Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 30

Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 30
30 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ HREINASTA BORG EVRÓPU NOKKUR umfjöllun hefur verið undanfarið um mengun í Reykja- vík. Sú umræða hefur tengst bæði rykmeng- un og hljóðmengun af völdum mikillar um- ferðar. Orsakir meng- unarinnar eru einkum raktar til notkunar negldra hjólbarða. í grein í DV 18. apríl sl. skrifar Pétur Gunn- arsson, rithöfundur, eftirfarandi: „Enn er eftir að nefna afkasta- mesta útbíara höf- uðborgarloftsins: nagladekkin sem ís- lendingar hafa einir þjóða tekið ástfóstri við. Milljónir nagla krafsa í malbikið á hveiju andartaki og dagurinn ekki orðinn ýkja gamall þegar afraksturinn tekur að sjást í torkennilegri móðu sem leggst yfir bæinn og líður út flóann með fram fjöllunum. Bílstjórar merkja viðbjóðinn á tjöruklístruðu blikki bifreiða sinna og má sjá þá reyta hár sitt á þvottaplönum þegar kústur og vatn breyta ófögnuðin- um í tyggjókennt klístur." Mengun við Miklubraut íbúar við Miklubraut hafa sent borgaryfirvöldum kvartanir vegna ryk- og hávaðamengunar af völd- um umferðar og rekja jafnvel or- sakir alvarlegra sjúkdóma til tjör- unnar. Ef borgin er svona óhrein af völdum negldra hjólbarða eins og Pétur Gunnarsson lýsir henni þá hlýtur að vakna sú spurning hvað stjórnvöld í Reykjavík hafa gert í tengslum við rannsóknir á tjörumenguninni. Að því er virðist hafa litlar sem engar rannsóknir farið fram á þessum þætti. Fljót- um við ef til vill sofandi að feigða- rósi í þessu efni? Það að ætla að sigla inn í nýtt árþúsund undir gulu eiturskýi mengunar er frekar dapurleg sýn til nýrrar aldar á tímum endurvakningar lands- manna til betra og hreinna lífs. Eru harðkornadekk lausn á umhverfisvanda? Undanfarin ár hefur í fjölmiðlum verið kynnt af og til þróunarverk- efni sem miðar að því að draga bæði úr loftmengun og umhverfis- hávaðanum í Reykjavík sem og öðrum borgum í norðanverðri Evr- ópu. Verkefnið hefur gengið undir nafninu harðkornadekk (demants- hjólbarðar). Hjólbarðar þessir hafa samkvæmt rannsóknum helstu vegarannsóknastofnana í Svíþjóð og Þýskalandi skilað eftirfarandi niðurstöðu: í fyrsta lagi að harð- kornadekk hafa svipað viðnám og negldir hjólbarðar á ís, í öðru lagi að harðkornadekk slíta yfirborði vegar 93% minna en nagladekk. Naglar valda helmingnum af um- ferðarhávaða á stofnbrautum í Reykjavík samkvæmt mælingum Hollustu- verndar ríkisins. Harð- komadekk eru háv- aðalaus. Vistvænir og öruggir Markmiðið með þró- un nýrrar gerðar af umhverfisvænum hjól- börðum til vetrarakst- urs er í meginatriðum fólgið í því að þróa hjólbarða sem eru í senn vistvænir og ör- uggir til vetrarakst- urs. Framkvæmdar hafa verið margvísleg- ar rannsóknir og notendapróf. Nýiðn er nafnið á fyrirtækinu sem hefur unnið þetta verk. Nýiðn er Harðkomadekk hafa svipað viðnám og negldir hjólbarðar, segir Olafur Jóns- son, en slíta yfírborði vega 93% minna en nagladekk. ekki hjólbarðaframleiðandi heldur þróunarfyrirtæki sem hefur sér- hæft sig í að finna vistvænar lausn- ir í tengslum við minnkun hávaða og rykmengunar af völdum um- ferðar. Harðkomadekk eru sér- hönnuð til þess að draga úr um- hverfismengun án þess að fórna mikilvægi öryggis í akstri. Harð- korn hafa hörku nálægt hörku demanta. Kornin eru skaðlaus samkvæmt vottorði frá Hollustu- vernd breska ríkisins. Áður en þau eru sett inn í vinnslurás við fram- leiðslu á endursóluðum hjólbörðum eru þau húðuð með sérstökum bindiefnum. Öllum framleiðendum