Morgunblaðið - 28.11.1997, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.11.1997, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Ólafsvíkurkirkja 30 ára Hellissandi - Sunnudaginn, 16. nóv- ember 8.1. kl. 14.00 yar þess minnst við hátíðarmessu í Ólafsvíkurkirkju, að 19. nóvember 1967 var þetta guðshús vígt og formlega tekið í notkun. Fyrir utan nýstárlegt lag hússins og hvemig það höfðaði til þess stað- ar sem það stóð á, því kirkjan minnir á skip, þá var gert ráð fyrir safnaðar- heimili í kjallara hússins sem reynst hefur söfnuðinum sérlega vel. Arki- tektinn var Hákon Hertervig úr Reykjavík. Byggingameistari var Böðvar Bjamason í Ólafsvík. Nýja Ólafsvíkurkirkja kom í stað gömlu kirkjunnar sem stóð niður á Snopp- unni og þjónaði þorpinu í 70 ár. Sú kirkja tók við af gömlu Fróðárkirkju sem staðið hafði í aldaraðir. Við hátíðarmessuna prédikaði biskup íslands hr. Ólafur Skúlason, sóknarpresturinn sr. Friðrik J. Hjart- ar þjónaði fyrir altari ásamt prófasti sr. Ingiberg J. Hannessyni. Nokkrir prestar prófastsdæmisins og fjöldi sóknarnefndaformanna þágu boð um að taka þátt í athöfninni. Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju söng undir stjórn organistans Kjartans Eggertssonar Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson KÓR Ólafsvíkurkirkju söng við hátiðarmessuna. og Veronika Osterhammer söng ein- söng. Athöfnin var fjölsótt og hin hátíðlegasta. Að henni lokinni var boðið til veglegr- ar kaffidrykkju í félagsheimilinu Klifi , þar sem borð svignuðu undan veg- legum veitingum og ræður voru flutt- ar í tilefni þessa merkisdags Ólafsvík- urkirkju. Formaður sóknamefndar er Stefán Jóhann Sigurðsson. Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason ÖSKUHAUGARNIR við Stykkishólm eru lítið augnayndi og Hólmarar og bæjaryfirvöld skammast sín fyrir ástandið. Sorphaugum við Stykkis- hólm lokað 1. mars nk. Stykkishólmi - Flestum ferða- mönnum finnst Stykkishólmur fal- legur og snyrtilegur bær. Bæjarbúar eru sammála því, en eitt er það sem þeir skammast sín fyrir. Það eru öskuhaugarnir fyrir ofan bæinn. Þeir eru opnir og öllu sorpi er ekið þangað og brennt á opnu svæði. Eins er lífrænum úrgangi ekið þang- að og á góðum sumardögum er þar varla líft. Bæjaryfirvöld hafa gert sér grein fyrir þessu vandamáii i langan tíma. Stefna sveitarfélaganna á Vest- urlandi er að útbúa einn urðunarstað fyrir Vesturland. Þar sem kröfur til urðunarstaða era miklar og dýrar er varla gerlegt fyrir hvert og eitt sveitarfélag að fara út í slíkar fram- kvæmdir. Því vilja sveitarfélögin taka höndum saman í þessu verkefni. Það eru mörg ár síðan byijað var að leita að landi fyrir urðun sorps, en hægt gengur. Fyrir nokkrum árum var keypt jörðin Fiflholt á Mýrum og þá vora menn bjartsýnir á að lausn væri í sjónmáli. En svo reyndist ekki vera. Það gengur erfiðlega að fá leyfí frá umhverfisráðuneytinu. Nú er þolinmæði bæjarstjórnar Stykkishólms á þrotum. Á fundi bæjarráðs 6. nóvember sl. var lögð fram skýrsla Línuhönnunar um jarð- gerð. Þar hefur verið gerð forathug- un á kostnaði og ábata Stykkis- hólmsbæjar af flokkun sorps og lág- mörkun sorpflutninga. Sótt hefur verið um styrk hjá Rannsóknarráði íslands vegna framhalds á verkefn- inu. Á þessum fundi samþykkti bæj- arráð að loka núverandi sorphaugum ekki seinna en 1. mars nk. Leitað verði eftir samningum við urðunarað- ila þar til sameiginlegur urðunarstað- ur fyrir Vesturland verður tilbúinn. Sunnudags Mogginn fyrr til Hólmara Stykkishólmi - Tvo síðustu laugar- daga hefur sunnudagsblað Morgun- blaðsins borist inn um lúgu áskrif- Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Þorvaldur Ólafsson er sam- viskusamur að koma Morgun- blaðinu strax til áskrifenda. enda í Stykkishólmi. Blaðið er komið til áskrifenda um kl. 19 á laugardag. Hingað til hefur blaðið borist til bæjarbúa um kl. 23 eða síðar á sunnudagskvöldum. Þetta þykir ef til vill ekki mikil frétt, en Hólmarar eru mjög ánægðir með þessa auknu þjónustu blaðsins við áskrifendur. Sunnudagsblaðið er oft efnismikil og margt fróðlegt þar að fínna. Þeg- ar blaðið kom seint á sunnudags- kvöldum voru margir lesendur langt fram í vikuna að lesa blaðið þar sem vinnuvikan var hafin. En nú geta bæjarbúar lesið sinn Mogga í róleg- heitum á sunnudagsmorgnum eins og stærstur hluti landsmanna. Að sögn umboðsmanns Morgun- blaðsins er sunnudagsblaðið sótt í Borgarnes er það kemur þangað með áætlunarbíl seinni part laugardags og dreift strax til áskrifenda. Bingó Flateyri - Haldið var bingó í Grunn- skólanum að Holti í Önundarfirði sunnudaginn 16. nóv. Það var íþróttafélagið Grettir sem stóð að bingóinu en tilgangurinn með bingó- inu var sá að styðja við bakið á efni- legum hópi ungmenna úr sveitinni sem hyggur á för í æfingabúðir til skíðaiðkana í næsta mánuði. Fjölmenni var í bingóinu og mikil spenna lá í loftinu enda ódýr bingó- spjöld og enginn vinningur undir 200 krónum. Vinningar eins og 10 kg kartöflupokar og lambaskrokkur, ásamt samlokugrilli og sæluferð á Ingjaldssand, allt þetta og meira til ýtti undir spennuna. Morgunblaðið/Egill Egilsson ÞESSI ungi drengur fylgdist áhugasamur með bingóinu. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir GUÐRÚN A. Eiríksdóttir og Helgi Bjarni Óskarsson á Kanslaranum. Þrjú fyrirtæki undir eitt þak Hellu - Hjónin Guðrún A. Eiríks- dóttir og Helgi Bjarni Óskarsson á Hellu hafa tekið í notkun nýbygg- ingu sína sem hýsir veitingastað þeirra Kanslarann auk söluskála og myndbandaleigu sem þau reka. I húsinu er einnig Hársnyrtistofan Hárfínt og umboð Vátryggingafé- lags íslands en húsið stendur í al- faraleið við Suðurlandsveg. Þessi fyrirtæki hafa öll verið starfrækt um árabil á Hellu nema nýi veitingastaðurinn sem er viðbót við rekstur þeirra hjóna. Á mynd- inni til hægri era Guðbjörg Óskars- dóttir, umboðsmaður VÍS á Hellu, Anna Guðrún Jónsdóttir, eigandi Hársnyrtistofunnar Hárfínt, og Anna Fía Finnsdóttir, starfsmaður hennar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.