Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 24

Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 24
SS ?eei H39M3T<Í38 .82 HUOAaUlQIJM 24 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 LISTIR GIQMHMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ Egilsstaðir - frá býli til bæjar Bær í takt við tímann EGILSSTAÐABÓK - frá býli til bæjar kom út í sumar í tilefni af fimmtíu ára afmæli kaupstað- arins. Ritstjóri bókarinnar og aðalhöfundur var Björn Vigfús- son sagnfræðingur. „Efnið flokkast ekki undir hefðbundna sagnfræði," segir Björn Vigfússon, „heldur er því hampað sem heimamenn eru stoltastir af.“ Hann segir að vissulega hefði mátt fara harð- ari höndum um einstaka áhrifa- menn og fyrirtæki en ritnefndin var sammála um að blína fremur á afrekin en mistökin. Björn vann að bókinni með kennslu í Menntaskólanum á Egilsstöðum í þrjú ár en nokkr- ir aðrir eiga efni í bókinni. En hvað er sérstakt við Egils- staði? Ung' Nordisk Musik 1997 UNGU tónskáldin á hátíðinni UNM 1997 ræða verk sín í Tónlistarskóla Reykjavíkur í dag, þriðjudag kl. 11-13. Luca Francesconi heldur fyrirlestur kl. 14-16. Tónleikar verða í Listasafni ís- lands kl. 20. Þar koma fram ýmsir flytjendur og leika verk eftir Peter Bruun, All ting er hans spejl; Mort- en Danielsen, Situation; Edina Hadziselimovic, Strygekvartet; Jesper Nordin, Departing Water; Timo Virtanen, Syntymát, og Jesp- er Holmen, Crystal. Tónleikar í Norræna húsinu Miðvikudaginn 24. september ræða tónskáldin verk sín í Tónlistar- skóla Reykjavíkur kl. 11-13. Tón- leikar verða í Norræna húsinu kl. 20. Þar flytja Various artists verk eftir David Bratlie, Yet not erased; Palle Dahlstedt, Gummi; Per Magn- us Lindborg, Bombastic sonosofism; Steingrím Rohloff, 3 sönglög, og Johann Frost, Reflections and Appearances. ------♦ ♦ ♦------ Nýjar bækur • ÚT er komin ljóðabókin Jóhann vill öllum íhúsinu ve/eftir Krist- ján Þórð Hrafnsson. í kynningu seg- ir: „Það má kallast óhefðbundið að ungt ljóðskáld yrki eingöngu hefðbundið, og þegar við bætist að Kristján Þórður Hrafnsson birtir í þessari bók ein- vörðungu ljóð undir hinum klassíska sonnettuhætti er bersýni- legt að þar er á ferð nýjungamaður í íslenskri ljóðlist. Rík tilfinning fyrir reykvísku mannlífí einkennir ljóð Kristjáns Þórðar, næmni og glettni, en ekki telst þó síst til tíð- inda á þessum hörðu tímum sjálfur tónn ljóðanna: frá þeim stafar mannúð og hlýju." Höfundurinn, Kristján Þórður Hrafnsson, er fæddur árið 1968. Hann hefur áður sent frá sér tvær ljóðabækur, í öðrum skilningi (1989) og Húsin og götumar (1993). Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 39 bls., unnin íprentsmiðj- unni Grafík hf. Kápuna gerði Ingi- björgEyþórsdóttir. Verð: 1.680 kr. „Atvinnulífið og félagslífið er allt öðruvísi en á fjörðunum þar sem verðmætin eru falin í fiskin- um,“ segir Björn, „á Egilsstöð- um eru verðmætin í opinberri og annarri þjónustu. Hann segir að tekjurnar séu minni en á fjörðunum en hins vegar búi íbúarnir við jafnari tekjur og meira öryggi enda er meira en helmingur þeirra á launum hjá ríki og sveitarfélagi. „Ríkið stofnar Egilsstaði og opnar hér sjúkrahús, rafmagn- sveitu, menntaskóla, póst- og símaþjónustu o.fl.,“ segir Björn. Hann segir að frumbyggjar Egilsstaða hafi þurft að leggja hart að sér og að fyrstu fimm árin hafi 90% þeirra verið Hér- aðsbúar úr sveitinni. „Þetta voru til dæmis yngri börn bænda. Þau höfðu ekki að bú- skap að hverfa en þurftu ekki að yfirgefa Héraðið með búsetu í þorpinu." En getur liáskólamenntað fólk fengist hér við störf við hæfi? „Já, hér eru um fimmtíu stöð- ur fyrir háskólamenntað fólk og milli 600-700 ársverk, enda er bærinn dæmigerður þjónustu- staður og líkist Reykjavík að því leytinu til.