Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 27

Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 27 LISTIR Sígaunablóð TÓNLIST Ilafnarborg PÍANÓTÓNLEIKAR Píanódúó eftir Brahms, Debussy, Milhaud og Vaughan Williams. Stein- unn Bima Ragnarsdóttir, píanó; Þor- steinn Gauti Sigurðsson, píanó. Hafn- arborg, Hafnarfírði, sunnudaginn 21. september kl. 20. STEINUNN Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðsson léku síðast saman píanódúó á rómuðum tónleikum í Islenzku óperunni í apríl í fyrravor, og hafði tóngreinin þá ekki verið reifuð hér á landi í nær- fellt tvo áratugi frá því er Halldór Haraldsson og Gísli Magnússon störfuðu saman. Nú hafa þau Stein- unn tekið upp þráðinn að nýju og stefna að eigin sögn að því að gera hann að árvissum viðburði. Á tónleikunum í Hafnarborg var beitt hefðbundinni uppstillingu, þar sem s-bugður hljóðfæranna falla hvor að annarri eins og jin/jang- táknið í þjóðfána Suðurkóreu. Vinstri flygillinn var með lok alopið, sá til hægri var lokaður. í fljótu bragði hefði það getað verið ávísun á mikinn ósamjöfnuð milli hljóðfær- anna í hljómblæ og styrk, en hinn hljómandi munur reyndist þrátt fyr það ótrúlega lítill, og hlýtur lokaða hljóðfærið því að hafa verið mun ómhvassara en hitt. Að öðru leyti virtist sem meirihluti „secondo“-part- anna, þ.e. á neðra tónsviði, hafi lent á lokaða hljóðfærinu, en þar sat fyr- ir hlé Þorsteinn, eftir hlé Steinunn. Aðsókn var mjög góð og veruleg stemning í hinum ágæta myndlistar- og kammertónleikasal Hafnfirðinga. Líkt og fyrir ári hlaut eitt verk hér frumflutning á íslandi, Les Songes- svíta Dariusar Milhauds, en því mið- ur stóð ekki aukatekið orð um það verk í tónieikaskrá frekar en um önnur, þó að fínna mætti allítarlegt ferilságrip um flytjendur, og var það því bagalegra sem lítt er almennt vitað um „orsök og afieiðingu," þeg- ar píanódúó eru annars vegar, þ.e. hvort þau séu frumsamin sem slík eða útsetningar úr öðrum verkum - og fyrir eitt fjórhent eða tvö tvíhent píanó. T.a.m. var undirrituðum ekki ljóst, hvenær upphafsatriði tónleik- anna, hinir kunnu en fremur stuttu Brahms-valsar „nr. 1, 2, 3, 4 og 15“ (fleira var ekki gefið upp, en átt er við Op. 39) birtust í fjórhendri út- gáfu. Hitt er svo annað mál, að fyr- ir daga grammófóns og útvarps fengust tónskáldin til að píanófæra ólíklegustu hluti að beiðni útgef- enda; t.a.m. mun nýlega endurfund- in 3 sinfónía Brahms í útsetningu höfundar fyrir 2 píanó. Annars voru valsarnir fínlega leiknir og gælt við rúbató og styrkbreytingar, jafnvel ívið betur en fyrir ári. „Tunglskinið" (Clair de lune) úr Bergamasque-svítu Debussys frá 1890 var mjúkt og hæfilega dreym- andi, og þó að „En bateau" úr Petit Suite (frumsamin f. fjórhent píanó 1888) hafi verið svolítið silalegur, var Cortége líflegri, en hefði þó þol- að enn meiri snerpu. Menúettinn var mjög fallegur, þó að mótun væri í lágmarki, og Ballettinn varð fruss- andi tour de force, sem gerði mikla lukku, þrátt fyrir stundum grautar- kennda pedalbeitingu. Þættirnir þrír úr Les Songes eftir Milhaud voru og fjörleg tónlist; mér ókunnug, en líklega hugsuð fyrir ballett eins og svo margt sem hinn fjölhæfi og afkastamikli franski tón- höfundur skrifaði, ekki sízt á „sirk- us“-tímabilinu á 3. áratug, þegar var í tízku að vera svolítið skrípó (og átti þó eftir að blikna hjá því sem síðar varð!) Scherzóið vakti spurn- ingu um hvort ekki þurfi að ýkja (= stytta) staccato-nótur meir í góðum sal en í þurrum. Hinn hægfara en hugljúfi Vals var frábærlega vel mótaður, og hinn knæpukenndi Polki freyddi af bjór og lífsgleði í skínandi samleik. Píanóútfærsla Greensleeves Fantasiunnar eftir Vaughan Will- iams er svipur hjá heyrn miðað við hljómsveitarútgáfuna, en rann ljúf- lega niður, þótt ekki væri hún alls staðar