Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 24

Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 24
24 C ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Trjágróðurinn og haustið Gróður og garðar / Akjósanlegast er að velja einungis harð- gerðan og vetrarþolinn trjágróður í ís- lenska garða, segir Hafsteinn Hafliðason. Hann bendir á að vilji menn tryggja „dek- urdrósum“ framhaldslíf í görðunum þurfí að skýla þeim með einhverju móti. VIÐA standa berin enn á reyninum. Þau má frysta til að nota þau í jólaskreytingarnar! VÆTAN og hvassviðrið undan- farið hefur nú aldeilis gert í því að skerða haustskrúðið sem kofnið var á tré og runna. Hið litfagra laufskúð, sem setti svip á kjarrið héma í Hafnarfjarðarhraun- inu og garða höfuðborgarsvæðisins í nokkra daga um daginn, er nú fallið til jarðai- og eftir standa naktar greinar. Samt era nú eftir nokkrar tegundir trjágróðurs sem enn halda grænu laufi - þótt mikið sé það orðið • tuskulegt af vindbamingnum. Sá trjágróður er af suðlægum uppruna. Uppruni trjánna ræður mestu um það hversu snemma þau laufgast og hversu snemma þau ljúka sumar- vexti. Norðlægu trjátegundirnar ljúka sumarvextinum snemma og eru til- búnar að taka við vetri um leið og fyrstu næturfrost koma. Þá skipta þær litum, frá grænu yfir í gult og gulrautt-rauðgult. Það er vegna þess að í blaðgrænunni eru ýmis efnasam- .bönd, sem skipta miklu máli fyrir blaðgrænuna og gróðurinn þarf að fara sparlega með tii þess að hafa þau nærtæk í nýtt blaðgrænusett með hækkandi sól á nýju vori. Það sem eftir situr í blöðunum eru tor- leystari efni sem plönturnar taka auðveldlega upp gegnum rætumar eftir að ljóstillífimin er komin í gang eftir laufgun á vorin. Þessi dýrmætu efnasambönd draga þau inn í brum, börk og bol - og flytja líka stóran hluta þeirra niður til rótanna þar sem þau eru vel varðveitt yfir veturinn. Suðrænar trjáplöntur skipta sjaldan litum Flestar suðlægar trjátegundir eru aftur á móti seinni til með haustfrá- ganginn en þær norðlægu. Þess vegna verður lítið um haustliti hjá þeim nema þegar haustin eru löng, kyrr og hlý með síðbúnum nætur- frostum. Það gerist sjaldan hér á iandi, svo að við fáum ekki oft að sjá þær í haustskrúða. Margar þessara tegunda eru grænar langt fram eftir haustinu og fella sjaldnast lauf fyrr en eftir nokkra frostakafla og jafn- vel nokkra snjókomu. Af þessu tagi er gljávíðirinn þekktastur. Hann nær sjaldan að þroska endabramin og sumarvöxtinn kelur ávalit nokk- uð við fyrstu frost á haustin. Sama er að segja um flestar tegundir rósa og mispla sem hér eru ræktaðar. Uppruninn ræður þessu - og þess vegna er svo mikilvægt, þegar þess er nokkur kostur, að velja þau kvæmi trjátegundanna sem helst er að vænta að þrífist á þeim stað sem fyrirhugað er að planta þeim. Sama tegundin getur átt mjög stórt út- breiðslusvæði - með mismunandi hnattstöðu og veðurfari. Hugtökin kvæmi eða staðbrigði eru notuð um sérhvern þann hóp innan tegundar- innar sem þróast hefur á sama svæði og við sömu umhverfisskilyrði s.s. veðurfar, daglengd o.sv.frv. (All- ir Mývetningar eru t.d. sama kvæm- ið af tegundinni Islendingar, Inn- djúpsmenn annað og Keflvíkingar þriðja - svo að þetta sé yfirfært í líkingu!). Þetta þýðir með öðrum orðum að við þurfum að velja teg- undimar frá svæðum sem eru líkust Islandi hvað varðar alla staðhætti. Haustplöntun