Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 29
Sækið sumarið til okkar
AÐSENDAR GREINAR
mUR!!!
GotpUter kröftugur drykkur sem býr yfir
miklu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur
að kalki og C-vítamíni. Uppistaðan er mysa
en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar.
Garpur n góður á íþróttaæfinguna,
í skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn.
FAÐU ÞER EINN - DAGLEGA
• Nýr ítarlegur
plöntulisti komin
• Glæsileg veggspjöld,
um skrautrunna,
lauftré og barrtré
að framkvæma, og það að „nokkur
vafí“ skuli vera uppi um sekt þessara
einstaklinga, er algjörlega óviðunandi
fyrir þjóð sem þykist vera laus við
stórfelld mannréttindabrot.
Ef að þessir einstaklingar voru
dæmdir fyrir einhverskonar mistök,
saklausir, er það nógu slæmt, en
hægt er að leiðrétta það, með því
að gefa þeim tækifæri á að öðlast
uppreisn æru. Það að heimila ekki
endurupptöku og neyða þá um leið
til þess að fara „hugsanlega sak-
lausa“ í gröfin er út af fyrir sig enn
stærri glæpur, sem ekki verður aftur
tekinn og yrði hæstarétti íslands til
mikillar og ævarandi skammar.
Menn eða mýs
Ég bið hæstarétt íslands um að
heimila endurupptöku Guðmundar-
og Geirfinnsmálanna til þess að
hægt verði að ganga úr skugga um
hvort að mögulegt sé að saklaust
fólk hafi verið dæmt til refsingar
fyrir „hugsanlega glæpi.“ Hér er
mikið í húfi fyrir dómstóla og álit
almennings á þeim og gjörðum
þeirra. Ef hæstiréttur Islands vill
að hann sé tekinn alvarlega getur
hann ekki annað en heimilað endur-
upptöku málsins, sama á hvaða for-
sendum það verður gert. Þessi próf-
raun gefur öllum almenningi í land-
inu beina vísbendingu um hvert gild-
ismat hæstaréttar landsins er og
hversu miklu máli réttaröryggi borg-
aranna og sannleikurinn skiptir
æðsta dómstól landsins í raun.
Höfundur er blaðamaður.
Beiðni til hæsta-
réttar Islands
HÆSTIRÉTTUR íslands kveður
fljótlega upp úrskurð sinn um hvort
rétt sé að heimila endurupptöku Guð-
mundar- og Geirfinnsmálsins. Ég tek
undir þá kröfu og færi rök fyrir því
í grein þessari.
Ungum var mér kennt af ömmu
minni að það væri
margt líkt með gildi
þess að segja sannleik-
ann og að taka lýsi;
lýsi er jafn vont á
bragðið og það er hollt
fyrir mann; og sann-
leikurinn er að sama
skapi oft á tíðum jafn
vondur eða erfiður, en
hann margborgar sig
þrátt fyrir það og hollur
þeim er hann brúka í
daglegu lífi.
Þrátt fyrir að amma
hafi verð mikill áhrifa-
valdur í lífi mínu, þá
komu fleiri við sögu.
Því sem ungur maður,
fékk ég snemma það
orð á mig að vera afar áhrifagjarn.
Ég hafði ávallt gaman af góðum
bókmenntum og átti mínar hetjur;
Tinna og Tobba, Ástrík, Bob Moran,
fimm fræknu og margar fleiri. Ég
fékk aldrei nóg af þessum snillingum
og þeir áttu hug minn allann um
tíma. Þetta breyttist þó með árunum
og við tóku aðrar, en heldur ofbeldis-
fyllri hetjur á borð við Bruce Lee,
Kirk Norris og John Wayne. Allar
áttu þessar hetjur eftir að móta líf
mitt og á ég þeim mikið að þakka.
Þær áttu það allar sameiginlegt að
hafa afar ríka réttlætiskennd og
börðust gegn hinu illa við hvert
tækifæri. Meðölin og aðferðirnar
voru kannski ekki alltaf til fyrir-
myndar og alls ekki til eftirbreytni
hér á landi sökum fámennis.
Á þessu tímabili í lífi mínu taldi
ég ekkert starf vera meira virði, né
hafa háleitara markmið, heldur en
starf laganna varða.
Síðan liðu nokkur ár og hetjurnar
féllu frá ein af annari. Og með þeim
hvarf hluti af heimsmynd minni og
mig vantaði sárlega nýjar hetjur í
þeirra stað. Það var mér því mikið
áfall þegar ég áttaði mig á því að
þær voru mun vandfundnari en áð-
ur. Gráu svæðin voru orðin fleiri og
þöktu stærri fleti en áður, það sem
áður lá í augum uppi, varð allt í
einu óvíst og jafnvel vitlaust.
Ég held að vísu ennþá með þeim
sem eru minnimáttar en hafa rétt-
lætið sín megin, og því til staðfest-
ingar, þá held ég enn með KR-ingun-
um í boltanum. Það er þessi barns-
lega einlægni, sem enn dómínerar
allt líf mitt og það þakka ég títt-
nefndri ömmu minni.
Glæpur og refsing
Þrátt fyrir að árunum fjölgaði, þá
þroskaðist ég bæði hægt og illa; ég
hafði ennþá áhuga á mannskepnunni
og góðum reyfurum. Bókmennta-
smekkunum fór hnignandi með árun-
um. Ég var nýbúinn að lesa Glæp
og refsingu eftir Dostojevsky og
mundi þá eftir því að við Islendingar
áttum okkar eigin rað-morðingja.
