Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 F SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 ANITA JÓNSDÓTTIR Fermingarbam 1983 ANITA Jónsdóttir var fermd í Selfosskirkju 8. maí 1983 og gerði það sr. Sigurður Sigurðarson og vígslubiskup Sig- urður Pálsson sat í kór. Fermt var tvisvar þennan dag og var Anita í seinni hópnum og segir að ferming- arbömin þá hafi verið um 20. „Við vorum í kyrtlum en flest fengu ný föt og það var amma mín sem saumaði Iqolinn minn. Hann var úr hvítu blúnduefni og ljómandi fallegur. Ég var í honum þennan dag og tveimur árum síðar þegar systir mín fermdist og líklega ekki oftar. Frá því ég var sex ára hafði ég safnað hári svo ég var orðin mjög hárprúð. Öndvert við margar stelp- ur sem láta klippa sig strax eftir ferminguna gerði ég það ekki fyrr en fjórum ámm seinna. Mér fannst verða tímamót Ég gerði mér ekki glögga grein fyrir því hvort ég fermdist af trúar- þörf en mér fannst fermingarundir- búningurinn góður, hvort við lærð- um einhver ósköp fyrir utan trúar- játninguna er ég ekki viss um. Mér fannst verða tímamót en ég held ekki að ég hafi ígrundað trúarlegu hliðina sérstaklega. En ég sótti kirkju reglulega næstu ár á eftir svo ég hlýt að hafa fundið þörf fyrir það. Ég kveið athöfninni og sér í lagi því að ganga til altaris, mér fannst fráhrindandi að bragða á messuvíni og borða hold Jesú ... Ég var fyrst í stafrófinu og var því fermd fyrst og reyndi að bera mig virðulega en það vom smáærsl í krökkunum og sumir fengu hláturskast af „nervös- iteti". Mér leið mjög vel þegar sr. Sig- urður var að ferma mig og man hvað hann lagði höndina þétt á höfuðið á mér og var ekkert að hugsa út í hvort hann aflagaði mína fínu greiðslu. Fékk meðal annars biblíu og sjö Iampa Það var haldin veisla í Tryggva- skála og boðið um 80 manns, afi minn Guðmundur Finnbogason sem var kokkur, sá um matargerðina ásamt mömmu og fleirum. Fyrst var matur, svínakjöt, kjúklingar, hangikjöt og hvaðeina og tertur og kransakaka seinna um daginn. ANITA Jónsdóttir Fermingardag- urinn var skemmtilegur en skrítið að vera miðpunkt- ur athyglinnar Svo var önnur veisla daginn eftir fyrir vini foreldra minna og kunn- ingja mína og var ekki síður gaman þá.. Ég man eftir mörgum góðum fermingargjöfum, frá foreldrum og systkinum mömmu og afa og ömmu fékk ég græjur, biblíu frá föðurafa og ömmu, Passíusálmana áritaða, úr frá systkinum pabba, skartgripa- kassa og heilmikið af skartgripum og hvorki meira né minna en sjö lampa! Allmargir gáfu mér peninga og fyrir það keypti ég mér hjól. Mér fannst fermingardagurinn skemmtilegur og merkilegt að vera miðpunktur athyglinnar. Ég get ekki borið á móti því að mér fannst til um að allt þetta fólk skyldi vera komið þama mín vegna. Það miðaðist margt við ferming- una, þá gat maður sótt um störf sem hefði áður verið óhugsandi. Maður var ekki orðinn fullorðinn en lagður af stað í áttina til fullorð- inslandsins." Unglingaferðir á Hornstrandir Fimm daga bakpokaferö fyrir unglinga á Hornstrandir með þaulvönum fararstjóra. Gengið á Hornbjarg og Hælavíkurbjarg sem eru tvær af stærri sjófuglabyggðum landsins og fuglalífið skoðað. Kennd notkun áttavita og landakorts. Kvöldvökur, varðeldur og grillveisla. Verð kr. 19.500. Innifaldar er bátsferðir, leiðsögn og fæði. Með flugi til og frá ísafirði með Flugleiðum kr. 27.000. Allar frekari upplýsingar: VESTURFERÐIR, ÍSAFIRÐI, sími 456-5111, fax 456-5185. STELLA JÓHANNSDÓTTIR Fermingarbam 1952 STELLA Jóhannsdótt- ir var fermd í gömlu Hallgrímskirkjukap- ellunni vorið 1952 af séra Jakobi Jónssyni. Hún er ættuð frá Gunnólfsvík og hafði verið send suður í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar. Síðan var ætlunin að hún fengi