Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTBMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________________ERLENT
Samstöðuflokkar sigurvegarar þingkosninga í Póllandi
Frelsissambandið í
oddastöðu á þinginu
Varsjá. Reuter.
KOSNIN GAB AND ALAG Sam-
stöðu (AWS) bar sigurorð af Lýð-
ræðislega vinstrabandalaginu
(SLD), flokki fyrrverandi kommún-
ista, í þingkosningum í Póllandi á
sunnudag. Frelsissambandið, sem á
rætur að rekja til verkalýðssamtak-
anna Samstöðu eins AWS, verður í
oddastöðu á þinginu og búist er við
að flokkamir reyni að mynda nýja
samsteypustjóm á næstu vikum.
Lýðræðislega vinstrabandalagið
vonast þó til þess að geta komist hjá
því að lenda í stjómarandstöðu með
því að bjóða leiðtoga Frelsissam-
bandsins forsætisráðherraembættið.
Úrslitin virtust koma fjármála-
mönnum á óvart og þeir voru frem-
ur bjartsýnir á að hægt yrði að
mynda sterka stjóm eftir kosning-
arnar. Gengi pólska gjaldmiðilsins,
zlotísins, hækkaði og seðlabankinn
varð að grípa til þess ráðs að selja
zlotí til að draga úr hækkuninni.
Margir fjármálamenn höfðu stutt
Frelsissambandið og óttuðust að
þingið yrði óstarfhæft eftir kosning-
amar og enginn flokkanna fengi
nógu mikið fylgi til að geta myndað
lífvænlega stjórn. Þeir óttuðust
einnig að næsta stjóm yrði háð
stuðningi Bændaflokksins, sem að-
hyllist vemdarstefnu í efnahags-
málum, eða hægriöfgamanna, en sá
ótti reyndistástæðulaus.
Sæt hefnd fyrir Walesa
Sigur AWS og Frelsissambands-
ins er sæt hefnd fyrir Lech Walesa,
fyrrverandi forseta Póllands og
leiðtoga Samstöðu, en hann tapaði í
forsetakosningúnum fyrir leiðtoga
fyrrverandi kommúnista árið 1995.
Walesa hét því í gær að beita sér
fyrir því að Frelsissambandið og
AWS næðu sem fyrst samkomulagi
um myndun nýrrar stjómar. „Ég vil
bjóða leiðtoga sigurvegaranna til
viðræðna ekki síðar en á miðviku-
dag eða fimmtudag," sagði hann.
„Við verðum að gera sem mest úr
þessum sigri og knýja fram umbæt-
ur.“
Stjórnarmyndunin gæti þó reynst
erfið þar sem tortryggni ríkir milli
AWS og Frelsissambandsins í efna-
hagsmálum. Frelsissambandið legg-
ur áherslu á að flýta einkavæðingu,
auka frjálsræðið í viðskiptum við út-
lönd og að framfylgt verði strangri
aðhaldsstefnu í peningamálum, en
AWS telur hins vegar brýnast að
örva iðnaðinn í landinu. Frelsissam-
bandið leggur einnig áherslu á ver-
aldarhyggju en AWS á hefðbundin
kaþólsk fjölskyldugildi.
Vilja Balcerowicz í
forsætisráðherraembættið
Lýðræðislega vinstrabandalagið
vonast til þess að geta notfært sér
þennan ágreining Samstöðuflokk-
anna og ætlar að reyna að fá Frels-
issambandið til samstarfs við sig
með því að bjóða leiðtoga flokksins,
Leszek Balcerowicz, fyrrverandi
fjármálaráðherra, forsætisráð-
herraembættið.
Takist Samstöðuflokkunum hins
vegar að mynda stjórn stendur
Aeksander Kwasniewski forseti,
sem er fyrrverandi kommúnisti,
frammi fyrir því að þurfa að starfa
með stjórn sem er andvíg honum.
Kwasniewski sagði fyrst eftir að
hann var kjörinn forseti að hann
gæti starfað með hvaða stjórn sem
er en hann gaf til kynna nýlega að
hann væri tregur til að veita AWS
umboð til að mynda nýja stjóm.
Hann vildi ekki útiloka að hann
myndi hunsa þá óskrifuðu reglu að
stærsti flokkurinn fengi stjórnar-
Ljósmynd/Pressens Bild
LESZEK Balcerowics, sem líklegastur þykir til að verða í forsæti
næstu ríkisstjórnar Póliands, stendur hér lengst til hægri með keppi-
nauta sína í kosningabaráttunni Jan Olszewski (Endurreisnarhreyf-
ingu Póiiands), Wlodzimierz Cimoszewics, starfandi forsætisráðherra
(AWS), og Waldemar Pawlak (Bændaflokki).
myndunarumboðið eftir kosningar.
