Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 45
FRÉTTIR
HALLDÓRA Reynisdóttir og Isak Halldórsson,
í 14. sæti á dansmóti
ÍSAK Halldórsson og Halldóra
Reynisdóttir náðu að lenda í 14.
sæti í German Open Champions-
hip sem haldin er árlega í Þýska-
landi. Keppnin í ár var haldin í
Mannheim dagana 19.-23. ágúst
sl.
í 8 dansa keppninni voru
skráð 122 pör og lentu þau ísak
og Halldóra þar í 14. sæti. í lat-
in-dönsum voru skráð 140 pör
en þar lentu þau í 32. sæti. í
standard-dönsum var skráð 131
par og lentu þau í 30. sæti.
ísak og Halldóra eru bæði 14
ára gömul og eru margfaldir
íslandsmeistarar.
Níu dómarar dæmdu keppn-
ina. í fyrstu sætunum í hópi
unglinga voru pör frá Rúss-
landi, Slóveníu, Litháen og
Úkraníu.
Ur dagbók lögreglunnar
Mörg* alvarleg mál til
lögreglu um helgina
MIKIÐ annríki var hjá lögregl-
unni í Reykjavík þessa helgi og
voru 410 mál færð til bókunar.
Mörg þeirra mála sem lögreglan
varð að glíma við um helgina voru
mjög alvarleg.
Ölvun við akstur
Þessa helgi voru höfð afskipti
af 24 ökumönnum vegna gruns
um akstur undir áhrifum áfengis.
Fyrstu 8 mánuði þessa árs hefur
lögreglan haft afskipti af 511
ökumönnum vegna gruns um ölv-
un við akstur en þeir voru 468
árið 1996 og virðist þvi sem aukn-
ing sé á því að ökumenn setjist
ölvaðir við stjórn ökutækja sinna.
Umferðarslys
Umferðarslys varð á bílastæði
við nætursölustað við Sæbraut að
morgni sunnudags. Ökumaður
sem hafði nýlokið að taka á móti
næturnæringu missti stjórn á öku-
tæki sínu er hann ók af miklum
krafti brott frá sölulúgu. Ökuferð-
inni, sem var stutt, lauk á næsta
ökutæki og þar slasaðist farþegi
svo að flytja varð hann á slysa-
deild til aðhlynningar.
Þá voru höfð afskipti af 36
ökumönnum vegna aksturs þeirra
umfram hámarkshraða og 55
vegna ýmissa annarra umferðar-
lagabrota.
Innbrot
Um helgina var lögreglu til-
kynnt um 16 innbrot. Fyrstu 8
mánuði ársins hafa 1.050 innbrot
verið tilkynnt lögreglu en þau
voru 1.258 árið 1996 og hefur
því fækkað nokkuð frá því í fyrra
eða nærri 20%.
Brotist var inná Grensásdeild
Borgarspítala og þaðan stolið milli
20 og 30 þúsund í fjármunum.
Karlmaður var handtekinn þar
sem hann hafði brotist inní brauð-
búð í miðbænum og sofnað þar
ölvunarsvefni. Hann fékk að halda
áfram svefni sínum í fanga-
geymslu lögreglu.
Brunar
Um helgina var lögreglu til-
kynnt um 7 bruna og voru 3 þeirra
alvarlegir. Alvarlegir brunar eru
helmingi færri fyrstu 8 mánuði
þessa árs miðað við sama tíma
1996 og reyndar á svo einnig við
um minniháttar bruna sem eru
nokkru færri.
Kveikt var í stólum í tveimur
kennslustofum í Sjómannaskólan-
um að morgni föstudags. Af
verksummerkjum á vettvangi
mátti ráða að gerð var tilraun til
að láta eldinn breiðast frekar út
án þess að það hafi borið tilætlað-
an árangur. Einn maður var hand-
tekinn vegna málsins.
Eldur kom upp í geymslu í kjall-
ara húss við Háteigsveg laust eft-
ir miðnætti á sunnudag. Er lög-
reglan kom á staðinn var einn
íbúi hússins fastur á efstu hæð
og tókst lögreglumönnum að
bjarga honum út. Slökkviliði gekk
greiðlega að slökkva eldinn en
miklar skemmdir eru á húsnæðinu
vegna sóts og reyks.