fermingar- fræðslu hér en héldi síðan lUlér þótti vænst um sálmabók- ina frá ömmu minni heim um vorið og yrði fermd á Skeggjastöðum í sinpi heima- byggð. „En þá kviknaði í Gunnólfsvík og bærinn brann til kaldra kola. Faðir minn, stjúpa og 10 systkini stóðu upp heimilislaus og allslaus en menn og skepnur björguðust. Húsbruni heimilisins breytti fermingarstaðnum Eftir þennan atburð kom ekki til mála að ég færi norður og var ákveðið að sr. Jakob fermdi mig. Fjölskyldunni var dreift á næstu bæi um hríð en síðan keypti faðir minn eyði- býlið Hafnir og þar bjó fjöl- skyldan uns byggt hafði verið aftur upp í Gunnólfsvík. Ég hafði engan áhuga á trú- málum en mér likaði ágætlega í fermingarundirbúningnum. Sr. Jakob var skemmtilegur karl og kröfuharður við okkur og lét okkur lesa Veginn sem hann hafði samið. Hann tók hátíðlega að búa börnin undir ferminguna og ég held að við höfum öll hugsað vel til hans eftir þessi kynni. Með pappírspoka við athöfnina Hér í bænum bjó ég þjá föðurbróður mínum og konu hans og þau höfðu ákveðið að efna til smákaffiboðs vegna fermingarinnar. En á ferming- GÍSLIG. Þorgeirsson GÍSLIG. ÞORGEIRSSON Fermingarbam 1996 GÍSLI Galdur Þorgeirsson var fermdur í apríl 1996 af prestunum í Hallgríms- kirkju sr. Karli Sigurbjömssyni og sr. Ragnari Fjalari Lámssyni. Hann segist hafa viljað fermast til að staðfesta trúnað sinn við guð. Æ9) SILFURBUÐIN Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066 - Þar fœröu gjöfina - „Ég er trúaður en ég trúi ekki á guð sem lítur út eins og gamall maður, heldur trúi ég að guð sé gott afl inni í hveijum og einum manni," segir hann og bætir við að margir krakkanna hafi fermst aðeins vegna gjafa en hann haldi að meirihluti þeirra hafi tekið fermingarundirbúninginn og ferminguna alvarlega. Mér þótti mjög gaman að fá alla þessa gesti í veisluna „Mér finnst ekkert að því að segja að auðvitað er gaman að fá gjafir og að manni sé haldin veisla. Fermingarfötin mín vom rauður jakki sem ég átti og svo fékk ég gráar buxur. Ég var fermdur klukkan tvö og síðan var veisla í gamla Stýri- mannaskólanum, þar vom 30-40 manns og mér fannst mjög gaman að hitta gestina mína og þótti vænt um að þeir komu. Það vom kökur og brauð og alls konar kræsingar á borðum, og fjölskyld- an hjálpaðist við að undirbúa Eg trúi að guð sé gott afl inni í hverjum og einum manni þetta. Ég var hafður með í ráðum um þetta allt og ég réð því til dæmis að það var kransakaka af því mér þykir hún mjög góð. Fékk ferð til Amsterdam og fannst hún ævintýri í veislunni hélt fósturpabbi minn ræðu og svo var spjallað saman og borðaðar kræsingar og ég vona að allir hafi skemmt sér. Ég fékk margar góðar gjafir, ferð til Amsterdam frá mömmu minni, hljómborð og græjur frá pabba, fósturpabba og systur minni, útivistarföt frá fjölskyldu pabba, bækur og peninga og ótal margt fleira. Eg lagði mestalla peningana inn því ég fékk svo margt af því sem ég óskaði mér. Við mamma fórum í fermingar- ferðina um miðjan ágúst og mér finnst Amsterdam sérstaklega fal- leg borg. Við skoðuðum okkur um, sáum meðal annars van Gough safnið og hús Önnu Frank og margt fleira. Ég hafði lesið bókina um Önnu Frank og varð undrandi þegar við komum mér fannst ótrúlegt að ekki hefði komist upp um þau fyrr því þetta var miklu meira pláss en ég hafði ímyndað mér. Einnig fórum við yfir til Belgíu og mér fannst þetta rosalega skemmtilegt og ég sá svo margt nýtt og von- ast til að komast aftur til Amsterd- am seinna. Hvort mér finnist ég hafa full- orðnast við að fermast? Ég held nú að það sé úrelt spakmæli að maður sé þar með kominn í fullorð- inna tölu. Maður eldist og þrosk- ast með árunum en ekki á einum degi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.