvað ætla ég að gera
við því?
Leyf mér að kynna þig
fyrir hinum heimsfræga
árásarhundi...
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Tarzan og íslensk
heimspeki
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
„TARZAN er að koma aftur,“ segja
mér tíðindablöð (Mbl. og Alþbl. 17.
og 18. jan.) og þykir mér gott að
heyra. Tarzan var lesinn upp til agna,
á minum æskudögum. Það sem nú
er um að ræða er sýning í Þjóðarbók-
hlöðu á Tarzan-safni Richards Korns,
kontrabassaleikara, og umsögn
tveggja blaðamanna: Sigrúnar
Bjömsdóttur og Gunnars Hersveins,
sem ég vil lítillega gagnrýna. Báðum
mistókst að stafsetja nafn íslenska
jarðfræðingsins dr. Helga Pjeturss,
en hinsvegar vafðist ekki fyrir rithöf-
undinum Edgar Rice Burroughs að
hafa það nafn rétt.
Gaman var að sjá þarna bréfa-
skipti Edgars Rice Burroughs, mrs.
Harriet L. Green, dr. Helga Pjeturss
og nokkurra annarra um kenningu
hins síðastnefnda. Mrs. Green segir
í bréfi til Rice Burroughs frá þessu
máli, en hann þakkar henni fyrir og
segir að þetta sé fögur kenning og
miklu fullkomnari en nokkuð sem
finnisúf Biblíunni. Síðar skrifar hann
einnig dr. Helga og þakkar honum.
„Vildi ég óska að kenning yðar væri
rétt - og þó einkanlega ef ég gæti
í framlífí munað ævi mína hér.“ Þetta
finnst mér gáfulega sagt hjá Edgar
Rice Burroughs. Minningar eru
kjarni lífsins.
Þó nokkuð virðist hafa verið um
það á „millistríðsárunum" að
menntamenn erlendis aðhylltust
kenningu Nýals, enda var þá hugar-
far betra og viturlegra en síðar varð.
Bandarískur kapteinn, C.C. Coffey,
sem löngu síðar varð bréfavinur
minn, mundi eftir að segja mér, rétt
áður en hann dó, frá því sem gerðist
þegar hann kom inn á Reykjavíkur-
höfn, í landgönguliði 1941 eða 2.
Hafði hann orð á því við herlækninn
sem stóð við hlið hans, hvað hann
kynni vel við þennan stað „rétt eins
og ég hefði komi hér áður“. Herlækn-
irinn svaraði: „Þú talar eins og þú
hafir kynnst kenningu dr. Helga
Pjeturss. En það er ekki nóg að kann-
ast við hana; menn verða að skilja
hana og kunna að gera grein fyrir
henni“.
Þannig talaði bandarískur læknir
á leið inn á Reykjavíkurhöfn árið
1941 eða 2.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
OPIÐ HÚS
VESTURBÆR - LÁN
í dag frá kl. 14-18 er þér og þínum boðið að skoða stórglæsilega 3ja-4ra herb.
íbúð á 2. hæð t.h. í nýlegu litlu fjölbýli við Bárugranda 7, Rvík. Vandaðar
innréttingar og tæki. Parket. Suðursvalir. Bílskýli. Áhv. 5 millj. Byggingarsjóður
ríkisins (um 25 þ. á mán.). Ásett verð 9,2 millj.
Fasteignasalan Framtíðin,
sími 511 3030.
Opið ídagfrá kl. 12-14
Vindás 2
Opið hús frá 15-17.
Góð ca 60 fm 2ja herb. íbúð á 3ju hæð.
Glæsilegt útsýni. Bílskýli. fbúðin skiptist í
hol, góða stofu, svalir frá stofu, opið
eldhús með góðum innr. og borðkrók,
rúmgott svefnherb., flísalagt baðherb.
Parket á gólfum. Gott ástand á sameign
og húsi. fbúðin er laus fljótlega. Marta og
Ástvaldur sýna íbúðina. (Ib. nr. 0401)
Suðurhlíðar Kópavogs
Einstök staðsetning
Til sölu efri hæð á þessum einstaka
útstýnisstað við Heiðarhjalla 23. fbúðin er
122 fm og sklptist m.a. í 3 herbergi,
stórar stofur, eldhús og bað. Góðar
suðursvalir. Sérinngangur. fbúðinni fylgir
26 fm bílskúr. Til afhendingar strax.
Tæpl. tilb. undir tréverk. Verð 8,5 millj.
Lyklar á skrifstofu.
Vantar - vantar - vantar
1. 3ja til 4ra herb. nýlega Ibúð í vesturbæ Reykjavíkur,
helst á Gröndum eða úti á Seltjarnarnesi á verðbilinu
7-9 millj.
2. 100 fm 3ja til 4ra herb. íbúð í Foldahverfi í Grafarvogi.
Helst með bílskúr eða bílsgeymslu. Verðhugmynd 8-9
millj.
3. 500 fm atvinnuhúsnæði í Örfirisey fyrir fjársterkan
kaupanda.
Borgir fasteignasala,
Ármúla 1, Reykjavík.
Sími 588 2030, fax 588 2033.