Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell Á rauðu liósi SÓL lækkar nú jafnt og þétt á Iofti og dagsbirtan þverr. Um leið eykst umferðin, enda jólaös in í vændum. Á þessum tíma verða ökumenn að gæta fyllstu varúðar í umferðinni. Brýnt er að tryggja að Ijósabúnaður sé í lagi og á það ekki síst við um hjólreiðamenn, sem ásamt gang- andi vegfarendum þurfa einnig að muna eftir endurskinsmerkj- unum. Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja Formaður FFSÍ er óvelkominn um borð „ÞAÐ er alveg rétt. Við bönnuðum fulltrúum Farmanna- og fiski- mannasambands íslands og Sjó- mannasambands Islands að koma um borð í eitt af skipum okkar. Þeir geta fundað með sjómönnum í landi, en í þessu tilfelli hefði þurft að fresta brottför, hefði verið leyft að funda um borð. Til þess vorum við ekki reiðubúnir. Annars á þetta bann við öll okkar skip. Með þessu erum við einnig að mótmæla aðför Guðjóns A. Krist- jánssonar, formanns FFSÍ, að sjó- mönnum og útgerðum frystitogara," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, í sam- tali við Morgunblaðið. Guðjón A. Kristjánsson greindi frá þvl í ræðu sinni á þingi Far- manna- og fiskimannasambandsins, að fulltrúum sjómanna hefði verið bannað að fara um borð í skip Sam- herja og vonaðist hann til að þetta væri ekki upphaf að nýjum sam- skiptareglum milli aðila. Hafa aldrei varið sjómenn frystitogara Þorsteinn segir að tvívegis hafi sjómenn fyrir norðan farið í verkfall án þess að það hafi haft nokkur áhrif til bættra kjara fyrir sjómenn á skipum Samherja. Það sé einnig ljóst að Guðjón A. Kristjánsson, hafi aldrei varið hagsmuni frystitogara- sjómanna. Þvert á móti. Hann hafi viijað skylda frystitogara til að stunda veiðar á öðrum svæðum en önnur skip og jafnframt að þeir stundi veiðar utan landhelgi ákveð- inn tíma hvers árs. Slíkt sé alls ekki í þágu sjómanna á frystitogurum. Þá hafi sjómannaforystan aldrei varið frystitogarasjómenn, þegar þeir hafi orðið fyrir árásum, bæði í þingsölum og annars staðar. Þeir hafi aldrei minnst á það að um borð í þessum togurum sé unnin og flutt út einhver bezta vara sem framleidd er úr ís- lenzkum fiski. Það fáist svo dæmi sé tekið ekki hærra afurðaverð en fyrir sjófrystan karfa, gi'álúðu og rækju. Áhafnirnar hafa ekki beðið um að fá þá um borð „Þetta kom berlega í ljós, þegar ég spurði sjómennina hjá okkur; hvort þeú' hefðu orðið varir við ein- hvern stuðning frá sjómannaforyst- unni, þegar verið væri fjalla um störf þeirra á villandi og fjandsam- legan hátt, sem oft hefur gerzt. Svarið var samhljóða nei. Þessir menn hafa aldrei unnið með sjó- mönnum frystitogaranna á jákvæð- an hátt og hafa því ekkert um borð að gera. Enda hafa áhafnirnar ekki beðið um að fá þá um borð. Þessir sjómenn eiga enga samleið með Guðjóni A. Kristjánssyni," segir Þorsteinn Már Baldvinsson. