Morgunblaðið - 25.02.1997, Page 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Samkeppni um skipulag á Hraunsholti í Garðabæ lokið
TILLAGAN í fyrsta sæti er að mati dómnefndar vel útfærð, byggðin þétt þar sem byggingar og götur falla vel að landinu.
Vel útfært byggðaskipulag
og skýrt samgöngu kerfi í
verðlaunatillögunni
Morgunblaðið/Golli
HÖFUNDAR tillögunnar í fyrsta sæti eru, frá vinstri: Haukur A. Viktorsson, Gestur Ólafsson, Ás-
laug Katrín Aðalsteinsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson sem var ráðgjafi þeirra.
Bæjaryfirvöld í
Garðabæ efndu á síð-
asta ári til samkeppni
um deiliskipulag á
Hraunsholti. Jóhannes
Tómasson kynnti sér
verðlaunatillöguna og
ræddi við skipulagshöf-
unda og bæjarverk-
fræðing Garðabæjar.
NIÐURSTÖÐUR liggja nú
fyrir í samkeppni um
deiliskipulag á Hrauns-
holti í Garðabæ þar sem
ráðgert er að um 1.800 manna
íbúðahverfi rísi á næstu árum.
Þrettán tillögur bárust og voru veitt
þrenn verðlaun en tvær tillögur til
viðbótar voru keyptar. Höfundar
tillögunnar sem hlaut fyrstu verð-
laun, kr. 1.300 þúsund eru: Áslaug
Katrín Aðalsteinsdóttir landslags-
arkitekt, Gestur Ólafsson arkitekt
og skipulagsfræðingur, Haukur A.
Viktorsson arkitekt og Þorsteinn
Þorsteinsson verkfræðingur sem
veitti þeim tæknilega ráðgjöf. Verð-
launatillögumar verða til sýnis að
Garðaflöt 16-18 dagana 28. febrúar
til 6. mars.
Hraunsholt er 48 hektarar að
stærð og markast af Lyngási til
norðvesturs, _ Hafnarfjarðarvegi til
suðausturs, Álftanesvegi og hraun-
brún Garðahrauns í suðvestri og
fyrirhugaðri framlengingu á Vífils-
staðavegi til norðurs og norðvesturs.
Svæðið hallar aðallega til suðurs og
vesturs og er útsýni yfir Amames-
vog til norðurs. Mesta hæð er 39 m
og nær niður fyrir 10 m hæðarlínu.
Markmið keppninnar var að ná góðri
tengingu við aðra hluta bæjarins,
sérstaklega miðbæ Garðabæjar,
góðri aðlögun að núverandi íbúða-
og iðnaðarsvæði hverfisins, tryggja
útsýni og gæta skyldi hagkvæmni
varðandi kostnað í götum og lögn-
um. Skilmálar gerðu og ráð fyrir
500-600 íbúðum og skyldu litlar og
meðalstórar vera um 60% af heildar-
fjölda þeirra, svæði fyrir hjúkranar-
heimili og leikskóla og tengslum al-
menningsvagna inn í hverfíð. Dóm-
nefnd skipuðu Ámi Ólafur Lárusson
viðskiptafræðingur sem var formað-
ur, Jón Guðmundsson fasteignasali,
Sigurður Georgsson skólastjóri og
tilnefndir af Arkitektafélaginu arki-
tektamir Pálmar Kristmundsson og
Vilhjálmur Hjálmarsson. Ritari dóm-
nefndar var Agnar Ástráðsson
byggingafulltrúi og trúnaðarmaður
Eiríkur Bjamason bæjarverkfræð-
ingur.
