Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Lau. 27. sept.
Miðnætursýning.
Lau. 4. okt. Miðnætursýning
Námufélagar fá 15% afslátt a< sýningum 2.-10.
W/.jfcRkii, Miðasölusími
KASIAiINKI 552 3000
Þríréttuö Veðmáls-
máltiö á 1800 kr.
WM.öm:a
Afsláttur af akstri
á Veðmálið.
" s
□ Í:§
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiðið kt. 20.00:
ÞRJÁR SYSTUR - Anton Tsjekhof
4. sýn. fim. 25/9 nokkur sæti laus — 5. sýn. sun. 28/9 — nokkur sæti laus
— 6. sýn. fim. 2/10 nokkur sæti laus — 7. sýn. sun. 5/10 nokkur sæti laus
— 8. sýn. lau. 11/10 nokkur sæti laus.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
Fös. 26/9 — lau. 27/9 nokkur sæti laus — fös. 3/10 — lau. 4/10 — fös. 10/10.
Litta sóiðið kt. 20.30:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Fös. 26/9 uppselt — lau. 27/9 uppselt — mið. 1/10 uppselt — fös. 3/10 uppselt
— lau. 4/10 uppselt — mið. 15/10 — fim. 16/10 — lau. 18/10.
SALA ÁSKRIFTARKORTA STENDUR YFIR
Miðasalan er opin alla daga í september kl. 13-20
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Fós. 26. sept. kl. 20. uppselt
Fös. 26. sept. kl. 23.15 miðnaatursýning
- örfá sæti laus
Fös. 3. okt. kl. 20. uppselt
Lau. 4. okt. laus sæti.
LSnilldarlegir kómískir taktar leikaranna.
|Þau voru satt að segja morðfyndin."(SA.DV
„Þarna er loksins kominn
sumarsmellurínn í ár“. (GS.DT.)
Íj&SlI alltaf fyrir og eftir leikhús
i MAT EÐA DRYKK
L «A\> J, lifandI TÓNUST ÖLL KVÖLD
KRINGLUKRÁIN
- á góðri stund
öTSEWOifiJB
3. sýn. sun. 28. sept. kl. 20
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMP Á HENDI
4 Hart í bak
♦ Á ferð með frú Daisy
y Söngvaseiður
é Markúsarguðspjall_____
Kortasalan er hafin
s. 462 1400
sýningafjöldi
mið. 24. sept.
uppselt
fös. 26.9 kl. 23.30
örfá sæti laus
fös. 3.10 kl.23,30
mið. 8. okt. kl. 20
Ath. aðeins örfáar
sýningar._________
Loftkastalinn, Seljavegi 2.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasalan opin frá 10:00—18:00
Leikfélagið Regína og
Sniglabandið kynna
6. sýn. lau. 27/9. Sýning hefst kl. 22.
Sniglabandið leikur fyrir dansi að
lokinni sýningu.
Uppl. og miðapaptanir kl. 13-17 á
Hótel Islandi
ATVINNULAUSIR Bretar gerast fatafellur í gamanmyndinni
„The Full Monty“.
Væntanlegar kvikmyndir í Regnboganum
Stórslys, grín
og alvara
IHAUST- og vetrardagskrá
Regnbogans kennir ýmissa
grasa. Spenna, grín og alvar-
leg stykki verða á boðstólun-
um. Einnig er stefnt að því að halda
Kvikmyndahátíð Reykjavíkur annað
árið í röð um mánaðamótin október-
nóvember og verður þá boðið upp á
myndir eins og „Hamlet“ í leik-
stjórn Kenneth Branagh, frumraun
Johnny Depp sem leikstjóra „The
Brave“, og naflaskoðun A1 Pacino
á Ríkharði III „Looking for
Richard" í Regnboganum.
Stórslysamyndin „Volcano“ er
ein af þeim kvikmyndum sem eru
væntanlegar í Regnbogann. í henni
beijast Tommy Lee Jones og Anne
Heche við eldgos í miðborg Los
Angeles. Leikstjóri „Volcano“ er
Mick Jackson.
Önnur stórslysamynd sem margir
bíða örugglega spenntir eftir er
„Titanic“, myndin sem stefnir í að
verða dýrasta kvikmynd Hollywood.
Hún fjallar að sjálfsögðu um feigð-
arför skemmtiferðaskipsins Titanic.
í aðalhlutverkunum eru Leonardo
DiCaprio og Kate Winslet. Þau leika
farþegana Jack og Rose sem fella
hugi saman þrátt fyrir mikinn mun
á stéttarstöðu þeirra. James Camer-
on leikstýrir þessari risamynd.
„Alien“-framhaldsmyndaflokk-
urinn heldur síðan áfram þegar
íjórða myndin um átök Ripley við
geimskrímslin ógurlegu rennir í
hlað. Það er að sjálfsögðu Sigourney
Weaver sem leikur Ripley sem er
endurborin í „Alien: Resurrection"
eftir að hafa farist í lok þriðju mynd-
arinnar. Frakkinn Jean-Pierre Jeu-
net heldur um stjórnvölinn.
Hryllingsmyndir eiga aftur upp á
pallborðið hjá bíógestum eftir nokk-
ur mögur ár. Regnboginn sýnir í
vetur „Mimic“ með Miru Sorvino
og Jeremy Notham í aðalhlutverk-
unum. Þau leika hjón sem þurfa að
takast á við martraðarkennt ástand
þegar tilraunir þeirra með erfðavísa
leiða til skelfilegra stökkbreytinga.
Leikstjóri er Guillermo Del Toro.
