Morgunblaðið - 07.06.1997, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fyrir-
lestur um
ástarfíkn
VILHELMÍNA Magnúsdóttir flytur
fyrirlestur um ástarfíkn í Deiglunni,
Kaupvangsstræti annað kvöld,
sunnudagskvöldið 8. júní kl. 20.
Ástarfíkn er skilgreind þannig í
tilkynningu um fyrirlesturinn að
manneskja einbeiti sér jafnmikið eða
meira að ástvini sínum, maka, barni,
foreldri, vini eða vinkonu heldur en
sjálfum sér. Ástvinurinn sé ekki
ætíð til staðar, hann leiti meira í
annað, vinnu, áhugamál eða áfengi
svo eitthvað sé nefnt.
Eyj afj ar ðar s veit
Reiðleiðin opnuð
að Hrafnagili
LANDEIGENDUR í Eyjafjarðar-
sveit sem ný lega lokuðu reiðleiðinni
frá Akureyri inn að Hrafnagili að
vestan, hafa samþykkt að opna leið-
ina að nýju. Að sögn Sigfúsar Helga-
sonar, formanns hestamannafélags-
ins Léttis á Akureyri, hillir nú undir
lausn í deilu landeigenda og hesta-
manna.
Sigfús segir að hestamenn hafi
jafnframt skuldbundið sig til að setja
upp skilti við reiðleiðina þar sem
umgengnisreglur eru kynntar.
Hestamenn í Funa í Eyjafarðarsveit
og Létti samþykktu á sameiginleg-
um fundi í vikunni að leggja til við
sína félagsmenn að fara með rekstur
lausagönguhrossa austan við Eyja-
fjarðará inn að Hrafnagili en ekki
að vestanverðu. „Ég vænti þess að
við séum komnir á beinu brautina
og deilum um reiðvegamál í Eyja-
fjarðarsveit að ljúka. Ég trúi því að
landeigendur, hestamenn, sveitar-
stjórn og vegagerð snúi nú bökum
saman og við förum í það að gera
reiðvegakerfið í sveitinni eins vel úr
garði og hægt er fyrir landsmót.
Við erum farnir að telja niður fram
að landsmóti og í dag, (í gær) eru
398 fram að mótinu,“ sagði Sigfús.
♦ ♦ ♦
Sigríður
talar á
Aglowfundi
SIGRÍÐUR Guðmundsdóttir prest-
ur í Ólafsfirði talar á opnum
Aglowfundi sem verður í félags-
miðstöðinni Víðilundi 22 á Akur-
eyri næstkomandi mánudagskvöld,
9. júní og hefst kl. 20.
Þá verður sungið og kaffihlað-
borð stendur til boða, þátttöku-
gjald er 300 krónur og eru allir
velkomnir.
hAbkúunn
A AKUBEVRI
Opinn
fyrirlestnr
Tími: Mánudagurinn 9. júní 1997, kl. 15.00.
Staður: Háskólinn á Akureyri, Glerárgötu 36,
stofa 203, annarri hæð.
Flytjendur: Júlíus Birgir Kristinsson, lífeðlisfræðingur,
Valdimar G. Valdimarsson, rafeindavirkjameistari,
Snorri Jósefsson, fisksjúkdómafræðingur og
Brynjólíur Snorrason, löggiltur sjúkranuddari.
Efni: Kynning á áhrifum rafsviða og segulsviða á
lífverur.
Ollum er heimill aðgangur
ILilÉJÍ
N0RÐURUNDSHE*
Hluthafafundur
Hluthafafundur Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. verður haldinn á
Hótel KEA mánudaginn 16. júní nk. og hefst kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Tillaga um heimild handa stjórn
Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. um kaup á
hlutabréfum í Hlutabréfasjóði Norðurlands hf.
2. Önnur mál löglega fram borin.
Tillagan Iiggur frammi á skrifstofu Kaupþings
Norðurlands hf. frá og með 15. júní.
Akureyri, 5. júní 1997.
Stjórn Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
Um 150 ungmenni taka þátt í danslistamóti
Fjölbreytt danssýning
í íþróttahöllinni
D AN SLISTAMOT verður
haldið í Iþróttahöllinni á Ak-
ureyri nú um helgina.
Þátttakendur eru nemend-
ur frá skapandi dansskólum
víðsvegar á landinu, á aldrin-
um 12 til 18 ára. Þátttakendur
eru um 150 talsins.
Á mótinu gefst þátttakend-
um kostur á að þjálfa sig í
ýmsum greinum danslistar-
innar; klassískum ballett, nú-
tímadansi, djassdansi og
dansspuna undir leiðsögn úr-
vals danskennara.
Danslistamót var haldið í
fyrsta sinn á Sauðárkróki
1994 að frumkvæði Arnar
Inga Gíslasonar fjöllista-
manns. Þótti það einkar vel
heppnað og ríkti mikill sköp-
unarkraftur og góð samvinna
meðal þátttakenda. Þessi sam-
Falleg sumarblóm,
matjurtir, skrautrunnar
og rósir, jjölœr blóm og
skógarplöntur, pottablóm
i sálstofur og sólskála.
Munið vinseelu
gjafakortin okkar.
