Morgunblaðið - 09.03.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 F 31
Skerið skötuselinn í litla bita og
bakið hann í ofni, þar til hann er
hlaupinn saman. Látið kólna í soð-
inu. Hreinsið fennelhnýðin og sker-
ið í litla bita. Þvoið gúrkurnar og
skerið þær í litla bita. Blandið
fiskinum ásamt soðinu, fennel,
gúrkum og rækjum saman og setj-
ið í form eða fat og þjappið örlítið.
Hellið fljótandi hlaupinu yfirfisk-
blönduna. Það er erfitt að segja
nákvæmlega hvað þarf af hlaup-
inu, en það á að fljóta yfir fisk-
blönduna. Látið hlaupið kólna í
kæliskápnum.
Léttsaitað lambalæri
með einiberjum
Lambakjötið er léttsaltað og síð-
an bakað í ofni með einiberjum.
Árangurinn er bragðmikið kjöt með
skemmtilegri áferð. Hæg steiking
á að tryggja að kjötið þorni ekki.
Ferlið tekur sinn tíma, en það er
hægt að Ijúka söltuninni degi áður
en kjötið er matreitt og taka það
úr pæklinum þá. Kjötið getið þið
steikt daginn áður en það er borið
fram og brugðið því í kæliskápinn
yfir nóttina. Sneiðið það sama dag
og þess er neytt.
2 væn lambalæri, um
___________2,5 kg hvort__________
______________i dl sykur_________
___________2 dl gróft salt_______
Blandið sykri og solti, núið
kjötinu með blöndunni oq látið
standa í kæliskáp yfir nótt.
______________10 I vatn__________
___________15 dl qróft salt______
___________6 dl púðursykur_______
___________30 piparkorn__________
______________30 einiber_________
________3 msk þurrkað timjan_____
4 lárviðarlauf
Hitið vatnið ásamt öllu hinu, lát-
ið pækilinn sjóða í um 30 mín. og
kælið hann síðan. Leggið kjötið í
kaldan löginn og gætið þess að
það sé á kafi. Til þess að svo sé
þurfið þið vísast að leggja farg
ofan á. Látið kjötið liggja í pæklin-
um í tvo sólarhringa. Takið kjötið
úr pæklinum og látið það standa
við stofuhita í 1-2 klst. Hitið ofn í
100 gráður.
______________1 dl einiber_________
1 msk heil pipgrkorn
5 lárviðarlauf
Grófsteytið kryddið. Leggið
hvort læri á álpappír, jafnið krydd-
inu yfir og pakkið því inn í álpappír-
inn. Setjið kjötið á grind inn í ofn
og bakið í 2 1/2 klst. Snúið því við
þegar tíminn er hálfnaður.
Takið kjötið út, setjið ofninn á
hæsta hita og grill, opnið pappírinn
og steikið kjötið tíu mínútur á
hvorri hlið. Slökkvið á ofninum,
lokið honum og látið kjötið standa
í um 15 mín. og jafna sig. Takið
það síðan út úr ofninum og látið
það kólna, áður en það er skorið
í þunnar sneiðar. Kryddið skrapið
þið að mestu af, áður en það er
sneitt.
Kartöflusalat með
kapers og sellerfi
Hér ríður á að verða sér úti um
góðar kartöflur, sem eru vax-
kenndar og fastar í sér, ekki þess-
ar mjölvuðu og svo skiptir máli að
ofsjóða þær ekki. Salatið má útbúa
daginn áður og geyma á köldum
stað, helst ekki í ískáp. Ef þið verð-
ið að geyma það þannig, takið það
út í tæka tíð, því það er bragð-
dauft, ef það er snætt kalt.
_______2Vz kg kartöflur, hæfilega
soðnar og síðon gfhýddar
1 -2 dl kgpers, án vökvans (það
besta er saltað ítalskt kapers, ef
þið náið í slíkt. Saltið er þá skolað
rækilega af, áður en kapersið
_____________er notað)_____________
__________8 sellerístönglar________
_______3 fínsöxuð hvítlauksrif_____
__________gráfur nýmalaður_________
pipar eftir smekk
3 dl olía, gjarnan ólífuolía eða
vínberjakjarnaolía
1 dl gott hvftvínsedik
3 msk ósætt franskt sinnep,
gjarnan gróft
Skerið volgar kartöflurnar í bita.
