Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. JÚNl 1997 43
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
HELGI Sveinbjörnsson og Hólmfríður Björg Ólsfsdóttir rekstr-
araðilar dýragarðsins í Slakka.
Aukin fjölbreytni í
dýragarðinum í Slakka
Ullarfyrir-
tækið Drífa
ehf. 25 ára
EITT elsta ullarfyrirtæki á íslandi,
Drífa ehf., er 25 ára í ár. Fyrirtæk-
ið, sem er stofnað á Hvammstanga
í apríl 1972, starfrækti fyrst aðeins
saumstofu en seinna var stofnuð
pijónastofa til stuðnings sauma-
stofu, segir í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir: „Allt til ársins
1992 var Drífa í verkefr.um fyrir
hin ýmsu sölufyrirtæki eins og
Hildu og Árblik hf. Árið 1992 urðu
þáttaskil í starfsemi fyrirtækisins
þegar Drífa og Árblik hf. sameinuð-
ust undir nafni Drífu ehf. Frá þeim
tíma hefur fyrirtækið selt ullarfatn-
að sínar undir vörumerkinu Icewea,
Icewear Natur og Norwear. í dag
er fyrirtækið starfandi á þremur
stöðum á landinu með um 50 starfs-
menn; á Hvammstanga, á Skaga-
strönd og í Reykjavík, auk þess að
vera með vertaka á Barðaströnd
og Blönduós.
í tilefni afmælisins munu starfs-
menn fyrirtækisins koma saman
laugardaginn 7. júní nk. og gera
sér glaðan dag í Reykjavík. Aðaleig-
andi og framkvæmdastjóri Drífu er
Ágúst Þ. Eiríksson," segir í frétta-
tilkynningu frá Drífu.
DÝRAGARÐURINN í Slakka í
Laugarási hefur opnað aftur
þriðja árið í röð en í ár hefur
fengist formlegt leyfi til reksturs
garðsins og er það sennilega í
fyrsta skipti sem það er veitt til
einstaklings, segir i fréttatil-
kynningu.
Ýmsar breytingar hafa átt sér
stað m.a. bætt leikaðstaða fyrir
minnstu börnin, folald og skraut-
dúfur hafa bæst í hópinn en alls
eru 14 dýrategundir í garðinum.
Garðurinn er opinn frá kl.
13-18 alla daga. 100 km akstur
er frá Reykjavík og 2 km frá
Skálholti. Hægt er að fara um
Selfoss eða Grímsnes.
SLÉTTBAKUR þakin hrúðurköllum.
Garðasókn
Sr. Bragi
Friðriksson
kveður
SÉRA Bragi Friðriksson kveð-
ur Garðasöfnuð á morgun,
sunnudaginn 8. júní, í Vídal-
ínskirkju kl. 14 eftir rúmlega
þriggja áratuga starf.
Kaffiveitingar verða í boði
sóknarnefndar að athöfn lok-
inni í safnaðarheimilinu.
með hraðvirka brúnkuflýtinum Banana Boat Tan Express
Þú þekkir sólarmargfaldarann Banana Boat Sun Amplifier (magnar sólarljósiö), Banana Boat
djúpsólbrunkugelið (dýprí huðlóg framleiða einnig sólbrúnku), Banana Boat dökksólbrunkukremið/olíuna
(framkallar svart-brúna sólbrúnku) og sólbrúnkufestinn Banana Boat Dark Accelerator (lengír endingu
sólbrúnkunnar um 7 - 9 vikur). Nú hafa þessir eiginleikar verið sameinaðir í eitt í hraðvirka brúnkuflýbnum
Banana Boat Tan Express. Með Hrað-brunkuflýtinum Banana Boat Tan Express nærðu á mettíma
dýpstu, dekkstu, fallegustu og endingarbestu sólbrúnku sem völ er á. Um leið nærir þú húðina með
A og E vítamíni, sólblómaolíu, Aloe Vera, kókos, kvöldvorrósarolíu og öðru heilsufæði húðarinnar. 6
gerðir: Olía, krem, gel, mjólkur-sprey, sólbrúnkufestandi After Sun lotion og friskandi After Sun spray.
Onnur Banana Boat nýjung: Bitvörnin Banana Boat Bite Block, skordýrafælandl sólkrem með sólvöm
#15.
Banana Boat fæst i vönduöum sólbaðsstofum, apótekum, snyrtivömverslunum, i öllum heilsubúðum
utan Reykjavíkur og í Heilsuvali, Barónsstíg 20 f Reykjavik, simar 562 6275 og 551 1275.
FASTEIGNAMIÐSTÖDIM *
SKIPHOLTI 50B - SÍMI 552 6000 - FAX 552 6005
Opið hús laugardag og sunnudag (13309)
Ovenju fallegt 60 fm sumarhús ásamt gestahúsi í Þrastarskógi. Við
húsið er nýr 40 fm sólpallur ásamt skjólveggjum. Fallegar innréttingar
og arinn. Eignarlóð. Állt innbú getur fylgt. Skipti möguleg á eign á
Selfossi eða í Hveragerði. Til sýnis um helgina.
Sími hjá eiganda 892 7074.
Hvala- og
sjófugla
skoðun frá
Sandgerði
FARIN verður sjóferð til hvala-
og fuglaskoðunar sunnudaginn
8. júní. Farið verður frá Fræða-
setrinu í Sandgerði kl. 13.
Ferðin er farin í samvinnu við
Fuglaverndarfélag Islands,
Fræðasetrið í Sandgerði og
Ferðaþjónustu Helgu Ingimund-
ardóttur. Fargjald er 3.000 kr. á
mann, hálft gjald fyrir börn
yngri en 12 ára. Mælst er til að
fólk taki með sér nesti, skjólgóð-
an fatnað, sjónauka og fuglabók.
Sérfræðingar um hvali og fugla
verða með í för. Áætlað er að
siglingin taki 3-4 tíma.
Tilkynna skal þátttöku í síma
Fræðasetursins í Sandgerði.
---------» ♦ ♦----
>
Ovissu
starfsmanna
verðieytt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn
Starfsmannafélags Áburðarverk-
smiðjunnar lif.:
Það er ósk okkar að Áburðar-
verksmiðjunni hf. verið mörkuð
stefna sem tryggir afkomumögu-
leika hennar og framtíðaröryggi
starfsmanna.“
» •
Starcraft ArcticLine eru einu fellihýsin sem
eru sérstaklega útbúin fyrir íslenskar aðstæður
Farangurskassar,
verðfrá kr. 18.930,-
Trio fortjöld færðu í mörgum stærðum og
gerðum bæði fyrir felli- og hjólhýsi. Gott verð
Fyrsta flokks Starcraft pallhús
fyrir litla eða stóra pallbíla.
Camp-let er tjaldvagninn sem Hefur
haft framúrskarandi orðspor á íslandi
í þrjá áratugi. Enginn gerir betur!
Hafðu
það
fyrsta flokks
í sumar
Eflaust geturðu fundið ódýrari
gerðir en þá gæðagripi sem boðið
er upp á hjá Gísla! En málamiðlanir
hafa aldrei átt upp á pallborðið hjá
okkur og því finnurðu eingöngu
þrautreyndar fyrsta flokks vörur á
sanngjörnu verði hjá Gísla Jónssyni.
Opið alla daga í júní og júií,
lau. frá 10-16 og sun. frá 13-16.
GÍSL! JÓNSSON ehf
Bíldshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644
Umboösmenn: Bílasalan Fell, Egilsstööum og BG Bílakringlan, Keflavík