Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýtt leiðakerfi SVR tekur gildi næstkomandi fimmtudag
Breytingar vegna óska
farþega og vagnstjóra
BREYTINGAR á leiðakerfi Strætis-
vagna Reykjavíkur taka gildi
fimmtudaginn 15. maí og er þar
aðallega um að ræða lagfæringar á
leiðakerfinu sem tók gildi 15. ágúst
síðastliðinn og hefur verið til reynslu
síðan. Breytingarnar eru gerðar í
samræmi við óskir og ábendingar
viðskiptavina SVR og í samvinnu
við vagnstjóra fyrirtækisins.
Við endurskoðun leiðakerfísins
hefur þess verið gætt að stilla akst-
urstíma strætisvagna þannig að
kröfum um stundvísi verði náð og
er gert ráð fyrir að aksturstími ieiða
verði lengdur í flestum tilfellum.
Þetta er fyrst og fremst gert til að
bæta stundvísi vagna og auka ör-
yggi með minni hraða þeirra, en
jafnframt er leitast við að draga úr
álagi á vagnstjóra. Á löngum akst-
ursleiðum er gert ráð fyrir tímajöfn-
un á báðum endastöðvum, en það
gerir það að verkum að þegar rólegt
er þurfa vagnarnir að tímajafna og
þegar álag er mikið dregur úr áhrif-
um seinkunar.
Ný leið og breytingar
á nokkrum leiðum
Akstursleiðir nokkurra leiða
breytast nokkuð samkvæmt nýja
leiðakerfmu, þ.e. leiða 1, 3, 5, 6, 7,
14 og 115, og ein ný leið bætist
við, leið 9, sem tengir Ártún við
athafnasvæði í norðurbænum.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Leið 1 mun aka frá Lækjartorgi
austur Hverfisgötu að Hlemmtorgi.
Fer þaðan Snorrabraut, Bergþóru-
götu, Barónsstíg, Egilsgötu, Snorra-
braut og að Loftleiðahóteli. í baka-
leiðinni verður farið um Hringbraut,
Njarðargötu og Skólavörðustíg að
Lækjartorgi. Með þessum breyting-
um er komið á tengingu við Hlemm-
torg, frá Hlemmtorgi að Landspítala
og Loftleiðahóteli og frá Hlemmt-
orgi/Loftleiðahóteli að BSÍ.
Leið 3 mun hætta að þjóna Bakka-
hverfí, fer að Sléttuvegi og Sjúkra-
húsi Reykjavíkur, hættir akstri um
Hvassaleiti, fer Bólstaðarhlíð og
Stakkahlíð og fer Túngötu og Hof-
svallagötu í stað Suðurgötu og
Hringbrautar.
Leið 5 mun aðeins aka Hjarðar-
haga-Dunhaga-Birkimel-Hringbraut
á leið sinni frá Skeljanesi. í bakaleið-
inni verður ekið um Suðurgötu. Með
þessu er komið til móts við óskir íbúa
í-Skerjafirði sem vilja tryggja börnum
sínum örugga ferð vestur fyrir Suður-
götu og svo þeirra sem koma úr
miðborginni og ætla í Háskóla Is-
lands. Leið 5 mun hætta akstri á
Siéttuveg en mun þess í stað aka
Bústaðaveg-Kringlumýrarbraut-
Listabraut-Háaleitisbraut-
Bústaðaveg. Með þessu er komið á
beinum tengslum úr mörgum borg-
arhverfum við Kringlusvæðið. Aðrar
breytingar á leið 5 verða þær að
vagninn mun aka Hólsveg og Engja-
veg á leið sinni að Grensásstöð.
Leið 6 mun þjóna Bakkahverfi í
stað leiðar 3 og mun aka Flókagötu
í stað Háteigsvegar vestan Löngu-
hlíðar. Einnig verður aksturstími
lengdur og vagni bætt inn á leiðina.
Með þessu er vonast til að leiðinni
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ kynningu á nýju leiðakerfi SVR. Frá vinstri eru Þórhallur
Örn Guðlaugsson, forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs
SVR, Lilja Olafsdóttir, forsljóri SVR, og Árni Þór Sigurðsson,
stjórnarformaður SVR.
gangi betur að halda réttum tíma,
en mikið álag er á henni og hefur
henni oft og tíðum gengið illa að
halda áætlun.
Leið 7 mun aka að Fossvogskap-
ellu á leið austur.
Leið 9 er ný leið sem ætlað er
að tengja Ártún við athafnasvæði í
Norðurbæ. Leiðin ekur um Skútu-
vog-V atnagarða-Dalbraut-
Sundlaugaveg-Borgartún og Kirkju-
sand. Með þessari nýju leið eiga íbú-
ar í Grafarvogi og Árbæ kost á mun
betri leið um þetta svæði en áður.
