Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 16

Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ ** t* ,, , _ 16 ÞRIÐJUDAGUR 23. SBPTEMBER 1997______________________ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján GUÐJÓN Marteinsson og Leifur Örn Svavarsson komu fyrstir í mark í Fjallamaraþoni Landsbjargar sem haldið var um helgina. Fjallamaraþon Landsbjargar Flestir náðu í mark í krefj andi keppni Lúðrasveit Akureyrar Vetrar- starfið að hefjast STARFSEMI Lúðrasveitar Akur- eyrar starfsárið 1997-1998 hefst í kvöld, þriðjudaginn 23. september, í félagsheimilinu að Laxagötu 5 kl. 19.30. Fastur æfmgatími sveitarinn- ar er á þriðjudagskvöldum. Lúðrasveit Akureyrar er áhuga- mannasveit sem hefur það að mark- miði að koma fram við ýmis tæki- færi og býður upp á lúðrasveit, létt- sveit og dixilandband. Þetta gerir félagsstarfíð fjölbreytt og skemmti- legt. Þá er farið í heimsóknir til ann- arra lúðrasveita á landinu og í vetur er fyrirhugað að heimsækja Lúðra- sveitina Svan. Á þriggja ára fresti er haldið landsmót lúðrasveita og í júní si. var slíkt mót haldið á Selfossi. Starfandi félagar í Lúðrasveit Ak- ureyrar eru 25-30, á aldrinum 15-70 ára og alltaf er laust sæti ef menn hafa áhuga á að vera með. Hugsan- legt er að starfrækja sveit eldri fé- laga í vetur. Stjórnandi sveitarinnar verður Atli Guðlaugsson, sem verið hefur við stjómvölinn í 16. Hann veitir nánari upplýsingar ásamt Ein- ari G. Jónssyni. -----♦ ♦ ♦ Bílbeltanotk- un aukist ÞRJÁTÍU og fímm ökumenn vom kærðir fyrir of hraðan akstur á Akur- eyri í liðinni viku. Þá voru 5 teknir fyrir ölvun við akstur, 1 fyrir akstur án ökuréttinda, 2 fyrir að aka mót rauðu ljósi og 3 fyrir að nota ekki bflbelti. Lögreglumenn telja sérlega ánægjulegt hversu notkun bílbelta hefur aukist á Akureyri á þessu ári enda aukin bílbeltanotkun talin ár- angursríkasta aðgerðin til að fækka alvarlegum meiðslum í umferðar- óhöppum. Hins vegar telur lögregla að öku- menn mættu passa betur upp á að fara með bifreiðar sínar tímanlega í skoðun en númeraspjöld voru tekin af 20 bifreiðum í vikunni sem vom komnar fram yfír lögfestan frest. FJALLAMARAÞON Lands- bjargar var haldið í Eyjafirði um helgina en 20 tveggja manna lið úr 11 björgunarsveitum tóku þátt. Ólafur Jónsson, starfsmaður Landsbjargar, sagði að vel hefði tekist til í öllum aðalatriðum og greinilegt að þessi keppni nyti vinsælda. Keppendur ferðuðust um fjalllendi í Eyjafirði, fóru samtals rúmlega 40 kílómetra og var gert að leysa úr 10 þraut- um á leiðinni. Þær tengdust einkum útivist og ferðalögum. Keppnin var endurvakin á síð- asta ári en ekki hafði verið efnt til hennar um nokkurt skeið. Ólafur segir nú ljóst að hún verði haldin árlega héðan í frá. Sagði hann ánægjulegt að lang- flestir hefðu náð í mark þó keppnin hefði verið mjög krefj- andi. Leifur Örn Svavarsson og Guðjón Marteinsson í Flugbjörg- unarsveit Reykjavíkur fóru með sigur af hólmi í karlaflokki og var tími þeirra 10 klukkustundir og 4 mínútur. Styrmir Stein- grímsson og Hlynur Stefánsson úr Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi fóru hringinn á 12 klukku- stundum og 33 mínútum og urðu í öðru sæti, en í því þriðja urðu félagarnir Páll Sveinsson og Helgi Borg í Hjálparsveit skáta í Reykjavík sem voru 14 klukkustundir og 10 mínútur. í kvennaflokki urðu þær Iris Marelsdóttir og Margrét Valdi- marsdóttir úr Hjálparsveit skáta í Kópavogi fyrsta í mark á tím- anum 16 klukkustundir og 13 mínútur. Þórey Gylfadóttir og María Dögg Hjörleifsdóttir úr Björgunarsveitinni Ingólfi urðu í öðru sæti á 16 klukkustundum og 22 mínútum og í 3-4 sæti urðu Magnea Magnúsdóttir og Brynja Magnúsdóttir í Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík og Rán Sturlaugsdóttir og Jóhanna Ósk Jensdóttir í Hjálparsveit skáta í Kópavogi en þær fóru hringinn á 18 klukkustundum og 2 mínút- Óhappavika í umferðinni A slysadeild eftir bílveltu ÓVENJUMIKIÐ hefur verið um umferðaróhöpp á Akureyri að und- anförnu, alls voru skráð 12 slík hjá lögreglu, þar af urðu meiðsli í 5 þeirra. Ekið var aftan á bifreið í Gránu- félagsgötu og kvartaði ökumaður um eymsl í hálsi eftir hann. Ökumað- ur missti stjórn á bifreið sinni á Ólafsfjarðarvegi við Hörgárbrú síð- degis á laugardag og fór hún út af veginum. Farþegi í bílnum slasaðist