Morgunblaðið - 01.02.1997, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
0
Héraðsdómur dæmir félagsmanni Sleipnis 1 vil í máli gegn VSI
Kjarasamningar breyta ekki
sérstökum ráðningarkjörum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær að Kynnisferðum
hf. hefði verið óheimilt að skerða
bónusgreiðslur til starfsmanna
sinna á móti hækkun kauptaxta í
kjarasamningum árið 1995, sem
höfðu það yfirlýsta markmið að
færa taxtana nær þeim launum sem
tíðkuðust. Formaður Vinnuveit-
endasambands íslands segir að
verði þessi dómur staðfestur í
Hæstarétti sé því slegið föstu að
ekki sé unnt að færa taxta að
greiddu kaupi eins og verkalýðsfé-
iögin geri nú kröfu um. Þessu er
framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bands íslands ósammála.
Dómurinn byggir á, að í eldri
lqarasamningi Bílstjórafélagsins
Sleipnis við Vinnuveitendasamband
Islands, er ákvæði sem segir, að
hafi bifreiðastjóri hærra kaup eða
frekari hlunnindi en samningurinn
ákveði, skuli þau hlunnindi haldast
óbreytt.
Ljóst sé, að með samningsákvæð-
inu hafi kjarasamningi aðildarfélag-
anna aldrei verið ætlað að taka til
sérráðningarkjara einstakra félags-
manna, sem féllu utan kjarasamn-
ings. „Er enda ekki fallizt á að
unnt sé með heildarkjarasamningi
að ógilda samninga sem byggja á
sérstökum ráðningarkjörum, en
falla ekki undir ákvæði heiidar-
kjarasamnings,“ segir í dómnum
sem Sigríður Ólafsdóttir héraðs-
dómari kvað upp.
Yfirvinnutímum fækkað
Málið var höfðað á vegum Sleipn-
is af trúnaðarmanni bflstjóra Kynn-
isferða. Fram kemur í dómum að
bifreiðastjórum fyrirtækisins hafi
um árabil verið greiddur bónus, sem
samsvaraði yfirvinnutímum, ofan á
fast kaup, sem væri hluti ráðning-
arkjara þeirra.
Þessar greiðslur samsvöruðu
yfirvinnutímum og voru lækkaðar
úr sem svaraði 30 tímum í 20 yfir-
vinnutíma eftir kjarasamninga í
maí 1995. Þeir samningar fólu í
sér, að launataxtar voru færðir nær
þeim launum sem tíðkuðust og var
í þeim ákvæði þar sem sagði að
nýju launataxtarnir ættu ekki undir
neinum kringumstæðum að leiða til
hækkunar launa umfram það sem
fælist í samningnum. Þessu töldu
Kynnisferðir sig vera að fara eftir,
þegar yfirborgun bflstjóranna var
lækkuð á móti hækkun kauptaxt-
anna.
Áfrýjað til Ilæstaréttar
Gert er ráð fyrir að VSÍ_ áfrýi
dómnum til Hæstaréttar. Ólafur
B. Ólafsson formaður VSÍ segir að
ef Hæstaréttur staðfesti dóminn sé
því slegið föstu að ekki sé unnt að
færa taxta að greiddu kaupi, eins
og verkalýðsfélögin gera nú kröfu
um.
„Við getum að minnsta kosti
ekki samið um það þvert á niður-
stöðu héraðsdóms og það eins þótt
ég ætli að Hæstiréttur muni breyta
þessari niðurstöðu. Við þessar að-
stæður er auðvitað tilgangslítið að
standa í alvarlegum viðræðum við
forystu verkalýðshreyfingarinnar
um hvemig hægt sé að taka yfir-
borganir og aukagreiðslur sem fé-
lagsmenn þeirra hafa samið um við
félagsmenn okkar og færa þær inn
í kauptaxtana sem við erum að
semja um,“ segir Ólafur.
Ari Skúlason framkvæmdastjóri
Alþýðusambands íslands sagði að
dómurinn gerði greinarmun á per-
sónubundnum ráðningarsamning-
um, sem væru tiltölulega sjaldgæf-
ir, og öðrum yfirborgunum. Því
hefði þessi dómur engin áhrif á
kröfur verkalýðshreyfingarinnar í
yfírstandandi samningum að færa
launataxta að greiddu kaupi.
„Við erum tilbúin til þess að
færa þar undir bónusa og álög sem
eru umsamin í kjarasamningum, en
við ráðum auðvitað ekki við þau
2% af vinnumarkaðnum sem hafa
persónubundna samninga. Það er
mögulega hægt að taka þau þar
inn, en það yrði þá að segja slíkum
persónubundnum samningum upp á
löglegan hátt,“ sagði Ari.
Morgxinblaðið/Ásdís
ÞEGAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að lög-
gæslumyndavélar væru á við marga lögregluþjóna notaði Böðvar
Bragason lögreglustjóri tækifærið og krýndi vélina lögregluhúfu.
