Morgunblaðið - 04.11.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTAÞING
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 B 5
íþróttahreyfingin
er ekki eyland
Ellert B. Schram, forseti íþrótta-
og ólympíusambands íslands,
var ánægður með þing nýrra samei-
naðra samtaka, sem fram fór um
helgina. „Þetta er búið að vera gott
þing. Það hefur verið fjölmenni og
það sést best á því að 212 höfðu
atkvæðisrétt og í kjörinu til forseta
greiddu 210 atkvæði. Það ríkti góð-
ur andi á þinginu og menn voru
málefnalegir og umræða um marg-
vísleg mál sem snerta hreyfinguna,"
sagði Ellert og nefndi sem dæmi
skipulags-, íjár- og forvamarmál.
Hann sagði að nokkur breyting
fylgdi sameiningunni og það fyrsta
sem hann yrði var við væri að það
væri auðveldara að vera á einni
skrifstofu en tveimur. „Fólk og
aðstaða nýtist betur og auðveldara
verður að samræma störfin. Fjöld-
inn innan hreyfingarinnar breytist
ekki. Breytingin er að nú eru allir
undir einum hatti.
Áhugaverðasta málið er auðvitað
að við vorum að halda fyrsta fund
nýrra sameinaðra samtaka. Það
finnst mér vera þáttaskil. Mikið var
rætt um skipulagsmál hreyfingar-
innar og greinilegt að menn vilja
gjaman fara að hagræða og skipu-
leggja í samræmi við þetta nýja
fyrirkomulag. Taka þarf á íjármál-
um íþróttafélaganna, en þau em
langsamlega stærsti vandi okkar.
Við þurfum líka að kalla aðra til
liðs við íþróttahreyfinguna, nánast
samfélagið allt því íþróttahreyfing-
in er ekki eyland; íþróttir snerta
samfélagið allt og eiga ekki að
vera einkamál félaganna.
Mikilvægi þess starfs sem
íþróttahreyfingin vinnur er mikið
og þar hefur lengi verið treyst á
sjálfboðaliða og áhugamennsku. Á
sama tíma eru kröfumar sem
gerðar eru miklu meiri en áður
og félögin mörg hver eru að kikna
undan því oki. Til þess að þetta
þjóðþrifastarf sé unnið áfram af
einhveiju viti þurfum við aðstoð."
Einhver orðaði það þannig á
þinginu að ef til vill væri best að
íþróttahreyfingin fengi sóknar-
gjaid, svipað og kirkjan hefur,
þannig að ákveðið gjaid fengist frá
ríki fyrir hvert sóknarbam íþrótta-
félaganna.
„Já, það er ósköp einfalt að gera
einhliða kröfur á hendur ríki og
sveitarfélögum. Við eram ekki að
því, heldur viljum við kalla þessa
aðila til liðs við okkur þannig að
þeir skilji mikilvægi þess starfs sem
unnið er í íþróttahreyfingunni. Það
hefur orðið viðhorfsbreyting hvað
það varðar að nú er ekki öll áhersl-
an á keppnisíþróttir heldur einnig
á afþreyingar- og heilsubótarþátt-
inn svo eitthvað sé nefnt.“
Ertu ánægður með stjómarkjörið?
„Ég er út af fyrir sig auðvitað
ánægður með alla þá einstaklinga
sem náðu kjöri. Þetta eru einstakl-
ingar sem hafa alist upp í íþrótta-
hreyfingunni og verið kallað þar til
ábyrgðarstarfa. Ég neita því hins
vegar ekki að ég sé eftir öðram
einstaklingum sem detta út úr
stjóm eftir frábært starf. Það er
til dæmis mikil eftirsjá í Loga
Kristjánssyni, sem verið hefur for-
maður Breiðabliks og var með mér
í stjóm bæði ÍSÍ og Óí. Sama á
við um Ara Bergmann Einarsson,
sem stóð sig frábærlega vel með
Smáþjóðaleikana. Mér finnst pínu-
lítið vanþakklæti að veita honum
ekki brautargengi í kosningunum."
Hvað tekur svo við hjá þér á
mánudaginn?