Hreinsið selleríið og skerið stöngl-
ana í aflangar mjóar ræmur og
ræmurnar síðan í mjóar sneiðar,
svo úr verði litlir selleríbitar.
Blandið sellerí og kapers saman
við kartöflubitana. Þeir sem ekki
eru hrifnir af kapers nota minna
af því, en aðdáendur þess meira.
Kapersið fer firna vel við kartöfl-
urnar og selleríið gefur bæði gott
bragð og góða áferð.
Þeytið saman olíu, edik, hvítlauk
og sinnep og hellið yfir volgar kart-
öflurnar. Malið pipar yfir eftir
smekk. Ef kartöflurnar drekka sós-
una strax í sig getið þið búið til
meira og þá haldið hlutföllunum í
sósunni. Hellið aukaskammti af
sósu yfir salatið, þegar það er
borið fram, því þannig verður áferð
þess ferskari, en það á ekki að
vera á floti í sósunni.
Salat úr hvítum baunum
með sólþurrkuðum
tómötum
Hér þarf að hafa í huga að baun-
irnar eru fyrst lagðar í bleyti yfir
nótt eða í sólarhring, áður en þær
eru soðnarog salatið blandað. Hér
er stungið upp á að nota hvítar
haricot-baunir, en aðrar tegundir
koma einnig til greina, ef ykkur
sýnist svo. Sólþurrkaðir tómatar
hafa tíðkast í ítalskri matargerð
um aldaraðir, því þar sem nóg er
sólin og gnægð tómata, þá er
þetta hentug geymsluaðferð. Tóm-
atar eru góðir og fara vel með
baunasalati.
1 kg hvítar haricot-baunir
_____________1 msk salt________
100-200 g sólþurrkaðir tómatar
3 væn knippi steinselja
___________4 hvítlouksrif_________
3 dl ólífu- eða vínberjakjarnaolía
1 dl gott hvítvinsedik
Leggið baunirnar í bleyti og látið
standa í '/z-1 sólarhring, eða þar
til þær eru orðnar mjúkar í gegn.
Setjið baunirnar í stóran pott,
þær þenjast út við suðuna, og
bætið í vatni, svo fljóti vel yfir.
Skerið stiikana af steinseljunni,
bindið þá í knippi og sjóðið með
baununum. Þegar suðan kemur
upp, lækkið þá hitann og látið
malla í um 30 mín., eða þar til þær
eru mjúkar í gegn, en þó ekki svo
að þær leysist upþ. Þær eiga enn
að veita tönnunum viðnám.
Leggið tómatana í bleyti í köldu
vatni og látið þá liggja í um klst.
Þeir mega liggja lengur, en verða
þá full mjúkir. Hvað þið notið mik-
ið af tómötum fer eftir smekk.
Látið soðið renna af baununum
og fjarlægið steinseljuna, áður en
fínsöxuðum hvítlauk er bætt við.
Látið vatnið renna af tómötunum,
skerið þá í ræmur og blandið sam-
an við baunirnar. Þeytið olíu og
edik og hellið yfir volgar baunirnar.
Berið salatið ekki fram kalt frek-
ar en kartöflusalatið, bætið við
sósu ef þarf og blandið fínsaxaðri
steinseljunni saman við, um leið
og það er borið fram.
Brauð með hveitikjörnum
Galdurinn við þetta brauð er að
maður hellir sjóðandi vatni yfir
korn, sem síðan er látið standa.
Þá verður brauðið safaríkt, svolítið
seigt og bragðmikið. Það er sjóð-
andi vatnið og langur tími, sem
gerir brauðið sérlega bragðgott.
Tímann má stilla þannig að þið
bakið brauðið sama daginn og þið
notið það, enda best samdægurs,
þó það geymist vel m.a. í frysti.
Uppskriftin er stór og dugir í nokk-
SJÁ NÆSTU SÍÐU
NÓATÚN
Ungnauta-
innlærisvöðvi
N___—--------^
Verslanir Noatuns
eru opnar til kl. 21,
öll kvöld
NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRAB0RG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, K0P.
ÞVERH0LTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68