Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 B 5 Dæmi um hvað vítamín og steinefni gera fyrit- þig A-vitamín Nsucsyníegt tii ísxxsr cg yicteíds vefja. y.cnsídJMTTykf cc he ;cr gð ncrunds. ver siimniíð' t rrcnni. nefj sykfngcm cc bœ:?r sjc*?' H;aícar y c B2-vítamin Hjalpar . c ac .'"y.a cv'v -ca . va?. - Niacin . Z nk i S:: , * ‘■vur ac $í.r r’o = s:cc-c e -s c ccs ~s Upplýsingar um næringarinnihald: í 38 gr. bréfi blönduöu f 284 ml. af mjólk % af RDS Orka kj kcal 1395 330 Prótín g 18,0 Kolvetni g 37,1 þar af sykur g 36,5 Fita g 12,4 þar af mettuð g 7,5 Trefjar g 0,6 Natríum g 0,4 Kalíum mg 810 Vftamfn_______ A-vitamín B1-vítamín B2-vitamín B6-vitamin B12-vitamín C-vítamín D-vítamín E-vítamin Bíótín Fólín Níasín Pantótenat Stelnefni Kalk Joö Járn Magnesíum Fosfór Zink ag 300,0 38% mg 0,6 43% mg 1,0 63% mg 0,9 45% gg 1,7 170% mg 23,0 38% 99 1,8 36% mg 3,3 33% mg 0,06 40% ng 84,0 42% mg 6,2 34% mg 3,0 50% mg 607,0 76% gg 94,0 63% mg 5,5 39% mg 132,0 44% mg 534,0 67% mg 6,3 44% SKÍÐI Build-ui Nestlé Build-Up er bragögóöur drykkur sem inniheldur 1/3 af ráðlögöum dagskammti (RDS) af 12 vítamínum og 6 steinefnum auk prótíns og orku Build-Up eftir veikindi Sér til þess að þú færð öll réttu næringarefnin til þess að ná skjótum bata Build-Up fyrir alla Góð aðferð til þess að auka neyslu vítamína og steinefna þegar þú þarft á aukakrafti aö halda. Hentar börnum (eldri en 3ja ára) sem eldra fólki og öllum þar á milli. Build-Up á meðgöngu og með barn á brjósti Tryggir að nægilegt magn næringarefna sé til staðar á þessum mikilvæga tíma Build-Up - fljótlegur drykkur Eitt bréf út í kalda eða heita mjólk eða ávaxtasafa gefur þér fljótlegan og bragðgóðan drykk stútfullan af næringarefnum Valur Jonatansson skrifar írá Austumki THOMAS Stangassinger og nafni hans, Sykora, urðu í tveimur efstu sætunum í heimsbikarmótinu í svigi í Kitzbúhel á sunnudag, en Sykora hafði betur í gær. Þessir tveir Austurríkismenn hafa verið sterkustu svigmenn heims í vetur. Þetta var þriðji sigur Stangassingers í svigi. Norðmennirnir Ole Christian Furuseth og Hans-Petter Bura- as höfnuðu í þriðja og fjórða sæti. Stangassingar var með besta tímann í fyrri umferð og þrátt fyrir að millitími hans í síðari um- ferð hafi verið að- eins lakari en Sykora, sem fór næstur á undan, keyrði hann neðri hluta brautarinnar af miklum krafti og kom á 0,08 sekúndum betn sam- anlögðum tíma en Sykora. „Árang- ur minn hér í Kizbiihel undirstrikar að ég er í mjög góðri æfingu. Eg þurfti að taka á öllu mínu og það gekk allt upp hjá mér. Til að sigra á móti sem þessu þarf allt að smella saman og það gerði það í dag,“ sagði Stangassinger á fréttamanna- fundi eftir keppnina. Um möguleika sína á Ólympíu- leikunum í Nagano sagði hann: „Það er of snemmt að segja til um það því enn er langt í svigið á leik- unum. En ég er í mjög góðri æfingu núna og veit ekki hvort ég næ að halda mér á toppnum fram yfir ÓL. Þetta tímabil er nú þegar orðið það besta hjá mér á ferlinum. Þrír sigr- ar segja allt um það í hve góðri æf- ingu ég er,“ sagði Stangassinger sem er orðinn 31 árs og er núver- andi ólympíumeistari í greininni. „Eg get ekki annað en verið ánægður með annað sætið og það þrátt fyrir að mér urðu á smá mis- tök í síðari umferðinni. Þótt ég hafi ekki náð eins góðum árangri og í fyrravetur þegar ég vann sex svig- mót, get ég vel við unað - einn sigur Reuters AUSTURRÍKISMENNIRNIR Thomas Sykora og Thomas Stangass- inger voru sigursælir í heimabrekkum. og þrisvar sinnum í öðru sæti. Það munaði ekki miklu á okkur Stangassinger í þessu svigi, en við vorum í tveimur efstu sætunum á heimavelli og það er fyrir mestu,“ sagði Sykora. Furuseth var ánægður með þriðja sætið, enda er það besti ár- angur hans í vetur. „Það var mjög mikilvægt fyrir mig að sanna mig og þessi árangur ætti að tryggja mér öruggt sæti í svigliði Noregs á Ólympíuleikunum í Nagano. Það er mikil keppni innan okkar liðs um ÓL-sætin,“ sagði Furuseth. Hann hefur tvisvar sinnum farið í aðgerð vegna meiðsla á hné en segir það ekki há sér neitt lengur. Slóveninn Andrej Miklavc náði besta brautartímanum í síðari um- ferð og fór