nógu samtaka leikin. Eftir hlé var komið að Ungversk- um dönsum nr. 1-10, sem á seinni áratugum hafa sem betur fer náð að jafna sig eftir linnulausa útvarps- spilun fyrri ára, er ætlaði að ganga af þeim dauðum. Líkt og Slavnesku dansar Dvoráks hófu þeir lífdaga sem fjórhend píanóstykki handa litlu heimilunum, en vinsældir þeirra knúðu óðara á um orkestrun fyrir tónleikasalina. Viðfangsefnið er ákaflega þakklátt, ekki aðeins tveim einstaklingum til skemmtunar, held- ur einnig áheyrendum, eins og oft vill verða um velheppnaða skemmti- tónlist, enda lifnaði hér heldur betur yfir flytjendum. Of langt mál væri að rekja einstök númer, en, svo stiklað sé á stóru, naut skaphiti sígaunatónlistarinnar úr kaffihúsum Búdapestar sín sérlega vel í nr. 2 og 3, þó að nr. 4 (rakst- urssenan óborganlega í Einræðis- herra Chaplins) væri fremur ósam- taka. Nr. 5 naut góðs af eitilsnörpu sforzandó-höggum Steinunnar, er hlýtur að hafa verið ungverskur sí- gauni í fyrra lífi. Loka-accelerandóið í nr. 6 var bezt heppnaða accelerandó kvöldsins, og þó að síðasti þriðjungur syrpunnar léti ókunnugra í eyrum flestra en fyrstu 6 númerin, voru hlustendur auðheyrilega hæstánægð- ir og voru leystir út með aukalögum. Ríkarður Ö. Pálsson GUNNAR Guðbjörnsson tenór- söngvari mun syngja hlutverk Taminos í Töfraflautunni í upp- færslu Ríkisóperunnar í Berlín í stórum almenningsgarði þar í borg í ágúst á næsta ári. Var hann ráð- inn til starfans að frumkvæði Dani- els Barenboims, listræns stjórn- anda óperunnar og eins virtasta hljómsveitarstjóra heims. Gunnar þreytti frumraun sína í Ríkisóperunni í Töfraflautunni undir lok síðasta mánaðar - á upphafssýningu leikársins. Hann mun ekki syngja hlutverk Taminos aftur í Berlín í vetur en fer sem staðgengill aðalsöngvarans í upp- færslunni, Peters Schreiers, í ferð til Japans í nóvember. „Sýningin í Berlín gekk vel og ég var ákaf- lega ánægður með viðtökurnar," segir Gunnar. Hann segir það einstaklega ánægjulegt að hafa í kjölfarið TÓNLIST Hallgrímskirkja ADVENTSANGERNE Stjórnandi Sverre Valen, orgelleik- ari Tormod Ovrum. Einsöngvari Sidsel E. Olsen, Lisbeth Smedstad og Sigrun Eckhoff. Simnudagur 21. september. ÞEIR láta ekki deigan síga, að- ventistar, í sínu trúboði. Fyrir aðeins fáum vikum heimsótti Island heil sinfóníuhljómsveit skipuð aðventist- um, lærðum og leikum, áhuga- og atvinnumönnum í tónlistinni. Kom sú hljómsveit frá Ameríku. Nú er það kór norskra aðventista, skipað- ur áhugasöngfólki svo og atvinnu- söngfólki og taldi hópurinn kringum 100 manns. Kórinn var með þessum tónleikum, ef ég hef skilið rétt, að byija tónleikaferð sína til Bandaríkj- anna, en þar bíða hans fjöldi tón- leika. Efnisskráin var eingöngu trú- arlegs eðlis og voru atriðin 50 tals- ins á efnisskránni. Aðgangur á tón- leikana var frír og viðamikil efnis- skrá í kaupbæti. Vitanlega var aðeins fluttur lít- ill hluti þessara fimmtíu atriða og þar byijuðu vandræðin fyrir undir- ritaðan a.m.k., sem sat ásamt fleirum, á stól aftast í kirkjunni og greindi því mjög illa þegar kynnirinn kynnti hvaða verkefni fengið tilboð um að syngja í almennings- garðinum - í því felist mikil hvatning. „Þetta er stórt skref fyrir mig í tvennum skiln- ingi, annars vegar að fá tækifæri til að starfa með manni á borð við Barenboim, sem er stjórnandi í fremstu röð í heimin- um, og hins vegar að hann skuli sækjast eftir því að fá mig til liðs við sig svo fljótt aftur.