Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 56
56 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Halda vel að þreyttum fótum
Góðir fyrir fólk sem stendur
við vinnu sína allan daginn
Viðurkenndir af fólki
í heilsugæslu
gilofa
Mjúkir,
þrýsta ekkí
að blóörásinni
heidur örva hana.
MYNDBOIMD/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVARP
Ljósvaka-
miðlar
Þu getur
valið um fjóra llti
Þessir sokkar
eru frábærir
fyrir barnshafandi
konurl
Oðlastu hvíld 1 OFA!
AKRANES APÓTEK • APÓTEK BLÖNDUÓS
APÓTEK KEFLAVIKUR
ÁRBÆJAR APÓTEK • BORGAR APÓTEK
BREBHOUSAPÓrEK'GAHBSAPÓTEK
GRAFARVOGS APÓIEK* HOLTS APÓTEK
IÐUNNAR APÓTEK DOMUS MEDCA
INGÓLFS APÓTEK • LAUGAVEGS APÓTEK
MOSFELLS APÓTEK • REYKJAVIKUR APÓTEK
STYKKILSHÓLMS APÓTEK • ÖLFUS APÓTEK
VIÐ erum orðin mikil dægur-
lagaþjóð og höfum verið það
allan síðari hluta aldarinnar,
þótt nú hafi tekið steininn úr með
mikiili fjölgun skemmtistaða og ríf-
legri dægurlagatónlist í sjónvörpum,
einkum á Stöð 2, sem sendir út popp-
tónlist í öllum smugum og glufum
í dagskránni ásamt
heilum dagskrárlið-
um. Það virðist því
vera álit dagskrár-
stjórnar og yfirmanns
hennar, að popptónlist sé einskonar
„evangelíum“, sem fólk skorti sár-
lega. Að því leyti mætti segja um
Stöð 2, að hún ræki sitt trúboð stað-
fastlega, engu síður en sérsöfnuðir
í landinu.
Ríkissjónvarpið er hógværara í
þessum efnum, án þess að popptón-
listin sé eitthvert bannorð á þeirri
„stassjón“. Þannig á þetta auðvitað
að vera. Um dagskrána almennt í
nkissjónvarpinu má hins vegar segja
að hún mætti vera fjölþættari að
ósekju. Hún verkar oft og tíðum
svolítið þreytt á áhorfandann og
kemur honum sjaldan á óvart.
Kannski er minna að marka þetta
mat núna því við erum að keppast
við að bera okkur til eins og milljóna-
þjóð, samanber Everestfarana,
handknattleiksliðið og ótal margt
fleira, sem ber því vitni, að fyrst við
lifðum það af að verða þijátíu þús-
und stefnum við í að verða afreks-
þjóð.
Þótt tvö fyrrgreind sjónvörp séu
heldur afskiptalaus í menningarmál-
um, nema hvað poppið snertir og
íþróttirnar, er þó ýmislegt að gerast
í litla þjóðfélaginu okkar með hinar
mörgu hetjur. Flest fer það fyrir
ofan garð og neðan í sjónvörpum,
SJONVARP A
LAUGARDEGI
sem vilja heldur þjóna stórum
áhugamannahópum heldur en al-
mennum þáttum mannlífsins, þegar
hinn endalausi og þýðingarmikli
bjargvættur, fiskurinn, er undanskil-
inn. Það er t.d. eins og þýðing fisk-
veiða, sem er öllum ljós frá fæð-
ingu, sé oft og tíðum það eina sem
fréttastofum sjónvarps
dettur í hug. Þrátt fyr-
ir þá miklu nýlundu að
geta séð atburði gerast
á skermi, eru dagblöðin
mikið ítarlegri og víðtækari fjölmiðl-
ar. í dagblöðunum er reynt að verða
við beiðni allra um að koma upplýs-
ingum og skoðunum á framfæri, en
í sjónvörpum hefur lengi eins og
heyrt undir sérréttindi að koma
fram, nema þá sem löggiltir Hofslák-
ar eða með grínþætti.
E'
| itt af því sem skekkir allar
myndir í sjónvarpi er fátæk-
legar erlendar fréttir. Að
vísu er sagt frá því sem kall-
ast heimsviðburðir. Þeir verða svolít-
ið skrítnir í bland við heyskaparfrétt-
ir af íslandi eða barnsfæðingu í lög-
reglubíl á Þorskaíjarðarheiði. Tvö
hundruð og sextíu þúsund manna
þjóðfélag leiðir ekki af sér stórvið-
burði á hveijum degi. Ekki er hægt
að ætlast til þessi að við göngum
daglega á Everest svo dæmi sé nefnt
um ágætt og margrómað afrek.
Manni finnst stundum í mikilli
fréttafátækt, að fara mætti ítarlegar
í erlendu fréttirnar þá daga sem við
vinnum ekki einhver afrek og þorsk-
urinn heldur sig til hlés.
Á dagblöðunum eru litlar fréttir
meðhöndlaðaðar sem litlar fréttir.
Þeim er ætlað minna pláss. í sjón-
varpi eru í raun allar fréttir jafnmikil-
vægar. Þótt fréttamenn í sjónvarpi
geri sér kannski grein fyrir því, að
frétt þeirra er lítil, á áhorfandinn
þess engan kost að meta málið út
frá uppsetningu. Heyskapur á
Ströndum verður í augum áhorfand-
ans jafnmikilvægur og stjórnarslit í
Frakklandi. Þetta er einn helsti ókost-
urinn við fréttaflutning í sjónvarpi.
