Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ1997 31
LISTIR
Bálköstur
hégómans
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
HÁÐUNG „RIDICULE"
★ ★ Vi
Leikstjóri: Patrice Leconte. Hand-
rit: Remi Waterhouse. Kvikmynda-
taka: Thierry Arbogast. Aðalhlut-
verk: Charles Berling, Fanny Ard-
ant, Jean Rochefort, Judith
Godreche. Polygram. 1996.
FRAKKAR eru einstök bíóþjóð
sem kunnugt er og hafa upp á síð-
kastið verið ákaflega uppteknir við
sögulegar stórmyndir eða það sem
oft er kallað búningadrama. Þær
endurskapa í smáatriðum eymd og
glæsileika horfinna alda en Margot
drottning og Hestamaðurinn á þak-
inu eru tvö nýleg dæmi um þá kvik-
myndastefnu í Frakklandi og hafa
báðar rekið á fjörur bióhúsanna
hér. Háðung eða „Ridicule" er enn
ein slík mynd. Hún gerist við hirð
Loðvíks undir lok átjándu aldarinn-
ar og segir af fátækum mennta-
og aðalsmanni sem leitar áheymar
konungs svo þurrka megi mýrlendi
á landareign hans og bæta úr eymd
og sjúkdómum sem fylgir dauðu
landinu. En það er ekki átakalaust
að ná eyrum einvaldsins. Til þess
þarftu að gera lítið úr náunganum,
hæða hann, eins og nafn myndar-
innar bendir til. Orðsnilld er leiðin
að hinum konunglegu eyrum og
þótt okkar mann skorti ekki orð-
kynngina skortir hann hugarfarið
sem býr að baki orðum sem særa
og orðum sem jafnvel drepa.
Háðung ber um margt svipmót
af hinni meistaralega gerðu mynd
Stephen Frears, „Dangerous Liais-
ons“; útlit og stíll eiga samsvörun
í henni auk þess sem sakleysingi
úr sveitinni er dreginn á itálar af
voðakvendi með steinhjarta og
verður leiksoppur hennar. Hin mis-
heppnaða mynd Bálköstur hégóm-
ans eftir Brian De Palma kemur
einnig upp í hugann, merkilegt
nokk. Fyrirfólkið við hirð Loðvíks
á margt sameiginlegt með lýsing-
unni á fyrirfólkinu í New York á
okkar dögum og sýnir að ekkert
breytist. Hégómi er allt sem þarf.
Staða þín er í réttu hlutfalli við
fólkið sem þú umgengst. Það kald-
hæðnislega er, og Háðung lýsir
því stórvel í áhrifaríku atriði, að
þótt þú komist í hæstu hæðir með
orðsnilldinni getur ein röng setning
í röngum félagsskap gert þig út-
lægan úr samfélagi aðalsins.
Allt er hér gert með myndarbrag
í útliti og hönnun og leikurinn er
með miklum ágætum. Hirðlífið
með sínum hárkollum og kinnalit
og hvíta andlitsdufti og innantómu
hirðleikjum kemst ágætlega til
skila. Handritið verður auðvitað
að standa undir kröfunni um
skemmtilega orðaleiki, háðsglósur
og snöfurmannleg tilsvör, glettni,
fyndni, gamansemi, skarplegum
athugasemdum. Þótt margt sé
sagt sniðugt í myndinni tekst höf-
undunum ekki alltaf sem skyldi
að gæða hana raunverulegri orð-
snilld. Þeir verða að feta mjög
vandmeðfarinn veg því allt þetta
uppskrúfaða og leiðinlega hirðfólk
er fullt af tilgerð og leikaraskap
og orðsnilldin sjálf mótast svolítið
af því og getur orðið jafnuppskrúf-
uð og leiðinleg. Athugasemdirnar
eru ekki alltaf skarplegar. En þeg-
ar best lætur gefur myndin for-
vitnilega innsýn i heim þar sem
orðin hafa raunverulega merkingu
og máttur þeirra er mikill. Þau
geta ýmist verið stórhættuleg eða
stórlega ábatasöm. Orð geta eyði-
lagt þig og orð geta skapað þér
framtíð. Orðið hefur vikt og virkt.
Arnaldur Indriðason
Lögmaður
hættir að ljúga
KVIKMYNDIR
Iláskólabíó, Laugar-
ásbíó, Bíóhöllin
TREYSTIÐ MÉR
(LIAR, LIAR) ★ ★★
Leikstjóri Tom Shadyac. Handrits-
höfundar Paul Guay og Stephen
Mazur. Kvikmyndatökustjóri Russ-
el Boyd. Tónlist John Debuey, titil-
lag (þema) James Newton Howard.
Aðalleikendur Jim Carrey, Maura
Tierney, Justin Cooper, Jennifer
Tilly, Swoosie Kurtz, Cary Elwes.
90 mín. Bandarísk. Univer-
sal/lmagine 1997.
