Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 24
24 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SÓLGLERAUGU Goldie Hawn úr kvikmyndinni Overboard.
U R EINKASAFNI HÖNNUÐARII
ALAIN MIKLI
Franski hönnuðurinn Alain Mikli hefur
hannað gleraugu fyrir kvikmyndastjörnur
og tískufrömuði enda löngum farið
ótroðnar slóðir. Sveinn Guðjónsson kynnti
sér handbragðið og hitti hann að máli
við opnun sýningar á gleraugum úr
einkasafni hans.
EFTIRNAFNIÐ hljómar á ís-
lensku eins og viðurnefni
fornfrægra herkonunga og
koma nöfn Alexanders og Napóleons
óhjákvæmilega upp í hugann í því
sambandi. Alain Mikli hefur hins
vegar aldrei nærri hermennsku
komið, heldur hefur hann haslað sér
völl á sviði gleraugnaumgjarða og er
vissulega stórt nafn í þeim bransa.
Alain Mikli þekkir gleraugnanotk-
un af eigin raun, hefur borið gler-
augu á nefi frá því hann var fimmtán
ára gamall, og ungur að árum hóf
hann nám í sjóntækjafræðum í
París. Eftir þriggja ára starf í faginu
hóf hann sjálfur að hanna umgjarðir
íyrir eigið fyrirtæki, Mikli Diffusion,
enda fannst honum úrvalið á mark-
aðnum fremur fátæklegt. „Hér áður
fyrr voru gleraugnaumgjarðir hann-
aðar eftir læknisfræðilegum og
tæknilegum stöðlum. Þær skorti
persónuleika og stíl,“ segir Mikli.
„Vissulega er mikilvægasta hlutverk
umgjarðanna að tryggja mönnum
góða sjón, en lögun þeirra og hand-
bragð geta einnig endurspeglað eðli
hvers og eins, lundarfar og tilfinn-
ingar,“ segir hönnuðurinn.
Með þetta að leiðarljósi hóf Alain
landvinninga sína á sviði gler-
augnaumgjarða árið 1978. Óhefð-
bundin hönnun hans vakti fljótlega
mikla athygli enda var hann stað-
fastur í þeirri trú sinni að gleraugu
væru meira en hjálpartæki í dagsins
önn. Hann vildi láta gleraugun njóta
sín þannig að þau þjónuðu ekki ein-
göngu þeim tilgangi að skerpa sjón
manna heldur væru þau ekki síður
hluti af pesónuleika og ytra útliti
hvers og eins, rétt eins og fatnaður,
skótau og skartgripir.
Eleraugu úr þekkt-
um k vikmyndum
Heimsþekktir tískuhönnuðir hafa
leitað í smiðju Alain Mikli og í ár
kynnir hann nýja línu sem hann
hannaði í samvinnu við hinn þekkta
arkitekt Philippe Starck. Mikli hefur
einnig hannað gleraugu íyrir kvik-
myndir og má í því sambandi geta
þess að hann hannaði allar umgjarðir
fyrir framtíðarmynd Wim Wenders,
Until the End of the World, sólgler-
augu Goldie Hawn í gamanmyndinni
Overboard og nú síðast sólgleraugu
Glenn Close í Disney-myndinni 101
Dalmatians og hannaði hann enn-
fremur sérstaka sólgleraugnalínu fyr-
ir Disney af sama tilefni.
HELGA Bergsteinsdóttir með gleraugun sem Glenn
Close var með í Disneymyndinni „101 Dalmatians“.
ALAIN Mikli hefur borið gleraugu frá unglingsár-
um og notar vitaskuld eigin hönnun.
Morgunblaðið/Þorkell
ELSTU gleraugun á sýningunni og ein af þeim
fyrstu sem Mikli hannaði árið 1978.
unni eru öll úr einkasafni Aiain
Mikli og kom hann sjálfur til lands-
ins af þessu tilefni. Sigrún Rósa
Bergsteinsdóttir, verslunarstjóri,
fór til Parísar til að velja gleraugu á
sýninguna og kvaðst hún hafa verið
heilan dag að ákveða sig, enda af
nógu að taka. Á sýningunni eru á
annað hundrað umgjarða, sem
spanna nánast allan feril Alain Mikli
undanfarin 20 ár. Og á sölusýningu,
sem opnuð var í versluninni Lins-
unni fyrr í vikunni, getur að líta
gleraugun frægu sem Glenn Close
var með í Disney-myndinni áður-
nefndu.
Þessi framsækni hönnuður lætur
ekki gleraugun nægja því á síðasta
ári hóf hann einnig að hanna og
framleiða handtöskur, en í þær notar
hann sama grunnefni og í gler-
augnaumgjarðirnar. Hafa töskurnar
verið til sýnis i Stöðlakoti við Bók-
hlöðustíg undanfarna daga.
Litir úr ístenskri
náttúru
Alain Mikli kom fyrst til íslands
árið 1989, og kveðst þá strax hafa
hrifist af landinu, enda notaði hann
liti úr íslenskri náttúru í hönnun
sinni. „Ég elska þetta land, bæði
fólkið og náttúruna," segir hann og
virðist einlægur. Hann slær gjarnan
um sig með frumsömdum orðatil-
tækjum og eitt af eftirlætis spak-
mælum hans eru: „Gleraugu eru til
að sjá með, og sjást með...“
GLERAUGU til að sjá með og
sjást með, ásamt sérstakri sól-
arvörn fyrir nefið.
Gleraugu Goldie Hawn og
fleiri fræga gripi getur að
líta á sérstakri sýningu,
sem opnuð var í Gallerí
Borg nú í vikunni í tilefni
af 25 ára afmæli gler-
augnaverslunarinnar
Linsunnar, en gleraugun á sýning-
GRÍMAN fræga, sem
varð einna fyrst til
að vekja athygli á
Mikli og verkum
hans.
HANDTASKA,
seðlaveski og
gleraugu í stfl
úr sama
grunnefni.
Morgunblaðið/Arnaldur