Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 57
 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 5 7 ■ I I I ► ► > ) ) I í ► J I I > i I I i I MINNINGAR JÓHANNA MA TTHÍASDÓTTIR + Jóhanna Matthí- asdóttir fæddist f Reykjavík 27. júh' 1930. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 18. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Matthías Kjartans- son, f. í Presthúsum 5.12. 1902, og Jó- hamia Eina Guðna- dóttir, f. í Hafnarfirði 30.9. 1904. Jóhanna giftist Ólafi Andrési Guð- mundssyni 1949. Þau slitu samvistir. Dóttir þeirra er Matthildur Ólafsdóttir, f. 18.8. 1948. Börn hennar eru: 1) Ingólf- ur Guðbrandsson, f. 31.12. 1966, sambýliskona hans er Ruth Öm- ólfsdóttir. Barn Ingólfs er Anna Margrét, f. 2.12. 1990. 2) Lilja Ljósbjörg, f. 15.3. 1972, börn hennar eru Aron Andri, f. 23.9. 1989, og Hlynur Snorri, f. 10.1. 1996. Dóttir Jóhönnu, Mar- yann Thomas, f. 1955, lést í frum- bernsku. Sonur Jó- hönnu er Vilhjálmur Einar McDonald, f. 27.8. 1961. Faðir hans er George R.H. McDonald. Jóhanna starfaði á Keflavíkurflugvelli, hún var starfsmaður Eimskips bæði sem þerna á skip- um félagsins og í mötuneyti í Sundahöfh. Sfðastliðin 17 ár starf- aði hún á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Utför Jóhönnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Margt er það og margt er það sem minningarnar vekur, þær eru það eina sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson.) Elsku Hanna amma er dáin. Svo hratt hefur allt gerst síðustu vik- urnar að ég átta mig varla á því að hún sé farin. Fyrir tveimur mánuð- um var amma heima í fullu fjöri að ég hélt, en þá var hún búin að vera veik heima án þess að kvarta, fyrir utan eitt skipti að hún nefndi við mig að hún væri svo slæm í baki að hún gæti ekki setið. Ég sagði við hana svona í gríni að ef bíllinn bilaði þá færi ég með hann á verkstæði og það sama gilti um okkur, við færum til læknis. Ekki óraði mig fyrir að amma væri svo veik og ætti svo stutt eftir. Ég hélt í höndina á ömmu á dán- arstundu og þá fór svo margt í gegnum hugann. Ég man svo vel þegar hún sendi mér bréf og nammi í sveitina þegar ég var sjö ára gam- all og alltaf var jafn spennandi þeg- ar hún kom heim frá útlöndum þeg- ar hún var þerna á skipum Éim- skips. Oft fór ég til ömmu í mötu- neytið í Sundahöfn þegar ég var að PÁLMI KRIS TJÁNSS ON + Pálmi Kristjáns- son var fæddur í Hvammi í Þistilfirði 20. júní 1933. Hann andaðist á Sjúkra- húsi Reykjavíkur mánudaginn 17. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sveinbjörg Pétursdóttir, f. 1895, d. 1963, og Kristján Einarsson, f. 1875, d. 1966, bóndi á Hermundar- felli. Pálmi var yngstur systkinanna sem alls voru níu er lifðu til full- orðins ára. Þar af þrjú alsystk- ini og sex hálfsystkini. Hálf- systkini Pálma, börn Kristjáns og Guðrúnar Pálsdóttur, voru: Þórdís, f. 1901, Páll, f. 1909, og Einar, f. 1911. Börn Sveinbjarg- ar og Steinþórs Pálssonar eru: Þórhallur, f. 1914, d. 1986, Frið- björg, f. 1917, og Steinunn Sessilía, f. 1921. Sveinbjörg og Kristján eignuðust þrjú börn: Lilju, f. 1929, Fjólu, f. 1931, d. 1975, og Pálma. Pálmi giftist Elsu Georgsdótt- ur 1956, en þau slitu samvistir árið 1985. Börn þeirra eru: 1) Sveinbjörg Fjóla Pálmadóttir, f. 1957, sambýlismað- ur hennar er Jón Helgi Óskarsson, f. 1962. Börn hennar eru Pálmi Blængs- son, f. 1978, og Elís Bergmann Blængs- son, f. 1981. 