Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR BREIÐABLIK Adalfundur körffuknattleiksdeildar Munið aðalfundinn í Smáranum í kvöld kl. 20.00. Dagskrá skv. lögum félagsins. Stjórnin. Unqmennafélaqið Einherii. Vopnafirði Knattspymudeild Einherja auglýsir eftir knattspyinuþjálfara fyrir meistaraflokk karla, sem leikur í 3. deild 1998. Einnig vantar spilandi biálfara fvrir meistaraflokk kvenna. sem leikur í 2. deild 1998. Upplýsingar i sima 473 1348, Bjöm, eða 473 1108, Aðalbjöm. Glæsilegur endasprettur KFI kom Njarðvíkingum á kné Þjálfari Vegna mikillar aukningar óskar skíðadeild Víkings að ráða skíðaþjálfara eða kennara strax. Vinnutími er um helgar. Upplýsingar eftir kl. 19 (Þórdís) í síma 553 2125 og (Margrét) í síma 565 6899. Það ríkti mikil spenna fyrir und- anúrslitaleikinn, nágrannaslag- inn, á milli Grindavíkur og Keflavík- Bmmgg ur á sunnudagskvöld Garðar Páll og flestir á því að Vignisson hér væri um úrslita- sknfar leik keppninnar að ræða. Þessi spenna var sjáanleg á leikmönnum beggja liða í byrjun og mikið um fum og fát. Báðum liðum gekk illa að hitta körf- una og eftir tæplega fjögurra mín- útna leik bað þjálfari Grindvíkinga um leikhlé. Þá var staðan 4:8 en lítið breyttist leikur heimamanna til batnaðar og Keflavíkurstúlkur komust hægt og rólega út úr byrjun- arspennunni. Pressuvöm Keflavíkur sem framan af leik virkaði ekki fór að hafa áhrif og enn meiri tauga- spenna sýndi sig hjá heimamönnum. Um miðjan hálfleik höfðu Keflvík- ingar náð 10 stiga mun sem þær juku hægt og örugglega. í raun ldár- uðu gestimir leikinn í fyrri hálfleik og leikurinn náði aldrei að vera spennandi en í hálfleik var staðan 21:40. Heimamenn komu eitthvað frísk- ari til seinni hálfleiks en Keflavíkur- stúlkur gáfu ekkert eftir þannig að engin ógnun varð í seinni hálfleik. Leiknum lauk svo með mjög öragg- um og verðskulduðum sigri gestanna sem skomðu 75 stig gegn 50 stigum Grindavíkurstúlkna. Bestar í liði gestanna vora Jenny Beucek sem spilaði frábærlega vel bæði í sókn og vörn og skoraði 29 stig. Þá spiluð báðar Erlumar frá- bærlega en sennilega var baráttu- gleðin það sem skildi hðin hvað mest að. í daufu liði heimamanna er ekki hægt að nefna neinn sem skar sig úr, þær náðu einfaldlega aldrei að kom- ast í takt við leikinn. Anna María Sveinsdóttir, þjálfari Keflavíkurliðsins, var að vonum kampakát að leik loknum og sagði: „Við byrjuðum vel, spiluðum frá- bæra vörn og reyndar allan tímann. Viljinn til að sigra fleytti okkur langt þótt við hefðum verið örlítið stress- aðar í byijun. Það er gaman að spila í Höllinni og þangað ætluðum við og okkur tókst það. Við mætum þangað síðan að sjálfsögðu til að sigra.“ Stefnan „Borgarísjakann" ÍSFIRÐINGAR virðast hafa sérstakt lag á að sýna allar bestu hliðar sínar þegar mikið liggur við. Á sunnudag báru þeir sigurorð af Njarðvíking- um í undanúrslitum bikar- keppninnar, 99:70, í „ísjakan- um“ á Torfnesi á ísafirði. KFÍ leikur því við Grindavík í úr- slitaleik keppninnar 14. febr- úar nk., en af framgöngu ísfir- skra stuðningsmanna að dæma verður Laugardalshöll- in gerð að „Borgarísjaka“ í einn dag. Orð Friðriks Stefánssonar, hins stóra og stæðilega leikmanns KFI, í lok leiksins á sunnudag, vora einkennandi fyrir Edwin framgöngu liðsins: Rögnva/dsson (jVið neitum að gef- skrifar ast upp. Það gildir einu hver mótherj- inn er - við gefumst bara ekki upp!“ Þessi mikli baráttuvilji ísfirðinga og dyggur stuðningur áhorfenda gerði þeim kleift að stíga mikilvægt skref í átt til sigurs snemma í síðari hálf- leik, þegar þeir grænklæddu virtust á góðri leið með að tryggja sér rétt til að leika í Höllinni um miðjan febrúar. Gestimir frá Suðumesjum höfðu eins stigs forskot í leikhléi, 42:41, en þá studdist liðið við pressuvöm, sem gafst oft vel. Þessa vöm notuðu Njarðvíkingar lítið í síðari hálfleik, en að öðra leyti léku bæði lið vöm- ina maður gegn manni. Leikurinn snerist heimamönnum í hag þegar um þrettán mínútur vora eftir af honum. David Bevis jafnaði fyrir KFÍ, 55:55, eftir að gestimir höfðu náð sjö stiga for- ystu. I kjölfarið fékk Njarðvíking- urinn Kristinn Einarsson fimmtu villu sína og varð að fara af velli. „Það var vissulega mikið áfall að missa hann, því honum hafði vegnað vel við að gæta Bevis. Auk þess er hann reyndur leikmaður og því er hann okkur mikilvægur," sagði Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson DAVID Bevis, leikmaður KFÍ, lék mjög vel í undanúrslitaleiknum við Njarðvík á ísafirði, en þá gerði hann 31 stig og tók 19 frá- köst. Hér reynir Hann skot án þess að Petey Sessoms, besti maður Njarðvíkur f leiknum, fái nokkuð að gert. Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarð- víkur. Hann tók leikhlé samstundis og „Isfólkið", stuðningsmenn KFI, skynjaði um leið hvað var í uppsigl- ingu - branabjöllur hringdu vegna hitans, sem myndaðist í húsinu. Gestimir gerðu fyrstu körfuna eftir þetta leikhlé sitt, en það var í eina skiptið sem þeir höfðu yfir- höndina þar til yfir lauk. Marcos Salas kom heimamönnum yfir með þriggja stiga körfu og gaf tóninn, en Spánverjinn snjalli gerði nokkrar mikilvægar körfur. Þegar rúmar fimm mínútur vora til leiksloka vora ísfirðingar komnir með fjórtán stiga forskot, 74:60, en á kafla gerðu þeir fimmtán stig í röð án þess að Njarðvíkingar næðu að svara. Njarðvíkingar gerðu sjálfir aðeins fimmtán stig á jafnmörgum mínút- um. Frá og með umræddum spretti KFÍ var viðureignin einungis leikur kattarins að músinni. David Bevis var bestur Isfirðinga, gerði 31 stig og tók 19 fráköst. Friðrik Stefáns- son var sterkur undir körfunni sem fyrr og þeir Ólafur Jón Ormsson og Marcos Salas voru mjög traustir. ísfirðingar léku án Péturs Sigurðs- sonar, sem er meiddur, en auk þess vora nokkrir leikmenn liðsins rétt að jafna sig eftir veikindi. Petey Sessoms var bestur í liði Njarðvíkur, gerði 27 stig og tók tíu fráköst. Teitur Örlygsson lét ekki nógu mikið að sér kveða í sóknar- leiknum, gerði ellefu stig. Logi Gunnarsson er þó ungur og efnileg- ur bakvörður, sem var á meðal bestu manna Njarðvíkinga í leikn- um. Friðrik Ragnarsson átti þokka- legan leik, en hann og Örlygur St- urluson sldptust á um leikstjóm- andahlutverldð. Höfðum meiri sigurvilja „Þetta er það sem íþróttir snúast um. Eg hef komist nokkram sinnum í úrslitaleiki og þeir standa upp úr á ferlinum. Við eram aftur á móti ekki sáttir við að komast bara í úr- slitaleikinn - við viljum vinna hann,“ sagði Guðni Ó. Guðnason, leikmaður og þjálfari KFI, sem lék áður með KR. En hvað telur hann að hafi orðið til þess að lið hans branaði fram úr þegar síðari hálf- leikur var tæplega hálfnaður? „Ég veit það í rauninni ekki. Við fóram að leika öfluga vöm, en ég gæti trú- að að Njarðvfldngamir hafi hrein- lega misst trúna. Við höfðum ein- faldlega meirz sigurvilja en þeir,“ sagði Guðni. Skyldu- mæting í Höllina ÍSFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík hefur í hyggju að senda um tólf hundruð fé- lagsmönnum sínum dreifi- bréf, þar sem skyldumæting verður ítrekuð á bikarúr- slitaleik KFÍ og Grindavíkur í Laugardalshöll hinn 14. febrúar. Meðlimir í félaginu eru brottfluttir ísfirðingar, sem búa á höfuðborgar- svæðinu og næsta nágrenni þess. „Eins og menn væru hættir“ FRIÐRIK Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkur, var vitaskuld vonsvik- inn í leikslok. „Ég hélt okkur vera að hafa það,“ sagði hann. „Við bjuggum okkur mjög vel undir ' þennan leik og við vissum ná- kvæmlega hvað við þurftum að gera til að stöðva þetta lið. Við gerðum það í þijátíu mínútur og mér fannst við hafa undirtökin. Einnig fannst mér leikurinn fara í taugamar á Isfirðingunum, því þeim tókst ekki að blanda Bevis nógu mikið í baráttuna og þriggja stiga skyttumar þeirra fengu ekki að njóta sín. Síðan gerðist eitthvað þegar átta til tíu mínútur vora liðnar af síðari hálfleik, þá var eins og menn væru hættir. Það var ekki heil brú í sóknarleik okkar. Við gátum alveg eins bara rétt þeim boltann og sagt þeim að gera svo vel,“ sagði Frið- rik. Öruggt hjá Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.