Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 55
1
FRETTIR
SKÓGARNIR á höfuðborgarsvæðinu eru fjölsótt og aðlaðandi útivistarsvæði, ekki
síst Skógarlundur í Hafnarfirði.
Fræðslufundur
skógræktarfélaganna
SKOGRÆKTARFELOGIN á
höfuðborgarsvæðinu halda í
kvöld kl. 20.30 fræðslufund í sal
Ferðafélags íslands, Mörkinni
6. Þetta er fjórði fræðslufundur-
inn í fræðslusamstarfi skóg-
ræktarfélaganna og Búnaðar-
banka Islands og jafnframt sá
síðasti fyrir sumarið. Fjölbreytt
dagskrá verður í boði.
Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Islands flytur aðalerindi kvölds-
ins sem hann nefnir: Skógarnir
á höfuðborgarsvæðinu. Brynj-
ólfur sýnir myndir af svæðun-
um, fjallar um þá miklu reynslu
sem fengist hefur og hvað ein-
stakir ræktunarmenn geta lært
af henni. Einnig kynnir hann
fyrirhugaðar skógargöngur
skógræktarfélaganna sem
haldnar verða á hverju fimmtu-
dagskvöldi í sumar. Með
göngunum á að kynna svokallað-
an Græna trefil en það er sam-
heiti yfir ræktunarsvæðin á úti-
mörkinni þar sem skógræktarfé-
lögin hafa beitt kröftum sinum
um árabil.
Skógarlist og skógarmenn-
ingu verður haldið á lofti að
vanda og mun Sigurbjörn Ein-
arsson, sveppafræðingur og tón-
listarmaður, koma með flautu
og nikku í farteskinu.
I ----------------------------
g Ráðstefna
um vamir
gegn áfeng-
is-ogvímu-
\ efnavanda
^ ÁFENGISVARNARÁÐ og Samband
íslenskra sveitarfélaga standa sam-
eiginlega að ráðstefnu um varnir
gegn áfengis- og vímuefnavandanum
í Borgartúni 6 í Reykjavík í dag,
þriðjudag, 13. maí.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-
°S tryggingamálaráðherra, flytur
m ávarp við setningu ráðstefnunnar,
3 Bjöm Halldórsson, yfirmaður ávana-
] °g fíkniefnadeildar lögreglunnar,
M gerir grein fyrir þeim vanda sem við
er að fást á þessu sviði og Þórólfur
Þórlindsson, prófessor, kynnir niður-
stöður úr nýrri rannsókn á fíkniefna-
neyslu unglinga.
Kynntar verða þær leiðir sem rík-
isvaldið, sveitarfélög og stofnanir
þeirra fara nú til að takast á við
áfengis- og vímuefnavandann og
á •'eynt að samhæfa aðgerðir þeirra og
'J hinna ýmsu félagasamtaka á þessu
4 sviði.
g I umræðuhópnum verður sérstak-
^ lega rætt um hlutverk meðferðar-
stofnana og skóla og loks um áfeng-
ismálastefnu hins opinbera.
Málþing um
innra eftirlit í
á matvælafram-
^ leiðslu
MALÞING verður haldið á vegum
sjávarútvegshóps, landbúnaðarhóps
?g iðnaðarhóps Gæðastjómarfélags
Islands og Samtaka iðnaðarins um
virkni innra eftirlits við matvæla-
framleiðslu miðvikudaginn 14. maí
kl. 13-17 á Hótel Sögu.
Fyrirlesarar fjalla um framkvæmd
i innra eftirlits í sjávarútvegi og land-
^ búnaði og sagðar verða reynslusögur
I frá fyrirtækjum í matvælafram-
^ leiðslu.