“ Gunnar hefur verið fastráðinn við óperu- hús í Frakklandi undanfarin sex ár en er frá og með þessu hausti farinn að reyna fyrir sér í lausa- mennskunni. „Byijunin var óneit- anlega erfið og um tíma leit út yrðu valin til flutnings úr efnis- skránni, en þetta gerði hann án þess að nota hátalarakerfi kirkj- unnar. Slíkt er vonlaust ef heyra eiga fleiri en þeir einir, sem sitja á fremstu bekkjunum. Kórinn byrj- aði með „Þitt lof Drottinn" eftir L.v. Beethoven. Meðferð kórsins á þessum lofsöng Beethovens var nokkuð óvenjulegur hvað styrk- breytingar varðar, en kórinn sýndi strax að heilmikinn hljóm á hann til. Næst kom svo Ave verum corp- us, eftir W.A. Mozart, mjög fallega sungið og sýndi kórinn þar að hann gat einnig haldið uppi veikum söng, sem segir vitanlega miklu meira um ágæti eins kórs heldur en sterkur söngur. Hér saknaði ég þó hljómmeiri bassa eða kannski öllu frekar skýrari eða beittari raddbeitingu og þessa átti ég eftir að sakna tónleikanna út. Ef stjórnandi kórsins tækist að þétta bassann trúi ég að hann fengi ennþá betri kór í hendurnar. Sidsel E. Olsen söng einsöng í „Hear My Prayer", eftir F. Mend- elsohn, þar var auðheyranlega um atvinnusöngvara að ræða sem skil- aði sínu hlutverki fallega, með jafnri raddbeitingu og af öryggi. Serre Valen, söngstjóri kórsins, hefur reynsluna á bak við sig og margar viðurkenningar sem kór- stjóri og hefur ágætum kór á að skipa, en gaman hefði verið að fyrir að ég fengi lítið að gera í vetur. Á skömmum tíma hlóð- ust verkefnin hins vegar upp og sam- starfið við Barenboim var eiginlega rúsínan í pylsuendanum - ég hefði ekki getað hugs- að mér betri vítam- ínsprautu fyrir vetur- inn.“ Sviðið í almenn- ingsgarðinum, sem verður vettvangur sýningarinnar að ári, kallast Waldbúhne, en óperur eru við og við færðar þar upp. Telur Gunnar að fyrirmyndin sé fengin frá New York en sem kunn- ugt er setur Metropolitanóperan annað veifið óperur á svið í Centr- al Park. heyra kórinn í húsi sem gleypir ekki kórhljóminn, eins og Hall- grímskirkja gerir, a.m.k. frá þeim stað sem kórinn staðsettir sig. Tormod Övrum, orgelleikari með kórnum, hafð nóg að gera, ýmist á Frobeniusar-orgelið niðri eða Klais-orgelið uppi. Tvö ein- leiksverk lék Óvrum á Klais-orgel- ið, hið fyrra Tokkötu eftir Frakk- ann Theodore Dubois sem uppi var á síðari hluta nítjándu aldar og nokkuð fram á þá tuttugustu. Tokkatan þessi sór sig í franskan orgelstíl þessa tímabils, þó í nokk- uð óvenjulegu formi, milliþætti, í algjörri andstæðu við tokkötu- formið, en Övrum lék verkið með „bravur“. Síðara verkið var Fant- asia Trionfale eftir Knut Nystedt. Þetta glæsilega orgelverk þarf að markerast mjög nákvæmlega í ryþma, sérstaklega í upphafi og í lokin, og má gjarnan gera meira úr þessum atriðum í kirkjuhljómi sem Hallgrímskirja hefur. Á sama hátt fannst mér kaflinn eftir inn- ganginn of hægur, en kannski er þetta bara smekksatriði undirrit- aðs sem sjálfur hefur spilað verkið á mörgum tónleikum. Hafi hópur- inn allur þökk fyrir komuna og ánægjulega tónleika. Megi hann halda áfram að ferðast um heiminn og boða erindi sem ná ætti til okkar hvers og eins. Ragnar Björnsson Barenboim býður Gunnari áframhaldandi samstarf Gunnar Guðbjörnsson Skammt stórra högga milli ILEIT AÐ LIST TONLIST Listasafn íslands KAMMERTÓNLEIKAR Félagsskapurinn Ung Nordisk Musik hóf tónleikahátíð sína með verkum eftir Jonas Klingborg, Jón Guð- mundsson og Johan Tallgren. Flytj- andi var Caput-hópurinn undir stjóm Guðmundar Óla Gunnarssonar. Sunnudagurinn 21. september 1997 ROMAN Rolland ritaði í dagbók sína er Debussy lést: „Hann var sá eini sem gæddi tónlist okkar tíma fegurð." Það má með sanni segja að leit sú er hófst við upphaf nútíma- tónlistar standi enn og sú umbylting á eldri formum og vinnuaðferðum, er sérstaklega náði hámarki eftir lok seinni heimsstyrjaldarainnar, sé núna fyrst komin á stig endurmats- ins. Eins og ávallt, er „Akademian" þung í taumi og kennir enn það sem spratt af sæði byltingarinnar, nærri því eins og um trúarbrögð sé að ræða, enda er skammt í millum trú- ar og fagurfræðilegrar afstöðu. Þó er enn ólokið um eina tilraunina og það er