Morgunblaðið - 25.05.1997, Síða 18
*18 B SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
M AIM N Ll FSSTRAU M AR
VISINDI /Hvemiggeymast minningamar
Minnisfesta
HEILINN vinnur úr öllum þeim skynhrifum sem líkaminn
verður fyrir. Sífelid endurtekning sömu skynhrifa veldur
varanlegum breytingum á tengslunum á milli þeirra
taugafruma sem örvast við skynhrifin. Endurvakning
minningar, eða kunnugleiki skynhrifa, byggist einfaldlega
á endurörvun þeirra taugafruma og taugamóta sem oft
áður hafa örvast við sömu viðburði. Öll skynhrif sem við
verðum fyrir örva því ákveðið taugamótamunstur sem
er einkennandi fyrir þessi sérstöku skynhrif. Hæfileikinn
^til að muna og tengja saman skylda atburði og hrif úr
1 skynheimi okkar byggist á getu heilans til að þróa tauga-
j mótamunstur sem túlkar öll skynhrif okkar og raðar
þeim saman í eina rökræna heild. Spuming sem taugalíf-
eðlisfræðingar hafa velt fyrir sér um margra ára skeið
varðar viðhald þessa taugamunsturs sem skynhrif og
reynsla byggja upp. Viðhald þessa kerfis er forsenda
samfellds þróunar- og vitundarferils, sem er undirstaða
heilsteypts persónuleika. Uwe Frey við Háskólann í
Magdeburg í Þýskalandi og Richard Morris við Háskólann
í Edinborg hafa nýlega birt niðurstöður rannsókna sem
varpa nýju ljósi á þetta vandamál.
Ef tvær taugafrumur örvast
samtímis við sama áreiti þá
leiðir það til breytingar á tauga-
mótum viðkomandi fruma. Það er
tilvist ákveðinna hvítuefna í
taugamótunum
sem stuðlar að
styrkleika breyt-
ingu þeirra.
Styrkleika breyt-
ing sem orsakast
af einstöku áreiti
er hinsvegar ekki
til langframa. Ef
áreitið er ekki
endurtekið hverfa taugatengslin
aftur til fyrra gildis og um leið
^glatast minningin um skynhrifín.
Einungis síendurtekið áreiti leiðir
til varanlegrar breytingar tauga-
móta. En hvernig á þessi breyting
sér stað og hvaða ferlar eru það
sem treysta varanlega breytingu
taugamótanna?
Það hefur um nokkurn tíma
verið skoðun taugalífeðlisfræðinga
að treysting taugamóta byggist á
virkni hvítuefna sem myndast við
örvun þeirra. Trúlegt er að þessi
nýmynduðu hvítuefni ferðist til
þeirra taugamóta sem nýlega hafa
orðið fyrir breytingu og stuðli þar
að herðingu þeirra. Óleysta vanda-
málið hingað til var það hvernig
hvítuefnin finna réttu taugamótin.
Af hveiju styrkja þau ekki einfald-
lega öll taugamót sem tengjast
þeirri taugafrumu sem orðið hefur
fyrir síendurtekinni áreitni? Það
var einmitt þetta vandamál sem
Frey og Morris settu sér að leysa.
Frey og Morris studdust við al-
mennt viðurkennt líkan af hátterni
taugamóta. Samkvæmt því er
hægt að stuðla að breytingu
taugamóta með þvi að notast við
hátíðni áreiti, iðulega af stærðarg-
ráðunni 100 Hz. Stutt áreiti leiðir
til breytinga sem hverfa fljótt, oft
eftir tvær til þijár klukkustundir.
Lengra áreiti leiðir til jafnsterkra
breytinga á taugamótunum sem
hins vegar geta varað í átta til tíu
klukkustundir. Líkanið gerir ráð
fyrir því að það sé breyting á hvítu-
efnum í taugamótunum sem stuðl-
ar að styrkingu þeirra. Til þess
að gera breytinguna varaníega
komi hins vegar til myndun nýrra
hvítuefna sem festa það sem á
hefur unnist. Vísindamennirnir
höfðu sérstakan áhuga á því að
rannsaka þá ferla sem gerðu
breytingar taugamótanna varan-
legar.
