Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 47

Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tölvur við hátíðleg* tækifærí Á ÞVÍ leikur enginn vafí að Háskóli Islands, stúdentar og stjómvöld gera sér grein fyrir því að það vinnuumhverfi sem stúdentum og starfsmönnum Háskól- ans er skapað er gríðar- lega mikilvægt. Háskóli íslands væri svipur hjá sjón án þeirra bygginga sem starfsemi hans fer fram í, þess bóka- og ritakosts sem til afnota er og án tölva væri Há- skólinn algjörlega úr takt við tímann. Það er vegna tölvu- tækninnar sem stúdent- ar geta nú tekið þátt í námi í erlend- um háskólum, fylgst með námskeið- um í Háskóla Islands hvaðan sem er í heiminum og gert nám sitt mark- vissara og skilvirkara á margan hátt. Óviðunandi vinnuaðstæður Það hlýtur því að skjóta skökku við þegar nám stúdenta byggist í sí- auknum mæli á upplýsingatækninni að þá séu í Háskóla Islands aðeins 116 tölvur til afnota fyrir um 5.800 nemendur eða fimmtíu stúdentar um hverja tölvu. Það liggur í augum uppi að sú vinnuaðstaða sem stúd- entum er þar með boðið upp á er engan veginn viðunandi. Ekki nóg með það heldur hefur stór hluti stúd- enta ekki aðgang að tölvum og nettengingu í þeim byggingum þar sem þeir stunda nám sitt. I allri kennslu er gert ráð fyrir fæmi og kunnáttu stúdenta á tölvur en þeim gefst ekki kostur á nægilegri þjálfun í tölvunotkun. Fögnr fyrirheit Ekki hefur vantað fógur orð stjómmálamanna við hátíðleg tæki- færi um mikilvægi upp- lýsingabyltingarinnar fyrir íslenska þjóð. Is- lendingar þurfa að vera í takt við tímann og intemetið hefur skapað mikla möguleika fyir ís- lenskt efnahagslíf. En þegar kemur að efndum um horfir annað við. í Háskóla Islands era af þessum 116 tölvum til afnota fyrir stúdenta aðeins 98 viðunandi samkvæmt Reiknistofn- un Háskóla Islands. Á undanfömum mánuðum hefur Islendingum ver- ið tíðrætt um stöðu sína í alþjóðlegum samanburði. Islending- ar eiga ekki að verða eftirbátar ann- arra þjóða eigi þeir að tryggja stöðu sína í alþjóðlegri samkeppni um æsku heimsins. Hvemig stendur þá á því að fimmtíu stúdentar í Háskóla Islands era um eina tölvu á meðan Singapúrbúar telja óviðunandi að þar sé ein tölva á tvo nemendur? Ætli svarið liggi ekki í metnaði eða metn- aðarleysi stjómvalda. Tvöföldun tölva í fjárlögum ríkisstjómarinnar fyr- ir næsta ár er gert ráð fyrir um 60 milljón króna fjáraukningu til Há- skóla íslands. Sú aukning dugir þó engan veginn sé Háskóla íslands ætlað að standa jafnfætis öðram skólum á háskólastigi hér á landi. Háskólinn hefur því lagt fram vel rökstuddar tillögur um 230 milljón krónur til viðbótar sem er í raun lág- marksfjárkrafa skólans. Af þessum 230 milljónum hefur Háskólinn hug á að nota um 25 milljónir til þess að bæta tölvukost háskólastúdenta. Hægt væri að setja upp og halda við um 100 nýjum tölvum fyrir þessa Hvernig stendur á því, spyr Dalla Olafsdóttir, að fímmtíu stúdentar í Háskóla Islands eru um eina tölvu. fjármuni. Þannig myndi sá tölvu- kostur sem stúdentar hafa til afnota nær tvöfaldast. Þessi 25 milljón króna aukning á fjárframlögum til Háskólans gæti því þýtt að stúdentar í öllum bygg- ingum Háskólans hefðu aðgang að tölvu og interneti, langur biðtími eft- ir tölvum myndi styttast til muna og stúdentar ættu auðveldara með að tileinka sér þá fæmi og kunnáttu á tölvur sem nauðsynleg er í dag. Kjarkur stjórnvalda Eg geri orð Björns Bjamasonar, menntamálaráðherra, að mínum þegar hann sagði á menntaþingi fyr- ir rúmu ári að íslendingar verði að hafa kjark til að meta menntun að verðleikum. í þessu felst að stjóm- völd verði líka að hafa kjark til að viðurkenna þá staðreynd að mennt- un er fjárfesting til frambúðar. Sú fjáraukning sem Háskóli ís- lands óskar eftir frá ríkinu er ekki mikil sé horft til umsvifa ríkisins og mun skila sér margfalt til baka. Staðreynd málsins er sú að góður tölvuaðbúnaður getur skipt miklu um samkeppnisstöðu íslendinga í framtíðinni. Það er kominn tími til að fá það viðurkennt í verki, sem menn forgangsraða í orði, þegar þeir segj- ast vilja hlut menntunar sem mestan og bestan. Höfundur er franikvæmdastjdri Stúdeutaráðs. Dalla Ólafsdóttir Tilboðsverð 26. nóvember til 3. desember 1997 Raubar úlpur, 3 litir: rau&f bló og grœn. Drapplitar úlpur, 3 iitir: rauð, bló og drapp. Melka Qualitv Men’sWeak HAGKAUP fltrirflölsbflduHtL Verb óbur 14.495 FOSTUDAGUR 28. NOVEMBER 1997 4«? mtfmm ^ miíItNi www.centrum.is/leidarljos EPSON Ljósmyndaprentun auðveldari en nokkru sinni fyrr með nýja Epson Stylus Photo bleksprautuprentaranum Gæði prentunarinnar í Epson Stylus Photo prent- aranum eru hreint út sagt frábær, þökk sé hinni nýju Epson PRQ tækni (Photo Reproduction Quality). Nú getur þú notið þess að fylgjast með Ijósmyndunum þinum verða að veruleika heima hjá þér. Með því að taka myndirnar á stafræna myndavél frá Epson, vista þær inn á tölvuna þína og prenta út með Epson Stylus Photo bleksprautuprent- aranum, losnarðu við hið hefðbundna fram- köllunarferli. Auk þess getur þú lagfært og breytt eigin myndum eftir smekk og prentað út eins mörg eintök og þú þarft, allt upp í A4 stærð. Ljósmyndaprentun hefur aldrei verið auðveldari en einmitt núna. C\ ÞÓR HF Ármúla 11 - B(m Tæknival Skclfunnl 17 108 Reykjavfk Slmi 5SO 4000 F«x 550 4001 Netfang: mottckaOtaeknival.it Rcykjavlkurvegi 64 220 Hafnarfirði Siml SSO 4020 Fax 550 4021 Netfang: fjordurOtaeknival.it

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.