Morgunblaðið/Þorkell
BÚIÐ er að setja upp nokkrar myndavélar nú þegar og voru
starfsmenn borgarinnar önnum kafnir í gær við að festa upp skilti
sem veita ökumönnum upplýsingar um hvar slíkt eftirlit er.
Niðurstaða Hæstaréttar um frávísunarkröfu frá LÍÚ
Félagsdómur fjalli
um tonn á móti tonni
Myndað á
rauðu ljósi
DÓMSMÁLARÁÐHERRA og borg-
arstjórinn í Reykjavík afhentu lög-
reglunni í Reykjavík löggæslu-
myndavélar tíl eftirlits með gatna-
mótum í borginni í gær. Kynnt var
nýtt merki, sem mun verða öku-
mönnum til upplýsingar um hvar
slíkt myndavélaeftírlit fer fram.
Reykjavíkurborg hefur þegar
sett upp löggæslumyndavélar til
að fylgjast með akstri yfir ljósa-
stýrð gatnamót, og er verkefnið í
samstarfí við dómsmálaráðuneyt-
ið, lögregluna í Reykjavík og
Umferðarráð.
Kostnaður var greiddur úr
borgarsjóði og úr sérstökum um-
ferðaröryggissjóði á vegum Um-
ferðarráðs.
Myndavélarnar taka myndir
framan á þá bíla sem aka á móti
rauðu ljósi á gatnamótum. Eftir
skoðun á myndunum fá eigendur
þeirra bifreiða sem ekið er inn á
gatnamót gegn rauðu Ijósi, senda
sektartilkynningu frá lögreglu.
Þessi málsmeðferð byggist á lög-
um um meðferð opinberra mála
og umferðarlögum.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfírlögreglu-
þjóns hafa orðið að minnsta kostí
á annað hundrað umferðaróhappa
á ári seinustu misseri, þar sem sá
ökumaður sem olli slysinu ók á
mótí rauðu ljósi. í allt að 40%
þessara slysa hafi orðið meiðsli á
fólki og hafi mörg þeirra verið
rajög alvarleg.
HÆSTIRÉTTUR hefur stciðfest synj-
un Félagsdóms við frávísunarkröfu
Landssambands íslenskra útvegs-
manna í máli sem Farmanna- og fiski-
mannasamband íslands hefur höfðað
til þess að fá viðurkenningu dómsins
á því að svonefnd tonn á móti tonni
viðskipti bijóti gegn kjarasamningi
sjómanna og útgerðarmanna. Hæsti-
réttur hefur áður fallist á frávísun-
arkröfu í öðru máli milli sömu aðila
varðandi sama ágreiningsefni en í
dómi Hæstaréttar frá þvi á fimmtu-
dag kemur fram að þar sem lögmenn
FFSÍ hafi nú bætt í kröfugerð sinni
úr þeim ágöllum sem áður ollu frávís-
un sé ekkert því til fyrirstöðu að Fé-
lagsdómur leggi efnisdóm á málið.
FFSÍ stefnir fyrir hönd Skipstjóra-
og stýrimannafélags Norðlendinga
LIÚ fyrir hönd Útvegsmannafélags
Norðurlands vegna Sæbergs hf. í 01-
afsfirði. Krafan er sú að dæmt verði
að fyrirtækið hafi brotið gegn grein
1.03 í kjarasamningi LÍÚ og yfir-
manna innan FFSÍ með því að leggja
til grundvallar rangt aflaverðmæti við
tilgreiningu heildarskiptaverðmætis.
Hjá Sæbergi komi aðeins til skipta
sá hluti af aflaverðmæti sem greiddur
er með peningum þrátt fyrir að kaup-
andi afla greiði bæði með peningum
og kvóta. Útgerðin fái tvenns konar
greiðslu fyrir landaðan afla; peninga
miðað við magn og hins vegar kvóta
í formi aflamarks þeirrar fisktegund-
ar sem viðskiptin varða.
Sjómannasamband íslands skrifaði
Sæbergi 27. mars 1996 og krafðist
uppgjörs gagnvart sjómönnum miðað
við raunverulegt aflaverðmæti.
Eðlilega ekki jafnhátt verð
LÍÚ svaraði 9. apríl með bréfi þar
sem segir að samkvæmt skilningi
þess teldist það aflamark sem greitt
var fyrir aflann ekki til heildarverð-
mætis afla í skilningi greinar 1.03 í
kjarasamningi aðilanna. Yfirfærsla
aflamarks feli því ekki í sér greiðslu
fyrir afla. Orðrétt sagði í bréfi LÍÚ:
„Um er að ræða að fiskkaupandinn
útvegar útgerð skips og áhöfn viðbót-
arveiðiheimildir til þess að hægt sé
að hajda skipinu lengur til veiða en
ella. Á móti er fiskkaupandinn eðli-
lega ekki reiðubúinn til að greiða
jafnhátt verð fyrir rækjuaflann, sem
hann kaupir eins og hann myndi
gera, ef veitt væri alfarið af eigin
kvóta viðkomandi skips.“
Frávísunarkrafa LIÚ byggðist á
því að máli um sama ágreiningsefni
sjómanna og útgerðarmanna hefði
áður verið vísað frá Hæstarétti. Fé-
lagsdómur hafnaði þeirri kröfu og
Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu
á fimmtudag.