í þessu skyni framkvæmdu Frey
og Morris áhugaverðar tilraunir
með örvun taugamóta. Til að byija
með leiddu þeir síendurtekið áreiti
til ákveðinna taugamóta tauga-
frumu. Þessi áreiti leiða til mynd-
unar hvítuefna sem stuðla að
styrkingu þessara taugamóta. Þeir
athuguðu síðan eftirfarandi. Hvað
gerist ef nokkru seinna önnur
taugamót sömu taugafrumu verða
fyrir áreiti? Stuðla áður mynduð
hvítuefni einnig að styrkingu þess-
ara taugatengsla? Frey og Morris
fundu að hvítuefnin sem mynduð-
ust við áreiti fyrstu taugamótanna
gátu einnig leitt til varanlegra
breytinga á seinni taugamótunum,
svo framarlega sem örvun þeirra
átti sér stað ekki seinna en 90
mínútum eftir örvun fyrstu tauga-
mótanna.
Minnisleysi er vandamál sem
margir eiga við að glíma. Að
ákveðnu marki er það eðlilegur
hluti öldrunar, en það er einnig
fylgifískur margra sjúkdóma. Það
er ekki útilokað að einhvern tíma
í framtíðinni geti niðurstöður þess-
ara rannsókna leitt til betri skiln-
ings á minnislevsi og jafnvel bent
á nýjar leiðir til að sporna gegn
ágangi þess.
eftir Sverri
„Desi varð strax ein af okkur“
•1
Jón Gunnarsson og Soffía
Sveinsdóttir ásamt syninum
Viktori og Désirée frá Þýskalandi:
„Desi varð strax ein af okkur.
Fólk talar um að það geti ekki
hýst skiptinema vegna tíma-
leysis en auðvitað er ekki ætlast
til að fjölskyldan hafi ofan af fyrir
krökkunum daginn út og inn.
Unga fólkið er í skólanum megnið
af deginum, eignast sína vini
og hefur yfirleitt nóg að gera.
Okkur hefur fundist ákaflega
lærdómsríkt að hafa ungling á
heimilinu og það verður mikill
söknuður á báða bóga þegar
Desi heldur heim í sumar“.
Við öskum eftir fjölskyfdum fyrír skiptinema
a aldrínum 16-19 ára, frá miðjum águst ‘97
tíl júní '96 eða hálft þetta tímabif.
Nánari upplýsingar á
skrifstofu AFS á íslandi,
Laugavegi 26, 3. hæð,
sími 552 5450.
Laugavegi 26, sími 552 5450.
VERNDUN
TIL FRAMTÍÐAR
Umhverfisvæn
ferðamennska
er orð dagsins, sem
allir eru með á vör-
unum. Innihaldið er
stundum svolítið rýrt. í umræðu
um álbræðslu, sem stillt hefur
verið upp á móti ferðamennsku
sem mengunarlegum andstæð-
um, kom upp að með mikilli
aukningu ferðalaga verður loft-
mengun af farartækjum, bílum
og flugvélum, ekki minni en af
álverksmiðju. Ekkert er samt
reynt að rýna í hve mikla ferða-
mannamengun fólk geti sætt sig
við eða í hve ríkum mæli hún
sé eftirsóknarverð. Kannski
þurfum við enn meiri aðgát en
margir aðrir, þar eð hér eru
ekki rafmagnsjárnbrautir til
fólksflutninga heldur eingöngu
olíuknúin farartæki.
Víða eru menn farnir að
hugsa á þeim nótum. Ekki endi-
lega að takmarka ferðamanna-
strauminn heldur draga veru-
lega úr meng-
andi áhrifum
af hans völd-
um. Þetta gár-
aði sinnið við
gluggann á
hóteli Holiday
Inn með útsýni
út á Marmara-
hafið þar sem
flutningaskipin
liggja við fest-
ar og bíða af-
greiðslu í höfn-
inni í Istanbul.
í þessu glæsi-
hóteli þar sem
lítt er til sparað
hékk á hurð-
inni og gat ekki
farið fram hjá
nýjum gestum,
spjald með áletrun á fjórum
tungumálum: Þetta hótel er
þátttakandi í alheimsátaki
Holiday Inn-hótela um víða ver-
öld, „Verndum til morgundags-
ins“. I þeim tilgangi að spara
dýrmætar auðlindir, svo sem
orku og vatn, og hindra mengun
af notkun þvottaefna, þá kýs
þetta hótel okkar að þvo ekki
nema á þriggja daga fresti af
rúmum þeirra gesta sem dvelja
hér fleiri en eina nótt. Ef þú
vilt samt sem áður fá skipt oftar
á rúminu, hengdu þá vinsamleg-
ast þetta spjald á utanverðan
hurðarhúninn á herberginu
þínu.“ Sömu hugsun rekst mað-
ur nú á á Evrópuhótelum og
þykir sjálfsagt. í baðherberginu
er þá spjald þar sem gesturinn
er beðinn vinsamlegast að skilja
eftir á gólfinu handklæði sem
eigi að þvo, en hengja upp ónot-
uð handklæði og þau sem nota
megi aftur. Á nokkrum stöðum
er hætt að skipta um pakkað
sápustykki daglega og sápu-
skammtar við vaska og sturtur.