2) Guð- fínnur Georg Pálmason, f. 1961, sambýliskona hans er Jóhanna Sigríður Emilsdóttir, f. 1961. Börn þeirra eru Emil Freyr Freys- son, f. 1982, og Trausti Guð- finnsson, f. 1988. Pálmi stundaði sjómennsku mestan hluta ævi sinnar, var þar af í allmörg ár með eigin út- gerð frá Rifí á Snæfellsnesi. Síðari ár vann hann við ýmis störf tengd sjómennsku og var m.a. um tíma á sjó með syni sín- um og sfðast með frænda sfnum á Þórshöfn, þar sem Pálmi átti heimili þar til veikindi sóttu að lionuin f ágúst f sumar. Pálmi Kristjánsson verður jarðsunginn frá Seljakirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Þegar brott eru kvaddir þeir sem manni þykir hvað vænst um hér í þessum heimi virkar það eins og nokkurs konar lömun á sál og líkama eftirlifandi ástvina. Okkur langar öll til að segja svo margt. Ótal hugsanir fljúga um hugann, en ef koma á þeim á blað verður lítið úr verki. Hugsanir er ekki svo gott að festa í rituðu máli. Mig langar þó af veikum mætti að reyna að setja hér niður nokkur orð á blað til þess að minnast hans Pálma, tengdaföður míns. Þú varst einn af þeim, allt of mörgu, sem þurfa að enda ævi sína á baráttu við hinn illvíga og í flestum tilfellum ósigranlega sjúkdóm, krabbameinið. Sá sjúkdómur, sem hjá þér var ekki uppgötvaður fyrr en um miðjan ágúst sl. herjaði á þig af miklum krafti og þrátt fyrir að þú háðir hetjulega baráttu hafði hann betur að lokum. Eins og við mátti búast af þér, barst þú þig alltaf vel og reyndir fram á síðustu stundu að bjarga þér sjálfur við alla hluti. Við bænastund er við kvöddum þig á Sjúltrahúsi Reykjavíkur kvöldið sem þú varst burt kallaður héðan fór sr. Gunnar Matthíasson sjúkrahúsprestur með tvö vers úr sálminum „Kallið er komið“. Mig langar til þess að birta þessi erindi hér: selja blöðin og var svangur; þá fékk ég malt og kleinu. Amma rifjaði oft upp bolludaginn þegar ég kom til hennar til að fá bollu og hafði týnt strætópeningn- um og gekk frá Hlemmi inn í Sól- heima í brjáluðu veðri. Alltaf stóðu dyrnar hjá ömmu opnar fyrir mér. Hún var mér meira sem móðir heldur en amma. Alltaf gat ég leitað til hennar ef ég var í vandræðum og fékk líka oft orð í eyra ef henni fannst ég vera að gera einhverja vitleysu. Þegar ég fór að sigla hjá Eimskip upplifði hún upp á nýtt þegar hún var að sigla. Hún var að segja mér hvar ég ætti að versla og ég ætti að skoða þetta og hitt. Þó ég sé orðinn þrítugur þá spurði amma mig alltaf hvort ég væri ekki svangur eða hvort ég hefði borðað eitthvað þegar ég kom til hennar. Amma vissi greinilega hvað beið hennar því hún var búin að kaupa jólagjafir handa barna- barnabörnunum. Það er skrýtið að koma í Sólheim- ana núna og heyra ekki: „Ert þetta þú, Ingó minn? Það er nýtt kaffi á könnunni. Ert þú búinn að borða eitthvað? Hvaða ferðalag er á þér? Er Ruth með þér?“ Eg var svo heppinn að amma fékk að kynnast Ruth, kærustunni minni, og hún var svo hrifin af henni. Góður guð gaf það að amma þurfti ekki að berjast lengi í veikindum sínum, og það var erfið nótt þegar við vorum öll, ég, Ruth, mamma, Lilja systir og Villi frændi hjá henni á dánarstundu á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau, er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“ (Vald. Briem.) Já, margs er að minnast og upp í hugann kemur margt sem mér hefur verið sagt frá fyrri árum, þeim sem ég kynntist ekki. Þú bjóst lengstan hluta ævi þinnar á Hellissandi og Rifi á Snæfellsnesi, en þar keyptir þú þér bát og stundaðir útgerð í um tvo áratugi. Okkar fyrstu kynni voru í janúarbyrjun 1989, er ég hringdi í þig frá íbúð Sveinbjargar og var með mjög sérstakt og óvænt erindi. Þú lést ekkert slá þig út af laginu og samþykktir bón mína strax með orðum sem ég mun seint gleyma. Við náðum svo að kynnst fljótlega augliti til auglitis og milli okkar var alla tíð mjög þægilegt og innilegt samband byggt á mikilli væntumþykju. Mér fannst þó okkar samverustundir vera allt of fáar og stuttai', enda nokkuð langt á milli heimila síðustu árin og við ódugleg við heimsóknir. Nú geymast góðar stundir í minningunni. Helgina 4.