Opiðfrá kl, 09-20
virka daga,
kl. 10-18 laugard.
og sunnud.
Verið velkomin.
llP
Garöyrkjustööin
GRÍSARÁ
Eyjafjaröarsveit
Sími 463 1129 Fax 463 1322
Heimasíða: http:www.nett.is/grisar
póstfang: grisara@nett.is
heldni og sköpunarkraftur
varð kveikjan að árlegu dans-
listamóti og hafa þau verið
haldin á Akureyri 1995 og á
Selfossi 1996. Tilgangur dans-
mótsins er að efla og styrkja
listrænan dans, jafnframt
verða ungmennin reynslunni
ríkari og ekki síst öðlast þau
meiri víðsýni innan danslistar-
innar.
Mótinu lýkur með fjöl-
breyttri danssýningu úr
smiðju hvers skóla og verður
hún í íþróttahöllinni kl. 16 á
sunnudag, 8. júní.
Guðbjörg Arnardóttir dans-
kennari sagði að fjölmörg
dansatriði yrðu á sýningunni
og ættu allir í fjölskyldunni
að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Aðgangur er ókeyp-
is.
Sigfríður
formaður
Eyþings
SIGFRÍÐUR Þorsteinsdóttir, bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokksins í
bæjarstjórn Akureyrar, var kjörin
formaður Eyþings, samtaka sveit-
arfélaga í Eyjafjarðar- og Þingeyj-
arsýslum á aðalfundi samtakanna
í gær. Hún tekur við formennsku
af Einari Njálssyni, bæjarstjóra á
Húsavík, sem verið hefur formaður
samtakanna frá því þau voru stofn-
uð.
Sameining fjögurra
sveitarfélaga við ut-
anverðan Eyjafjörð
Kosið um
samein-
ingu í dag
ÍBÚAR fjögurra sveitarfélaga
við utanverðan Eyjafjörð, Dal-
víkur, Svarfaðardals- Árskógs-
og Hríseyjarhreppa ganga að
kjörborði í dag, laugardag og
kjósa um sameiningu þessara
sveitarfélaga í eitt.
Á Dalvík verður kosið í Dal-
víkurskóla og stendur kjör-
fundur frá kl. 10 til 22. Talning
atkvæða hefst um klukkustund
síðar. Alls eru 1014 manns á
kjörskrá á Dalvík.
íbúar í Árskógshreppi kjósa
í félagsheimilinu Árskógi og
stendur kjörfundur frá kl. 10
til 18. Alls eru 215 á kjörskrá
í hreppnum.
í Hrísey eru 166 á kjörskrá
og er kosið í Grunnskólanum í
Hrísey frá kl. 10 til 18.
íbúar Svarfaðardals kjósa í
Húsabakkaskóla og stendur
kjörfundur frá kl. 10 til 18.
Alls eru 170 manns á kjörskrá
í hreppnum. Talning atkvæða
hefst á tímabilinu frá 22 til 23
og er gert ráð fyrir að úrsiit
liggi fyrir um miðnætti á laug-
ardagkvöld.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðþjónusta í
Akureyrarkirkju kl. 11 á morgun.
Fermingarguðsþjónusta verður í Mið-
garðakirkju í Grímsey kl. 13.30 á
sunnudag. Fermdir verða Haraldur
Helgi, Vallargerði 3 og Sigurður
Henningsson, Höfða. Kór Möðru-
vallakirkju syngur undir stjórn Birgis
Helgasonar. Prestur Birgir Snæ-
björnsson. Minnum á fjölskylduhelgi
Akureyrarsóknar á Vestmannsvatni
13. til 15. júní næstkomandi. Skráning
í kirkjunni.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta verður í Lögmannshlíðarkirkju
kl. 21. Ath. breyttan guðsþjónustu-
tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 á sunnudag. Guð-
mundur Ómar Guðmundsson talar.
Unglingaklúbbur eftir samkomu. Allir
velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Almenn
samkoma, ræðumaður Reynir Valdi-
marson læknir. Andlegar þjálfunar-
búðir kl. 20.30 á miðvikudag. Ungl-
ingasamkoma kl. 20.30 á föstudag.
Mikill og fjölbreyttur söngur. Allir vel-
komnir. Bænastundirfrá 6-7 á mánu-
dags-, miðvikudags-, og föstudags-
morgnum.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrarlands-
vegi 26: Messa í dag, laugardag kl.
18 og á morgun, sunnudag kl. 11.
Sjávarútvegssjóður Islands
Hluthafafundur
Hluthafafundur Sjávarútvegssjóðs íslands hf. verður
haldinn á Hótel KEA mánudaginn 16. júní nk.
og hefst kl. 15.30.
Dagskrá:
1. Tillaga um heimild handa sjtórn
Sjávarútvegssjóðs íslands hf. um kaup á
hlutabréfum í Sjávarútvegssjóðsi íslands hf.
2. Önnur mál löglega fram borin.
Tillaga mun liggja frammi á skrifstofu Kaupþings
Norðurlands hf. frá og með 5. júní.
Akureyri, 5. júní 1997.
Stjórn Sjávarútvegssjóðs íslands hf.