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks í bæjarstjornar fsafjarðar féll Bæj arstj órinn sagði upp starfi sínu í gær ísafirði. Morgunblaðið. Samþykkt tillögu um að hafna kaupum á húsum Norðurtangans var náðarhöggið „Við undirritaðir bæjarfulltrúar af D-lista Siálfstæðisflokksins í bæj- arstjóm Isafjarðarbæjar teljum að á fundi bæjarstjómar í gærkveldi hafi myndast nýr meirihluti í bæj- arstjóm ísafjarðarbæjar. Sam- þykktir meirihlutans ganga þvert gegn samþykkt fulltrúaráðsfundar sjálfstæðisfélaganna í ísafjarðar- bæ sem og sannfæringu okkar í bessu máli. Við lýsum allri ábyrgð á þessum samþykktum á hendur hinum nýja meirihluta og teljum mikilvægt að hann taki þegar í stað á sig framkvæmd þeirra til- lagna sem knúðar voru í gegn með valdníðslu á umræddum fundi.“ Svo hljóðar upphaf bréfs sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins, Þorsteinn Jóhannesson, Magnea Guðmundsdóttir og Hall- dór Jónsson sendu Sigurði R. Ólafssyni, bæjarfulltrúa Alþýðu- flokksins, í gær. Þar er vitnað til fundar sem haldinn var í bæjar- stjóminni á miðvikudagskvöld, þar sem samþykkt var tillaga um að ekki yrði gengið til kaupa á Norð- urtangahúsupum svoköfiuðu, undir Grunnskóla ísafjarðar. Sigurður R. Ólafsson, Alþýðu- flokki, og Kolbrún Halldórsdóttir og Jónas Ólafsson, Sjálfstæðis- flokki, nutu stuðnings Óháðra og Framsóknarflokks við samþykkt tillögunnar á miðvikudaginn, sem leitt hefur til falls meirihlutans. Þessir aðilar vinna nú að myndun nýs meirihluta og hefur Jónas Ólafsson verið orðaður við bæjar- stjórastólinn, samkvæmt heimild- um blaðsins. Sjálfstæðismennimir þrír boð- uðu til blaðamannafundar seinni partinn í gær. Þeir telja að dæmin sanni að ákvarðanir í stómm hags- munamálum, sem teknar hafi verið á tilfinninganótum, hafi reynst bæjarfélaginu dýrkeyptar. Þær valdi því að framkvæmdafé bæjar- ins hafi verið ráðstafað að stórum hluta langt fram í tímann. Það al- varlegasta í stöðunni sé að nú er ekki aðeins tekist á um fjármál bæjarins, heldur framtíðampp- byggingu gmnnskóla sveitarfé- lagsins. Á blaðamannafundinum greindi Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri ísafjarðarbæjar, frá þvi að hann hefði fyrr um daginn, í bréfi til Þorsteins Jóhannessonar, for- manns bæjarráðs, sagt upp starfi sínu og jafnframt óskað eftír lausn frá störfum sem fyrst. „Sú samþykkt sem var gerð um húsnæðismál Gmnnskólans á Isa- firði á fundi bæjarstjómar í gærkveldi gengur þvert á þau gmndvallarsjónarmið sem ég tel að hafa beri að leiðarljósi í störfum sveitarstjómarmanna. Hún hefur að engu álit fagmanna, starfsfólks skóla og fulltrúa foreldra og tekur ekkert tillit tíl tillagna og sam- þykkta fræðslunefndar sem er bæjarstjórn til ráðuneytis um mál- efni grannskólans. Svo undarlegt sem það er hefur bæjarstjóm enn- fremur að engu eigin samþykktir sem gerðar vom með 10 samhljóða atkvæðum fyrir nokkram vikum,“ sagði Kristján meðal annars. Reikna mættí með að samþykkt tíllögunnar hefði í fór með sér a.m.k. 500 milljóna króna skulda- aukningu bæjarsjóðs á 3 áram, eða úr u.þ.b. 1.200 milljónum króna í 1.700 milijómr. Kristján Þór sagðist ekki hafa sinnt starfi bæjarstjóra ísafjarðar- bæjar eingöngu til þess að hafa af því atvinnu, heldur tíl að vinna af sannfæringu að framfaramálum fyrir sveitarfélag sitt. Hann hefði aldrei unnið að sveitarstjórnarmál- um með öðm hugarfari og hygðist ekki taka upp annað vinnulag. „Þar sem ég tel brýnt að íbúum, einkum foreldmm og nemendum, verði sem fyrst gefin svör um hvers megi vænta, tel ég farsælast að aðrir axli ábyrgð á framgangi tfllögunnar en