trjáa Með lauffallinu er vexti tijánna samt ekki alveg lokið í bili, því að á haustin eflist sá hormóna- og en- sýmaferill sem stjómar rótarvexti. Þegar trjágróðurinn dregur næring- una úr blöðum og berki niður í ræt- urnar taka þær vaxtarkipp sem varir frá septemberbyijun og út nóvem- ber. Þess vegna gefur það yfirleitt mjög góða raun að planta trjáplönt- um (runnum og trjám) á haustin. Þá ræta þau sig hraðast og eru fyrr til- búin í slaginn þegar vorar. Þar að auki þurfa þau þá ekki að standa í því að gera tvennt í einu: Ræta sig og laufgast í sama rykknum. Á vorin snýst hormónastarfsemi trjánna við og þau leggja mest í yfirvöxtinn. Séu vorin þurr og næðingssöm geta plöntumar orðið fyrir miklu vökva- tapi - og fengið afturkipp sem er lengi að lagast. Helsti hængurinn á haustplöntun hefur verið sá að gróðr- arstöðvamar hafa lítið unnið að því að selja tijáplöntur á haustin. Fólk hefur ekki haft trú á því að það kynni góðri lukku að stýra að gróðursetja tré á haustin, þannig að markaðurinn hefur ekki staðið undir þeim mann- afla sem þarf til að afgreiða plöntum- ar. Eins hefur óttinn við holklaka og frostlyfting haldið aftur af haust- plöntun. En sé þokkalega gengið frá plöntuninni og skýlt yfir rótarhnaus- ana með viðarkurli, aíraki eða jafnvel steinullarmottum er lítil hætta á að holklakinn spilli rætingunni. Haustklipping Margir hringja til mín á haustin til að fá leiðbeiningar um haust- klippingu á trjágróðri. Meginreglan er að klippa trjágróður á útmánuð- um vegna þess að þá er auðveldast að sjá og komast að greinabygging- unni - og ekki síður að tími til þess- ara starfa er rýmri en á annatímum vors og sumars. En það er svo sem ekkert sem aftrar þvi að klippa tré og ranna á öðrum árstímum. Oft er það meira að segja svo að marga runna sem blómgast á veturgamla sprota er best að klippa á sumrin, strax að blómgun lokinni - áður en sprotavöxtur hefst. Dæmi um þetta eru t.d. birkikvistur og sírenur. Sum- arklipping gefst líka vel þegar þai-f að fjarlægja stórar greinar af tijám vegna þess að þá eru trén í fullum vexti og loka sárunum hratt. Gömul og breið limgerði taka á sig mikinn snjó og geta gliðnað eða brotnað undan snjóþunganum. Til að koma í veg fyrir þetta kemur haust- klipping að góðu gagni. Það er alveg óhætt að taka nokkuð nærri og forma limgerðin þannig að þau mjókki upp á við, m.ö.o. verði A-laga. Þannig standa þau betur af sér snjó- ana. Haustklipping er líka ágæt þeg- ar grisja þarf trjákrónur sem taka á sig mikinn vind og er hætt við broti af völdum vinda og snjóa. EIGNAMIÐSTOÐIN-Hátún Suðurlandsbraut 10 Simi 568 7800 Fax 568 6747 Opið virka daga frá kl. 9-18 Brynjar Fransson löggiltur fasteignasab' Lárus H. Lárusson sölustjóri Kjartan Hallgeirsson sölumaður Súlunes. Stórglæsilegt 375 fm nýlegt ein- býli með aukaíbúð á 1. hæð og 63 fm tvö- földum bílskúr. Vandaðar innréttingar. Parket og marmari. Stór sólskáli með heitum potti og arinn. 150 fm verönd með lítilli sundlaug, öll afgirt og upplýst. Mikið áhv. í hagstæðum lánum. 