Morgunblaðið - 07.06.1997, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C
126. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjóriiarflokkur Alsirs með flest þingsæti
Asakanir um
kosningasvik
Algeirsborg. Reuter
NÝSTOFNAÐUR flokkur Liamine
Zeroual, forseta, sópaði til sín at-
kvæðum í þingkosningum í Alsír á
fímmtudag.
Flokkur forsetans og stuðnings-
manna hans, sem stofnaður var fyrir
þremur mánuðum, fékk 155 þing-
sæti af 380. Formenn annarra
flokka hafa flestir sett fram ásakan-
ir um kosningasvik. Mustapha Ben-
mansour, innanríkisráðherra, vísaði
öllum ásökunum á bug. „Þetta eru
söguleg úrslit," sagði hann, „sigur-
inn er þjóðarinnar sem mun nú
byggja upp með lögum og lýðræði."
Yfirvöld höfðu lýst því yftr fyrir
kosningar að þeim væri ætlað að
leggja grundvöll að fjölflokka lýð-
ræði og binda enda á fimm ára blóð-
uga borgarastyrjöld. Styrjöldin sem
hefur kostað um 60.000 mannslíf,
braust út eftir að úrslit kosninga,
þar sem flokkur strangtrúaðra
múslima (FIS) vann stórsigur, voru
gerð ógild.
Islömsku frelsisfylkingunni (FIS)
og öðrum strangtrúarflokkum var
bönnuð þátttaka í kosningunum á
fimmtudag og því telja frétta-
skýrendur ósennilegt að raunveru-
leg þjóðarsátt geti náðst.
Mikil öryggisgæsla var við kjör-
staði en þó hafa borist fregnir af
a.m.k. tveimur árásum á kjósendur.
Reuter
Jeltsín ögrar
kommúnistum
Lenín fái
kristilega
greftrun
Pétursborg. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, ögraði kommúnistum í
gær með því að leggja til að lík
trúleysingjans Vladímírs Len-
íns fengi kristilega greftrun.
Stjórn Jeltsíns hefur ýjað að
því að hann kunni að leysa
þingið upp samþykki það ekki
frumvörp stjórnarinnar um
efnahagsumbætur og forsetinn
virtist njóta þess að bjóða and-
stæðingum sínum birginn með
því að leggja til að þjóðin
ákvæði í atkvæðagreiðslu í
haust hvoi-t grafa ætti lík bylt-
ingarleiðtogans.
„Kommúnistar eiga auðvitað
eftir að berjast gegn þessu, en
ég er vanur að berjast við þá,“
sagði hann.
Breytingar á Rauða
torginu bannaðar
Kommúnistar og bandamenn
þeiiTa hafa lagst gegn því að lík
Leníns verði flutt úr grafhýsi á
Rauða torginu í Moskvu og
þingið hefur samþykkt lög sem
banna breytingar á torginu.
Forsetinn hefur þó ekki stað-
fest iögin og ólíklegt er að hann
geri það.
Jeltsín lagði til að „líkfylgd-
arbláminn" yrði fjarlægður af
Rauða torginu, „ekki með ýtum
eða gröfum en smám saman og
á siðmenntaðan hátt... Þetta er
saga okkar. Við skulum gefa
þessu kristilegan blæ. Dauður
maður á ekki að vera ofan jarð-
ar. Hann á að vera grafinn í
jörð.“
Eins og vænta mátti urðu
andstæðingar Jeltsíns ókvæða
við þessari tillögu. „Þetta getur
valdið mjög alvarlegum átökum
í þjóðfélaginu,“ sagði Viktor
Iljúkhín, atkvæðamikill þing-
maður kommúnista.
Blair veitir Kohl
efnahagsráðgj öf
Nýjar atvinnuleysistölur þykja áfall fyrir þýsku stjórnina
Reuter
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, brosa til viðstaddra í móttöku í garði þýska
kanslaraembættisins í Bonn.
Bonn. Reuter, The Daily Telegraph.
TONY Blair, for-
sætisráðherra
Bretlands og jafn-
framt yngsti for-
sætisráðherra
Evrópu, kom í gær
í opinbera heim-
sókn til Þýska-
lands með áskorun
til Helmuts Kohls
kanslara, sem hef-
ur setið við völd
einna lengst evr-
ópskra leiðtoga,
um að koma lagi á
þýsk efnahagsmál.
I frétt dagblaðsins
The Daily Tel-
egraph í dag sagði
í fýrirsögn að Blair
hefði hrifsað frum-
kvæðið af Kohl í
Evrópu.
Blair segir leið-
togum til jafnt á
vinstri sem hægri
vængnum um
þessar mundir. Hann kom til Bonn
frá Málmey þar sem hann undir-
strikaði á þingi vinstri- og mið-
flokka að tímabært væri að losa sig
við úreltar hagfræðihugmyndir.
