Morgunblaðið - 07.06.1997, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.ISAKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Norska strandgæzlan tekur Sigurð VE við Jan Mayen og færir til hafnar
Stjórnvöld krefjast þess
að skipinu verði sleppt
Morgunblaðið/Kristján
SIGURÐUR VE 15 með síldarfarm við Krossanes fyrir stuttu.
NORSKA varðskipið Nordkap tók
síðdegis í gær síldarskipið Sigurð
VE 15 í norsku fiskveiðilögsögunni
við Jan Mayen vegna meintra brota
á tilkynningaskyldu. íslenzk stjóm-
völd hafa krafízt þess að skipinu
verði sleppt og bent á að málið geti
gert norsku loðnuskipunum, sem
væntanleg eru í íslenzku lögsöguna í
næsta mánuði, erfitt fyrir. Engin
viðbrögð höfðu borizt við þeirri kröfu
síðast þegar Morgunblaðið fregnaði
kiukkan hálfeitt í nótt.
Dag Isaksen, blaðafulltrúi norsku
strandgæzlunnar, segir að skipstjór-
inn á Sigurði hafí ekki tilkynnt afla í
síðasta túr sínum í norskri lögsögu
og ekki tilkynnt sig út úr lögsögunni
er hann hætti veiðum. Pá hafí skipið
ekki tilkynnt sig er það sigldi inn í
lögsöguna í gær.
Til hafnar í Bodo í fyrramálið
Að sögn Isaksen var Nordkap í
gærkvöldi á leið til hafnar í Bodo
með Sigurð og búizt er við að skipin
komi þangað á sunnudagsmorgun.
„Þar mun iögreglan taka við nánari
rannsókn málsins,“ segir Isaksen.
Hann bætir við að tvö skozk síld-
veiðiskip hafí verið færð til hafnar
fyrr í vikunni vegna svipaðra brota í
norskri lögsögu.
í tengslum við samkomulag
strandríkja um veiðar úr norsk-ís-
lenzka síldarstofninum gerðu ísland
og Noregur tvíhliða samkomulag um
gagnkvæman rétt til síldveiða í lög-
sögu ríkjanna. Að sögn Jóns B. Jón-
assonar, skrifstofustjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu, er þar kveðið á um
að skipum beri að fylgja þeim regl-
um um tilkynningaskyldu, sem gildi
hjá viðkomandi ríki. Norska strand-
gæzlan telur að Sigurður VE hafí
brotið reglugerð norska sjávarút-
vegsráðuneytisins um sfldveiðarnar
frá 6. maí síðastliðnum.
Jón segir að færeysk stjómvöld
hafí kvartað undan því að íslenzk
síldarskip í færeyskri lögsögu hafí
sinnt tilkynningaskyldu illa. Er flot-
inn hafí fært sig norður til Jan May-
en hafi farið að berast kvartanir
sama efnis frá Noregi. Islenzk
stjórnvöld hafi farið fram á rökstudd
dæmi. Þau hafí borizt frá Noregi í
gær og séu til skoðunar á Fiskistofu.
Algengast sé að íslenzk stjórnvöld
vandi um við skipstjórnarmenn
vegna tilvika sem þessara. „Þessi
harkalegu viðbrögð koma á óvart,“
segir Jón.
Landhelgisgæzlan gæti
tekið norsk loðnuskip
Helgi Agústsson, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu, kallaði sendi-
herra Noregs, Nils 0. Dietz, á sinn
fund í gærkvöldi og krafðist þess að
skipinu yrði sleppt. Helgi segir að
samkvæmt upplýsingum frá útgerð
skipsins, Isfélaginu í Vestmannaeyj-
um, hafí a.m.k. sumar þeirra tilkynn-
inga, sem Norðmenn telji vanta, ver-
ið sendar og liggi fyrir afrit af skeyt-
unum. Um eina tilkynningu sé óvíst,
þar sem afrit af henni finnist ekki.
Norska strandgæzlan haldi hins veg-
ar öðru fram.
Helgi segist telja að umkvartanir
Norðmanna snúist allar um tæknileg
atriði sem séu svo minniháttar að
þau réttlæti ekki töku skipsins.
„Ég sagði sendiherranum að við
vissum að norsk skip hefðu staðið sig
illa við sínar tilkynningar. Þetta mál
myndi gera illt verra og þeir yrðu að
hugsa til þess að landhelgisgæzla
okkar færi þá að taka norsk skip,
sem væru við loðnuveiðar, þegar að
því kæmi,“ segir Helgi.
Loðnuvertíðin hefst um næstu
mánaðamót og hafa Norðmenn rétt
til veiða í íslenzku lögsögunni. Að
sögn Jóns B. Jónassonar hafa verið
brögð að því að norsku skipstjóram-
ir sinni ekki tilkynningaskyldunni
sem skyldi.
Dietz sendiherra sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir fund þeirra
Helga að hann myndi koma sjónar-
miðum Islands á framfæri við norsk
stjórnvöld en gæti ekki sagt til um
hvert framhald málsins yrði.
Uppsagnir
röntgen-
lækna
RÖNTGENLÆKNAR á
Landspítalanum, átta talsins,
hafa boðað uppsagnir frá og
með 1. ágúst nk. Yfirstjórn
spítalans beitti lagaákvæði
sem heimilar frestun í fjóra
mánuði. Verði af því að
röntgenlæknar leggi niður
störf koma uppsagnimar til
framkvæmda 1. desember nk.
