Morgunblaðið - 13.05.1997, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.05.1997, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju Ahersla á myndlist og ný- sköpun í tónlist DAGANA 18. maí til 1. júní verður haldin Kirkjulistahátíð í Reykjavík, sú sjötta í röðinni. Að þessu sinni verður mikil áhersla lögð á mynd- list. Níu myndlistarmenn hafa verið fengnir til að gera tillögur að nýjum myndverkum í níu nýjar kirlq'ur í Reykjavíkurprófastsdæmum. Hald- in verður sýning á þessum tillögum í Hallgrímskirkju og hefst hún 18. maí. Listamennimir níu eru Guðjón Ketilsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Helgi Gíslason, Herdís Tómasdóttir, Leifur Breiðfjörð, Magnús Tómas- son, Sigurður Örlygsson, Steinunn Þórarinsdóttir og Þorbjörg Höskuldsdóttir. Á sviði tónlistar verður fjölbreytt dagskrá. Aðalstef tónlistaratrið- anna er nýsköpun og impróvisasjón. Þrjú ný verk hafa verið samin sér- staklega fyrir hátíðina, konsert fyr- ir orgel og hljómsveit eftir Hjálmar H. Ragnarsson, verk fyrir kór og orgel eftir Hróðmar I. Sigurbjöms- son og hvítasunnusálmur Sigur- björns Einarssonar við tónlist Jóns Ásgeirssonar. Á kirkjulistahátíð 1997 verða sjö tónleikar, þrír með innlendum flytj- endum og fjórir með erlendum gest- um. Þeir erlendu gestir sem koma fram em Halvor Hákanes, sem er norskur kvæðamaður og mun flytja norska miðaldakvæðið Draum- kvæði við samspil fíðlu og orgels, sænsku orgel- og slagverksleikar- amir Mattías Wager og Anders Ástrand, franski virtúósinn Jean Guillou, Roy Goodman, hljómsveit- arstjóri frá Englandi, og söngtríóið Voces spontane sem Sibyl Urbancic stjómar. Að Kirkjulistahátíð standa List- vinafélag Hallgrímskirkju, Reykja- víkurprófastsdæmi eystra og vestra og biskup íslands. Islensk bók- menntavaka í Berlín Berlín. Morgunblaðið. DAGANA 13.-18. maí munu sex íslenskir höfundar lesa upp úr verkum sínum á bókmenntaviku í Berlín, sem tileinkuð er íslensk- um samtímabókmenntum. Bókmenntavikan hefst með fyrirlestri Arthúrs Björgvins Bollasonar þar sem hann mun kynna strauma og stefnur í ís- lenskum bókmenntum síðastliðna áratugi. Arthúr mun jafnframt vera kynnir og þýðandi upplestrar höfundanna sem eru: Thor Vil- hjálmsson, Álfrún Gunnlaugsdótt- ir, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardóttir, Einar Kárason og Linda Vilhjálmsdóttir. ísland er í hugum hins almenna borgara í Þýskalandi land eld- fjalla, jökla og dulrænna þjóðar- hefða. Þessar klisjur myndast fyrst og fremst af sjóndeildar- hring ferðamanna og því til sönn- unar er það lesefni sem fáanlegt er um landið á þýsku; takmarkast nær eingöngu, fyrir utan þýðingu á verkum Halldórs Laxness, við ferðaiðnaðinn. Þetta eru stað- reyndir sem koma nokkuð á óvart vegna hins sívaxandi áhuga á Is- landi í Þýskalandj og hinnar miklu bókamenningar íslendinga. Und- anfarin ár hafa þó verk íslenskra höfunda hlotið vaxandi athygli þýskra bókaforlaga. Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson kom út í þýskri þýðingu 1986, bækur Einars Kárasonar, Djöflaeyjan 1993 og Gulleyjan 1995, og á þessu ári kom bók Steinunnar Sigurðardóttur, Tímaþjófurinn, á þýskan markað. Á íslensku bókmenntavikunni munu höfundarnir einnig heim- sækja íslenskudeildir háskólanna í Berlín og Greifswald. Tónleikar í Listasafni Sigurjóns BRYNDÍS Blöndal sópransöngkona syngur burtfarartónleika sína frá Nýja tónlistarskól- anum í Listasafni Siguijóns Ólafs- sonar á morgun, miðvikudag, kl. 20.30. Á efnis- skránni verða ljóðaflokkurinn Frauenliebe und Leben eftir Schum- Bryndís Blöndal ann, Kirkjusöngv- ar Jóns Leifs, frönsk ljóð eftir Fauré og aríur eftir Hándel og Gounod. Meðleikari Bryndísar á tónleikunum er Bjarni Þór Jónatansson. ----» ♦ ♦--- Nýsköpunar- sjóður náms- manna styrkir verkefni við MHÍ SELJÁLANDSFOSS. Myndin er úr íslandsbók þeirra Fritz Dresslers og Karl-Ludwigs Wetzigs. Nýjar bækur • SAGAMenn taskólans í Kópa- vogi (MK) fyrir tímabilið 1973- 1983 er eftir Ingólf A. Þorkelsson fv. skólameistara. Efni bókarinnar skiptist í fimm kafla. Sá fyrsti fjallar um stofnun skólans og aðdraganda hennar, fyrstu skólasetninguna og þann vanda sem við var að etja er ýtt var úr vör. í öðrum kafla er Iýst tíðarandanum er ríkti þegar MK hóf göngu sína. „Söngur þess tíma var uppreisn og andóf æskunnar gegn fornum dyggðum, stofnun- um og stjórnendum, sem áttu ekki sjö dagana sæla seint á sjöunda áratugnum og snemma á þeim áttunda,“ segir í kynningu. Kaflinn er skrifaður frá sjónarmiði skólastjórnandans og lýsir m.a. vanda hans. Þá kemur kafli um húsnæðisdeiluna miklu sem geis- aði um og eftir 1980 og lauk að mestu með skólasamningnum 1983. Lengsti kafli bókarinnar er um félagslíf nemenda. Síðasti kafli bókarinnar segir frá starfsliði og stúdentum, skóla- nefnd, kennslukerfí og kennslu- greinum, skólasjóði og skólasókn- arreglum. Ný íslandsbók KRISTÍN Ýr Hrafnkelsdóttir, sem hefur unnið að því að hanna eðli- lega gerviáferð á húð í samvinnu við stoðtækjafram- leiðandann Össur hf. hlaut núverið styrk frá Nýsköp- unarsjóði náms- manna. Kristín er nemandi í textíl- deild MHÍ. Um- sjónarmenn verk- efnisins eru Ásrún Kristjánsdóttir yfírkennari deildarinnar og Hilmar Janusson frá Össuri hf. Þetta verkefni er sprottið af þeirri stefnu MHÍ að tengja nám í hönnunargreinum atvinnulífí. NÝ ÍSLANDSBÓK, Island, með ljósmyndum eftir Fritz Dressler og texta eftir Karl-Ludwig Wetzig er nýkomin út hjá Ver- lag C.J. Bucher í Miinchen. Myndirnar eru frá öllum landsfjórðungum, einkum nátt- úru- og mannlífsmyndir, en töluvert er af húsamyndum. Einnig eru birtar gamlar þjóð- lífsmyndir, teikningar og mál- verk. Þetta er myndabók að stærst- um hluta, en leitast er við að lýsa landi og þjóð í fortíð og nútið með því að fjalla um landafræði, sögu og menningu. Ljósmyndarinn, Fritz Dressl- er, er prófessor við listaháskóla í Bremen í Þýskalandi og hefur sent frá sér margar myndabæk- ur um lönd og þjóðir. Karl- Ludwig Wetzig hefur kennt við háskólann í Göttingen, verið lektor við Háskóla Islands og starfað við fararstjórn á ís- landi. Hann býr í Reykjavík. Bókin er í stóru broti, 180 bls. .Oðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl. «Sml 5621390 • fax 552 6377 - kjarni málsins! Islenskt barna- leikrit í Ósló BARNALEIKRITIÐ Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egils- dóttur var sýnt á byggðasafninu í Bygdoy 26. og 27. apríl og 4. maí. Áhugaleikhópurinn KEX flyt- ur Rympu á ísiensku. Leikstjóri er Gísli Kærnested leikari. Þetta er annað starfsár leik- hópsins en í júní í fyrra setti hann upp leikritið Láttu ekki deigan síga, Guðmundur eftir Hlín Agn- arsdóttur og Eddu Björgvinsdóttur og var gerður að þvi góður rómur. Leikhópurinn samanstendur af ís- lendingum í Ósló og nágrenni. í fréttatilkynningu segir að leik- ritið höfði sennilega best til barna á bamaskólaaldri. Það fjalli um konu sem lifir lífinu eins og henni henti best og býr á öskuhaugunum. Hún saknar þess þó að eiga engin börn, en henni og brúðukallinum hennar, honum Sexvolta, hefur ekki orðið barna auðið. Til hennar rekast síðan tvö börn sem fá ekki Örn Gunnarsson og Böðvar Sveinsson í hlutverkum sín- um frá sýningu hópsins. þá alúð og umhyggju frá foreldrum sínum sem þau kysu, en þeim tek- ur Rympa opnum örmum. Hennar uppeldisaðferðir eru töluvert frá- brugðnar því sem þau eiga að venj- ast og líkar þeim það vel, allavega í bytjun ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.