“ Hann segir að bærinn hafi vaxið hraðar en margir aðrir EGILSSTAÐIR, líklega árið 1936. staðir og nú eru yfir 1.600 íbúar á Egilsstöðum. En hver er framtíð Egils- staða? „Ef ég ætti að nefna eitt mál sem ég held að miklu skipti fyr- ir Egilsstaði, er það hvernig til tekst með skólann eða alveg frá leikskóla til háskóla. Ég hef þá trú að skólarnir verði hið stóra mál næstu aldar. Ef Egilsstaðir ætla að endurspegla tímann hér eftir sem hingað til, dugar ekki að dingla bara með í skólamál- um helur þarf að taka frum- KVIKMYNPIR Iláskólabíó MORÐSAGA Leiksljóri og handritshöfundur: Reynir Oddsson. Aðstoðarleikstjóri: Hörður Torfason. Aðalleikendur: Steindór Hjörleifsson, Guðrún Ás- mundsdóttir, Þóra Sigurþórsdóttir, Elva Gísladóttir, Róbert Arnfínns- son, Sigrún Björnsdóttir, Guðrún Stephensen, Pétur Einarsson. Endursýning. Islensk. 1977. „I DAG eru liðin tuttugu ár,“ sungu The Beatles á einni frægustu plötu poppsögunnar. Undir það tók kvikmyndagerðarmaðurinn Reynir Oddsson og dustaði rykið af mynd sinni Morðsögu sem er athyglis- verðari fyrir stöðu sína í kvik- myndasögu landsmanna en efnistök og innihald. Menn eru ekki á eitt sáttir um hvort hún eigi að teljast fyrsta mynd „vorsins“ góða í þess- ari listgrein eða síðasta óháða myndin sem gerð var. Flestir flokka hana óháða enda markaðist vorið af þátttöku nýstofnaðs Kvikmynda- sjóðs, sem hefur stutt gerð flestra innlendra mynda síðan. í raun skiptir þetta engu máli og menn geta skipað Morðsögu hvorum meg- in vorkomunnar sem hugurinn býð- ur. Það stendur uppúr að þrátt fyr- ir að margt megi að myndinni finna þá verður hún jafnan til marks um það áræði sem kvikmyndagerðar- menn okkar hafa löngum verið þekktir fyrir. Fyrir utan það að vera skýrt mótað barn síns tíma, þess litríka ofanverða hippatíma þegar sakleysið var á hröðu undan- haldi en þó mun sýnilegra en í dag. Bærinn að breytast í borg. Það eru þessir svipir fortíðarinn- ar sem gera Morðsögu að áhuga- verðri sýningu með sínum útsniðnu buxum, þykku sólum (sem reyndar eru afturgengnir) og ekki síst kunn- uglegu andlitum úr skrautlegri mannlífsflóru þessara dæmalausu tíma. Efnið er einfalt. Steindór Hjör- leifsson leikur nýríkan heildsala sem hefur fyllt villuna sína af smá- borgaralegu, ósamstæðu og smekk- kvæði,“ segir hann. Egilsstaðabók - frá býli til bæjar er 496 blaðsíður. Hún skiptist í 20 kafla og fylgir mannanafnaskrá. Bókin er prýdd mörgum myndum, bæði úr fortíð og nútíð. Meðal efnis má nefna bifreiðina í sögu Egils staða, garðbæinn Egilsstaði, flugið, samkomuhald, landslag, menntamál, kirkju, félög og klúbba. Sögunefnd Egilsstaða hafði umsjón með bókinni í umboði bæjarsljórnar. lausu glingri sem í yfirborðslegum hofmóðshætti er snjall rammi utan- um enn mislukkaðra heimilislíf. Þar koma við sögu eiginkona hans (Guðrún Ásmundsdóttir), afskipt, ófullnægð og óhamingjusöm innan- um lýjateppin, rókokkórammana og þeirra tíma hátæknilegu blást- ursofna og uppþvottavélar. Þá er ótalin dóttirin (Þóra Sigurþórsdótt- ir), ung og fríð og vekur fíðring og óeðli í karli föður sínum. Yfir heimil- islífinu ríkir húsbóndinn og stjórnar því með harðri hendi, einkum í krafti auðs síns og áhrifa. Mælirinn fyllist eina sukksama partínótt og þær mæðgur leysa fíölskylduvanda- málið með búrhnífnum. Ekki frumleg saga en þótti nokk- uð djörf á