Morgunblaðið - 09.03.1997, Page 2
2 F SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
EFNI
Uppruni fermingarinnar,
rætt við dr. Sigurbjörn
Einarsson, biskup /4
Fermingarfrædsla,
rætt við sóknarpresta og fermingarbörn
í Grafarvogi /6
Könnun
á viðhorfi fermingarbarna /12
Töflur
úr viðhorfskönnun fermingarbarna
/12,13,15,18,32,35
Blómaskreytingar
Einfaldar borðskreytingar /14
Fermingarbörn
á landsbyggðinni /16
Fermingarbörn
í útlöndum /16/18
Hártíska
fermingarbarna /20
Fatatíska
fermingarbarna /22
Kökur
í veisluna /26/32
Hladborð
með fjölbreyttum réttum /28 /30
Fermingarbörn
frá ýmsum tímum /34
Gamlar
fermingarmyndir /38
Skart
í fermingargjöf /30
Höfundar effnis:
Aðalheiður Högnadóttir, Sigrún Sveinbjörnsdóttir,
Guðrún Vala Elísdóttir, Karl A. Sigurgeirsson, Kristján
Kristjánsson, SigurjónJ. Sigurðsson, Anna
Bjarnadóttir, Sigrún Davíðsdóttir, Brynja Tomer,
Jóhanna Kristjónsdóttir
Útlitshönnun:
Helga Sigr. Þórarinsdóttir
Umbrot:
Þorsteinn Þröstur Jakobsson
Kortagerð:
Guðmundur Ó. Ingvarsson
Ljósmyndir:
Anna Bjarnadóttir, Arni Sæberg, Asdís Asgeirs-
dóttir, Karl Sigurgeirsson.Kjartan Þorbjörnsson,
Kristinn lngvarsson,Kristján Kristjánsson.Sigrún
Sveinbjörnsdóttir, SigurjónJ. Sigurðsson,Þorkell
Þorkelsson o.fl.
FERMINGIN
Senn líður að því að fermingarbömin gangi upp að altarinu og heiti
því að gera Jesúm Krist að leiðtoga lífs síns. Fermingin er vitaskuld
fyrst og fremst staðfesting skírnarheitisins og því skyldi ekki gleymt. Eins
og fram kemur í viðtali við dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, á fermingin
sér langa sögu og allar götur til frumkristni.
Fermingin hefur löngun verið tímamótaatburður í lífi fermingarbarnsins;
mörgum finnst að nú hafi þau ekki aðeins staðfest skírnarheitið sem for-
eldrar þeirra gáfu heldur séu þau og að nálgast það að vera tekin í full-
orðinna manna tölu.
Við timamót særnir að gera sér glaðan dag og í gömlum sem nýjum
frásögnum kemur fram að flestir gera sér á einn eða annan hátt eitthvað
til hátíðabrigða þennan dag með fjölskyldu og vinum í tilefni fermingar-
innar. Og þó tímar hafi breyst blívur sú staðreynd að góð minning ferm-
ingarfræðslunnar og fermingardagsins situr í huga flestra alla ævi.
Þá hittast oft ættingjar og fjölskylda sem sést ekki oft endranær og því
er þessi atburður líka til þess fallinn að styrkja og efla
|| fjölskyldutengslin. Margir virðast standa í þeirri trú
að fermingarbörnin sjálf séu lítt áfram um þessi fjöl-
skyldumót en annað kemur á daginn.
Bæði í skoðanakönnun um viðhorf fermingar-
barna og í viðtölum við þau hér í blaðinu má
sjá að börnin hlakka yfirleitt mikið til að hitta
ættingja í veislunni að fermingu lokinni.
Einn drengjana tók svo djúpt í árinni að hann
hlakkaði mest til að láta ferma sig því hann
mundi þá hitta aldraðan afa sinn sem byggi í
öðrum landshluta.
Við tímamót er við hæfi að gera sér glaðan
dag og færa fermingarbarninu gjafir. Margir
eru þeir sem staðhæfa að börn nú um stundir
láti eingöngu ferma sig gjafanna vegna.
Það sjónarmið er dregið í efa en á hitt
að líta að fullorðnir verða vitanlega að
s ganga á undan unglingunum með
góðu fordæmi og sýna þar hóf í hverj-
um hlut. Við höfum reynt að hafa þetta
fermingarblað sem fjölbreyttast, sinna kristi-
legri þungamiðju þessara tímamóta, huga að
afstöðu fermingarbarna, birta uppskriftir að
gómsætum veitingum í veisluna skreyting-
um, fatnaði og allt mögulegt fleira. Við von-
um að lesendur hafi gagn og gaman að.
Brynja Tomer
Jóhanna Kristjónsdóttir
y
i
I
i
i
i
\
I
I
I
6
I
i
t
I
f
t
I