hjólbarða mun í framtíðinni standa til boða korn og tækni Nýiðnar til hjólbarðaframleiðslu. Harðkorna- dekk hafa undanfarin ár verið framleidd hér í tilrauna- og rann- sóknaskyni. Helstu kostir harðkornahjól- barða Nýiðnar eru eftirfarandi: Rannsóknir og athuganir hafa sýnt að helstu kostir harðkornahjól- barða eru eftirfarandi: Gott viðnám á þurrum vegi, gott viðnám á blautum vegi, gott viðnám í hálku, rásfastir við ólíkar aðstæður, viðunandi slit á vegi, viðunandi tjöruleysing, mengun í lágmarki, enginn hvinur í akstri, hægt er að nota þá sem heilsárs- hjólbarða. Kornin eru til staðar í öllum munsturhluta hjólbarðans og halda því jafnri virkni allan ending- artíma hjólbarðans. Vegna lítils eigin þunga valda harðkorn ekki tjóni þegar þau losna. Helstu ókostir harðkornadekkja Rannsóknir og notkun hafa ekki leitt í ljós neina merkjanlega ókosti. Helstu kostir negldra hjólbarða eru eftirfarandi: Gott veggrip í hálku, meðan þeir skauta ekki og naglar eru Ólafur Jónsson Sólar- og öryggisfilman Stórminnkar sólarhitann Ver nærri alla upplitun. Gerir glerið 300% sterkara. Setjum á bæði hús og bíla. Skemmtilegt ehf Krókhálsi 3, s. 587 6777 V óslitnir. Helstu ókostir negldra hjólbarða eru eftirfarandi: Naglar haldast illa í dekki ef ekið er greitt á auðu yfirborði, naglar eyðast og tapa upprunalegum eiginleikum of fljótt, hætta er á „skautun" og aukinni hemlunarvegalengd á þurru malbiki, hætta á minna veg- gripi á blautum vegi, aukinn við- haldskostnaður á vegum, hvinur í akstri, óviðunandi tjöruleysing og mengun. Þegar efnismiklir naglar losna geta þeir valdið lakk- skemmdum framan á bifreiðum sem ekið er á eftir naglabifreið á mikilli ferð. Nagladekk eru aðeins nothæf að vetri. Upphaf harðkornadekkja Hugmyndir um að setja korn og málmþræði í dekk er þekkt frá því um miðja þessa öld. Höfundur þessarar greinar hóf tilraunir með nýja tækni við gerð harðkorna- dekkja fyrir 24 árum. Tilraunirnar gáfu góða raun en vantaði stuðn- ing. Fyrir 5 árum hóf undirritaður vinnu við verkefnið að nýju og fyrir þremur árum í samstarfi við verkfræðinginn Helga Geirharðs- son. Haustið 1995 var stofnað fyrirtækið Nýiðn um þróun verk- efnisins. Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga lagði til fyrsta fjár- magnið til verkefnisins. Rannís, samgönguráðuneytið, Reykjavík- urborg og fleiri aðilar hafa síðan stutt verkefnið. 20 milljóna króna styrkur Evrópusambandsins Nýverið var samþykktur 20 milljóna króna styrkur til Nýiðnar vegna þróunarverkefnisins harð- kornadekk í nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Verkefnis- stjórn er í höndum Nýiðnar. Þróun verkefnisins verður í samstarfi við breskt fyrirtæki sem er stærst sinnar tegundar í Evrópu. Gert er ráð fyrir tilraunaframleiðslu næstu 2 ár eins og sl. 2 ár. Gert er ráð fyrir að í byijun ársins 2000 verði magnframleiðsla á harðkornum sett í gang hér á landi og smíði á tæknibúnaði til þess að koma þeim inn í vinnslurás fullbúin til markaðssetningar. Gert er ráð fyrir að tilkoma endur- sólaðra harðkornadekkja muni al- mennt auka notkun endursólaðra hjólbarða í Evrópu og víðar. Slík aukin endurnýting er eitt af mark- miðum Evrópusambandsins vegna vandamála sem tengjast förgun notaðra hjólbarða. Framleiðslan á hjólbörðum í heiminum er um 2 milljónir dekkja á dag. Lausn á umhverfisvanda? Tjara úr malbiki sem dreifist um allt með andrúmslofti, inn um glugga, á bíla og hús, í öndunar- færi o.s.frv, er vissulega um- hverfísvandamál. Með notkun harðkornadekkja er möguleiki á að draga úr þessari mengun án þess að draga úr öryggi vegfar- enda. Rannsóknir hafa sýnt að við lagningu malbiks veldur uppleyst tjara margvíslegum sjúkdómum, m.a. ofnæmi og krabbameini auk þess að auka verulega tíðni dauðs- falla. Takmarkaðar rannsóknir eru á skaðsemi upprifinnar tjöru af völdum nagladekkja. 