Talsmaður forsetans sagði í gær
að hann vildi að leiðtogi Frelsissam-
bandsins yrði næsti forsætisráð-
herra. „Balcerowicz er höfundur
áætlunarinnar sem markaði upphaf
umbótanna í Póllandi og hann er
frábært forsætisráðherraefni,"
sagði hann.
Stefnt að sljórnarmyndun
{ október
Kwasniewski sagðist þó ætla að
ræða við forystumenn AWS og
hafa samráð við leiðtoga allra
þeirra flokka sern fengu þingsæti í
kosningunum. „Ég tel raunsætt að
nafn næsta forsætisráðherra liggi
fyrir í byrjun október,“ sagði hann.
Nýja þingið kemur saman 20.
október og forsetinn hefur þá hálf-
an mánuð til að tilnefna forsætis-
ráðherra. Takist forsætisráðherra-
efni hans ekki að mynda stjórn get-
ur þingið tilnefnt næsta forsætis-
ráðherra.
Bændaflokkurinn, sem var í
stjóm með Lýðræðislega vinstra-
bandalaginu, fékk 6,9% atkvæð-
anna, en fylgi hans var 15,4% í síð-
ustu kosningum. Endurreisnar-
hreyfing Póllands, sem var sökuð
um lýðskmm í kosningunum, fékk
5,5% atkvæðanna og þrjú þingsæti
og flokkar þýska minnihlutans þrjá
þingmenn.
Geðsjúkir
notaðir í
tilraumim
Stokkhdlmi. Reuter.
RÚMLEGA 400 geðsjúkum Svíum
voru gefín sérstök sætuefni á
fímmta áratugnum, þannig að hægt
væri að fylgjast með þróun tann-
skemmda. Þetta kom í dagblaðinu
Dagens nyheterí gær.
Hluta fólksins var gefín sérstök
karamella, sem lýst var sem hættu-
legustu og klístruðustu karamellu í
heimi. Hún var of stór til að hægt
væri að gleypa hana og festist í
tönnunum þar sem hún leystist
smám saman upp.
Tilraunin, sem náði einnig til
bama, var gerð á sjúklingum á
Vipeholm-sjúkrahúsinu í nágrenni
Lundar. Fólkinu var skipt upp í
hópa og hópunum gefið mismunandi
sælgæti. Síðan voru tekin munn-
vatnssýni úr fólkinu allt að 36 sinn-
um á dag, stundum með einungis 15
mínútna millibili.
Frétt dagblaðsins kemur einung-
is mánuði eftir að blaðið upplýsti að
ófrjósemisaðgerðir hefðu verið
framkvæmdar á þúsundum fátækra
og ómenntaðra kvenna í Svíþjóð, án
vitundar þeirra og vilja, allt fram til
ársins 1976.
----------------
Fjöldamorð
í Lettlandi
Riga. Reutcr.
47 ÁRA karlmaður svipti sig lífi í
skógi í Lettlandi um helgina eftir að
hafa skotið sjö manns til bana. Alois
Blonskis lögreglustjóri sagði að
sporhundur hefði fundið lík morð-
ingjans um tveim km frá morð-
staðnum og að hann virtist hafa
skotið sig.
Maðurinn skaut fimm karlmenn
og tvær konur til bana á akri nálægt
bænum Iecava á laugardag og einn
maður særðist alvarlega 1 árásinni.
500 lögreglumenn og þjóðvarðliðar
tóku þátt í leitinni, sem var sú
mesta sem gerð hefur verið í Lett-
landi frá því landið fékk sjálfstæði
frá Sovétríkjunum 1991.
Forseta- og þingkosningar í Serbíu
• •
Onnur umferð
nauðsynleg
Belgrad. Reuter.
ALLT útlit var fyrir að efna yrði til
annarrar umferðar í forsetakosn-
ingunum í Serbíu, er tveir þriðju
hlutar atkvæða höfðu verið taldir í
gær, þar sem allt benti til að enginn
helstu frambjóðendanna þriggja
fengi hreinan meirihluta atkvæða í
fyrstu umferðinni. Jafnhliða for-
setakosningunum fóru fram kosn-
ingar til Serbíuþings, og var þar út-
lit fyrir að harðlínuþjóðernissinnar í
sósíalistaflokki Slobodans Milos-
evics forseta Júgóslavíu, SPS, héldi
stöðu sinni sem stærsti flokkurinn
en missti meirihlutann úr síðustu
þingkosningum 1993.