ég,“ sagði Kristján Þór. „í mínum huga vom það sorgar- atburðir sem áttu sér stað í gær því ég er sannfærður um að þeir muni færa skólamál okkar aftur um mörg ár. Ég tel einnig að með uppsagnarbréfi Kristjáns Þórs Júlíussonar höfum við misst einn þann besta bæjarstjóra sem setið hefur á ísafirði í gegnum árin,“ sagði Þorsteinn Jóhannesson. Búist er við að uppsögn Krist- jáns Þórs verði samþykkt á bæjar- stjómarfundi í næstu viku og hann fái lausn frá störfum þá þegar. Þá munu Magnea Guðmundsdóttir, forsetí bæjarstjómar, og Þor- steinn Jóhannesson, formaður bæjarráðs, láta af störfum sínum og nýr meirihlutí skipa fulltrúa sína í þau. * A 10-19 Sum fyrirtæki eru opin lengur. KRINGMN 4 ,OV 38 millj. í bundið slitlag á Þingvalla- veg frá Grímsnesi Á NÆSTA ári er gert ráð fyrir að veita 38 milljónum í bundið slitlag á um 2-3 km kafla á veginum frá Grímsnesi að Þingvöllum. Að sögn Steingríms Ingvarssonar umdæm- isverkfræðings Vegagerðarinnar á Selfossi, er gert ráð fyrir að heild- arkostnaður við að ljúka þeirri framkvæmd sé um 140 milljónir en bundið slitlag nær nú að Stein- grímsstöð. Vegaframkvæmdir á Lyngdals- heiði em ekki inni á þeirri vegaá- ætlun sem unnið er eftir og nær til ársins 1998 að sögn Steingríms. En unnið er að undirbúningi að vegar- stæði og hafa verið reknar niður stikur og teknar loftmyndir fyrir kortagerð af svæðinu og verður veglínan skoðuð af því korti. Áætl- aður kostnaður við veginn yfir Lyngdalsheiði er um 400 milljónir. Refsing vegna kyn- ferðisbrots skilorðs- bundin HÆSTIRÉTTUR ákvað í gær að rétt væri að skilorðsbinda alla refs- ingu manns, sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum drengjum. Vísaði dómurinn tíl þess, að ósannað væri að drengimir hefðu í raun tekið atburðinn nærri sér og ekki nyti gagna um að þeir hefðu beðið skaða af. Þá hefði maðurinn játað brot sitt vafningalaust og sýnt iðmn vegna þess verknaðar, sem honum var borinn á brýn. Maðurinn viðurkenndi að hafa snert getnaðarlimi drengjanna, sem em 6 og 11 ára. Þá viðurkenndi hann að drengimir hefðu fitlað við lim sinn, en ekki með bemm hönd- um heldur með ísmolatöng. Þessi framburður hans var í samræmi við framburð drengjanna. Af hálfu mannsins var krafist sýknu og vísað til þess að samþykki drengjanna hefði legið fyrir og allt benti til að fremur hefði verið um gáska eða stríðni af hálfu mannsins að ræða en kynferðislegan tilgang. Auk þess var vísað til þess að mikl- ar tafir hefðu orðið á rannsókn málsins. Héraðsdómur dæmdi manninn í 7 mánaða fangelsi, þar af 5 mánuði skilorðsbundna. Hæstiréttur telur 7 mánaða fangelsi einnig hæfilega refsingu, en skilorðsbindur hana að fullu. Hæstiréttur vísar jafnframt til þess að lögreglurannsókn hafi verið ábótavant, því maðurinn hafi fyrst gefið skýrslu hjá lögreglu og verið kynnt sakarefnið níu mánuð- um eftir kæru og ekki haft réttar- gæslumann við rannsóknina. Enn í gjörgæslu ENN liggur á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur hjól- reiðamaðurinn sem varð fyrir bíl á Kringlumýrarbraut sl. mánudagsmorgun. Hann er al- varlega slasaður, beinbrotinn og með fleiri áverka en hjálm- ur hans dró mjög úr höfuð- meiðslum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.