Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 42
%2 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUG LV S I N G A
Húsgagnasmíði
^)ska eftir að komast á samning í húsgagna-
smíði.
Upplýsingar í síma 562 6196.
Fiæðslumiðstöð
w Reykjavíkur
* Leitað er eftir
starfsmönnum
í eftirtaldar stöður:
Umsóknarfrestur um starf skólaritara (70%)
í Árbæjarskóla, framlengisttil 26. september
nk. Upplýsingargefurskólastjóri, Þorsteinn
Sæberg Sigurðsson, í síma 567 2555.
Garðabær
Forstöðumaður
félags- og
heilbrigðissviðs
(félagsmálastjóri)
Laus ertil umsóknar staða forstöðumanns fé-
lags- og heilbrigðissviðs á bæjarskrifstofum
^Garðabæjar.
Félags- og heilbrigðissvið er eitt fjögurra
stjórnsýslusviða Garðabæjar, en undir það
heyra málefni, sem Garðabæ er ætlað að sinna
á sviði félagsþjónustu og heilbrigðismála í
samræmi við samþykktir bæjarstjórnar Garða-
bæjar og ákvæði laga og reglugerða. Þar má
m.a. nefna fjölskylduráðgjöf, barnavernd, fjár-
hagsaðstoð, heilbrigðiseftirlit, húsnæðismál,
aðstoð við heimili, öldrunarþjónustu og barna-
gæslu.
Forstöðumaðurfélags- og heilbrigðissviðs er
yfirmaður sviðsins. Hann annast almennt
starfsmannahald þess, hefur umsjón með dag-
j-iegum rekstri og ber ábyrgð á því, að skuld-
bindingar og rekstur sviðsins séu innan ramma
fjárhagsáætlunar hverju sinni. Honum er ætlað
að sjá til þess, að mál sem sviðinu berast fái
faglega meðferð og að þau verði afgreidd sam-
kvæmt gildandi lögum og reglugerðum svo
og samþykktum bæjarstjórnar.
í rekstri Garðabæjar er lögð rík áhersla á góða
þjónustu, sem leyst er af hendi á lipran, skil-
virkan og hagkvæman hátt. í starfi forstöðu-
manns félags- og heilbrigðissviðs er leitað eftir
starfsmanni með víðtæka starfsreynslu og há-
skólamenntun á sviði félagsvísinda. Viðkom-
andi þarf að sýna frumkvæði í starfi og gott
viðmót í mannlegum samskiptum.
Umsóknir um starfið ber að senda bæjarstjór-
anum í Garðabæ, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ,
fyrir 6. október næstkomandi, og veitir hann
frekari upplýsingar um verksvið og ráðning-
arkjör.
Garðabæ, 19. september 1997.
Bæjarstjórinn í Garðabæ.
Vaktstj óri
í kassadeild
Óskum eftír að ráða vaktstjóra í kassadeild í
Hagkaup í Kjörgarði fyrir
kassalínu og tölvuumsjón. Starfið felur í sér
eftírlit og umsjón með
afgreiðslukössum, uppgjöri og ýmis konar
tölvuumsjón.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem iýrst.
Frekari upplýsingar veitir verslunarstjóri á
staðnum milli kl. 9:00-14:00
miðvikudag 24. sept. og fimmtudag 25. sept. nk.
HAGKAUP HF var stofnað áríð 1959 í gamalli híöðu við
Miklatorg. HAGKAUP hefurfrá upphafi veríð braut-ryðjandi
í verslunarháttum á íslandi og um árabil haftforystu
um fjölmargar nýjungar til hagsbóta fyrír neytendur. í
dag rekurfélagið 10 matvöru- og sérvöruverslanir í
Reykjavík, Njarðvík, Garðabæ og á Akureyrí. Starfsmenn
fétagsins eru um 1200 og hefur HAGKAUP leitast við að
ráða hæfa starfsmenn og gefa
þeim kost á að þroskast og
dafna í starfi. Hebta markmið
HAGKAUPS er að bjóða
neytendum góða þjónustu og
góðar vörur á góðu verði.
