Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 1
B L A Ð
ALLRA LANDSMANNA
1998
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANUAR
BLAÐ
B
FRJALSIÞROTTIR / IR-MOTIÐ
ÉjEj H \
w mg J.
^ ^ ^ ^ ^ ^ Morgunblaðið/Kristínn
„Vart getað boðið upp
á skemmtilegra mót“
Kristinn í
sama flokk
og Jón Arnar
og Guðrnn
KRISTINN Björnsson kemur
heim til íslands í dag. Hann
inun dvelja í nokkra daga
heima þar sem hann mun
m.a. gera nýjan samning við
afreksmannasjóð íþrótta- og
ólympíusamhands lslands áð-
ur en hann fer á Ólympíuleik-
ana í Nagano. Hann fer í
sama flokk og Jón Arnar
Magnússon og Guðrún Arnar-
dóttir. Hann verður styrktur
með sama hætti og þau fram
yfir heimsmeistaramótið á
næsta ári. Þessi nýi samning-
ur tryggir Kristni 160 þúsund
krónur á mánuði frá afreks-
mannasjóði eins og þau Jón
Arnar og Guðrún hafa fengið.
BRÁÐSKEMMTILEG keppni var á
stórmóti ÍR sem fram fór í Laugar-
dalshöll á laugardaginn en engin
met voru þó sett eins og í fyrra.
Næst því komst Vala Flosadóttir,
ÍR, er hún jafnaði eigið Norður-
landa- og íslandsmet, 4,20 m. Guð-
rún Arnardóttir, Armanni, varð
fyrst í 50 m grindahlaupi og önnur í
50 m hlaupi. Jón Arnar Magnússon,
Tindastóli, varð að gera sér annað
sætið að góðu í þríþraut eftir harða
baráttu við heimsmeistarann í tug-
þraut, Tomas Dvorak frá Tékklandi.
Rúmlega 1.000 áhorfendur komu og
veittu keppendum góðan stuðning.
Guðrún, Jón Arnar og Vala höfðu
ekki aðeins nóg að gera í keppninni
heldur komust færri að þeim en
vildu til þess að fá eiginhandarárit-
anir. Hér á myndinni fyi-ir ofan er
Jón að gefa stórum hópi aðdáenda
eiginhandaráritun að keppni lokinni.
„Framkvæmd mótsins og umgjörð
þess tókst vel en ég hefði gjarnan
viljað fá þrjú til fimm hundruð
áhorfendur til viðbótar," sagði Vé-
steinn Hafsteinsson mótsstjóri.
„Það tekur sinn tíma að koma lands-
mönnum upp á bragðið með mót
sem þetta og við verðum bara að
vera þolinmóðir. Á meðan við kom-
um ekki út úr mótinu með tapi er
allt í lagi.“
Vésteinn sagði að frammistaða
Völu hefði verið mesta ánægjuefnið í
sínum huga. „Hún reyndi hér við
Evrópumet og var alls ekki langt frá
því að fara yfir. Þá hefði ég viljað sjá
Bartovu setja a.m.k. Evrópumet í
stangarstökkinu, en hún var nærri
því og það var blandað óheppni."
Einnig sagði hann að árangur
Einars Karls hefði vakið athygli þar
sem hann var að reyna við íslands-
met. Keppnin í þríþraut hefði verið
góð og einvígi Guðrúnar og Inge-
borgar Leschnik hefði verið spenn-
andi.
„Við hefðum vart getað boðið upp
á skemmtilegra mót, svo ég er sátt-
ur, en ég vil taka það skýrt fram að
það hefði aldrei tekist hefði ekki
komið nálægt því fjöldi starfsmanna.
Frjálsíþróttadeild ÍR er alltaf að efl-
ast og með sameiginlegu átaki fjöl-
margra tókst að gera þetta að veru-
leika. Enginn einn eða tveir geta
gert svo stórt mót sem þetta að
veruleika. Þótt e.t.v. hafi mest borið
á mér og Þráni Hafsteinssyni móts-
stjóra er það samstaðan og fórnfýsi
fjölda ÍR-inga sem gerði það að
raunveruleika."
■Metajöfnun B/8
ÍSFIRÐINGAR SETJA STEFNUNA Á „BORGARÍSJAKANN“ / B10
VINNINGSTOLUR LAUGARDAGINN
24.01.1998
vinnings
upphæð
Fjöldi
vinninga
vinningar
2.037.610
303.490
12.980
3.4af5
4. 3 af S
1.710
690
4.027.220
1.750
Samtals:
HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ:
4.027.220
LBT,T#
VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN
14.01.1998
BÓNUSTÖLUR
• Lottómiðinn með bónus-
vinningnum sl. laugardag
var seldur í Skalla við
Hraunbæ í Reykjavík.
Lottómiðinn (7 talna kerf-
isseðill) sem hafði að
geyma tæpar 45 m kr. í
Víkingalottóinu sl. mið-
vikudag var keyptur f
Nætursölunni á Akureyri.
íslensk getspá óskar vinn-
ingshöfunum til hamingju
með árangurinn.