1184 Faxatún - Garðabær. Vorum að fá í sölu fallegt og skemmtilega staðsett 136 fm ein- býli ásamt 25 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað. Einstaklega fallegur garður. V. 12,3 m. 1170 Einarsnes - Einb./tvíb. Reisulegt einbýli á tveimur hæðum ásamt bílskúr á þessum eftirsótta stað í Skerjafirðinum. Séríbúð er í kjallara. Spennandi hús á skemmtilegum stað. Hafðu samband við sölumenn og fáðu nánari uppl. 1138 Frfusel - lækkað verð. Til sölu gott 217,2 fm raðhús með góðri íbúð (sérinng.) í kjal- lara. Nýlegar innr. Parket og flísar. Gott verð og þægileg lán áhv. V. 12,8 m. 1133 Skriðustekkur. Til sölu mjög gott ca 275 fm einbýlishús með innb. bílskúr. Góðar og vandaðar innr. Möguleiki á aukaíb. Spennandi hús. V. 16,7 m. 1143 hædir Nýbýlavegur - Kóp. Falleg og endurnýjuð 134 fm efri sérhæð með bíl- skúr. 4-5 svefnherb. Nýtt gler og flísar á gólfum. Arinn í stofu. Gott útsýni. Áhv. 4 millj. Gott verð. 1191 Eyrarholt - HF. Til sölu 160 fm „pent- house”íbúð í Hafnarfirði. fbúðin er tilbúin til innréttinga. Ótrúlegt útsýni yfir stór- Hafnarfjarðarsvæðið. 1051 Hlaðbrekka - Kóp. Höfum í sölu tvær 125 fm íbúðir með bílskúr í grónu hverfi í Kópavogi. Ibúðinar seljast tilbúnar tii innréttinga. V. 8,5 m. 1188 Vantar 4ra herbergja Vegna góðrar sölu undanfarið vantar okkur nú þegar góðar 4ra herbergja íbúðir á söluskrá. Við höfum mikinn fjölda ákv. kaupanda á skrá. ÖFLUGT STARFSFÓLK FINNUR KAUPANDANN AÐ þlNNI ÍBÚÐ Lundarbrekka - Gott verð Falleg íbúð með góðum innréttingum á jarðhæð með sérinngangi. í nýviðgerðu fjölbýli. Parket og flísar. Sérþvottahús.Áhv. 3 millj. Verð 6,8 m. 1247 Sigtún. Gullfalleg 110 fm björt kjal- laraíb, lítið niðurgrafin. Góðar innréttin- gar, parket/flísar. Fallegur garður og gott hús. Áhv. 4 millj. 1180 Miðleiti - Glæsilegar innréttingar. Vorum að fá í sölu stórglæsilega ca 125 fm íbúð ásamt stæði i bílskýli i mjög fallegu og vel umgengnu fjöllbýli. Mjög vandaðar innr., par- ket og flísar. Þetta er íbúð fyrir vandláta. Laus strax. V. 11,9 m. 1169 Engihjalli - Tilboð!! Falleg og skemmti- leg stór 110 fm íb. á 7. hæð í mjög góðu lyftuhúsi. Ibúðin er nýlega standsett. Stórar svalir. Gott verð og hagstæð lán V. 6,9 m. 1093 Hraunbær. Mjög góð 88 fm íb. á 3ju hæð. Rúmgóð svefnh. Nýlegt parket á stofu og herb. Stórar suðursvalir. Gott útsýni. Kannaðu málið, gott verð. V. 7,4 m. 1089 í£ herbergja | Vantar!! Vegna góðrar sölu undanfar- ið vantar okkur nú þegar góðar 3ja her- bergja íbúðir, helst vestan Elliðaáa. Við höfum mikínn fjölda ákv. kaupanda á skrá. Skildinganes - sjávarlóð Við höfum í sölu þetta vel staðsetta 440 fm einbýli með aukaíb. og bílskúr. Frábær hönnun. Húsið er byggt í U utan um 90 fm hellulagða og upphitaða verönd. Svalir út af rúmgóðu turnherb. Baðherb. innaf svefnherb. auk gestasnyrtingar. í kj. er íbúð með sérinngangi auk rýmis með sér inngangi sem má nýta á ýmsan hátt. Þetta er frábært hús sem bíður upp á mikla möguleika. Hafið samband við sölumenn og leitið frekari upplýsinga. Sjón er sögu ríkari! 1179 Skipholt Falleg og vel skipulögð 84 fm íbúð á 2. hæð í mjög góðu fjölbýlíshúsi. Nýtt eld- hús og parket. Vestursvalir, góður staður. Áhv. 4 millj. V. 6,9 millj. 1235 Eiðistorg Falleg 90 fm íbúð á jarðhæð með sérgarði í þessu vandaða húsi. Parket og flísar á gólfum. Nýtt baðherb. Gengið slétt inn frá garði en svalir út frá stofu. Öll þjónusta til staðar. V. 7,5 m. 1198 Dúfnahólar. Vorum að fá í sölu mjög góða 72 fm íb. á 7. hæð í lyftuhúsi. Frábært útsýni. Áhv. 3,0 m. V. 5,9 m. 1072 herbergja Við seljum og seljum! Nú er hart í ári. Allar tveggja herbergja íbúðinar eru að verða uppumar og nú vantar okkur nauðsynlega eignir á skrá strax. Hringdu og við mætum, það ber árangur. Vesturberg Falleg íbúð í nýviögerðu húsi, pergo parket á gólfum. Stórar suðursvalir. Skipti á stærra möguleg. Áhv. 3,3 millj. V. 5,3 m. 1199 Frostafold - Byggsj. 