Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 20
20 F SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ + Salon VEH Náttúrulegt NÁTTÚRULEGUR háralitur er látínn njóta sín í fermingarhár- greiðslum hjá Salon VEH og er einfaldleikinn látínn vera í fyrir- rúmi. Kristín Stefánsdóttir annaðist klippingu og hárgreiðslu Ólafs Víðis, Brynhildur Hauksdóttir klipptí Eddu Björk og greiddi henni, og Kristín Péttursdóttír annaðist klippingu og hárgreiðslu Ásu. ÁSA Hjörleifsdóttir hefur brúnt hár og tíl að auka gljáa enn frekar var skol í hlýlegum brúnum tón sett í hár hennar. Pípu- hreinsarar voru notaðir í staðinn fyrir spennur og blóm. EDDA Björk Gunnarsdóttír hefur sítt hár, sem greitt er í anda 7. áratugarins. Hár sett upp að aftan og nokkrir lokkar spenntír upp. Síðir lokkar meðfram andliti undirstrika einfaldleikann. HÁR- OG RAKARASTOFUR Á HÓTEL SÖGU Látlaus SIGRÚN Kristín Ægisdóttír, eigandi hárgreiðslustofunnar á Hótel Sögu, greiddi Eygló og Önnu Lilju. Hárskraut bjó hún til sjálf úr silkiblómum. „Þetta eru látlausar greiðslur, eins og fermingarstúlk- ur vilja hafa þær núna,“ segir hún. Halldór Helgason, eigandi rakara- stofunnar á Hótel Sögu, segir að ef hann væri sjálfur að fermast núna vildi hann vera klipptur eins og módelið hans, Diðrik Steinsson. EYGLÓ Árnadóttir hefur dökkt hár niður fyrir eyru. Tveir tíkar- spenar bundnir í hálfan hnút og hvít silkilaufblöð fest við. Hár er blásið út að neðan og nokkrir lokkar krullaðir með vöfflujárni. ANNA Lilja Másdóttir hefur sítt ljóst hár. Toppur er festur með skrautspennu. Helmingur hárs er tekinn í tagl og hnútur gerð- ur. Tagli er síðan skipt í 4 lokka, sem krullaðir eru með vöfflujárni. Morgunblaðið/Þorkell ÓLAFUR Víðir Ólafsson er með ljóst hár, en ljósi liturinn var skerptur með strípum. Gel og fita var borin í hár Ólafs og snúið upp á endana til að fá lyftingu og láta hárið líta út fyrir að vera blautt. Klippingin er klassísk stutt herraklipping. Morgunblaðið/Þorkell ÁSGRÍMUR Ásmundsson hefur ljóst hár, en ljósar strípur voru settar í lokk í toppnum, samkvæmt nýjustu tísku. Klippingin er fremur gróf og í hárið er borin fita og gel til að ná fram grófri áferð og til að undirstrika eðli klippingarinnar. Hárgreiðsla og klipping HÁRGREIÐSLA og klipping eru hluti af því sem huga þarf að í tengslum við ferm- ingar. Hárgreiðslufólk á fjórum stofum í Reykjavík var beðið að sýna dæmi um fermingargreiðslur sem falla að tískustraumum í ár og höfða til unga fólksins.Þetta eru Salon VEH, Hárgreiðslu- og rakarastofurnar á Hótel Sögu, Gríma hárstofa og Jói og félagar. Almennt má segja um fermingargreiðslur í ár að þær séu fremur látlausar, lítið er um slöngulokka og mikið hárskraut, en náttúruleg fegurð hársins fremur látin njóta sín. Drengir eru ýmist með stutt hár eða sítt og er klipp- ing þeirra síðhærðu svolítið í anda gömlu Bítlatískunnar. Hárgreiðslufólk leggur á það áherslu að fermingarbörn láti klippa hár sitt 10-14 dögum fyrir fermingu því með því móti er auðveldara að greiða hárið og laga til á skömmum tíma daginn sem fermt er. Sömuleiðis er mælt með því að skol eða strípur séu settar í hár 10-14 dögum fyrir fermingu, svo hárið nái að jafna sig áður en stóra stund- in rennur upp. Sumt hárgreiðslufólk kýs að fá fermingarbörn, sérstaklega stúlkurnar, í svokallaða prufugreiðslu, sem stundum mun vera innifalin í verði. Þá hefur fagfólk tök á að æfa handtökin og fermingarbörnin fá tækifæri til að venjast greiðslunni. Morgunblaðið/Þorkell DIÐRIK Steinsson hefur verið að safna hári og hár- toppi síðustu mánuði. Nú, í tilefni fermingar, var hárið klippt lítillega í örfínar styttur. Náttúruleg fegurð hársins er látín njóta sín í þessari klippingu sem óneitanlega minnir svolitíð á bítlatískuna. Morgunblaðið/Þorkell INGVAR Helgi Kristjánsson er með dökkskollitað hár, klippt í styttur með skýrum en þó með ójöfnum útlínum. Þá voru settar örfínar gylltar strípur tíl að klippingin nyti sín. Hárið er blásið og skipt í lokka að framan. Það er þurrkað og gel og fíta borin í hárið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.