áttunda áratugnum. Steindór Hjörleifsson leikur þennan samnefnara lasta og illmennsku af þeirri vandvirkni sem honum var svo lagin og Guðrún Ásmundsdóttir fer prýðilega með brotalömina í handritinu, marklitla kvenpersónu og ótrúverðuga. Fleiri góðkunnir atvinnuleikarar koma við sögu og gefa frásögninni dýpt, einkum staffírugur Róbert Árnfmnsson. Þóra Sigurþórsdóttir er greinilega nýliði en sleppur fyrir horn, af öðr- um áhugaleikurum er vert að geta krassandi innkomu Sigrúnar Bjömsdóttir sem glæðir afarlanga veislusenu þokkafullri spennu. Aðalgallar myndarinnar eru sem fyrr tæknilegir brestir (sem einnig voru böm síns tíma) sem stöfuðu fyrst og fremst af peningaleysi framleiðendanna og lítt þróaðri upptökutækni. Sögufléttan sjálf tekur óþarfa beygju undir lokin (eldhúsrolan viðurkennir framhjá- hald sem skaðar heildarsvipinn) og mörg atriðanna em alltof langdreg- in. Þó er ekki nema eitt þeirra virki- lega hallærislegt (einræður ruglu- kollsins). Að öllum líkindum yrði Morðsaga mun betri ef hún væri gerð í dag, með yfírlegu, meiri tækni og sjóðsfé, en þá mundi skorta það sem gefur henni líf; þann hráa sjarma og hin glettilega góðu svipleiftur frá rótlausum tíma þegar þjóðin var að taka heljarstökk inní gjörbreytt lífsmunstur. Sæbjörn Valdimarsson Morgunblaðið/Gunnar FRÁ sýningu leikhópsins í Grunnskólanum í Bolungarvík. Stoppleikhópur- inn frumsýnir í Bolungarvík Bolungarvík. Morgunblaðið. STOPPLEIKHÓPURINN fram- sýndi leikritið Á-kafí, eftir Val- geir Skagfjörð, í grunnskólanum í Bolungarvík á dögunum. Leikritið Á-kafi er fræðslu- og forvamarverkefni sem styrkt er af Krabbameinsfélaginu og Tóbaksvarnanefnd og er ætlunin að sýna leikritið í sem flestum grunnskólum landsins. Leikritið fíallar sérstaklega um reykingar unglinga og þá áþján sem tób- aksnautnin er. Leikritið er létt og grípandi og ætlað að höfða sérstaklega til unglinga á grunn- skólastigi. Höfundur verksins er jafnframt leikstjóri, en með hlut- verk fara þau Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir, tæknimað- ur er Guðmundur Pétursson. Að loknum sýningunum á leik- ritinu í grannskólunum fá kenn- arar viðkomandi bekkja um- ræðupunkta til að fylgja efninu eftir í hverri bekkjardeild, þannig er vonast til að umræða um skað- semi reykinga haldi eitthvað áfram eftir heimsókn leikhóps- ins. Leikritið var sýnt fyrir nem- endur í 7. til 10. bekk Grann- skóla Bolungarvíkur og einnig kom hópur nemenda frá Súðavík. Um kvöldið var síðan sýning fyr- ir foreldra og eftir þá sýningu voru almennar umræður um verkið og boðskap þess. Þar kom fram mikil ánægja með verkið og flutning þess. Einnig komu fram áhyggjur foreldra og for- ráðamanna yfír þeirri staðreynd að reykingar virðast vera að færast í vöxt og aldur þeirra sem byija að reykja fara lækkandi, t.d. kom fram að nú ber á reyk- ingum í 8. bekk Grannskóla Bol- ungarvíkur í fyrsta sinn í mörg ár. Það var að tilstuðlan foreldra- félags Grannskóla Bolungarvík- ur að Stoppleikhópurinn ákvað að framsýna leikritið hér á Vest- fíörðum, og munu næstu sýning- ar hópsins verða á ísafirði. Stoppleikhópurinn er atvinnu- leikhópur sem stofnaður var í nóvember 1995 og er markmið hans að flytja leiksýningar sem tengjast hvers konar fræðslu- og forvamarstarfi. Leikritið Á-kafi eftir Valgeir Skagfíörð er þriðja verkefni leik- hópsins en áður hefur hópurinn sýnt fíkniefnaleikritið Skiptistöð- in og umferðarleikritið Stopp í grunnskólum landsins. SVIPIR FORTÍÐAR Kristján Þórður Hrafnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.