„Ætli ég loki mig ekki af með
framkvæmdastjóranum og við för-
um yfir nokkur atriði sem varða
ýmis framkvæmdaratriði og skipu-
lag hreyfingarinnar. Fljótlega höld-
um við stjómarfund og skiptum
með okkur verkum," sagði nýkjör-
inn forseti íþrótta- og ólympíusam-
bands íslands.
Fyrsta stjómin
Morgunblaðið/Kristinn
FYRSTA stjórn hlnna nýju samtaka, íþrótta- og Ólympíusambands íslands, f fremrl röó frá vlnstrl eru Frlójón B. Frlöjónsson,
BJörg Blöndal, Unnur Stefánsdóttlr, Ellert B. Schram, forseti, Hlldur Haraldsdóttlr og Benedlkt Gairsson. Aftari röö frá vinstrl:
Ágúst Ásgolrsson, Blrglr Quölaugsson, Ingólfur Freysson, Örn Andrósson, Slgmundur Þórlsson, Hafstelnn Pálsson og Stefán
Konráösson, framkvœmdastjórl. Sigrföur Jónsdóttir og Helga Magnúsdóttir voru fjarverandl þegar þlngiö var haldlö.
Ellert B.
fékk 170
atkvæði
ELLERT B. Schram fékk mjög
afgerandi kosningu til forseta ISI,
hlaut 170 atkvæði en Einar Óli
Pedersen, formaður Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar, aðeins
26, en hann bauð sig óvænt fram
á móti sitjandi formanni. Þegar
úrslitin voru kunngjörð reis þing-
heimur úr sætum og klappaði fyrir
nýjum forseta. „Ég er nú svo hóg-
vær maður að ég gerði mér í raun-
inni engar vonir um svona kosn-
ingu. Ég hafði á hinn bóginn ekki
orðið fyrir neinni alvarlegri gagn-
rýni áður en til þessa fundar kom,“
sagði Ellert við Morgunblaðið eftir
þingið.
Vilja sjón-
varp frá
Nagano
SAMÞYKKT var áfyktun á þinginu
þar sem áform RUV um að sýna
ekki frá vetrarólympíuleikunum í
Nagano eru hörmuð. í ályktuninni
segir að gróflega sé vegið að tug-
þúsundum íslendinga og að út-
breiðslu vetraríþrótta hér á landi
og þess krafist að í sjónvarpi allra
landsmanna sitji vetraríþróttir við
sama borð og stórviðburðir annarra
íþróttagreina. Benedikt Geirsson,
formaður Skíðasambandsins, lagði
fram ályktunina fyrir hönd SKÍ og
Skautasambandsins og sagði menn
þar á bæ varla trúa því _að RÚV
ætlaði ekki að sýna frá Ólympíu-
leikunum í Nagano í Japan.
Sóknar-
gjöld í
íþróttirnar
ÞEGAR þingheimur ræddi um
fjárstuðning sveitarfélga vð
íþrótta- og ungmennafélög kom
Arni Þór Arnason, formaður Fim-
leikasambandsins, meðal annars í
ræðustól og velti því fyrir sér hvort
ekki væri skynsamlegt að íþrótta-
hreyfinbgin færi fram á það við
ríkisvaldið að hún fengi sóknar-
gjald svipað og kirkjan hefur. Árni
sagði að með því mætti til dæmis
finna út að KR-ingar ættu að fá
31 milljón króna árlega frá ríkinu.
Konur hlutu
glæsilega
kosningu
FJÓRAR konur hlutu glæsilega
kosningu í framkvæmdastjóm
íþrótta- og Ólympíusambands ís-
lands á sunnudaginn. Tíu manns
eiga sæti í framkvæmdastjórninni
og buðu fimmtán sig fram til
þeirra starfa þannig að þingheim-
ur þurfti að kjósa. Sigríður Jóns-
dóttir hlaut 183 atkvæði, en 203
greiddu atkvæði, I fyrsta sætið,
Helga Magnúsdóttir hlaut 177 at-
kvæði í næsta sæti, Unnur Stefáns-
dóttir hlaut 169 atkvæði í fjórða
sæti og Hildur Haraldsdóttir 153
í sjöunda sæti. Aðrir sem kosnir
vom í framkvæmdastjórn vora
Benedikt Geirsson (174 atkvæði),
Sigmundur Þórisson (163), Öm
Andrésson (154), Friðjón B. Frið-
jónsson (146), Hafsteinn Pálsson
(131) og Ágúst Ásgeirsson (122).
