Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 21. október 1997
Blað C
Einfalt
að kaupa
SUMUM hefur virst flókið að
kaupa fasteign með tilheyrandi
pappírsfrágangi og öðru sem
þarf að huga að, m.a. varðandi
húsbréf. Grétar J. Guðmunds-
son skýrir þessi mál rækilega
og segir einfalt að kaupa. /2 ►
Haustið í
garðinum
PLÖNTUN trjáa að hausti,
haustklipping og vetrarskýling
trjágróðurs er meðal þess sem
Hafsteinn Hafliðason gerir að
umtalsefni í þætti sínum. Hann
segir að haustplöntun gefi góða
raun því þá ræti trén sig hrað-
ast. /14 ►
Ú T T E K T
Viðhaldið
er vanda-
verk
VANDAVERK er að
halda við gömlum hús-
um og friðuðum og
segir Magnús Skúlason, arki-
tekt og framkvæmdastjóri
húsafriðunarnefndar ríkisins,
að ekki sé sama hvemig það
sé gert. Frumskilyrði segir
hann að vinna verkið í eins
mikilli nánd við upphaflega
gerð hússins og unnt sé.
Meðal þess sem hann ráð-
leggur er að ekki megi dæma
allt ónýtt, ekki síst þegar lag-
færa á klæðningar. „Við leggj-
um áherslu á að henda engu
sem er heilt, menn hafa farið
offari í því að dæma allt ónýtt
þótt það sé það ekki. Það gef-
ur húsunum aukið gildi að
gera frekar við en fleygja.“
Hann greinir frá ýmsum
atriðum sem vert er að hafa í
huga, m.a. varðandi glugga
sem oft séu eyðilagðir, og
vert sé að hafa í huga mikil-
vægi nagla og kíttis. Þá segir
hann gott að handslípa gömul
gólf, það hæfi ekki í gömlum
húsum að nota stórvirkar
slípivélar.
Varðandi liti segir hann
eðlilegast að leita hins upp-
runalega lits en þyki mönn-
um hann ekki fallegastur
megi kannski fínna samt lit
frá svipuðum tíma. í Iokin má
minna á ritröð húsafriðunar-
nefndar en þegar er komið út
rit um tréglugga og á næst-
unni er væntanlegt rit um
klæðningu veggja og
þaka./16 ►
ílögn með flotmúr í
stað sands og sements
HERMANN Ragnarsson múrara-
meistari, sem rekur byggingafé-
lagið Við-Reisn ehf., hefur fjárfest
í tækjabúnaði sem gerir honum
kleift að bjóða húsbyggjendum
nýja aðferð við lögn í gólf. Notar
hann Imúr flotefni og getur lagt í
mun stærri fleti en með hefð-
bundnum aðferðum og með meiri
afköstum.
Ekkert ryk
Imúr flotefnið er íslensk fram-
leiðsla, framleitt hjá Imúr í
Reykjavík, og er það fáanlegt í
lausu og felst nýjungin í þeirri að-
ferð sem fyrirtækið notar en ímúr
gólfefnið hefur verið fáanlegt hér
um skeið. Hermann Ragnarsson er
framkvæmdastjóri byggingafé-
lagsins Við-Reisnar ehf., en með-
eigendur hans eru þeir Högni
Hannesson og Omar H. Sunal, sem
báðir eru flísalagningamenn en
fyrirtækið sinnir jafnframt flísa-
lögnum.
Hermann Ragnarsson lýsir
helstu kostum ímúr flotefnisins á
þennan hátt:
„Einn kosturinn er að þegar
unnið er með þetta fljótandi efni
verður ekkert ryk á bygginga-
staðnum og menn eru líka lausir
við pokana og annað umbúðai-usl
sem alltaf er að þvælast fyrir og
minna má á að það kostar peninga
að losa sig við ruslið og er aðferðin
því umhverfisvænni líka,“ segir
Hermann. „Rýrnun er nánast eng-
in og því fer ekkert efni til spillis
og ég staðhæfi að ímúr sé ódýrari
lausn en hefðbundin ílögn, sem
eru sandur og sement. Ilögnin
með ímúr er mun þynnri eða allt
frá 0,5 cm uppí 3 í stað 4-6 cm með
hefðbundnum aðferðum."
Þá segir Hermann ekki sísta
kostinn að efnið sé fljótharðnandi
og að hægt sé að fara inn á gólf
þremur til sex tímum eftir ílögn
og vinna á því daginn eftir. „Þetta
er allt annað en hægt er með hefð-
bundnu efnunum þegar menn
þurfa kannski að bíða tvo til þrjá
daga. I þessu sambandi má líka
vekja athygli á því að hægt er að
leggja á gólfefni mun fyrr, hvort
sem væri dúkur eða flísar.“
Mikil
fjárfesting
Fyrirtæki Hermanns og félaga
hefur fjárfest í sílói og öflugri dælu
og segist hann geta dælt uppá 10.
hæð húsa. Til að fá nákvæmni í
ílögnina eru hæðarpunktar settir
út með litlu leysigeislatæki. Fjár-
festingin nemur kringum 5 milljón-
um króna og segir Hermann bún-
aðinn mjög afkastamikinn, hann
geti lagt í 500 fermetra gólf á einni
klukkustund.
Morganblaðið/Jón Svavarsson
ÞEIR standa að byggingafélag-
inu Við-Reisn. Aftastur er fram-
kvæmdastjórinn, Hermann
Ragnarsson, í miðið Högni
Hannesson og fremstur er Ómar
H. Sunal.
Fasteigqaícm
Fjárvangis
Kynntu þér kosti
Fasteignalána
Fjárvangs hjá
ráðgjöfum Fjárvangs
í síma 5 40 50 60
Dæmi um mánaðaiiegar afboiganir af
1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs*
\txtír(%) 10 ór 15 ór 25 ór
7,0
7,5
8,0
11.610 8.990 7.070
11.900 9.270 7.500
12.100 9.560 7.700
Miðaö er við jafngreiðslulán.
*Auk verðbóta
[PP-
FJÁRVANGUR
L 0 G G 1L T VEHÐBGEFAFYRIRIÆKI
Laugavegi 170,105 Reykjavfk, sfmi 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is
Lnk. ir