Jón Gíslason hjá Hollustuvernd
ríkisins fjallar um löggjöf og eftirlit
í matvælaiðnaði, Friðrik Blomster-
berg hjá íslenskum sjávarafurðum
um framkvæmd innra eftirlits í fisk-
iðnaði og Gunnar Guðmundsson hjá
Bændasamtökum Islands um fram-
kvæmd innra eftirlits við landbúnað-
a urframleiðslu. Einnig skýra eftirtalin
'j fyrirtæki frá reynslu sinni af innra
| eftirliti: Sögufélag garðyrkjumanna,
á Vogabær, Kjörís og Hagkaup. „Leit-
að verður svara við m.a. hvernig
innri eftirlitskerfi í fyrirtækjum nýt-
ast, og hvert sé kerfið notað, hvort
kvartanir hafi minnkað og hvernig
sé staðið að rekjanleika o.s.frv.“,
segir í fréttatilkynningu.
Málþingið er ætlað öllu áhugafólki
um gæðamál og innra eftirlit en
a einkum stjórnendum og millistjórn-
* endum í matvælafyrirtækjum sem
| og ráðgjöfum og opinberum eftirlits-
á aðilum. Nánari upplýsingar og
1 skráning á skrifstofu Samtaka iðn-
aðarins og skrifstofu Gæðastjómun-
arfélags Islands.
LEIÐRÉTT
Sýning Önnu Jóu
NAFN listakonunnar Önnu Jóu
misritaðist í sunnudagsblaði, en
i sýning á málverkum hennar verður
j opnuð fimmtudaginn 15. maí í Par-
4 ís. Beðist er velvirðingar á þessu.
Baráttuglaðir foreldrar
KLAUFALEG villa lenti inni í texta
í viðtali við tvo stjórnarmenn í
SAMFOK í síðsta sunnudagsblaði.
Rétt er setningin þannig: „Það er
hreint ekki víst að skólarnir hafi
verið nógu markvissir í sínum ög-
i urnarreglum. Það má eflaust margt
| betur fara þar, ekkert síður en inn
a á heimilunum." í stað eflaust stóð
" alltaf. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Umboðsmaður
barna heimsæk-
ir skóla á Vest-
urlandi
ÞÓRHILDUR Líndal, umboðsmað-
ur bama, heimsækir grunnskólana
á Vesturlandi dagana 13.-15. maí
en við undirbúning ferðarinnar hef-
ur embættið notið aðstoðar skóla-
skrifstofu Vesturlands.
Farið verður í 13 skóla í kjör-
dæminu og verður embættið kynnt
fyrir börnunum og umboðsmaður
mun fjalla um hlutverk sitt sem
talsmanns barna og um réttindamál
barna almennt. Jafnframt verður
afhentur kynningarbæklingur um
embættið sem er einkum ætlaður
börnúm. Þetta er í fimmta sinn sem
umboðsmaður bama leggur land
undir fót til þess að heimsækja
umbjóðendur sína en þegar hafa
verið famar tvær slíkar ferðir í
fræðsluumdæmi Suðurlands, ein í
fræðsluumdæmi Vestfjarða, ein í
fræðsluumdæmi Norðurlands
vestra og í grunnskólana á Akra-
nesi.
Þá mun umboðsmaður jafnframt
eiga kynningarfundi með sveitar-
stjórnarmönnum á Vesturlandi en
slíkir fundir hafa einnig verið haldn-
ir í fyrri ferðum og hafa þeir verið
mjög vel sóttir.
Leikfélag Pat-
reksfjarðar
þrjátíu ára
LEIKFÉLAG Patreksfjarðar heldur
upp á 30 ára afmæli sitt í dag kl.
14 en það var stofnað 13. maí 1967.
Leikfélagið hefur frá stofnun
staðið fyrir leiksýningu á hverju
ári. í ár er það leikritið Góðverkin
kalla eftir þá Ármann Guðjónsson,
Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason. Leikstjóri er Skúli
Gautason.
í tilefni afmælisins verður leikfé-
lagið með opið hús í húsi félagsins
frá kl. 14. Þar verður hægt að fletta
í gömlum leikskrám og myndum
yfir kaffiboila og kökum. Kl. 17
mun svo félagið standa fyrir uppá-
komu á torgi bæjarins þar sem
söngur og grín verða í fyrirrúmi.