26 grömm á hvern kílómetra Samkvæmt nýlegri sænskri skýrslu losna um 26 grömm af malbiki á hvern kílómetra þegar ekið er á negldum hjólbörðum á venjulegri fólksbifreið. Hjá VTI (Vegamálastofnun sænska ríkis- ins) sögðu þeir sem dæmi að vöru- bifreið sem ekið væri frá nyrsta hluta Svíþjóðar til syðsta hluta Svíþjóðar rifi upp malbik sem nægði til þess að fylla pall bifreið- arinnar á þeirri akstursvegalengd. Heildarslitið í Svíþjóð nemur um 300.000 tonnum á ári vegna nagla. Heildarviðhaldskostnaður gatnakerfis Reykjavíkurborgar er talinn nema um 200 milljónum króna á ári og er áætlað að stærsti hluti þess kostnaðar sé vegna negldra hjólbarða. Niðurstöður rannsókna sýndu að harðkorna- dekk slíta aðeins sem nemur 7% af hundraði af því sliti sem nagla- dekk valda og því getur notkun þeirra haft í för með sér verulegan sparnað fyrir ríki og sveitarfélög vegna minna viðhalds á vegakerf- inu og minni kostnaðar við heilsu- gæslu. Götur sem breytast í ryk Heildarmagn upp-rifinnar tjöru í Reykjavík og nágrenni er á hveij- um vetri á bilinu 15 til 20 þúsund rúmmetrar. Æskilegt væri að kanna tengsl kvilla og rykmengun- ar í borginni eftir mánuðum. Versti mánuður ársins er aprílmánuður. Draga mætti verulega úr hávaða og rykmengun á stofnbrautum i Reykjavík (m.a. Miklubraut) með notkuií harðkornadekkja í framtíð- inni. Aðrar lausnir þýða kostnað sem mælist minnst í tugum millj- óna. Notkun harðkornadekkja mundi draga úr óþarfa rykmengun og eitrun andrúmsloftsins. Sam- kvæmt mælingum Hollustuverndar ríkisins valda naglar í dekkjum helmingnum af umhverfíshávaðan- um í borginni. Framleiddar eru mismunandi tegundir nagla m.a. svokallaðir léttnaglar. Allir naglar hafa það sammerkt að naga tjöruna utanaf mölinni í malbikinu, losa steinana og opna leið fyrir uppbrot á yfir- borði vegarins. Það er bein eðlis- fræðileg virkni pinna sem stendur út úr hjólbarða að naga yfirborðið. Naglar eru í upphafi hannaðir með öryggishagsmuni ökumannsins í huga en ekki eigendur vegakerfis- ins. Fjöldi naglaeinkaleyfa er til í heiminum en það er sammerkt með þeim öllum að aukin viðnámsvirkni þýðir almennt aukið uppbrot veg- ar, minni virkni og færri naglar minna uppbrot. Naglar slitna og falla úr við notkun sérstaklega á auðu yfirborði (þegar engin þörf er fyrir þá). Harðkorn eru hins vegar hluti af gúmmímassanum. Þegar gúmmíið slitnar falla korn úr og ný harðkorn koma í ljós. Þau liggja í yfirborðinu á hveijum tíma en standa ekki út úr því eins og naglar. Þann 25. apríl sl. var sam- kvæmt litlu úrtaki 50% bifreiða í Reykjavík á negldum hjólbörðum þrátt fyrir reglugerðarákvæði um að taka beri nagladekk undan eigi síðar en 15. apríl. Hreinasta borg Evrópu Reykjavík gæti skipað sér á bekk með hreinustu og hávaðam- innstu borgum í Evrópu í byijun nýrrar aldar með því að draga úr notkun nagladekkja og nota vist- vænni lausnir eins og harðkorna- dekk. í skýrslum Hollustuverndar ríkisins kemur fram beint samband milli notkunar nagladekkja og ryk- mengunar í borginni. Ákvörðun Evrópusambandsins um að styrkja tækniyfirfærslu harðkornaverk- efnisins til fyrirtækja í Evrópu er Ijós vitnisburður um tiltrú sérfræð- inga Evrópusambandsins á verk- efninu og vísbending um þörf á þessu þróunarverkefni til