Þetta er óháð ódýru eða dýru
hóteli. Það er breyttur hugsun-
arháttur. Og því er vel tekið af
gestum. Ég var a.m.k. fegin að
dregið er úr mengunarefnum
sem send eru út í þetta þrönga
sund milli Litlu-Asíu og stór-
borgarinnar.
Nú vita allir hve skaðleg
þvottaefni, einkum þau sem not-
uð eru í þvottavélar, eru í vatni.
Mörg dæmi eru um hvernig slík
mengun hefur eytt lífríki í vötn-
um. Vaknar spurningin hvað við
gerum til að koma í veg fyrir
að þeim sé hleypt ómælt út í
ár og vötn eða veitt í sjóinn með
skolpinu? Það gladdi því mitt
hjarta að vita að Samband veit-
inga- og gistihúsa hóf fýrir
tveimur árum þessháttar her-
ferð. Hefur látið prenta spjald
og sent öllum hótelum á land-
inu, þar sem segir: „Getur þú
ímyndað þér þau
ógrynni af þvotta-
efni sem rentia dag-
lega til sjávar
vegna þvotta á
handklæðum, sem einungis hafa
verið notuð einu sinni? Við vilj-
um draga úr þessari mengun til
að vernda umhverfið. Ef þú vilt
leggja okkur lið biðjum við þig
að athuga eftirfarandi.“ Svo
koma ofannefndar leiðbeiningar
með mýndum.
Þetta skiptir óhemju máli og
mætti bæta þvotti á rúmfatnaði
við í næstu atrennu. Lítum til
dæmis á hið grunna og við-
kvæma vatn Mývatn með öllu
sínu dýrmæta lífríki, þar sem
ferðamannastraumurinn fer sí-
vaxandi. Vatnið með sínu óvið-
jafnanlega fuglalífi er það sem
að dregur. Ég hringdi í Ingi-
björgu hótelstjóra í Hótel
Reykjahlíð, sem mér heyrðist
hafa fullan hug á þessu. Hún
kannaðist við að erlendir gestir
á hótelinu hefðu aðgreint
óhreinu handklæðin óbeðnir. Svo
sjálfsagt þykir þetta orðið. Stærri
hótelin á landinu eru a.m.k. byrj-
uð á þessu. íslendingar þurfa líka
eins og aðrir ferðamenn að fara
eftir því og með nýrri hugsun
er ekki síður mikilvægt að spara
þvottaefnisaustur á heimilunum.
I átaki Sambands veitingahúsa-
og gistihúsa er í bæklingi líka
hvatt til að velja hreinsiefni sem
brotna hratt og örugglega niður
í náttúrunni, fækka tegundum
og nota rétta skammta. 70-80%
notenda skammti of mikið. Þessi
ofnotkun valdi óþarfa mengun
og kostnaði.
Fleiri einfaldra ráða til meng-
unarvama er þar hvatt til. Eitt
af því er reyklaust svæði, tilboð
um reyklaus hótelherbergi og
reyklausan morgunverð. Þetta
er nú líka að verða algengt í
einkasamkvæmum. Ekki hefi ég
þó fyrr fengið aðvömn fyrirfram
eins og með boði í danska sendi-
ráðið á þjóðhátíðardag þeirra,
sem mér finnst frábært. Með
boðskorti fylgir miði sem á stend-
ur að í samræmi við tóbaksvama-
stefnu sendiráðsins, sem það deili
með mörgum öðram, séu gestir
beðnir um að sýna reyklausu
fólki þá tillitssemi að reykja ekki
í stofunum. Ef einhver fái ómót-
stæðileg fráhvarfseinkenni, er
þeim vísað út í garð eða skrifstof-
urnar á neðri hæðinni.
Næstu vangaveltur era svo í
hve ríkum mæli íslendingar era
famir að endurhæfast sem aðrar
þjóðir og ansa mengunarreglum.
Við dagvistarstofnanir hafa lengi
verið skilti með beiðni um að
fólk drepi á bílunum á meðan
börnunum er skilað eða þau sótt.
Þama hefí ég séð bíla í hæga-
gangi. Að óreyndu mundi maður
ekki trúa því að foreldri vilji
senda koltvísýringsmengun yfir
ungann sinn, burt séð frá hinum.
En svona var það og er það enn!
eftir Elínu Pálmadóttur
Efþú vik nota handklæóiö
þittaftur, vinsamlegast
hengdn það upp.
Efþú vil hreinthandklæði,
vinsamlcgast skildu notaða
handklxðið cftirágólfinu.