Morgunblaðið - 09.03.1997, Side 39

Morgunblaðið - 09.03.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 F 39 * 1 I i I i 3 I j I i i < < < < < < < ( < ( < < Hringar úr gulli eða silfri með litudum steinum, yfir- leitt mjög fín- gert skart Fíngerðir steinhringar úr gulli eða silfri er það sem fermingarstúlkur vilja FLESTUM hugnast vel að gefa fermingarbörnum, einkum stúlkunum, skartgripi í ferm- ingargjöf. Þær gjafir fylgja tísku sem vill breytast á nokk- urra ára bili. Mörg fermingar- börn bera kross við ferminguna og eru það oftast fíngerðir gull- krossar en allt er til í því efni og sumar stúlkur og sumir pilt- ar bera stóra silfurkrossa. Elsta skartgripaverslun Reykjavíkur mun vera Skart- gripaverslun Jóns Sigmunds- sonar, hún tók til starfa 1904 og þar stýra nú för Símon Ragnarsson sem er barnabarn Jóns og kona hans Halldóra Arthursdóttir. Símon sagði að það sem virt- ist eftirsóknarverðast nú væru fíngerðir gullhringar með lituð- um steinum, svo sem rúbín, sir- konía eða blóðsteini. Einnig væru hálsmen með steini mikið keypt fyrir stúlkur. Hvað varð- ar piltana væru þeim oft gefnir hringar en þeir væru stærri en þeir sem stúlkurnar fá. Sömu- leiðis vildu strákarnir armbönd með ágröfnu nafninu sínu. Hjálmar Torfason opnaði sína verslun fyrir 35 árum. Son- ur hans, Torfi Hjálmarsson, er nú að taka við henni. Torfi sagði að mest væri óskað eftir hringum. Þeir væru að lang- mestu leyti með handsmíðaða hringa og nú væri spurt meira eftir silfurhringum og þeir væru stærri en áður. Yfirleitt eru þeir með steinum, svo sem svörtum onyx eða blóðsteini sem er silfurgrár að lit og túr- malín sem er grænn og bleikur. Torfi sagði að íslenskir stein- ar í hringa sæktu á, þar á með- al agat. Hann sagði að gull- hringir með perlu væru að koma aftur til skjalanna. Strák- arnir skörtuðu ekki jafn miklu og stúlkurnar en skyrtuhnapp- ar væru alltaf klassísk gjöf handa þeim. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.