63 fm íbúð í góðu lyftufjölbýli á 4. hæð. Suðursvalir, mjög gott útsýni. Parket, þvottahús í íbúð. Áhv. 4. millj. í Byggsj. V. 6,2 m. 1200 Vesturbær - Bflskýli Góð 56 fm íbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýli. Stórar s/svalir og fallegt útsýni. Parket. Góður staður. Áhv. byggsj. 1,5 miilj. 5,3 1182 Hverafold. Til sölu mjög falleg 56 fm íbúð á 1. haeð. Vandaðar innréttingar, parket og flísar. Áhv. 2,7 m. byggsj., 40 ára. V. 5,7 m. 1053 ^I annað 1 1 FJÁRFESTAR - VERKALÝÐS- OG STÉTTARFÉLÖG! Vorum að fá í sölu nokkrar íbúðir í nýju íbúðarhóteli við Höfðabakka. Mjög góð staðsetning. Upplagt fyrir t.d. verkalýðs- og stéttarfélög sem van- tar aðstöðu í borginni. Nokkrar ibúðir eftir. V. 4-5 m. 1077 Grensásvegur. Til sölu skemmtilegt og vel umgengið 188 fm skrifstofuhúsnæði. Góðar innréttingar og gólfefni. Tilvalið fyrir lögmenn, endurskoðendur og svipaða starf- semi. Góðir greiðsluskilmálar fyrir rétta aðila. 1016 Álfaskeið. Nýkomið í sölu ca 400 fm at- vinnuhúsnæði á góðum stað í Hafnarfirði. Margskonar notkun kemur til greina.Tilboð 1047 Vetrarskýling Eiginlega er það ákjósanlegast að velja einungis harðgerðan og vetrar- þolinn trjágróður í íslenska garða. Hins vegar getum við fæst látið það vera að pota nokkrum dekurdrósum niður í garðana okkar. Ef við viljum tryggja þeim framhaldslíf þarf að skýla þeim með einhverju móti á vet- uma. Oftast dugir að slá upp þrem til fjórum staurum umhverfis plönt- urnar og klæða með hessíanstriga á milli þeirra þannig að myndist eins konar tjald sem hlífír plöntunum. I sumum tilvikum dugar líka vel að reka staur niður með plöntunum og vefja síðan strigarenningum líkt og sárabindi utan um plöntu og staur - neðanfrá og upp - og festa tryggi- lega við staurinn efst. Með þessari aðferð er greinum lyft varlega upp að bolnum eftir því sem vindingurinn hækkar. Þessi aðferð vemdar vel gegn skemmdum af völdum skafrenningsins sem er vandamál víða um land - og hún dugar líka vel gegn næðingi og sólbruna útmánað- anna. Viðkvæmari runna, eins og t.d. ágræddar rósir, er auðveldast að vefja inn í steinullarmottu sem látin er ná vel niður yfir rótarhálsinn og binda svo utan um með striga. Stein- ullinn einangrar vel og um hana loft- ar nægilega til að greinarnar haldist frískar og vel varðar. Glerull kemur ekki að sama gagni utandyra, hún leggst saman og missir einangrunar- gildi sitt þegar hún blotnar. Plastdúkur á grind er ágæt vöm gegn raka - og hentar því vel sem vætuvörn yfir fjölærar plöntur, steinhæðajurtir og plöntur í uppeld- isreitum - en hann má aldrei liggja fast við plönturnar og fylgjast þarf með því að hann setji plönturnar ekki af stað of snemma þegar dag- ana fer að lengja. Þá þarf að lofta út eða skyggja til að koma í veg fyrir að hitni undir dúknum - annars er hætta á að plöntumar eyðileggist ef gerir hret og kuldaköst. Plastdúk má aldrei nota sem vörn um tré eða runna á vetuma. Aftur á móti getur gróðurdúkur (Agryl-17 eða þess háttar) sem lagður er yfir plönturnar gert gagn á vorin þegar verja þarf gróður gegn næturfrostum eða vor- næðingi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.