Leiðin mun ganga á annatíma virka
daga, þ.e. kl. 07-09 og 16-19.
Leið 14 mun þjóna Borgarhverfi
og Víkurhverfi og aka Strandveg-
Borgarveg-Melaveg-Strandveg-
Breiðuvík-Mosaveg að Gullengi. Með
þessu verður íbúum í Borgarhverfi
og Víkurhverfi veitt þjónusta og
einnig munu tengslin við Borgar-
holtsskóla batna. Einnig mun leiðin
aka um Fjallkonuveg á leið til mið-
borgar og þannig færa Hamrahverfí
betri tengingu við verslunarmiðstöð,
íþróttahús og félagsmiðstöð.
Leið 115 mun fara Gullengi-Mosa-
veg-Víkurveg í stað Borgarvegar.
KirkjusandJi •
ÁRTÚN
HLEMMl
GRENSÁS
GrmiáiSf
MJÓDD’
Tkrlém
Leiðakerfi
Strætisvagna Reykjavíkur
—
SKIPTIST OÐ
Akstursstefna
oq leibarmerkinq
V
fid
. ..
Kvörtun Pennans til Samkeppnisstofnimar vegna merkinga Rafeindaverkstæðisins
SAMKEPPNISRÁÐ hefur bannað
Rafeindaverkstæðinu hf. í Reykja-
vík að fjarlægja þjónustumerkingar
Pennans, áður Egils Guttormssonar
- Fjölvals hf., af ljósritunarvélum
í eigu þriðja aðila og merkja þær
Rafeindaverkstæðinu nema óyggj-
andi heimild sé fyrir hendi.
Málavextir eru þeir að Penninn
kvartaði yfir því að starfsmenn
Rafeindaverkstæðisins fjarlægi
merkingar af Mita ljósritunarvélum
og lími merkimiða Rafeindaverk-
stæðisins á þær í staðinn. Hafi sum-
ir eigendur ljósritunarvéla leitað til
fyrrgreinds verkstæðis „í rangri
hugmynd um umboðsmann Mita
ljósritunarvéla hérlendis, veg;na
þessara merkingarblekkinga", eins
og segir í erindi Pennans til Sam-
Bannað að breyta merk-
lj ósritunarvéla
ingum
keppnisstofnunar. Er vísað í dæmi
um þjónustu við vél í eigu Háskóla-
bíó_s málinu til stuðnings.
í umsögn Rafeindaverkstæðisins
um málið segir að algengt sé að
þjónustuaðilar sjái um þjónustu á
öllum skrifstofutækjum og að kaup-
endur séu ekki skyldugir til að
kaupa þjónustu af upphaflegum
söluaðila. Fjölval hafi að mati
margra viðskiptavina starfað
óreglulega, mannaskipti og eig-
endaskipti verið tíð og viðskiptavin-
ir því tekið tilboði Rafeindaverk-
stæðisins um þjónustu.
Brot gegn tveimur greinum
samkeppnislaga
Lögmaður Pennans svarar og
telur það órökstuddar dylgjur að
fyrirtækið hafí ekki sinnt hlutverki
sínu og að Rafeindaverkstæðið hafi
með óheiðarlegum og ólögmætum
hætti aflað sér viðskipta á kostnað
Pennans. Þessu andmælir lögmaður
Rafeindaverkstæðisins.
í niðurstöðum samkeppnisráðs
segir m.a. að ráðstafanir sem um-
boðsmaður grípi til í því skyni að
takmarka möguleika kaupenda til
að eiga viðskipti við þriðja aðila um
viðhaldsþjónustu geti haft í för með
sér skaðleg áhrif á samkeppni og
kallað á aðgerðir samkeppnisyfir-
valda. í tilvikinu með vél Háskóla-
bíós hafi verið fyrir hendi samningur
við Pennann um viðhaldsþjónustu
og vélin með merkimiða til að auð-
velda starfsmönnum kvikmynda-
hússins að hafa samband. Starfs-
maður Rafeindaverkstæðisins hafi
fjarlægt miðann og sett merkimiða
síns fyrirtækis í staðinn þótt ekki
hafi verið fyrir hendi samningur um
að Rafeindaverkstæðið tæki þjón-
ustuna að sér. Þykir hegðan Raf-
eindaverkstæðisins ekki í samræmi
við góða viðskiptahætti, veittar séu
villandi upplýsingar sem haft geti
áhrif á eftirspurn eftir þjónustu. Er
því talið að brotið hafi verið gegn
20. og 21. grein samkeppnislaga nr.
8/1993.