Morgunblaðið - 09.03.1997, Síða 17

Morgunblaðið - 09.03.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 F 17 aður en svo var þetta allt í lagi.“ Það var undurfagurt sumarkvöld en Þórir Baldvin man ekkert eftir því. „Ég man best eftir athöfninni í kirkjunni - kirkjan var svo lítil - og að öll fjölskyldan var saman komin.“ Honum fannst kaffísam- kvæmið á eftir í Viðeyjarstofu þó ekkert sérstakt. „Ég er ekki mikið fyrir svoleiðis." Hann er fæddur og uppalinn í Brussel. Hann gengur í skóla sem kaþólska kirkjan rekur og hefur fengið kristinfræðikennslu. Honum fannst sjálfsagt að láta ferma sig. „Ef maður trúir á Guð þá lætur maður ferma sig,“ sagði hann. Gjaf- irnar komu ekki að sök. „Ég gat keypt mér fínan rafmagnsgítar fyr- ir peningana sem ég fékk og er búinn að spila á tónleikum og er að fara að taka upp í stúdíói með hljómsveitinni sem ég er í.“ Séra Þórir Stephensen fermdi Þóri Baldvin. Systir hans verður fermd í sumar. Hún hefur þegar lært trúaijátninguna. Hún vill endi- lega að kona fermi sig og séra Solveig Lára Guðmundsdóttir hefur fallist á að gera það. Þórir Baldvin hitti séra Þóri fjórum sinnum fyrir ferminguna. „Hann útskýrði fyrir mér út á hvað fermingin gengur og benti á muninn á lúterskri og kaþólskri trú af því að ég hafði lært um þá kaþólsku í skólanum." GUÐNÝ Harpa Henrýsdóttir öðruvísi að fermast einn og maður fær kannski meiri at- hygli. Við ráðgerum að halda norður nokkru fyrr og hefja undirbúning. Sunnudaginn 29. júní verð ég fermd og á eftir er kaffiboð í samkomuhúsinu á staðnum. Daginn eftir er ráðgert að ganga að Horni en • þangað rakti móðuramma mín, Guðný Stígsdóttir ættir sínar.“ Guðný Harpa sagðist eiga von á um fjörutíu gestum í fermingarveisluna ojg væru það skyldmenni frá Isafirði og Reykjavík. „Þá bjóðum við öll- um þeim sem verða í Aðalvík á þessum tíma svo fermingar- veislan mín verður ekkert fá- mennari þótt hún verði haldin á svo afviknum stað,“ sagði Guðný Harpa Henrýsdóttir. hafa fermst og var það mjög gam- an. Hjá mér verður kökuveisla eins og hjá þeim og verða nokkrar kök- ur alveg samskonar. Ég veit hvað ég fæ frá foreldrum mínum en annað ekki og var ég að enda við að skrifa niður hvað mig langar helst í t.d myndavél, lampa og svoleiðis dót. Ég hlakka mjög mikið til ferm- ingardagsins því ég held að þetta sé mjög skemmtileg reynsla, ég myndi ekki vilja sleppa henni. Ég var að velja mér setningu úr bibl- íunni fyrir daginn og tók ég þá sömu og systkini mín gerðu, Vertu trúr allt til dauðans, og Guð mun gefa þér lífsins kórónu," sagði Sig- rún og í þessum töluðu orðum ljóm- aði hún af spenningi og eftirvænt- ingu yfir fermingardeginum sínum. KAÞÓLSK STÚLKA í SVISS Fyrsta altarisgangan NÍNA Kristín Specker á ekki að fermast í vor heldur ganga í fyrsta sinn til altaris. Kaþólsk börn gera það níu ára gömul og eru síðan fermd nokkrum árum seinna. Hún hefur sótt kristinfræðitíma einu sinni í viku til að undirbúa altaris- gönguna í tæp tvö ár. „Það er mjög gaman. Nunnan segir okkur sögur um Jesúm Krist, við föndrum og syngjum. Mér finnst gaman að hitta hina krakkana og vera með þeim.“ Alex Specker, faðir Nínu Kristínar, er kaþólskur en móð- irin Sigríður Bryiyólfsdóttir ís- lensk. „Ef við byggjum á ís- landi hefði Nína verið fermd að lúterskum sið,“ sagði hún. Tvö eldri börn hennar voru fermd í mótmælendakirkju í ZUrich. „Það var miklu minna tilstand í kringum það en tíðk- ast heima,“ sagði hún. „Við fór- um með nánustu vinum og ætt- ingjum út að borða og krakk- arnir fengu gagnlegar gjafir frá foreldrum og guðforeld- rum.“ í svörtum flauelskjól Nína Kristín ætlar að vera í svörtum flauelskjól undir hvíta kyrtlinum þegar hún gengur til altaris 4. maí. Hún fær blóm- sveig í hárið og verður með skírnarkertið sitt. Hún fékk það frá prestinum sem skírði hana. Það er langt, hvítt kerti með rauðu og silfurlituðu skrauti. Hún má kveikja á því í fyrsta sinn við altarisgönguna og síð- an aftur við ferminguna. Eftir athöfn í kirkjunni verð- ur farið út að borða með þeim nánustu í Sviss og frá íslandi. Nína Kristín fær væntanlega gjafir frá foreldrum sínum og guðforeldrum og hún getur byijað að hlakka til ferming- arinnar eftir nokkur ár. Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir NÍNA Kristín með pabba sínum, Alex Specker. NÍNA Kristín ætlar að vera í þessum kjól undir hvíta kyrtl- inum þegar hún gengur í fyrsta sinn til altaris og má kveikja á skirnarkertinu sínu. FRÍAR BREYTINGAR Á FERMINGARFATNAÐI. ATH. SÉRSAUMUM. Sendum í póstkröfu Meiriháttar fjerm' Strákar.. Jakki 9.900 Buxur 4.900 Vesti 3.900 Skyrta 2.900 Bindi 1.900 Hátíðarfatnaður: (vesti og buxur) 10.900 Skyrta m. klút 4.900 Næla 1.500 ...stelpur Kjólar, velúr, stuttir með kínakraga 6.900 Litir: Blált, vínrautt. fjólublátt, grænt, svart. Ný kjótasending. Kjólar síðir með kínakraga 8.900 Litir: Btátt, vínrautt, fjólublátt, grænt, svart. Jakkar 7.900 Velúrbuxur 4.900 Krossar 1.200 Skór 3.500/3.900, ný sending af Destroy sandöium. Kjólar, pits, dragtir, toppar. Latigavegi. sími 5111717. Kringlunni, s. 568 9017

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.