Önnur umferð kosninganna mun
að öllum líkindum fara fram 5. októ-
ber næstkomandi.
Alþjóðlegir eftirlitsmenn sögðu
kosningamar á sunnudag hafa farið
vel fram en sögðu hins vegar að ný
kosningalög og heftur aðgangur
frambjóðenda stjórnarandstöðunn-
ar að fjölmiðlum hefðu ýtt undir
tortryggni.
Er tveir þriðju hlutar atkvæða
höfðu verið taldir hafði Zoran Lilic
frambjóðandi SPS 37,5% atkvæða,
Vojislav Sesselj, frambjóðandi Rót-
tæka flokksins SRS, sem einnig er
tr—-{] mjög þjóðemis-
jppPiPHk I sinnaður, hafði
‘ff- ... m\ ^uk Draskovic
" , * frambjóðandi
TflB'jMÉT ungssinna, 23%
atkvæða.
ggM Tilraun stjórn-
arandstöðunnar,
sem hvatti stuðn-
Llllc ingsmenn sína til
að sitja heima og ógilda þar með
kosningarnar, mistókst þar sem
60% kjósenda neyttu atkvæðisrétt-
ar síns, en til að ógilda kosningarn-
ar hefði kjörsókn þurft að vera
minni en 50%.
Samsteypustjóm?
Einnig var kosið til þings Serbíu,
en útlit var fyrir að SPS tapaði þó
nokkru fylgi og fengi aðeins 102
sæti af 250 í þinginu, en flokkurinn
hlaut 123 sæti í kosningum 1993 og
hefur stjórnað einn síðan. Milosevic,
fráfarandi forseti Júgóslavíu, sam-
bandsríkis Serbíu og Svartfjalla-
lands, gæti því þurft að leita stjóm-
arsamstarfs við flokk kongungs-
sinna að loknum kosningunum.
Fjörutíu myrtir í Alsír
París. Reuter.
I minningu
Langa-Ulfs
WILMER Mesteth, töfralæknir Si-
oux-indíána, veifar fjöður við
greftrunarstað indíánahöfðingjans
Langa-ÚIfs í Brompton-kirkjugarði
í Lundúnum. Jarðneskar leifar
Langa-ÚIfs verða grafnar upp á
fímmtudag og fluttar til greftrun-
arstaðar forfeðra hans og ættingja
í Svörtu fjöllum í Suður-Dakóta í
Bandarfkjunum. Langi-Úlfur dó úr
lungnabólgu er hann var á sýning-
arferð í Bretlandi árið 1892 með
Villta-vesturs-sýningu „Vísunda-
Villa“, BiIIs Cody.
TALIÐ er að múslímskir upp-
reisnarmenn hafí myrt um 40
óbreytta borgara, og brennt lík
margra þeirra, í árásum á þorp í
Medeahéraði í Alsír um helgina.
Alsírsk dagblöð greindu frá þessu
á mánudag. Flestir hinna myrtu
voru skornir á háls. 17 þeirra vom
börn.
Ahmed Ouyahia, forsætisráð-
herra Alsír, sagði að þrátt fyrir of-
beldisaðgerðir sem þessar væri
hryðjuverkastarfsemi uppreisnar-
manna dæmd til að mistakast.
Hann viðurkenndi þó, að ótti Aisír-
inga stafaði af þeim „hryðjuverk-
um sem unnin voru í ágúst,
myrkasta mánuðinum síðan 1994“.
Óöld hófst í Alsír í janúar 1992
þegar stjómvöld hættu við kosn-
ingar eftir að Frelsisfylking islam
(FIS) hafði tekið afgerandi forystu
í fyrri umferð. Síðan hafa 60 þús-
und manns fallið. I sjónvarpsviðtali
á sunnudag sagði Ouyahia að ekki
kæmi til greina að mæta til við-
ræðna við öfgasinnaða múslíma, og
að Frelsisfylkingin svokallaða
„heyrði fortíðinni til“.
Blaðið Liberté sagði að upp-
reisnarmennimir hefðu verið um
fímmtán og ráðist á fólkið í tveim
bæjum í Medea, sem er um 70 km
suður af Algeirsborg, aðfaranætur
laugardags og sunnudags og myrt
43. Blaðið A1 Khabar greindi frá
því að að minnsta kosti sautján
börn hefðu verið meðal hinna
myrtu.