Danski leikstjórinn Ole Bornedal
fékk tækifæri í Hollywood til þess
að endurgera „Nattevagten“ á eng-
ilsaxnesku með stjörnuliði. Nýja
útgáfan ber titilinn „Nightwatch"
og helstu hlutverk eru í höndum
Ewan McGregor, Patrieiu Arquette,
Josh Brolin, Lauren Graham, og
Nick Nolte. Það verður gaman að
sjá hvernig ameríkanísering fer með
skemmtilega danska spennumynd.
Sylvester Stallone sýnir á sér
nýjar hliðar í lögregludramanu
„Copland" sem er önnur mynd nýl-
iðans James Mangold. Stallone fer
með hlutverk Freddy Heflin, heyrn-
arskerts lögreglustjóra í smábæ í
New Jersey, sem þarf að taka erfið-
ar ákvarðanir þegar rannsókn á
glæpamáli beinir athyglinni að
starfsaðferðum lögreglunnar. Harv-
ey Keitel, Ray Liotta, Peter Berg,
Janeane Garofalo, Annabella Sci-
orra, og Robert DeNiro fara einnig
með hlutverk í myndinni.
Sean Penn fékk verðlaun á
Cannes fyrir hlutverk sitt í „She’s
De Lovely" sem verður frumsýnd
í Regnboganum í vetur. Handritið
að myndinni var skrifað af leikstjór-
anum John Cassavetes en sonur
hans Nick sá um leikstjórnina. Penn
leikur Eddie sem snýr heim úr fang-
elsi til þess að finna stóru ástina í
lífi sínu Maureen (Robin Wright)
gifta öðrum manni (John Travolta).
Óskarsverðlaunamyndin „Sling
KENNETH Branagh er ljós-
hærður Danaprins í „Hamlet“.
Blade" er einnig væntanleg. Billy
Bob Thornton skrifaði handritið og
leikstýrði myndinni auk þess sem
hann leikur aðalhlutverkið. Thorn-
ton leikur Karl Childers, mann sem
er sleppt lausum eftir að hafa verið
á geðveikrahæli í 25 ár. Karl reynir
að fóta sig aftur í samfélaginu og
vingast við ungan dreng, Frank
(Lucas Black). Þegar Frank er ógn-
að af ofbeldisfullum kærasta móður
sinnar grípur Karl til sinna ráða.
Aðdáendur Woody Allen verða
örugglega ánægðir með þá frétt að
söngleikjamynd hans „Everyone
Says I Love You“ verður sýnd
bráðlega. Að vanda prýðir stjörnu-
fans myndina. Alan Alda, Drew
Barrymore, Lucas Haas, Goldie
Hawn, Edward Norton, Natalie
Portman, Julia Roberts, Tim Roth,
og leikstjórinn sjálfur kanna ólík
blæbrigði ástarinnar og tjá sig með
söng í „Everyone Says I Love You“.
Breska gamanmyndin „The Full
Monty“ verður líka frumsýnd í
Regnboganum bráðlega. Þessi mynd
sem hefur notið mikilla vinsælda í
Bretlandi fjallar um nokkra atvinnu-
lausa félaga sem ákveða að skapa
sín eigin atvinnutækifæri og gerast
fatafeliur. Robert Carlyle („Train-
spotting"), Mark Addy, William
Snape, og Steve Huison fara með
aðalhlutverkin en gríninu er leik-
stýrt af Peter Cattaneo.
Teiknimynd Don Bluth og Gary
Goldman „Anastasia" verður síðan
sýnd fyrir börnin og alla aðra sem
hafa gaman af teiknimyndum í vet-
ur. Fox hefur lagt mikið undir í
kynningunni á þessari mynd og
verður spennandi að sjá afrakstur-
inn en hún verður talsett á íslensku
fyrir yngstu áhorfendurna.
Lolita fær neikvæða gagnrýni
KVIKMYNDIN Lolita sem leikstýrt er
af Adrian Lyne hefur loks verið frum-
sýnd eftir að hafa verið lögð til hliðar
af bandarískum dreifingaraðilum fyrir
átján mánuðum vegna þess að efni
myndarinnar þótti of eldfimt.
Hún var frumsýnd á kvikmyndahátíð-
inni í San Sebastian á Spáni. Stendur
til að hún verði sýnd annars staðar á
Spáni í næstu'viku, svo á Italíu og loks
í Frakklandi í byijun næsta árs.
Sagan var skrifuð af rússneska rit-
höfundinum Vladimir Nabokov á sjötta
áratugnum og fjallar um þráhyggju
45 ára - háskólaprófessors sem hrífst
af tólf ára stúlku. Jeremy Irons er í
hlutverki prófessorsins en stúlkan er
leikin af Dominique Swain, sem er 14
ára.
Lyne hefur áður leikstýrt umdeilduni
myndum á borð við Níu og hálfa viku,
„Fatal Attraction" og „Indecent Propo-
Jeremy
Irons
sal“. Hann hefur aldrei verið eftirlæti
kvikmyndagagnrýnenda og nýja mynd-
in er engin undantekning. Hafa við-
brögð gagnrýnenda verið neikvæð, en
áhorfendur hafa tekið henni betur.
Lyne er skiljanlega afar ósáttur við
þá meðferð sem myndin hefur fengið í
Bandaríkjunum. „Eg held að andrúms-
loftið í Bandaríkjunum hafi breyst und-
anfarin þrjú til fjögur ár og sé svipað
og það var á sjötta áratugnum," sagði
hann á fjölmennum fréttamannafundi í
San Sebastian.
Jeremy Irons er á sama máli og Lyne:
„Mér finnst það afskaplega mikilvægt
að þessi kvikmynd og kvikmyndir í sama
dúr verði framleiddar og sýndar. Þær
krefjast þess af okkur að við séum full-
orðnar, gagnrýnar siðferðisverur sem
getum hneykslast, undrast, reiðst eða
hrifist og umfram allt dæmt fyrir okkur
sjálf.“