á höfði en í ljós kom síðar að meiðsl hans reyndust minniháttar. Þá missti ökumaður vald á bifreið sem hann ók á Leiruveginum skammt norðan við Eyjafjarðarbraut á sunnudags- morgun. Valt bíllinn út af veginum og voru þrír fluttir á slysadeild tals- vert slasaðir. Grunur leikur á að ökumaður sem var réttindalaus hafí verið undir áhrifum áfengis. Barn sem hlaupið hafði út á götu í Skarðs- hlíð varð fyrir bíl sem ekið var suð- ur götuna, það var flutt á slysadeild en meiðsl þess reyndust lítil. Lögregla bendir ökumönnum á að varasamur tími sé að ganga í garð í umferðinni, en á haustin verða akstursskilyrði lakari, bæði hvað snertir birtu og veðurfar. Telur hún forsmekkinn hafa fengist í liðinni viku með óvenju mörgum umferðar- óhöppum. Einnig vill lögregla hvetja alla, bæði börn og fullorðna, til að nota hjálma þegar farið er á reið- hjóli, enginn ætti að koma á hjóli í skólann án þess að vera með hjálm. ----------♦ ♦ ♦ Braut rúðu á löggustöð HUNDUR virðist hafa verið í mörg- um sem fóru út að skemmta sér um helgina því óvenju erilsamt var, pústrar, minniháttar líkamsmeiðing- ar og skemmdarverk. Telur lögregla farsælla að menn fari út að skemmta sér þegar betur liggur á þeim. Brotnar voru rúður í húsum á tveimur stöðum í miðbænum og tvær bifreiðar voru skemmdar auk þess sem einnig var brotin rúða í annarri þeirra. Lögregla handtók mann sem þeir stóðu að því að sparka í bifreið sem hann var farþegi í. Var hann fluttur á lögreglustöðina og virtist þar fá svo góða iðran eftir viðtal við varð- stjóra að honum var leyft að fara frjálsum ferða sinna. En það stóð ekki lengi, maðurinn kom fljótlega aftur á lögreglustöðina sínu æstari en áður og hafði fyrr en varði brotið rúðu í anddyri lögreglustöðvarinnar. Var hann við svo búið settur í fanga- geymslu og fara ekki sögur af iðran hans þar. -----♦ ♦ ♦---- Heilbrigðisdeild Háskólans Hátíðardag- skrá á 10 ára afmæli HEILBRIGÐISDEILD Háskólans á Akureyri fagnar tíu ára afmæli sínu næstkomandi laugardag, 27. sept- ember. Efnt verður til hátíðardagskrár sem hefst kl. 14 í Oddfellowhúsinu við Sjafnarstíg. Margrét Tómasdótt- ir, fyrsti forstöðumaður heilbrigðis- deildar, flytur hátíðarræðu, Þor- steinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Sigríður Halldórsdótt- ir, forstöðumaður heilbrigðisdeildar, ávarpa gesti. Þá sjá fulltrúar braut- skráðra kandídata og núverandi nemendur um dagskráratriði. Ný- stofnuð námsbraut í iðjuþjálfun verð- ur kynnt og hjúkrunarfræðingar, brautskráðir vorið 1997, kynna loka- verkefni sín. Slegið verður á létta strengi í tali og tónum. Kaffíveiting- ar verða í boði háskólans. Laus er til umsóknar staða lektors í eðlisfræði hAskóunn A AKUPEYTII Háskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða lektor í eðlisfræði með áherslu á kennilega eðlisfræði og stærðfræði. Helstu viðfangsefni rannsókna eru hagnýting eðlis- fræði/stærðfræði í framleiðslu og eðlisfræðikennsla í grunnskóla. Starfsvettvangur verður aðallega við kennaradeild og sjávarútvegsdeild. Umsækjendur skulu láta fylgja um- sókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar, rannsóknir, kennslustörf, stjórnunarstörf svo og námsferil sinn og önnur störf. Með umsóknum skulu send eintök af þeim vísinda- legu ritum sem umsækjendur vilja láta taka tillit til. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir eru að sinna og hver eru áform þeirra ef til ráðningar kemur. Ennfremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og heimilisföng minnst tveggja aðila sem leita má til um meðmæli. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskóla- kennara á Akureyri. Upplýsingar um starfið gefa forstöðumenn viðkom- andi deilda eða rektor háskólans í síma 463 0900. Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 10. október nk. um. Aðalfundur sjálfstæðis- félaganna á Akureyri verður haldinn mánudaginn 29. september í Kaupangi við Mýrarveg. Sjálfstæðisfélagið, Sleipnir og Vörn kl. 20.00. Fulltrúaráð kl. 20.30. Dagskrá: auk venjulegra aðalfundarstarfa verða til umræðu tillögur kjörnefndar um framboðsmál fyrir komandi bæjar- stjórnarkosningar. , ,, ' 3 Stjorn felaganna. K0RG RAFPIAN0 verð fra kr. 138.900 ÍUÍWiBÚDIN Akureyri, sfmi 462 1415 Laugavegi 163, sími 552 4515

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.