Sérkennum gefinn gaumur
Dómnefnd mat allar 13 tillögum-
ar hæfar til dóms og laiik hún störf-
um sínum í janúar sl. í greinargerð
hennar segir m.a.: „í öllum tillögun-
um er sérkennum svæðisins gefinn
gaumur, svo sem sérstæðum klapp-
armyndunum, nálægð hraunsins,
landhalla, og háhæð, svo og gæðum
byggingarlandsins með tilliti til legu
og útsýnis, þó með mismunandi
hætti og áherslum. Tengingar
íbúðabyggðar við iðnaðarsvæðið
eru rofnar í þeim öllum, enda þótt
flestar tillögurnar feli í sér mögu-
leika á notkun og tengingum um
núverandi götur, Lyngás og Stór-
ás... Almennt sagt felast í tillögun-
um viðunandi og í sumum þeirra
ágætar lausnir er snerta stígakerfi
um byggðina og tengingar þess við
opin svæði innan hverfisins sem
utan þess. Samspil nýtingar lands
til bygginga og opinna svæða er
vel útfært um leið og þess er yfir-
leitt gætt í tillögunum að mögulegt
verði að veija íbúðabyggð fyrir
umferðarhávaða með fjarlægð
hennar frá aðalumferðargötum
og/eða hljóðmönum.“
Umsögn dómnefndar um tillög-
una sem hlaut fyrstu verðlaun er
svofelld: „Þétt byggð þar sem bygg-
ingar og götur falla vel að landinu.
Tengibraut í jaðri hraunsins er felld
burt þar, en færð ofar og nær miðju
skipulagssvæðisins. Gatnakerfi er
gott og tillögur að frágangi gatna-
móta eru athyglisverðar. Útfærsla
tillögu að gatnamótum Hafnar-
fjarðarvegar og Álftanesvegar er
álitleg. Nýting lands er góð en í
efri mörkum. Fjölbreytni í fjöleign-
arhúsum skortir. Staðarval dvalar-
heimilis og leikskóla innan svæðis-
ins er gott. Hugmynd að heilsu-
ræktarstöð er athyglisverð. Einnig
hugmynd að samskiptamiðstöð,
verslun og fleira innan svæðisins.
Megin einkenni tillögunnar er vel
útfært byggðaskipulag með litlum
sérbýlum, miðlægri þjónustu og
skýra gatnakerfi. Áfangaskipting í
uppbyggingu svæðisins með hlið-
sjón af tengingum er auðveld.
Framsetning tillögunnar er góð og
greinargerð vel unnin en um margt
yfírdrifin."
Skemmtilegt byggingarland
-Hraunsholtið er eitt skemmtileg-
asta byggingarland á öllu höfuð-
borgarsvæðinu vegna nálægðar
þess við hraunið og sjóinn, það er
láglent og hallar örlítið mót suð-
vestri sem þýðir að langflestar lóð-
irnar í tillögu okkar fá suður eða
suðvestur-lóðir sem vita vel við sól
og birtu, segja skipulagshöfundar
verðlaunatillögunnar í samtali við
Morgunblaðið. -Þetta reyndum við
að nýta okkur í tillögugerðinni og
tókum jafnframt mið af þeirri þróun
að vinnutími fólks styttist, margir
vinna æ meira heima og fólk lætur
af störfum yngra en áður. Þetta
gerir þær kröfur til íbúðarhverfis
að það sé vistvænt og mengunar-
snautt og hentar vel fólki á öllum
aldri. Við höfðum líka í huga að
skipulagið væri nægilega sveigjan-
legt til að taka mið af óskum bæjar-
félagsins og væntanlegra íbúa um
fjölbreytni í skipulagi og húsagerð.
Gert er ráð fýrir að 570 íbúðir
verði reistar í hverfinu en 80 íbúðir
eru þar fyrir og verður íbúafjöldi
þá kringum 2.400 manns sam-
kvæmt verðlaunatillögunni en aðal-
skipulagið gerir ráð fyrir heldur
færri íbúum í hverri íbúð og að
heildaríbúafjöldi hverfísins verði
kringum 1.800 manns. Lögð er
áhersla á að íbúðabyggð sé felld
vel að landslagi, hún sé tiltölulega
þétt eins til tveggja hæða blanda
af einbýlis-, rað- og parhúsum.
Þá er gert ráð fyrir að íbúar hverf-
isins þurfi að mestu að sækja skóla
og verslanir utan þess, enda tenging
góð við miðbæ Garðabæjar en í
1
€
‘1
€
€
<
5
(
(
<
<
<
<
i