Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ferdinand
Daysturned into weeks.. weeks into months. We never heard anythinq more f rom Andy and Olaf. I imaqine they’re still out there ; somewhere.walkinq § andwalking.tryinq f tofindtheirbrother % Spikeinthedesert. 1
t' '1
Dagarnir urðu að Við heyrðum aldr- Ég imynda mér að þeir
vikum, vikurnar
að mánuðum.
ei framar frá Kát
og Lubba.
séu þarna einhvers stað-
ar, gangandi og gangandi
að reyna að finna bróður
sinn Sám í eyðimörkinni.
Það stendur: „Ýtið
á hnappinn til að
fara yfir götuna“.
Þetta er lík-
legast ein-
hvers konar
gabb...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Frá vörn til signrs
á landeyðingu
Frá Reyni Eyjólfssyni:
SKAMMT austan vegarins inn að
Hagavatni á Biskupstungnaafrétti í
Sandvatnshlíðum er falleg gróður-
torfa í annars örfoka landi. Hún er
aflöng frá suðvestri til norðausturs,
um 700 m iöng, 60-70 m á breidd
og 2-3 m á þykkt. Gróðurfarið er
dæmigerð íslensk lyngheiði með
fjaildrapa, víði, blábeijalyngi, kræki-
beijalyngi og eini. Þetta er réttnefnd
vin í eyðimörk, sem nær yfir geysi-
stórt svæði frá Bláfelli og langt suð-
vestur fyrir Sandá. Þó eru þarna
nokkur önnur lítil gróðursvæði, svo
sem Rótarmannagil og Sultarkriki.
Á báðum þessum stöðum og víðar
hafa farið fram landgræðsiutilraunir
með dálitlum árangri þó hægt gangi.
Hversu mikil eyðimörk þetta er sést
vel sé staðið á tindi Bláfells og
skyggnst suðvestur eftir.
Allt þetta svæði var algróið og
skógi vaxið fyrr á öldum eins og
sagnir herma og leifar kolagrafa,
sem fundist hafa þarna vitna um
það sama. Áðurnefnd gróðurtorfa
er í aðeins liðiega 300 m hæð, en
fullvíst má telja að gróður hafí áður
náð upp í 500-600 m, þ.e. langieið-
ina upp að Jarlhettum og upp á Blá-
fellsháls. Á svæðinu frá Sandá inn
að Bláfelli hafa þarna því tapast
60-100 ferkílómetrar af dásamlega
fallegu landi eins og gróðurtorfan
ber með sér. Verði ekkert að gert
mun hún einnig fjúka burt innan
tíðar. Það er nöturleg tilhugsun.
Sú mynd sem hér hefur verið
dregin upp er því miður glöggt dæmi
um þá gífurlegu gróðureyðingu, sem
hefur átt sér stað um allt land. Þó
lítið sé um það talað er stærsta eyði-
mörk Evrópu á íslandi, en um 80%
af flatarmáli landsins munu falla
undir þá skilgreiningu og um helm-
ingur þess gróðurlendis, sem var hér
í upphafi landnáms hefur fokið burt.
Flatarmál þessa horfna gróðursvæð-
is er talið vera um 20 þúsund ferkíló-
metrar, sem er u.þ.b. fimmtungur
af flatarmáli landsins. Hafi jarðvegs-
þykktin verið einn metri að meðal-
tali, sem ég tel vera varfærið mat
svarar þetta til um 20 milljarða rúm-
metra. Til að setja þessa stóru tölu
í lýsandi samhengi svarar þetta til
þess að meira en 500 fjöll á stærð
við Keili á Reykjanesskaga hafi fok-
ið út í veður og vind.
Veruleg starfsemi hefur verið og
er í gangi til að sporna við þessari
óheillaþróun, en eigi að síður er eng-
inn vafi á því að ástandið er alvar-
legt. Þetta kemur t.d. vel fram í
nýlegri skýrslu „Jarðvegsrof á ís-
landi“, sem gefin var út af Land-
græðslu ríkisins og Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins í febrúar 1997.
Almenn umræða um efni hennar
hefur samt verið lítil þó undarlegt
megi þykja.
Ekki verður hér fjölyrt um þær
aðferðir sem notaðar hafa verið í
baráttunni við uppblásturinn og það-
an af síður gert lítið úr árangrinum.
Á hinn bóginn má til sanns vegar
færa að þessar aðferðir séu almennt
of seinvirkar og of dýrar ti! þess að
þær dugi nema til að halda í horf-
inu. Vandamálið magnast líka af
þeirri staðreynd, að koldíoxíðmeng-
un vegna eldsneytisbruna og iðnaðar
bætist við það sem fyrir er. Fyrir
hvert nýtt álver þyrfti nauðsynlega
að rækta plöntur, sem eyða koldíox-
íðinu og búa til súrefni um leið.
Landgræðsla og koldíoxíðbinding
eiga semsé fullkomlega samleið.
Svo vel vill til að ekki þarf að
velta vöngum yfir því hvað skuli
rækta vegna þess að til er planta,
sem kostar lítið í ræktun því hún
þarf engan áburð, engin illgresis-
eða sníklalyf, er harðger, myndar
hratt jarðveg, hættir að þrífast þeg-
ar jarðvegurinn er orðinn fijór þann-
ig að aðrar plöntur geta tekið við
og er stór og falleg. Það er meira
að segja hægt að nota hana í ýmsan
vistvænan iðnað, svo sem fram-
leiðslu á plágueyðum, fóðurmjöli og
eldsneyti. Það er bókstaflega engin
önnur planta til, sem kemst með
tærnar þar sem hún hefur hælana
í þessum efnum. Þessi töfrajurt er
að sjálfsögðu iúpínan.
Ef lúpínunni væri beitt svo um
munaði við landgræðslu á íslandi er
lítill vafi á því að hægt væri að taka
risaskref fram á við í baráttunni við
landeyðinguna og endurheimt hinna
horfnu gróðursvæða. Hraðvirkni
yrði meiri og kostnaður minni en við
aðrar aðferðir, svo sem grasrækt,
áburðardreifingu eða skógrækt. Ef
fyrrgreind áform um efnaiðnað
byggðan á lúpínu verða að veruleika
er vel hugsanlegt að hún geti borgað
með sér og jafnvel vel það. Lúpínan
gæti því orðið sannur bjargvættur
gróðurlendis á íslandi eins og hún
hefur alla burði til.
REYNIR EYJÓLFSSON,
Eyrarholti 6, Hafnarfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Góðir skór á stráka
og stelpur
stærðir 22-36 svartir
3.990
smáskór
(bláu húsl vlð fákafen' sími 568 3919