Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tommi og Jenni Ferdinand Smáfólk ''PiePEN/'WHV can't vou LOOK NEAT LIKE THE OTHER PLAVER5? „Sóði“, Hvers vegna geturðu ekki verið snyrtilegur eins og hinir leikmennirnir? í fyrra sló ég 712. Snyrtimennska ekki 712! slær fttwgunltlafrto BRÉF ITL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavik 0 Sími 569 1100 9 Simbréf 5691329 „Trylltir unglingar“ Hugsanaskekkja fullorðinna Frá Rúnarí Halldórssyni: FYRIR nokkrum dögum lauk sam- ræmdum prófum í 10. bekk grunn- skóla landsins. Morgunblaðið greindi frá því í frétt á fjórðu síðu miðvikudaginn 30. apríl sl. að hóp- ur unglinga hefði að afloknum próf- um safnast saman við Kringluna. Myndin sem birt var með fréttinni vakti undirritaðan til umhugsunar. Myndbirtingin var af óeinkennis- klæddum lögregluþjóni er sat klof- vega yfir unglingi, er lá á götunni. Hann var eins og sagði í mynda- texta að „hemja ólátasegg fyrir utan Kringluna“. Ja, hver skollinn, voru nú allir unglingarnir trylltir, hugsaði ég. í texta fréttarinnar sagði að hátt í 1.000 unglingar hefðu safnast saman og lögreglan þurfti að hafa afskipti af rúmlega 30 einstaklingum. Hvað voru þá hinir, 950 unglingarnir, að gera? hugsaði ég. Fyrir utan Kringluna, því samkvæmt frásögn Morgun- blaðsins var ungmennunum mein- aður aðgangur að húsakynnum verslunarmiðstöðvarinnar. Sérstakur viðbúnaður var hafður uppi og m.a. voru 15 öryggisverðir í Kringlunni vegna þessara trylltu unglinga, auk lögregluþjóna. Eru unglingarnir svona voðalegt þjóðarbrot að þurfí sérstakar að- gerðir til að undirbúa það með víg- girðingum að þeir hópist saman? Eg held að hér skipti viðhorf hinna fullorðnu ekki hvað minnstu. Við gefum unglingunum mjög misvís- andi boð. Við viljum að þau séu ljúf og góð, en við erum fyrirfram ákveðin í að þau séu villt og tryllt. Og hvað eiga þau þá annað að gera en að hópast saman og tryllast svo- lítið, svo að Morgunblaðið og aðrir göfugir fjölmiðlar geti sýnt okkur og sannað hversu villt og tryllt þau eru og við hneykslast á unglingun- um í slagsmálum við lögregluna. í mínum huga hefði verið eðli- legra að birta mynd og viðtal við ungling er ekki fékk inngöngu í verslunarhelgidóminn til að kaupa sér ís, eða komast á salerni. Að ekki sé minnst á eitthvert þeirra er ekki gat hringt i ættingja sína og látið ná í sig, af því ekkert var við að vera fyrir utan Kringluna. í mínum huga hefði ekki verið fráleitt fyrir ráðamenn Kringlunnar að nota það fjármagn er augljós- lega var til, þar sem hægt var að manna aukagæslu, með því að skipuleggja einhverskonar tilboð fyrir þá unglinga er finnst spenn- andi að heimsækja fyrirtækin á þessum merkisdegi í lífi sínu. Skipuleggja einhverskonar „ung- menna-kringlukast“ með tilboðum fyrir unglingana, þ.a. þau geti fengið útrás fyrir athafnaþrá sína í skemmtilegum leikjum. En þá hefðu unglingarnir 900, sem bara stóðu og horfðu á, notið sín of vel og skemmt sér. Þá hefði tæpast nein mynd getað birst í Morgun- blaðinu. Þá hefðum við ekki vitað lengur hversu villtir og trylltir ungl- ingarnir okkar eru. RÚNAR HALLDÓRSSON, forstöðumaður forvarnarsviðs Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar. Verði svo Frá Eggerti E. Laxdál: Á TÍMABILI var það mál manna, sem fara með mál elli- og örorku- lífeyrisþega, að stefna bæri að því, að búa svo um hnútana, að þessir hópar geti búið á heimilum sínum við mannsæmandi kjör, en efndirnar urðu aðrar. Tekjurnar voru skertar til muna þannig að þessir hópar hafa varla í sig né á og geta ekki veitt sér neitt. Þeir geta ekki keypt sér blöð, bækur, tímarit, né annað sem hefur menn- ingarlegt gildi og talið er sjálfsagt í menningarþjóðfélagi. Þeir geta ekki keypt sér heimilisaðstoð, sem mörgum er nauðsynlegt og fáir sinna þeim. Einsemd fylgir þessu fólki. Margir eru orðnir fótfúnir og eiga erfitt með gang og verða að taka leigubíl ef skreppa þarf bæjarleið, en engin efni eru til þess og strætisvagnarnir henta ekki öllum, svo að það verður bara að sitja heima einmana og yfirgefið. Þeir sem búa í eigin húsnæði, geta ekki haldið því við og margir hrökklast þaðan og missa allt vegna fjárskorts. Þetta fólk berst í bökkum og endar ná ekki saman. Þetta er óhæfa og sæmir ekki kristinni þjóð, enda efast margir um að þjóðin sé í raun og veru kristin og elski náunga sinn eins og sjálfan sig eins og Kristur sagði að mönnum bæri að gera. Tryggingastofnun ríkisins greiðir um 90.000 kr. á mánuði til vistheimilanna fyrir hvern ein- stakling, sem þar dvelur, en þeir sem búa heima, fá um 40.000 kr. á mánuði. Hvers vegna geta heimabúandi eldri borgarar og öryrkjar ekki fengið þessa upphæð óskerta sér til lífsviðurværis. Það væri mikil bót og ekki nema sanngjarnt. Gjör- um þetta að baráttumáli, því að umrætt fólk þarf svo sannarlega á þessum peningum að halda ef vel á að vera. Verði svo. EGGERT E. LAXDAL, box 174, Hveragerði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.