-6. júlí í sumar var haldið íyrsta ættarmót niðja Sveinbjargar Pétursdóttur móður þinnar. Þetta var skemmtilegt og velheppnað mót, þar sem saman kom stór hluti ættarinnar. Engan grunaði þá að ekki væri lengra eftir. Ég bið almáttugan Guð að hugga og styrkja systur þínar þrjár, börnin þín og barnabörn sem og aðra ástvini þína. Ég vil, hér að lokum, fyrir hönd aðstandenda koma á framfæri þakklæti til stai-fsfólks og lækna deildar A7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir góða umönnun og þægilegt viðmót. Jdn Helgi Óskarsson. M varst amma yndisleg og góð, og allt hið mesta gafst þú hverju sinni. Þinn traustur faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gætir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra, nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá, í hljóðri sorg, og ástarþakkir færa. (Ingibj. Sig.) Elsku amma, megi algóður guð umvefja þig ljósi og kærleika og gefa þér frið. Ingólfur Guðbrandsson. Éggræteiengengogþegi, en grátþung er leiðin mín, ó, stoltasta stjama á himni, nú stari ég upp til þín! Það var, og ég vil ekki tefja, ég veit hvar í fjarska skín stoltasta stjama á himni og starir niður til min! (Jónas Guðlaugsson.) Aðfaranótt 18. nóv. kom kallið, þú varst tekin burt frá okkur. Ég hélt alltaf að þú myndir sigra þennan vá- gest, því þú varst svo ótrúlega sterk. Eitt það síðasta sem þú sagð- ir við mig var að þú ætlaðir að lifa gamlárskvöld og njóta dýrðarinnar. Ég veit að þú horfir á dýrðina ann- ars staðar frá og nýtur þess örugg- lega. Með sorgartár á kinn og trega horfi ég til baka og rifja upp ævi okkar. Hve yndisleg árin mín voru með þér, hve góð þú ávallt varst, svo þolinmóð og hlý í návist minni. Hvað ég átti gott að eiga þig að, hve þakklát ég er fyrir að hafa notið góðmennsku þinnar og hjálpsemi. Þau voru svo mörg sporin mín til þín en öll þess virði, elsku amma mín. Ég kveð þig með trega, ég veit að þú ert sæl þar sem þú ert núna. Vertu sæl, elsku amma mín. Elsku mamma, Mac, Aron, Hlyn- ur, Ingó, Rut, Anna, Alex og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur sam- úð mína. Blessuð sé minning henn- ar. Lilja Ljósbjörg. Núna þurfum við að kveðja Hönnu langömmu, hún er farin til guðs. Elsku amma, við söknum þín mikið en reynum að skilja að þér líður vel þar sem þú ert, hjá englunum á himninum, þú verður alltaf hjá okk- ur í huganum. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesú, að mér gáðu. Kveðja. Aron Andri og Hlynur Snorri. Kveðja til langömmu Hjaitkær amma, far í friði fóðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínum litlu vinum frá. Vertu sæl um allar aldir alvaldshendi falin ver, inn á landið unaðsbjarta, englar Drottins fylgi þér. Guð geymi þig. Anna Margrét og Alexandra Rut. + Elskuleg systir mín og mágkona, GUÐBJÖRG MARÍA BJÖRNSDÓTTIR, Þórsgötu 5, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Grund aðfaranótt miðvikudagsins 26. nóvember. Margrét Björnsdóttir, Óli J. Blöndal. + Ástkær eiginmaður minn, ERLINGUR PÁLMASON fyrrv. yfirlögregluþjónn, Lindarsíðu 2, Akureyri, lést miðvikudaginn 26. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Fjóla Þorbergsdóttir. + Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, ÞORGEIR SVEINSSON, Hrafnkelsstöðum, Hrunamannahreppi, Árnessýslu, verður jarðsunginn frá Hrunakirkju laugar- daginn 29. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á öldrunardeild Ljósheima, Selfossi, og Sjúkrahús Suðurlands, Selfossi. Svava Pálsdóttir, Pálmar Þorgeirsson, Ragnhildur Þórarinsdóttir, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Guðmundur Auðunsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Sveinn S. Þorgeirsson, Anna Ringsted, Aðalsteinn Þorgeirsson, Margrét Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + STEFÁN ERNST PETTERSEN verður jarðsettur frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 29 nóvember kl. 14.00. Aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.