Um kvöldið kl. 20.30 verður svo
sýning á leikritinu Góðverkin kalla
í Skjaldborgarbíói.
Afmælisleikur OLÍS
350 ferðavinn-
ingar í boði
OLÍUVERZLUN íslands á 70 ára
afmæli á þessu ári. í tilefni af af-
mælinu efnir fyrirtækið til afmælis-
leiks þar sem dregnar verða út
m.a. 350 utanlandsferðir.
Leikurinn byggist á því að allir
viðskiptavinir Olís 15 ára og etdri
sem kaupa benzín eða vörur fyrir
meira en 500 krónur fá afhentan
númeraðan miða. Þeir fylla út mið-
ann og skila í sérstaka kassa á
benzínstöðvum. Dregið verður í
leiknum einu sinni í mánuði ,um
alls 70 ferðavinninga í hvetjum
drætti. Að auki verður dregið um
Toyota Carina skutbíl í síðasta
drættinum 3. október, sem er af-
mælisdagur Olís.
Umræða hjá
Siðmennt
SIÐMENNT stendur fyrir opnum
fundi í húsi Bókagerðarmanna,
Hverfisgötu 21, í kvöld, þriðjudags-
kvöld, 13. maí, kl. 20.30. Frummæl-
endur verða Sigurður Bragi Guð-
mundsson og Ómar Harðarson.
I fréttatilkynningu segir að á fund-
inum verði rætt um það að margir
hafi sagt skilið við þjóðkirkjuna
undanfarið og þeim sem eru utan
trúfélaga fjölgi stöðugt. Þar segir
einnig að þeir sem standi utan trú-
félaga vilji stofna trúfélag um siða-
reglur án guðsímyndar.
Aðalfundur
Félagsfræð-
ingafélagsins
AÐALFUNDUR Félagsfræðingafé-
lags íslands verður haldinn í dag,
þriðjudaginn 13. maí kl. 20.30 í
stofu 202 í Odda.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf. Að loknum aðalfundarstörf-
um mun Ingi Rúnar Eðvarsson
kynna nýútkomna bóka sína Sam-
tök bókagerðarmanna í 100 ár -
Þeir byrjuðu ótrauðir, bundust í lög.
í bókinni er rakin barátta prent-
arasamtakanna og annarra félaga
bókagerðarmanna til bættra lífs-
kjara í heila öld. Megináhersla er
lögð á kjarabaráttu, samskipti við
innlend og erlend verkalýðsfélög,
stjórnmálaumræðu, lýðræðishefðir
og fleira.
Rætt um nám
unglinga með
námsörðugleika
ODDUR Albertsson, skólastjóri Iýð-
skólans og Pjölnir Ásbjörnsson, sér-
kennari við Iðnskólann í Reykjavík,
ræða við foreldra og unglinga um
möguleika á framhaldsnámi fyrir
unglinga með námsörðugleika.
Fundurinn er á vegum Foreldra-
félags misþroska bama og verður
í Safnaðarheimili Háteigskirkju
miðvikudaginn 14. maí kl. 20.30.
Opið hús hjá
Styrk
OPIÐ hús verður hjá Styrk, samtök-
um krabbameinssjúklinga og að-
standenda þeirra, að Skógarhlíð 8,
Reykjavík, miðvikudaginn 14. mai
kl. 20.30.
Gestur kvöldsins er Sigurður
Árnason, krabbameinslæknir. Hann
fjallar um hvað sé til ráða þegar
krabbameinsmeðferð kemur ekki
lengur að gagni.
Greinandi próf
í lestri fyrir
9. bekk
RANNVEIG Lund forstöðumaður
lestrarmiðstöðvar Kennaraháskóla
íslands og Ásta Lárusdóttir lestrar-
ráðgjafi við Kennaraháskólann flytja
fyrirlestur á vegum Rannsóknar-
stofnunar Kennaraháskólans mið-
vikudaginn 14. maí kl. 16.15. Fyrir-
lesturinn nefnist: Greinandi próf í
lestri fyrir 9. bekk.