sú hljóðsköpun er tengist tölvutækninni, sem enn stendur meira eða að minna leyti á stigi leitarinnar. Ekki verður sagt að leit- inni að listinni ljúki nokkurn tíma, þótt numið sé staðar við einstaka nöfn listamanna er slógu hörpu sína af meiri snilld en almennt gerðist því hvergi er reglan að „margir séu kallaðir en fáir útvaldir11 eins skörp og á sviði listsköpunar. Leitin kemur meðal annars fram í áhuga manna á ungum listamönnum því þar er ef til vill von sem þeim eldri hefur mistekist að uppfylla lil svölunar listþyrstum lýðnum. Það sem oft hefur einkennt tón- verk ungra tónskálda er þörf þeirra fyrir tæknilegar útskýringar á hegð- un sinni. En á tónleikunum sl. sunnudag bregður svo við að tækni- útskýringarnar eru horfnar en í staðinn fyrir þær er kominn allt að því „súrrealískur" sagnagrunnur af ætt þeirri sem um og fyrir aldamót- in nefndist hermitónlist og er hjá hinum ungu listamönnum jafnvel svolítið „freudiskur". Fyrsta verkið er samið undir áhrifum af myndasögunni „Klas Katt og Olle Angest, eftir Gunnar Lindkvist, í bland við leitina að hamingjunni, sem hægt er að upp- lifa „í sjónvarpi og útvarpi" er að lokum mun þó „afskræma okkur“ eins og höfundurinn tilgreinir í efn- isskrá. Vandinn við slíka pró- grammeringu er að tónlist býr ekki yfir sams konar merkingakerfi og orð og á endanum verður hlustand- inn að styðja sig eingöngu við tón- listina sjálfa og meta sér til yndis, það sem fléttast saman af tónlínum, blæbrigðum og hryn, er blanda má saman á órtúlega fjölbreytilegan máta. Sagan um köttinn Kláus skiptir því ekki máli en tónlistin sjálf er á margan hátt vel unnin, var skemmtileg áheyrnar, svolítið gamaldags, þar sem unnið var með endurtekningar stefja, oft í hljóð- fallsbundinni skipan og svo brugðið upp gömlum „kaotískum" vinnuað- ferðum. Notkun klarínettsins var það eina sem tengja mætti við kött- inn Kláus en annað í verkinu, var aðeins hrein og áheyrileg tónlist. Eftir Jón Guðmundsson, er stund- ar tónsmíðanám í Norgei, var flutt verk sem er í raun byggt á „freu- diskri" afstöðu til Antons Weberns, og heitir Webernrebew en seinni hluti orðsins er stafréttur umsnún- ingur á fyrri hluta þess. Þarna má merkja einhveija feimni við að „vera sjálfur", þar sem leikaraskapur er notaður til fela sig, búa sér til afsök- un, sem er í raun óþörf því verkið í heild býr yfir mörgu skemmtilegu og er vel samið. Það er nokkuð langt, 7 þættir, sem margir hvetjir minna á vinnuaðferðir sem Webern er þekktur fyrir en þó án þess að um stælingu sé að ræða. Verkið er í heild nokkuð hefðbundið þar sem heyra má rematík, háttbundið hljóð- fall, áherslusterkt „attacca", eftir- líkingar af „pointalisma" Weberns og margt það sem ungur tónsmiður verður að læra og kunna að leggja hljóðfærum „í munn“, svo að hér má heyra að vel hefur verið unnið og að Jón Guðmundsson er efnileg- ur tónsmiður. Lokaverkið á tónleikunum er hermiverk sem tengist súrrealis- tískri kvikmynd og er eftir Johan Tallgren. Verkið ber nafnið Coden- ame Opheus og eins og tónskáldið ritar í efnisskrá hefur hann ekki séð þessa kvikmynd, en leggur hlust- endum til þá frásögn að í myndinni sé höfuð Orfeusar látið fljóta niður Thames. I heild er verkið þykkt unnið, allt að því með „kaótískum" hætti, vinnuaðferð sem leyfír næstum allt og mátti oft heyra í þykkum tón- vefnum bergmál þekktra stefja sem komu hvað best fram í fiðlurödd- inni. Það var ekkert nýtt í þessu verki, frekar en hinum verkunum en auðheyrt að hér er um unga og lædómsþyrsta menn að ræða sem ef til eiga eftir að finna list sinni farveg til glæstrar framtíðar. Caput-hópurinn flutti verkin und- ir stjóm Guðmundar Óla Gunnars- sonar og var allur flutningurinn hið besta mótaður og framfærður af listfengi. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.