í dómi Hæstaréttar segir að þótt
ágreiningsefnið sé hið sama í þessu
máli og í öðru máli sömu aðila sem
vísað var frá Hæstarétti 15. október
á síðasta ári sé kröfugerð þessa
máls með öðrum og markvissari
hætti en var í fyrra málinu.
í því máli taldi dómurinn að, eins
og krafan var þá sett fram, ágrein-
ingur aðilanna snerist í reynd um
ákvörðun og útreikning á skiptaverð-
mæti. Við úrlausn á þeim ágreiningi
reyndi á túlkun laga um skiptaverð-
mæti og greiðslumiðlun innan sjávar-
útvegsins en verkefni Félagsdóms sé
að dæma í málum sem rísa út af
kærum um brot á kjarassamningi eða
út af ágreiningi um skilning á kjara-
samningi eða gildi hans.
í dómi Hæstaréttar frá því á
fimmtudag segir að FFSÍ krefjist
þess nú að dæmt verði um hvort
Sæberg hafi brotið gegn grein 1.03
í kjarasamningi aðilanna. Sú krafa
verði borin undir Félagsdóm og því
var niðurstaða Félagsdóms frá því
18. desember staðfest og frávísun-
arkröfu LÍÚ hafnað.
Alþýðusamband
Vestfjarða
Krafaum
100.000 í
lágmarks-
laun
ísafirði. Morgfunblaðið.
ÞRIÐJI árangurslausi samn-
ingafundur Alþýðusambands
Vestíjarða og viðsemjenda
þeirra vegna kjarasamninga
almenns verkafólks var hald-
inn fimmtudaginn 30. janúar
sl. í húsakynnum Alþýðusam-
bandsins á ísafirði.
Á fundinum komu ekki
fram tillögur frá vinnuveit-
endum um breytt launafyrir-
komulag í fiskvinnslu, eins og
búist hafði verið við. í stað
þess ræddu vinnuveitendur
um frávik frá núverandi
samningi sem afgreidd yrðu
á hveijum vinnustað fyrir sig,
en frávikin áttu samt ekki að
hafa áhrif til hækkunar launa,
segir í frétt frá ASV. Sam-
komulag varð um að skoða
tillögumar og taka fyrir á
næsta samningafundi sem
ráðgerður er 4. febrúar nk.
Fulltrúar ASV lögðu fram
tillögur á fundinum um hvem-
ig mætti ná fram 100 þúsund
króna lágmarkslaunum í
fímm áföngum á samninga-
tímanum sem er til 1. mars
1999, með tryggingu um að
samningar væra lausir ef aðr-
ir semdu um meiri hækkanir
í krónutölu. Tillaga ASV ger-
ir ráð fyrir að þann 1. janúar
sl. hækki laun um 10.057 kr.
og að lægst laun verði 60.000
kr. á mánuði. Næsta hækkun
yrði 1. júlí nk. eða 10.000 kr.
og þá yrðu lágmarkslaunin
70.000 kr., þriðja hækkunin
yrði 1. janúar 1998, 10.000
kr. og þá yrðu lágmarkslaunin
komin í 80.000 kr. Tíu þúsund
króna hækkun yrði einnig á
launum þann 1. júlí 1998 og
1. janúar 1999 en þá á mark-
inu um 100 þúsund króna lág-
markslaun að vera náð.
Leiðin fyrir
Horn mjög
varasöm
AÐEINS losnaði um hafisinn
sem orðinn var landfastur frá
Rit að Homi í stifri sunnanátt
í fyrrinótt. Síðdegis í dag er
gert ráð fyrir að vindur snúist
til norðurs, sem veldur því að
ísinn færist aftur nær landi,
að sögn Þórs Jakobssonar
veðurfræðings.
Flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SYN, fór í ískönn-
unarflug í gærmorgun. í ljós
kom að meginísjaðarinn var
næstur landi um fjórar sjómíl-
ur norður af Horni og þrjár
sjómílur norður af Kögri og
er ísinn mjög þéttur við jaðar-
inn. Landföst ísröst var við
Straumnes. Einnig var ísfláki
út af Húnaflóa.
Þór segir siglingaleiðina
fyrir Horn ekki ófæra en mjög
varasama, þar sem mikið sé
af stökum jökum á sundinu
milli lands og meginísjaðars-
ins.
Síðdegis í dag er útlit fyrir
að vindur snúist í norðan- eða
norðvestanátt. „Fyrst nú er
von á norðanáttum í einn til
tvo sólarhringa, þá er hætt
við að komi enn meiri ís að
landinu og svo inn í straum-
ana suður Húnaflóa að vest-
anverðu,“ segir Þór.
I
i
I
l
í
i
i
í
C
■
l
II
I
í
4
I
í
U
i
I