Líkamsmeiðingar
Það voru 10 líkamsmeiðingar
tilkynntar til lögreglu um helgina
þar af nokkrar alvarlegar. Fyrstu
8 mánuði þess árs hafa 366 lík-
amsmeiðingar verið tilkynntar til
lögreglu þar af 22 alvarlegar en
á sama tíma í fyrra voru þær 370
þar af 6 alvarlegar. Því virðist sem
hlutfall alvarlegri meiðinga hafa
aukist þótt heildarfjöldinn sé svip-
aður.
Kona var flutt á slysadeild eft-
ir áverka sem hún hafði orðið
fyrir á veitingahúsi í miðbænum
á laugardagskvöld.
Þrír menn voru handteknir eft-
ir að þeir höfðu ráðist að manni
á Smiðjustíg laust eftir klukkan
3 að morgni sunnudags. Flytja
varð árásarþola á slysadeild en
ítrekað hafði verið sparkað í höfuð
hans.
Annað
Ungur piltur slasaðist í andliti
er mark féll á hann á íþróttavelli.
Ástæða er til að minna ábyrgðar-
aðila íþróttamannvirkja á að sýna
aðgæslu við frágang íþróttatækja
sinna.
Karlmaður gekk berserksgang
í íbúð sinni í vesturbænum, braut
húsmuni og slasaðist það illa að
flytja varð hann á slysadeild til
aðhlynningar.
Þá var ungur piltur handtekinn
er hann hafði ógnað föður sínum
með hnífi um miðjan dag á sunnu-
dag.
FRÁ púttkeppni aldraðra í fyrra.
Fyrirlestur um
stærðfræðikennslu
Námstefna
um stjórnun
fyrirtækja
NÁMSTEFNA á vegum Stjórnun-
arfélags íslands verður haldin á
Hótel Loftleiðum, þingsal 1, þriðju-
daginn 30. september, kl. 9-13 eða
14-18. Fyrirlesari er dr. William
Bridges, sérfræðingur á sviði
stjórnunarbreytinga.
„Dr. Bridges er einn eftisóttasti
ráðgjafi og fyrirlesari í Bandaríkj-
unum um þessar mundir ekki síst
vegna þess að spár hans eru að
ganga eftir. Framsögn hans er afar
góð og hér er á ferðinni efni sem
á erindi til allra íslenskra stjórnenda
í viðskiptum og hjá hinu opinbera
ekki síður en forystumanna laun-
þegafélaga.
Bridges segir þörfina fyrir fækk-
un fastra starfsmanna augljósa en
framundan séu fleiri tímabundin
störf og enn meiri sjálfvirkni. Hann
mun tilgreina gjaldið sem fyrirtæki
þurfa að greiða fyrir þessa óhjá-
kvæmilegu þróun,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Stjórnunarfélagi ís-
lands.
Skráning fer fram hjá Stjórnun-
arfélagi íslands.
Símaráðgjöf
UMSJÓNARFÉLAG einhverfra
vekur athygli á símaráðgjöf sem
stendur aðstandendum einhverfra
til boða þriðjudagskvöld í september
og október milli kl. 20 og 22.
Þriðjudagskvöldið 23. september
mun Sólveg Guðlaugsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og tjölskylduráð-
gjafi, veita ráðgjöf, m.a. varðandi
kennslu og umönnun barna á for-
skólaaldri og vandamál sem upp
geta komið í daglegu lífi.
Málörvun
barna með
Downs
heilkenni
FYRSTI fundur vetrarins hjá Fé-
lagi áhugafólks um Downs heil-
kenni verður haldinn þriðjudaginn
23. september kl. 20.30 í húsnæði
Landssamtakanna Þroskahjálpar,
Suðurlandsbraut 22.
Á fundinum verður sýnt mynd-
band sem fjallar um málörvun
barna með Downs heilkenni og
rætt um vetrarstarfið. Kynntar
verða bækur sem eru í eigu félags-
ins en félagið hefur nú fengið að-
stöðu sem auðveldar útlán á bók-
um og myndböndum.
