Morgunblaðið - 28.11.1997, Page 72

Morgunblaðið - 28.11.1997, Page 72
72 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 í . • .. X HÁSKÓLABÍÓ * HASKOLABIO Hagatorgi, simi 552 2140 Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. STRANGLfGA BONNUS INNAN BARA r.thegame.com Andv Garcia Richard Drevfus Lena Olin I borg 9 milljóna manna, er pláss fyrir einn heiðarlegan inann? Toppleikarinn Andy Garcia (The Untouchables, The Godfather) og Óskarsverölaunahafinn Richard Dreyfuss (The American President. Close Encounters of the Third Kind) i mynd eftir snillinginn Sidney Lumet (Serpico. The Verdict). Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. ^ Frumsýning kl. 5, 7, 9 og 11. Enskt tal. strákaveiðum ** M ★★★ Mbl. Sýnd kl. 9. Sýnd Id. 9og 11.10. bj.16. HARRISON FORD ★★ Mbt. ★★★ Dagur R FORCE ONE Sýnd kl. 5, 9 og 11.10 bj. i« R0BIN WILUAMS BIU.Y CRYSTAL DACUR Sýnd kl. 5 og 7. FACE/OFF Sýnd kl. 11. B.i 16. Periur og Svín Sýnd kl. 7.10. www.samfilm.is kl. 9 og 11.15. Sýnd kl. 5.15, 6.45, 9 og 11.15. B.i. 12 ára Fyrir alla fjöl- skylduna Inga Lísa Middleton leikstjóri 1 og Davíð Þór Jónsson annar höfunda voru sammála um hverjir ættu að horfa á Jóla- dagatalið þegar Hildur Lofts- dóttir forvitnaðist um gerð þess í Sjónvarpshúsinu. LEIKSTJORANUM Ingu Lísu Middleton finnst Klængur ekki bara sniðugur heldur líka fyndinn. SNORRI Freyr Hilmarsson leikniyndahönnuður heilsar upp á nýju félagana sína. Morgunblaðið/Ásdís SIGRÚN Erna Sigurðardóttir heldur á Haraldi íkorna, Helga Steffensen á Selnum með leppinn svarta, — vJGuðmundur Kárason brúðugerðarmeistari er með Klæng sniðuga og Sigþór Albert Heimisson með Grálúð- una geðvondu. JÓLADAGATAL Sjónvarpsins er mikið tilhlökkunarefni ár hvert hjá börnunum. Sagan af Klængi sniðuga er brúðumynda- þáttaröð sem hefst 1. desember og verður daglega á skjánum fram á aðfangadag. Inga Lísa: „Uppfinningamaður- inn Klængur sniðugi frá Klængs- hóli í Hólasveit verður iyrir því óhappi að prófa nýju vængina sína þegar á skellur stormur, og hann þeytist langt inn í dalinn mikla, og sagan gengur út á það að hann komist heim fyrir jól. Hann eign- ast góðan félaga á leiðinni heim, Harald íkorna, og þeir fara niður Fljótið mikla í fljótabát Selsins með leppinn svarta og Grálúðunn- ar geðvondu sem er stýrimaður.“ Davíð: „Þegar Sigurður Val- geirsson dagskrárstjóri bað okkur Stein Ármann um að skrifa jóla- dagatalið saman, þá leist okkur strax vel á það. Okkur fannst það viss áskorun, og komum þá upp með Klæng sniðuga. Nokkrar per- sónur byggjum við á persónum sem æskuvinur okkar úr Hafnar- firði Úlfur Karlsson fann upp á, og með hans leyfi fengum við þá í að- alhlutverkin.“ Inga Lísa: „Þegar ég var búin að hlæja mig máttlausa yfir handrit- inu, sem er ofsalega skemmtilegt, þá sló ég til og tók leikstjórnina að mér. Við sem vinnum að þessu erum öll org- andi af hlátri, og ég er —— viss um að börnin munu hlæja líka. Þetta er lifandi ævin- týri með óútreiknanlegum persónum og hressilegri atburða- rás.“ Davíð: „Sagan er skrifuð með börn í huga, en hún er í raun fyrir alla fjölskylduna. Við hefðum aldrei skrifað neitt sem okkur sjálfum hefði leiðst yfir, þá hefðum við aldrei klárað verkið!“ Inga Lísa: „Davíð og Steinn hafa líka samið 16 söngtexta sem Máni Svavarsson samdi svo tónlist við sem lætur vel í eyrum. Guð- mundur Kárason býr til flóknustu brúðurnar sem eru alls tíu, eftir teikningum Snorra Freys Hilmarssonar sem einnig gerir svo fallega leikmynd að það er alveg með ólíkindum. Handritið er nefni- Eg vil gera efni sem höfð- ar til allra lega mjög ævintýralegt; það eru allskonar Indiana Jones ævintýri í því, þeir lenda inni í musteri og í ýmsum hættum og það er allt út- fært á mjög sniðugan hátt. Helga Steffensen, Sigrún Erla Sigurðardóttir, Guðmundur Kára- son og Sigurþór Albert Heimisson stjórna brúðunum og fjórir leikar- ar sem tala inn á fyrir þær. Laddi er Klængur, svo eru það Arnar Jónsson, Sigrún Edda Björnsdótt- ir og Jóhann Sigurðarson." Davíð: „Það er boðskapur í öll- um góðum sögum, en við Steinn vorum ekki að reyna að troða boð- skap í þessa sögu. Satt best að segja er Klængur sniðugi ekkert sérstaklega geðþekk persóna, en áhorfendum mun örugglega fara að þykja vænt um hann eins og manni fer að þykja vænt um fólk með kostum þess og göllum. Það eru engar meðvitaðar predikanir í sögunni, _ og nákvæmlega ekkert ofbeldi. Eg held að þegar upp er staðið þá sé boðskapurinn um- burðarlyndi og náungakærleikur." Inga Lisa: „Mér finnst þetta rosalega gaman, og hópurinn sem ég hef fengið til að vinna með er alveg frábær, en það hefði mátt vera meiri tími. Það er líka ánægjulegt að vinna með Davíð Þór og Steini þótt þeir séu ekki mikið á svæð- inu. Það þarf að breyta, stytta og laga, og það verður allt að gerast í ii " samvinnu við höfundana, sem gengur eins og í sögu.“ Davíð: „Ég held að þetta sé ekki endilega barnaefni, heldur frekar fjölskyiduefni og það sem okkur Steini fannst svo heillandi við þetta verkefni var að reyna að skrifa eitthvað þar sem okkar húmor svífur yfir vötnunum, en er hugsað fyrir alla íjölskylduna.“ Inga Lísa: „Ég vil bara gera efni sem höfðar til allra. Stuttmyndim- ar mínar hafa skemmt jafnt tveggja ára börnum sem áttræðum gamalmennum. Ég vii halda því áfram. Þannig verður það með Jóladagatalið, þar sem það er ekki verið að tala niður til barnanna eða predika. Þetta er fyrst og fremst spennandi og gáskafullt ævintýri fyrir alla fjölskylduna.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.