í fyrirlestrinum verður skýrt frá
prófí sem Rannveig og Ásta hafa
mótað og metur leshömlun (dyslex-
íu) og aðra lestrarörðugleika hjá 14
ára nemendum. Prófið er byggt á
hugmyndafræði um eðli leshömiunar
sem viðurkennd er meðal margra
fræðimanna á Vesturlöndum. Við
þróun prófsins hafa verið gerðar
rannsóknir á fjölmörgum nemendum
til að komast að hversu algeng les-
hömlun er og hvernig hún skiptist
milli kynja, segir í fréttatilkynningu.
Niðurstöður byggjast á þremur
úrtökum frá árunum 1994, 1996 og
1997. Gerð verður grein fyrir afleið-
ingum leshömlunar fyrir lesskilning
og leshraða og athugunum á áreið-
anleika og réttmæti prófverkefna.
Fyrirlesturinn verður haldinn^ í
stofu M-301 í Kennaraháskóla ís-
lands og er öllum opinn.
Fyrirlestur um
samskipti fólks
við heilbrigðis-
starfsmenn
OPINN háskólafyrirlestur verður
haldinn fimmtudaginn 15. maí kl.
17 í stofu 101 í Odda á vegum náms-
brautar í hjúkrunarfræði, Háskóla
íslands. Dr. Sigríður Halldórsdóttir,
forstöðumaður heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, flytur fyrir-
lesturinn Uppbygging eða niðurbrot:
Hver er upplifun fólks af samskipt-
um við heilbrigðisstarfsmenn?
Hver er upplifun þeirra sem þarfn-
ast heilbrigðisþjónustu af þeirri þjón-
ustu sem þeir hafa fengið? Hvað
upplifa þeir sem umhyggju og stuðn-
ing og hver eru áhrif þess? Út frá
rannsóknum höfundar ásamt sam-
starfsmönnum og nemendum við
Háskólann á Akureyri og við Há-
skóla íslands þróaði fyrirlesari kenn-
ingu um faglega umhyggju sem
kynnt er í fyrirlestrinum, segir í
fréttatilkynningu.
Þær rannsóknir sem um ræðir eru
t.d. rannsókn á reynslu kvenna af
umhyggju og umhyggjuleysi á með-
göngu, í fæðingu og í sængurlegu;
reynslu ungra mæðra; reynslu for-
eldra sem hafa átt barn með krabba-
mein; reynslu kvenna sem hefur
verið nauðgað; reynslu kvenna með
lystarstol; reynslu einstaklinga með
sykursýki; reynslu líffæraþega;
reynslu HlV-jákvæðra og aðstand-
enda alnæmissjúkra.
í tilkynningu segir að höfundur
hafi komist að þeirri niðurstöðu að
þjáningin hafi mörg andlit og að
þeir sem þjást þurfi meira á um-
hyggju að halda en aðrir en að það
þurfi hugrekki til að sýna þeim raun-
verulega umhyggju með fag-
mennsku í fyrirrúmi.
Fundur um
barnamissi
JÓHANN Thoroddsen fjallar um
barnamissi á fræðslufundi sem Ný
dögun, samtök um sorg og sorgar-
viðbrögð, stendur fyrir. Samtökin
hvetja sérstaklega foreldra sem
misst hafa barn (börn) sitt til að
koma á fyrirlesturinn sem verður í
Gerðubergi annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20. Jóhann mun svara
fyrirspurnum að loknu erindi sínu.
Fimmtudagskvöldið 22. maí kl.
20 mun síðan Páll Eiríksson, geð-
læknir, halda fyrirlestur sem hann
nefnir Margfaldur missir - váhrif í
Gerðubergi. Á eftir svarar Páll fyrir-
spurnum.
Allir eru velkomnir á fyrirlestr-
ana.