Fundurinn er opinn öllum sem
áhuga hafa á málefninu.
PÚtt-
keppni
aldraðra
Á FIMMTUDAG, þann 25. sept-
ember fer fram opið mót í
„Pútti“ á vegum Félags áhuga-
fólks um íþróttir aldraðra, á
púttvellinum í Laugardal. Mótið
hefst kl. 14 og fer skráning fram
á staðnum frá kl. 13.30. Um er
að ræða liðakeppni (3 i liði) þar
sem keppt verður um farandbik-
ar. Einnig verður einstaklings-
keppni kvenna og karla. Félag
áhugafólks um íþróttir aldraðra
beinir því til væntanlegra þátt-
takenda að þeir verði hlýlega
klæddir.
Dr. JAN de Lange, forstöðumaður
Freudenthal-stofnunarinnar í Hol-
landi, flytur fýrirlestur í boði Rann-
sóknarstofnunar Kennaraháskóla
íslands og Skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar miðvikudaginn 24. septem-
ber kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefn-
ist: Fagmennska stærðfræðikenn-
ara og hlutverk þeirra í samstarfi.
í fréttatilkynningu segir: „Freud-
enthal-stofnunin í Hollandi er ein
kunnasta rannsóknar- og þróunar-
stofnun á sviði stærðfræðimenntun-
ar og hóf hún starfsemi árið 1971.
Hún er kennd við stofnanda sinn
Hans Freudenthal en hann var
brautryðjandi í því sem kallað hefur
verið „rauntengt stærðfræðinám".
Starf stofnunarinnar hefur haft
mikil áhrif á námskrá í stærðfræði
í Hollandi en árangur nemenda þar
er einn sá besti í Vestur-Evrópu.
Freudenthal-stofnunin hefur einnig
átt samstarf við rannsóknarstofn-
anir, m.a. í Bandaríkjunum, um
þróun námskrár, námsefnis og
kennsluhátta, og hafa þau verk sem
þar hafa verið unnin verið tekin ti!
fyrirmyndar viða um lönd.
Sérstök áhersla hefur verið lögð
á námsmat í starfi Freudenthal-
stofnunarinnar og hafa rannsóknir
beinst að því hvernig vanda megi
námsmat og láta það endurspegla
„rauntengt stærðfræðinám". Stofn-
unin leggur mikla áherslu á að
tengja rannsóknir og þróunarstarf
því starfi sem fram fer í skólum í
nánu samstarfi við kennara."
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku í stofu M-301 í Kennarahá-
skóla íslands og er öllum opinn.
Auk fyrirlestrar Jan de Lange
munu hann og Maq'a van den Heuv-
el-Panhuizen vera með fjölbreytta
dagskrá fyrir kennara í Hafnarfirði
á vegum Skólaskrifstofu Hafnar-'
fjarðar og verður sú dagskrá endur-
tekin næstkomandi laugardag í Frí-
múrarahúsinu, Ljósutröð 2 í Hafn-
arfirði, fyrir áhugasama skólamenn
utan Hafnarfjarðar.
Mæðgnahelgi
í Olveri
MÆÐGNAHELGI verður í sumar-
búðunum í Ölveri helgina 3.-5.
október.
„Þetta er helgi fyrir mæðgur á
öllum aldri sem óska þess að njóta
helgarinnar í góðu samfélagi og'
fögru umhverfi. Leitast verður við
að efla andlegu og félagslegu
tengslin í gegnum samverustundir,
kvöldvökur, gönguferðir og leiki.
Einungis er pláss fyrir 40 manns.
Því fá þær pláss sem fyrstar skrá
sig,“ segir í fréttatilkynningu frá
sumarbúðunum í Ölveri.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn verkefnastjóra
í myndatexta með frétt um alþjóð-
lega vottun verkefnastjóra í Morg-
unblaðinu á sunnudag var rangt
farið með nafn Sigurðar Ragnars-
sonar, verkefnastjóra og hann kall-
aður Stefán. Beðist er velvirðingar
á þessu.