Uppsagnir röntgenlækna
munu vera vegna óánægju
með launakjör og vinnuálag.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins telja þeir saman-
burð við laun röntgenlækna á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur óhag-
stæðan en þar mun spítalinn
hafa samið sérstaklega um að
hluti sértekna deildarinnar
rynni til röntgenlækna í formi
launauppbóta.
KR-ingar
æfa ekki
LEIKMENN meistaraflokks karla í
knattspyrnu hjá KR mættu ekki á
æfingu hjá félaginu á KR-velli í
gær. Ástæðan er sú að þeir eru
mjög óánægðir með hvernig stjórn
knattspyrnudeildarinnar stóð að
þjálfaraskiptunum á fimmtudag.
Einn leikmanna KR-liðsins sagði
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
stjórnin hefði ekki talað við
fyrirliða liðsins eða aðra leikmenn
um þjálfaraskiptin. Um framhaldið
sagði leikmaðurinn: „Lúkas var
búinn að gefa okkur frí frá
æfingum um helgina og við lítum
svo á að við séum í fríi.“
■ KR-ingar / C1
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara samþykkt af báðum aðilum á Vestfjörðum
Atvinnulífíð af stað á ný
eftir sjö vikna verkfall
Morgunblaðið/Halldór
FÉLAGAR og verkfallsverðir í verkalýðsfélaginu Baldri á ísafirði taka niður kröfuspjöld á skrifstofu félagsins
í gærkvöldi eftir að ljóst var orðið að miðlunartillagan liefði verið samþykkt og verkfallinu væri lokið. F.v.
Pétur Sigurðsson, forseti ASV, Sigríður Bragadóttir, Bergljót Pálmadóttir og Aðalheiður Steinsdóttir.
SÍÐARI miðlunartillaga ríkissátta-
semjara í kjaradeilunni á Vestfjörð-
um var samþykkt af báðum deiluað-
ilum með afgerandi meirihluta
greiddra atkvæða í gær. Sjö vikna
löngu verkfalli á Vestfjörðum er þar
með lokið og munu hjól atvinnulífs-
ins fara strax í gang, að sögn Einars
Jónatanssonar, formanns Vinnu-
veitendafélags Vestfjarða.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar inn-
an sjö verkalýðsfélaga Alþýðusam-
bands Vestfjarða urðu þau að
69,98% samþykktu tillöguna en
28,8% sögðu nei. 80,6% aðila að
Vinnuveitendafélagi Vestfjarða og
VSÍ samþykktu tillöguna en 19,4%
sögðu nei. Eitt fyrirtæki í Vinnu-
málasambandinu samþykkti tillög-
una en tvö skiluðu auðu.
Alls tóku 69,2% félagsmanna í
verkalýðsfélögunum sjö þátt í at-
kvæðagreiðslunni. Mest þátttaka
var í Verkalýðs- og sjómannafélagi
Álftfirðinga, þar sem hún var 83,8%
en minnst í Brynju á Þingeyri eða
58,1%. Kosningaþátttakan var
64,9% í Baldri á Isafirði, 78,4% í
Súganda á Suðureyri, 64,7% í
Verkalýðsfélagi Patreksfjarðar,
78,7% í Verkalýðsfélagi Hólmavíkur
og 81,7% í Skildi á Flateyri. 97,1%
þátttaka var í atkvæðagreiðslunni í
Vinnuveitendafélagi Vestfjarða og
VSÍ.
„Enginn sigurvegari"
Einar Jónatansson sagði þegar
úrslit lágu fyrir að mönnum væri
mjög létt. „Þetta er búið að vera
langt og strangt og hefur valdið
miklum skaða. Það er enginn sigur-
vegari eftir svona deilu. Það hafa
allir tapað en það þýðir ekkert að
hugsa um það sem liðið er. Menn
verða núna að snúa bökum saman
til að reyna að minnka það tjón sem
mest, sem óumflýjanlegt er,“ sagði
hann. Einar sagði að hinn nýi kjara-
samningur sem tillagan var um fæli
í sér heldur meiri launabreytingar
en samið hefur verið um annars
staðar. „Það mátti líka búast við því.
Það þurfti að höggva á hnútinn og
leysa þetta,“ sagði hann.
„Þarna eru menn sjálfsagt að
nota skynsemina og sætta sig við
niðurstöðuna. Menn hafa sýnt og
sannað að hér er samtakamáttur
hjá fólki, sem getur gert hvað sem
er,“ sagði Pétur Sigurðsson, forseti
ASV.
,Aftur á móti er ofurafl Vinnu-
veitendasambandsins svo gifurlegt
að menn áttuðu sig ekki á því í upp-
hafi, það má vera öllu verkafólki á
íslandi ljóst í dag. Þeir eru með
einn milljarð til að borga sínum
mönnum herkostnaðinn og við get-
um ekki staðist það til lengdar.
Það sem hefur gert útslagið er
sjálfsagt að við verðum samskipa
öðrum félögum í landinu eftir tvö ár
og þar veitir ekki af að einhverjir
hafí forystu um að ná fram hinni
réttlátu kröfu okkar um 100 þúsund
króna mánaðarlaun fyrir dagvinnu,"
sagði Pétur.
Aðspurður hvort hann teldi að sjö
vikna verkfall hefði verið þessa nýja
kjarasamnings virði sagði Pétur að
svo væri. „Við getum aldrei mælt
það í krónum og aurum þegar menn
eru að berjast fyrir réttlætinu. Ég
tel að fólk hafí áunnið sér mikið
traust kollega um allt land og eflt
sjálfsímynd sína,“ svaraði Pétur.