Aðrir sem gáfu kost á sér vom
Ari Bergmann Einarsson (120),
Logi Kristjánsson (119), Jens
Kristmannsson (100), Bjarai Frið-
riksson (64) og Hreggviður Þor-
steinsson (45).
Fjórir gáfu kost á sér i vara-
stjórn en aðeins þrir komust að.
Björg Blöndal var kjörin fyrsti
varamaður, hlaut 183 atkvæði,
Birgir Guðjónsson hlaut 181 og
Ingólfur Freysson 173. Aðalsteinn
Sigurgeirsson hlaut 51 atkvæði
og komst ekki inn.
Þeir sem ekki hlutu kosningu í
framkvæmdastjórnina fengu tæki-
færi til að gefa kost á sér í vara-
stjóm en enginn þáði það. Ari
Bergmann Einarsson, ritari
Ólympíunefndarinnar fyrir sam-
einingu, var að vonum ekki ánægð-
ur eftir kjörið, en vildi ekkert láta
hafa eftir sér annað en að hann
væri hættur afskiptum af íþróttum
á efsta stigi. Ari kom inni Ólympíu-
hreyflnguna árið 1984 og hefur
starfað óslitið síðan, en ætlar að
snúa sér að siglingum, en hann
var áður formaður Siglingasam-
bandsins. Logi Kristjánsson var
bæði í ÍSÍ og Óí og Jens Krist-
mannsson var í ÍSI.
Það vakti nokkra athygli að þær
tvær konur sem hlutu besta kosn-
ingu vom ekki viðstaddar þingið,
en það fór ekki eins vel fyrir Aðal-
steini Sigurgeirssyni sem bauð sig
fram til varastjómar. Hann var
ekki á þinginu þegar kosið var en
hlaut ekki brautargengi eins og
þær Sigriður og Helga.
EUert B. Schram tilkynnti eftir
að hann hafði verið kjörinn for-
seti að hann myndi boða alla vara-
menn á fundi framkvæmdastjóm-
ar og þar hefðu þeir tiUögurétt
þannig að í raun munu íjórtán sitja
fundi framkvæmdastjórnarinnar.
Bókhaldl breytt
Samþykkt var á þinginu að
hvetja aðUdarfélög til að aðskilja
í bókhaldi sínu rekstur meistara-
flokka og æskulýðsstarf og einnig
var samþykkt að breyta bókhaldi
ÍSÍ nokkuð. Það hefur í för með
sér að bókhaldið verður gegn-
særra, eins og menn orðuðu það,
og má til dæmis sjá merki þess í
fjárhagsáætlun fyrir 1998 og
1999. fársreikningum ÍSÍ era
tekjur af lottóinu bókaðar á ÍSÍ
um 156 mil(jónir króna en í fjár-
hagsáætluninni aðeins sem 7,4
milljónir. Ástæðan er að lottótekj-
unum er dreift að mestu leyti til
grasrótarinnar og þvi koma að-
eins um 7 mU(jónir til aðalskrif-
stofu ÍSÍ. Á sama hátt verður
ýmsum öðmm bókhaldslyklum
breytt þannig að auðveldara sé
að fylgjast grannt með hvemig
staðan er hverju sinni.
Mikið rætt
um forvarnir
MIKIÐ var rætt um stefnuyfirlýs-
ingu um forvamir og fíkniefni á
þinginu og sýndist sitt hveijum um
orðalag yfírlýsingarinnar. Eftir
mikið japl, jaml og fuður tókst
mönnum þó að komast að sam-
komulagi um texta yfírlýsingarinn-
ar.
Beita öllum
ráðum
FJÁRHAGSÁÆTLUN hinna nýju
samtaka var samþykkt eftir að
fram hafði komið tillaga um að
hækka tölur hennar verulega þann-
ig að framkvæmdastjórn hefði að
einhveiju miklu að stefna. Bent var
á að ÍSI gæti ekki verið með fjáröfl-
un á svipuðum nótum og sérsam-
böndin þannig að sambandið ætti
erfitt um vik. Eina leiðin virtist
mönnum að reyna að sækja meira
fé til ríkis og sveitarfélaga.