við það úr 27. sæti eftir fyrri umferð upp í fimmta sæti. Mika Marila, æfingafélagi Kristins Björnssonar, var með 29. besta tím- ann eftir fyrri umferð og fór því síð- ari umferðina. Hann endaði í 20. sæti og er þetta í fyrsta sinn í vetur sem hann kemst upp fyrir 30. Mikil stemmning og frábært veð- ur var í Kitzbuhel á sunnudag þegar svigið fór fram. Um þrjátíu þúsund áhorfendur mættu í brekkuna til að fylgjast með. Alberto Tomba var ræstur fyrstur af stað í fyrri um- ferð, en hann krækti fyrir stöng og féll úr keppni þegar hann var hálfn- aður niður brautina. Við þetta áfall féll stemmningin aðeins niður því hann er vinsælasti skíðamaður heims. Austurríkismenn kættust reyndar enda var möguleiki þeirra á sigri meiri við fall Tombas. Heimamenn fögnuðu tvöföldum sigri og ekki í fyrsta sinn í vetur. Yfirburðir austurríska karlalands- liðsins hafa verið með ólíkindum í öllum fjórum alpagreinunum, svigi, stórsvigi, risasvigi og bruni. Aftur stálu heima- menn senunni Austurríkismenn stálu senunni í svigmótunum í Kitzbúhel bæði í gær og á sunnudag. Thomas Sykora, sem var annar á sunnudag, sigraði í gær og landi hans, Thomas Stangassing- er, þriðji. Norðmaðurinn ungi, Hans-Petter Buraas, sem náði besta tímanum í fyrri umferð, komst á milli þeirra og hafnaði í 2. sæti. Svigið í gær fór fram á sama stað og á sunnudag, neðst í Hahn- enkamm-brekkunni. Það var ólík stemmning yfir mótinu frá því á sunnudag þegar 30 þúsund áhorf- endur voru viðstaddir. Svigið í gær átti upphaflega að vera í Madonna di Campigiio en var aflýst og síðan var það flutt til Veysonnaz í Sviss og var einnig aflýst þar. I gær voru aðeins um eitt þúsund áhorfendur sem fylgdust með svigköppunum. Sykora var 0,18 sekúndum á und- an Buraas og fagnaði sigri öðru sinni í vetur. Sigurvegarinn frá því á sunnudag, Stangassinger, var ekki talinn eiga möguleika á verð- launasæti eftir fyrri umferðina því þá var hann aðeins með 15. besta tímann. En hann sýndi hvers hann er megnugur í síðari umferðinni, náði langbesta tímanum og þriðja sætið var hans. Þeir hafa unnið fimm af sjö svigmótum vetrarins, Stangassinger þrjú og Sykora tvö. „Ég get ektó verið glaðari en í dag,“ sagði Sykora eftir sigurinn. „Að ná öðru sæti í gær og sigra síð- an í dag er eins og draumur fyrir mig.“ Aiberto Tomba var í fimmta sæti eftir fyrri umferð og gaf allt sem hann átti í síðari umferð. Hann var með góðan millitíma en síðan var hann næstum dottinn, tapaði dýr- mætum tíma og það kostaði hann verðlaun. Tomba verður með á Ólympíuleikunum í Nagano og þar æúar hann að freista þess að vinna til verðlauna á fjórðu Ólympíuleik- unum í röð. Christian Leitner, þjálfari Kristins íslend- ingar ættu að vera stoltir CHRISTIAN Leitner, þjálfari Kristins, sagðist ektó hafa miklar áhyggjur þó að Kristinn hafi ektó náð sér á strik í Kitz- búhel. „Krístinn er ektó góður í svona aflíðandi brekkum. Hann er bestur ef það er nógu bratt og hart. Hann var ekki að skíða vel og á auðvitað að geta meira. Þessi brekka er varla boðleg fyrir svig og á kafla í brautinni var hún nánast upp í móti. Hún hentar betur stóðamönnum sem eru þungir og bilið á milli hliða var allt að 12 metrar. Þetta voru óvenjuiegai- aðstæð- ur í heimsbikarmóti," sagði Leitner. Hann sagði að þó svo að Kristni hafi gengið illa í Kitz- búhel ætti hann góða mögu- leika á að standa sig vel á Ólympíuleikunum í Nagano. „Eg veit að brekkan á Ólympiu- leikunum er brött og verður Ör- ugglega hörð. Við skulum sjá til hvað gerist þá. Hann hefur sýnt að hann er kominn í fremstu röð og ég held að ísiendingar ættu að vara stoltir af honum. Það má ekki gera óraunhæfar kröfur til hans. Það er ektó hægt að ætlast til að hann kom- ist á verðlaunapall i hverju ein- asta heimsbikarmóti. Hann er að stíga sín fyrstu spor í heims- bikamum og á enn eftir að öðl- ast reynslu. Ég hef engar áhyggjur af því að árangur hans hér í Kitzbúhel hafi áhrif á frammistöðu hans í Nagano. Hann er mikill keppnismaður og við eigum eftir að sjá hann oft í fremstu röð i framtíðinni," sagði Leitner. Sigrar hjá Stan ingers og Sykora

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.