Við lestur dagblaða stríðir þetta ekki
á neinn, enda skörp skil á milli, jafn-
vel blaðsíður.
Fyrsta sjónvarpskynslóðin er orð-
in fullorðin. Aðrar koma fast á hæla
henni. Sagt hefur verið að sjónvarp
yfirleitt sé kennslumiðstöð í ofbeldi.
Blöð hér á landi sögðu frá ofbeidis-
verkum, sem voru fá og fátíð. Það
var ekki fyrr en skemmtiiðnaðurinn,
einkum í Bandaríkjunum, tók upp á
sinn eyk að gera glæpamyndir með
skothríð og morðum og kenndu sumt
af því til sagnfræði, að Evrópa komst
í kast við hinn uppeldislega þátt
NIKE Courtster
NIKE strigaskór með
mjúkum EVA miðsóla.
Litir: Svartur, grænn
Stærðir 38,5-47.
Litir: Appelsínugulur,
Stærðir 35-42.
Leiðb. verð
' jPMWiiHÍWr
Air Flight Turbulence
Léttur, sterkur körfu- og götuskór
með loftpúða í hæl. Phylon miðsóli.
38,5-47.
kr. 8.990.
Air B-Que
NIKE strigaskór með
mjúkum Phylon miðsóla
og loftpúða í hæl.
Stærðir 38,5-47.
Leiðb. verð kr. 5.990.
B-Que
NIKE strigaskór með mjúkum
Phylon miðsóla.
Stærðir 31-38.5.
Leiðb. verð kr. 3.990.
Air Groovin Uptempo
Loftpúði í hæl. Fótlagaður Phylon
miðsóli gefur skónum frábæra dempun.
Stærðir 38,5-47.
Leiðb. verð kr. 7.990.
Hafðu samband við söluaðila NIKE og fáðu upplýsingar.
Upplýsingar um NIKE söluaðila gefur Gula linan 5B0 8000.,
Óvíst er að auglýstar tegundir séu til á öllum sölustöðum á tíma auglýsingar.
miðilsins. Mér er sagt að innkaupum
á efni til sjónvarps sé þannig hátt-
að, að vilji sjónvarp fá sérstaka
mynd til sýningar, fylgi henni níu
aðrar myndir fýrir lítið, sem reynst
hafa ódýrar í framleiðslu fyrir þá
vestra. Oft eru þessar myndir lítið
annað en fáklæddar konur og mikil
skothríð, manndráp og misþyrming-
ar, sem birtast svo aftur um helgar
í Austurstræti.
Dagskrá sjónvarps er alltaf mikið
fyrirtæki. Okkur fannst hér á árum
áður, að erfitt mundi reynast að
afla efnis til hennar fyrir ríkissjón-
varpið. Þá hugsuðu menn djúpt og
töldu óráð að byrja sjónvarp. En það
skipti okkur miklu máli þá af ýmsum
ástæðum, en þeir voru til sem vildu
láta sjónvarp frá Keflavík duga.
Víst er að lítil þjóð eins og íslending-
ar stendur oft í meiri og tvísýnni
baráttu fyrir tilvist sinni en milljóna-
þjóðir. Þessarar baráttu gætir einnig
í sjónvarpsrekstri. Nokkurt oflæti
er að reka tvær sjónvarpsstöðvar í
staðinn fyrir eina, en hér eru þær
fleiri en tvær. Miðað við innlent efni,
og að poppi og fótbolta slepptum,
er ekki von að risið sé 'nátt. Við lút-
um sem fyrr mest að erlendum
myndum sem eru seldar okkur eins
og dúsinvara.
Sjónvörpum tekst yfirleitt ekki
að hafa í fullu tré við dagblöð-
in á fréttasviði. Hins vegar
er oft meira tekið eftir frétt sem
birtist í sjónvarpi en í blaði. Um
annað upplýsingagildi má segja að
nokkuð jafnt sé á komið milli blaða
og sjónvarpa, nema hvað gera má
sér í hugarlund hvað hinn margvís-
legi masstíll sjónvarpa væri fátæk-
legur á prenti. Prentað orð í dagblöð-
um hefur alltaf vissa yfirburði hvað
sem tækninni líður. Þau hafa
kannski látið í minni pokann hvað
suma efnismeðferð snertir. En þau
lúta yfirleitt ekki að þeirri lágkúru,
sem harðir viðsemjendur erlendis
þrýsta upp á sjónvörpin, sem ekki
eru ríkar stofnanir og geta því ekki
sett þau skilyrði sem duga.
Auk þess að vera brautryðendur
í poppi, sem að minnsta kosti önnur
stöðin telst vera, hefur auglýsinga-
gerð tekið miklum stakkaskiptum.
Aðfærðar erlendar auglýsingar, eins
og þessar með tíðabindin, hafa verið
sýndar við lítinn fögnuð um langt
skeið. Auglýsingar smíðaðar hér
heima, einkum þær sem eiga að ná
til unga fólksins, hafa verið gerðar
með nokkrum ærslum. í því felst
viðurkenning á því, að unga fólkið
ráði sér ekki fyrir hamagangi, hvort
sem það er rétt eða ekki. Þess kon-
ar ímyndaður veruleiki er hættuleg-
ur, vegna þess að auglýsingasmiðir
og kaupmenn geta vaknað upp við
það einn dag, að fólk sé orðið eins
og kjánar. Fer þá ekki að hallast á
hvað uppeldi sjónvarpsins snertir,
þegar unglingar hafa bæði auglýs-
ingar og poppið sér til andlegs viður-
væris.
Indriði G. Þorsteinsson