umhverf- isverndar í löndum Evrópu. Rannsóknir og notendapróf Haustið 1995 fór fram rann- sókn hjá VTI ( Vegarannsókna- stofnun sænska ríkisins) á viðn- ámi harðkornadekkja Nýiðnar í samanburði við nagladekk. Próf- unin fór fram á blautum ís. Niður- staðan var svipað viðnám harð- kornadekkja og negldra hjólbarða. Haustið 1996 fór fram rann- sókn hjá BAST (Vegarannsókna- stofnun þýska sambandsríkisins) á yfirborðssliti vegar af völdum harðkornadekkja í samanburði við nagladekk. Niðurstaða rann-. sóknarinnar var sú að harðkorna- dekk slíta yfirborðinu sem nemur 7 af hundraði miðað við nagladekk Vorið 1996 for fram viðhorfs- könnun meðal notenda harðkorna- dekkja hér á landi veturinn 1995-96. Niðurstaða viðhorfs- könnunarinnar var sú að 9 af hveijum 10 sögðu að þeir mundu nota harðkornadekk í framtíðinni til vetraraksturs. Þátttakendur voru aðallega lögreglumenn sem óku lögreglubifreiðum. Notendur álitu dekkin einnig betri en nagla- dekk í snjó, í krapa og í bleytu. Veturinn 1996-97 voru seld harðkornadekk á almennum markaðh Skráðir voru notendur þeirra. Á næstunni verður safnað niðurstöðum af mati notenda þeirra í vetur svipað og gert var á sl. vori. SVR vagnstjórar hafa prófað stór harðkornadekk í vetur framleidd hjá samstarfsaðila Ný- iðnar í Bretlandi. Harðkornadekk undir strætisvögnum í viðtali við varðstjóra SVR ný- verið um viðhorf ökumanna vagn- anna sem óku í vetur á harðkorna- dekkjum kom fram mjög jákvætt mat ökumannanna á aksturseigin- leikum harðkornadekkjanna. Fram- leiðslustjóri hins breska samstarfs- fyrirtækis Nýiðnar var hér nýverið til þess að fylgjast með tilraunahjól- börðunum bresku. Slit á hjólbörðun- um í millimetrum miðað við akstur gaf til kynna að líftími munstursins er á bilinu 90 til 100 þúsund km sem er gott að mati framleiðanda. Hafa þarf í huga að stórir hjólbarð- ar eru almennt vandaðri framleiðsla en fólksbíladekk og hafa af þeim sökum einum saman mun meiri endingu. „Að taka það bókstaflega í nefið“ Pétur Gunnarsson, rithöfundur, segir í grein sinni í DV: „Ég er sannfærður um að hinar dular- fullu pestir sem heija lotulítið á Reykvíkinga að vetri til eiga orsök sína í því kynngimagnaða eitur- brasi sem þeir anda að sér.“ Getur verið að aukning á krabbameini í lungum eigi sér meðorsakir í auk- inni umferð og aukinni mengun andrúmsloftsins? Allir eru meðvit- aðir um að tjara úr sígarettum veldur sjúkdómum. Er tjaran úr malbikinu ef til vill engu síður hættuleg og orsakavaldur ótíma- bærs dauða af völdum krabba- meins? Það er ekki viðfelldin hugs- un til framtíðar að láta börnin okkar anda að sér 15 til 20.000. rúmmetrum af uppþyrluðu yfir- borði vega á hveijum vetri eða „taka það bókstaflega í nefið“, eins og Pétur Gunnarsson orðar það í áðurnefndri grein sinni. Norðmenn hafa ákveðið að banna notkun negldra hjólbarða í helstu borgum Noregs strax árið 1998. Kynning á harðkornadekkjum verður í nokkrum borgum í Nor- egi næsta vetur og er sú kynning hluti af framkvæmd þróunarverk- efnis Nýiðnar. Verður Reykjavík hreinasta borg Norðurlanda árið 2005? Til þess að svo megi verða þurfa borg- aryfirvöld í Reykjavík að vera vakandi yfir möguleikum nýrrar tækni til umhverfisverndar. Rann- sóknir og notendapróf hafa sýnt að harðkornadekk er raunhæfur valkostur í náinni framtíð, val- kostur sem getur stuðlað að því að Reykjavíkurborg verði hrein- asta og hávaðaminnsta borg Norðurlanda og ef til viil jafn- framt sú hreinasta í allri Evrópu. Höfundur er stjórnarformaður Nýiðnar ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.