Frá Málmey til Bonn
Hann færði Kohl svipaðan boð-
skap. „Ef sameiginlegi markaður-
inn á að virka og Evrópa að halda
áfram í átt að myntbandalagi verð-
ur efnahagslífið í hverju landi að
vera í góðu ásigkomulagi," sagði
Blair við blaðamenn í flugvélinni á
leiðinni frá Svíþjóð til Þýskalands.
Áminning Blairs til Kohls birtist
einnig í viðtali við hann í þýska dag-
blaðinu Bilcl í gær og var því erfitt
að láta hana fram hjá sér fara.
Kohl tók hlýlega á móti Blair.
„Við okkur blasa umfangsmiklar
breytingar í Evrópu og heiminum,“
sagði hann við breska forsætisráð-
herrann í kanslaraskrifstofunni.
Atvinnuleysistölur áfall
Mikill styrr hefur staðið um
stjórn Kohls undanfarið vegna fjár-
lagavandans og erfiðleika í efna-
hagslífi. Ekki bætti úr skák að í gær
voru birtar tölur um að atvinnuleysi
hefði aukist í Þýskalandi í maí og
eni þær taldar áfall fyrir stjórnina í
tilraunum hennar til að uppfylla
skilyrðin fyrir inngöngu í Efnahags-
og myntbandalag Evrópu (EMU).
Búist var við að atvinnuleysi yrði
undir 11% í maí, en það reyndist
11,1%.
Blair gengur hins vegar allt í
haginn um þessar
mundir og sam-
kvæmt nýrri
skoðanakönnun,
sem The Daily
Telegraph birti í
gær, er hann vin-
sælasti forsætis-
ráðherra Breta
frá því að slíkar
kannanir hófust
fýrir hálfri öld.
Kváðust 82 af
hundraði að-
spurðra ánægðir
með frammistöðu
Blairs, en Marg-
aret Thatcher
hlaut aðeins náð
fyrir 41% á sama
tíma eftir sigur
hennar fyrir 18
árum. Ekki eru
liðnar nema fimm
vikur frá því að
Verkamanna-
flokkur Blairs
sigraði íhaldsflokkinn í kosningum
og komst til valda eftir 18 ára
stjórnarandstöðu.
Vandi Evrópu
Eftir fundinn með Kohl var Blair
spurður hvort hann væri ekki að
setja sig á háan hest með því að
messa yfir Kohl og öðrum sér
reyndari leiðtogum.
„Þetta er ekki spurning um að
setja sig á háan hest heldur er
þetta spurning um að segja við
fólk: Við skulum takast á við þau
sameiginlegu verk, sem bíða í lönd-
um okkar. Allir sjá hvaða vandamál
eru í Evrópu, einkum mikið at-
vinnuleysi."
■ Sigurvíma/22
Sierra Leone
Veikleika-
merki
eftir
valdarán
HERFORINGJASTJÓRNIN, sem
tók völdin í Sierra Leone 25.
maí, sýndi í gær veikleikamerki
og bað umheiminn hjálpar við að
ná samkomulagi. Valdaræningj-
arnir hafa þurft að eiga við
vopnaða ílilutun og verkföll og
hafa verið fordæmdir víða um
heim. Yfirlýsingin var flutt í rík-
isútvarpinu og þótti bera því
vitni að sveitir Johnnys Pauls
Koromas herforingja væru tekn-
ar að þreytast.
Stjórnin viðurkenndi að hún
hefði ekki bolmagn til að hafa
betur í annarri viðureign við Níg-
eríuher, sem á mánudag varpaði
sprengjum á Freetown, höfuð-
borg Sierra Leone, af hafi.
Koroma gefur viðtal
Koroma sagði í samtali við
Reuters-fréttastofuna, sem var
birt í gærkvöldi, að hann hefði
rænt völdum til að binda enda á
sex ára borgarastyrjöld og hann
hefði í hyggju að mynda stjórn á
breiðum grundvelli þar sem upp-
reisnarmenn fengju einnig að
silja við borð.
Ahmed Tejan Kabbah, sem
leitaði hælis í Ghana þegar hon-
um var steypt úr stóli forseta,
sagði í gær að hann væri bjart-
sýnn á að flokksfélagar sínir í Si-
erra Leone og erlendir vinir
myndu hjálpa sér að komast til
valda á ný.
Á myndinni sjást nígerískir
hermenn úr friðarsveitum Vest-
ur-Afríku, ECOMOG, hlaupa í átt
að þyrlu, sem átti að flytja þá til
aðhlynningar í Líberíu. Tíu Níg-
eríumenn létu lífið og 50 særðust
í átökum við her Sierra Leone á
mánudag.