JIM Carrey aðdáendur geta tek-
ið gleði sína aftur, sprelligosinn
er kominn í sitt fyrra form eftir
Kapalgæjann. Gallinn við þá mynd
var sára einfaldur; Carrey var lát-
inn leika leiðindaskjóðu, slíkir
gaurar henta ekki hæfileikum
mannsins. Carrey í réttu hlutverki
er sannkallaður gieðigjafí sem
kemur með góða skapið - hvort
sem maður vill eða ekki. Það eru
magnaðir hæfileikar að geta lækn-
að ólundina í mannskepnunni með
fíflagangi sem lengst af er á mörk-
um þess sem maður þolir af slíkum
trakteringum.
Að þessu sinni leikur Carrey
lögfræðinginn Fletcher, vafasam-
an náunga sem maður mundi ekki
treysta til að fara út með ruslið.
Þessi lygni, hyskni og almennt séð
ómerkilegi náungi á soninn Max
(Justin Cooper) og mislukkað
hjónaband að baki. Max litla er
vel kunnugt að lygin er hvað versti
gallinn í fari fóður hans og óskar
honum því bata á þessu sviði á sjö
ára afmælinu sínu. Og stendur nú
löggepill ráðalaus frammi fyrir
nýju, ólæknandi vandamáli.
Það skyldi þó aldrei hafa hvarfl-
að að einhveijum sú óguðlega
hugsun að lygin væri lögmönnum
ómissandi? Þó Treystið mér sé
ekki vísindaleg úttekt á sannleiks-
ást þeirrar stéttar þá dregur hún
upp fjári skondna mynd af þessum
slæma lesti manna og hversu
blessaður sannleikurinn gerir okk-
ur fijálsa og betri sköpunarverk
almættisins. í skrípalátunum má
því finna örlitla ádeilu, en hún
vegur ekki þungt í verki sem er
sniðið fyrir hina einstöku skop-
hæfileika Carreys, en það má segja
að hann sé gamanleikari af líkama
og sál, af sama meiði og Chaplin,
Marxbræður og Jerry Lewis.
Hann gerir misfyndið, stundum
ómerkilegt og klisjukennt handrit
að fínni þriggja störnu skemmtun
og nýtur m.a. hæfileika Jennifer
Tilly, einnar bestu grínleikkonu
Hollywood um þessar mundir eins
og fram kom í Bullets over Broad-
way og nú síðast í hinni vanmetnu
Bounds. Áhorfandinn stendur sig
að því að hlæja óvenju lengi og
mikið að bíómynd sem hann er
þó einhvers staðar innra með sér
að rembast við að hneykslast á.
Sleppum því og njótum línudans-
ins.
Sæbjörn Valdimarsson
Hundur í honum
ÞAÐ er engu líkara en það sé
einhver hundur í rússneska
listamanninum Oleg Kulik,
sem heldur athyglisverða sýn-
ingu í Deitch Proj’ects-
gallerínu í New York. Þar
æðir Kulik um eins og dýr í
búri, urrar og geltir á sýn-
ingargesti. Nakinn skríður
hann um sýningarsalinn sem
er að hluta til innréttaður eins
og fangaklefi. Segir eigin-kona
Kuliks og talsmaður að hann
viþ’i með þessu sýna fram á
hvað greini mann og dýr að.
Sumawtilhoð
Æfingabekkir Hreyfingar, Ármúla 24, sími 568 0677
• Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki, öxlum eða handleggjum?
• Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?
• Vantar þig aukið blóðstreymi og þol?
• Þá hentar æfingakerfið okkar þér vel.
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki
hefur stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma. Sjö bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir
og eykur blóðstreymi til vöðvana. Hver tími endar á góðri slökun.
Svala Haukdal
Ég hef stundað æfingabekkina meira og minna síðan 1989. Vegna þrálátra bakverkja og
vökvasöfnunar, átti ég erfitt með að stunda leikfimi. Síðan ég byrjaði hef ég verið laus við
verki og ég fæ alla þá hreyfingu og slökun sem ég þarf. Hjá Æfingabekkjum Hreyfingar
fæ ég einnig einkaþjálfun, persónulegt viðmót og yndislegt umhverfi. Ég hvet allar þær
konur sem geta, að kynna sér æfingakerfið, það er fyllilega þess virði.
Guðrún Ingvarsdóttir
Ég hef stundað æfingabekkina í rúmt ár og hafa þeir hjálpað mér í baráttunni við slit- og
vefjagigt. Auk þess sem vöðvar hafa styrkst og vöxtur lagast. Allt er þetta jákvætt og gott
innlegg í heilsubankann. Ég vildi að ég hefði kynnst þessu æfingakerfi miklu fyrr.
Við erum einnig með göngubraut, þrekstiga og tvo auka
nuddbekki.
Frír kynningartími.
Hringið og fáið nánari upplýsingar varðandi sumartilboðið.
Ath. breyttan opnunartíma
Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9-12 og kl. 15-20,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-12