HAGKAUP
Nifppogferskt
Læknaritari
Læknaritari óskast til starfa við Heilsugæslu-
stöð Kópavogs. Um er að ræða hálft starf og
vinnutími eftir hádegi. Sjúkraskráning við
stöðina ertölvuunnin á Medicus forritið.
Læknaritararstarfa undirfaglegri umsjón yfir-
læknis, en allar nánari upplýsingar veitir
Margrét B. Richter, læknafulltrúi, í síma
554 0400 virka daga eftir hádegi.
Æskilegt er að umsækjandi hafi löggildingu
sem læknaritari og nokkra reynslu af tölvu-
vinnslu. Launakjörfara eftirsamningum ríkis-
starfsmanna. Starfið er laust nú þegar og æski-
legt að starfsmaður geti hafið störf fljótlega.
Umsóknarfrestur ertil 5. október 1997.
Umsóknir með almennum upplýsingum um
nám og fyrri störf óskast send framkvæmda-
stjóra, Birnu Bjarnadóttur, Heilsugæslustöð
Kópavogs, Fannaborg 7—9, 200 Kópavogi.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
Eldri umsóknir eða fyrirspurnir um laus störf
læknaritara óskast staðfestar.
Framkvæmdastjóri
Heilsugæslustöðvar Kópavogs.
akron
Plastsmíði
Okkur vantar röskan og laghentan mann til
starfa á plastsmíðaverkstæði okkar fljótlega.
Iðnmenntun og/eða starfsreynsla við smíðar
æskileg.
Skriflegar umsóknir, með ítarlegum upplýsing-
um um viðkomandi, sendist til:
Akron ehf.,
Síðumúla 31,108 Reykjavík.
Sími 553 3706.
Sjúkraliðar
Óskum að ráða sjúkraliða sem fyrst, að Hjúkr-
unar- og dvalarheimilinu Kumbaravogi. Lítil
íbúð á staðnum á vægum kjörum.
Frekari upplýsingar í símum 483 1213 og
483 1310.
Menntamálaráðuneytið
Deildarstjóri í skjala-
safn menntamála-
ráðuneytisins
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til um-
sóknar stöðu deildarstjóra í skjalasafn ráðu-
neytisins. Æskilegt er að viðkomandi hafi
menntun í bókasafns- og upplýsingafræði auk
góðrartungumála- og tölvukunnáttu.
Laun greiðast samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skrifstofu-
stjóri almenns sviðs.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í nóvem-
ber.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendisttil menntamálaráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 10. októ-
ber.
Menntamálaráðuneytið,
19. september 1997.
Járniðnaðarmenn
— laghentir menn
Strókur ehf. óskar eftir að ráða menn til starfa
við gámaviðgerðir í Sundahöfn.
Mjög góð vinnuaðstaða og góð laun í boði.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um nafn,
aldur, símanúmerog fyrri störftil afgreiðslu
Mbl., merkt: „J — 161".
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinna í blómabúð
Vantarvana manneskju nú þegar. Umsóknir
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins merkt
„2271" fyrir 29. september.
AOAUGLVSINGAR
KENNSLA
Enskunám í Englandi
Þægilegur og vinsæll skóli í Bournemouth
býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar veitir Páll G. Björnsson,
^ími 487 5889.
TIL SOLU
Auglýsingaskilti
— Ijósaskilti
við stóra verslunar- og þjónustumiðstöð til
sölu eða leigu.
Upplýsingar í síma 897-6963.
Kvikmyndagerðarmenn
- Til sölu
S/P Betacam tökuvél með recorder (sambyggð)
og góðri iinsu Fujion 14x8,5 A. Berm.-28.
Extender og Power supply. Lítið notuð vél.
Upplýsingar í Hljóðrita í síma 568 0733.