Ég fór að kynna mér Guðmund-
ar- og Geirfinnsmálin, glæpamál ald-
arinnar, sem höfðu næstum riðið
þjóðinni að fullu á sínum tíma og las
allt sem ég fann um þau mál. Þetta
varð að áhugamáli hjá mér; ég vildi
fá að vita hvernig hetjurnar mínar
(lögreglan og dómstólar) hefðu farið
að; hvernig þeir klófestu hina ill-
ræmdu raðmorðingja og á hvaða
hátt. En því meira sem ég las, því
oftar varð mér hugsað til hennar
ömmu minnar og þeirrar speki; „að
láta menn ávallt njóta vafans",
vegna þess hve þjóðin væri sagna-
og kjaftaglöð þegar sá gállin væri á
henni; og þá ekki síst þegar talað
var um náungann og ófarir hans.
Ég gat ekki séð að sakborningarnir
hefðu verið látnir njóta neins vafa,
þeir voru frelsissviptir um árabil -
játuðu svo og voru dæmdir sekir að
lokum, byggt á þeirra eigin játning-
um. Þeir játuðu margt og mikið,
jafnvel meira en góðu hófi gegnir.
Það voru reyndar fleiri menn frelsis-
sviptir sem ekki voru dæmdir nema
þá af almenningsáliti þess tíma, eins
og frægt er orðið, og hafa verið
skrifaðar bækur um
þann sorgaratburð og
þá ömurlegu lífsreynlsu
og það sem fylgdi í kjöl-
far hennar fyrir sálarlíf,
heilsu og ijölskyldur
þeirra sem fyrir henni
urðu. Þessir menn hafa
sagt alþjóð hversu litlu
mátti muna að þeir
hreinlega gæfust upp
andlega og líkamlega á
meðan á einangrun
þeirra stóð og játuðu
hvað sem væri. Samt
voru þeir aðeins sviptir
frelsi brot af þeim tíma,
er hinir, sem síðar voru
dæmdir raðmorðingjar,
þurftu að þola áður en
að játningar þeirra lágu fyrir.
Á tímabili velti ég því mikið fyrir
mér hvort að ég hefði „hugsanlega"
getað verið viðriðin málin og „hugs-
anlegan glæp“, en var fullvissaður
um það af mínum nánustu að það
væri „óhugsandi". Það truflar mig
þó, að sá möguleiki hafí ekki verið
útilokaður vísindalega, ekki frekar
en að Elvis sé örugglega dauður. Það
væri þó sjálfsagt hægt að komast til
botns í því með því að setja mig í
nógu langa einangrunarvist, því ég
er afar lítill bógur og mjög áhrifa-
gjarn eins og áður sagði. Hver veit
nema að það myndi rifjast upp fyrir
mér að við Elvis værum vinir og
færum reglulega út að djamma sam-
an með Jim Morrisson og Janis Joplin!
Ég get ekki útskýrt það almenni-
lega, en af einhveijum ástæðum, þá
missti ég alla virðingu fyrir laganna
Þetta er prófraun á
hæstarétt, segir Frið-
rik Gunnar Berndsen,
og niðurstaðan verður
vitnisburður um réttar-
öryggi borgaranna.
vörðum og fór að gæla af alvöru við
laganám; þar væri sko hægt að beij-
ast fyrir réttlætinu eða skortinum á
því. Litlir námshæfileikar og al-
mennt áhugaleysi gerðu út af við
þann draum, eftir að ég komst að
því, að réttlætikennd þeirra löglærðu
manna, sem ég hafði einhver kynni
af, var að mestu leyti fólgin í því
að skrifa reikninga sem birtust
manni í formi gluggapósts.
Hafa skal það
sem sannara reynist
Málsmeðferðin og játningarnar í
málum þessum hafa vakið upp ýms-
ar spurningar sem verður ekki svar-
að nema með því að heimila endur-
upptöku. Og með því að gera það
tekst Hæstarétti að skera burt æxlið
sem hefur herjað á þjóðarsálina og
nærst á óvissunni um að hér hafi
hugsanlega ekki verið framin nein
morð; nema þá kannski mannorðs-
morð á barnungu óreglufólki, sem
lá vel við höggi á þeim tíma.
Þjóðirnar í kringum okkur hafa
sýnt þennan kjark og heimilað end-
urupptöku mála sem orkuðu tvímæl-
is, þegar frá leið og ég bið hæstarétt
um kjark til þess að gera slíkt hið
sama. Sú óskráða meginregla: að
betra sé að hundrað sekir menn gangi
lausir, heldur en að einn maður sé
saklaus dæmdur, hlýtur að eiga alveg
sérstaklega við hér, og þá ekki síst
vegna þess hve langt er um liðið.
Hér er um að ræða fólk sem að er
búið að sitja af sér dóm í fangelsi
fyrir alvarlegasta glæp sem hægt er
Friðrik Gunnar
Berndsen
• Ttjáplöntur, sumarblóm
og fjölærar plöntur
Opnunartímar:
• Virka daga kl. 9-21
• Um helgar kl. 9-18
GRÓÐRA RSTÖÐIIS
^TVlorK
STJÖRNVattÖF 18, SÍMI381 4288, FAXS81 2228
-kjarni málsins!