Morgunblaðið - 27.01.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 27.01.1998, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristínn Ingvarsson Spennu leikur Valsmenn náðu jöfnu gegn ÍBV Klóraðu mér frekar á herðablaðinu! ARON Kristjánsson og Gústaf Bjarnason taka FH-inginn Sigurjón Sigurðsson föstum tökum. Aron heldur báðum höndum um skothönd Sigurjóns, þá vinstri, en engu líkara er en Gústaf sé að klóra andstæðingnum á bakinu! „Sjáumst í úr- slifakeppninni" Borgar Þór Enarsson skrifar Lið Vals og ÍBV skildu jöfn í kaflaskiptum og æsispennandi leik, 28:28. Leikmenn beggja liða voru greinilega með hugann við síðustu viðureign liðanna í bikarkeppninni, en þó á mjög ólíkan hátt. Valsmenn virtust ekki komnir niður á jörðina en Eyjamenn voru aug- sýnilega staðráðnir í að koma fram hefndum. Eyjamenn tóku snemma frum- kvæðið og voru greinilega vel stemmdir en Valsmenn virtust ann- ars hugar og vandræðagangur ein- kenndi leik þeirra. Varla stóð steinn yfir steini í vamarleik Valsmanna í fyrri hálfleik og varin skot voru telj- andi á fingrum annarrar handar. Vöm ÍBV var hins vegar sterk og sóknarleikurinn ákveðinn. Það var því ekki að undra að ÍBV leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 13:18. Valsmenn mættu eins og grenj- andi ljón til síðari hálfleiks og var allur annar bragur á leik liðsins. Á sama tíma var sem Eyjamenn væru slegnir út af laginu og Valsmenn gengu hratt á forystu þeirra og minnkuðu muninn í eitt mark áður en síðari hálfleikur var hálfnaður. Eyjamenn sýndu þó mikinn styrk og náðu að standast þetta áhlaup Valsmanna og jöfnunarmarkið lét á sér standa. Síðustu mínúturnar vora æsispennndi og þegar tvær mínútur vora eftir náðu Valsmenn loksins að jafna en Eyjamenn höfðu haft for- ystu frá fyrstu mínútu. Bæði lið gerðu örvæntingarfullar tilraunir til að innbyrða sigurinn en allt kom fyrir ekki og skiptur hlutur varð niðurstaðan. í liði ÍBV var Zoltán Belany at- kvæðamestur og einnig átti Guð- finnur Kristmannsson góðan leik. Haraldur Hannesson var sterkur í vöminni. Hjá Val var Jón Kristjáns- son bestur, skoraði grimmt oggerði fá mistök. Einnig var Davíð Olafs- son drjúgur og innkoma Einars Arnar Jónssonar virtist hafa góð áhrif á liðið. Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV, sagði að Eyjamenn hefðu átt að klára leikinn eftir að hafa náð góðu forskoti í fyrri hálfleiknum: „Valsmenn hafa meiri breidd en við og það gerði gæfumuninn.“ Jón Kristjánsson, þjálfari Vals, var ósáttur við fyrri hálfleikinn: „Mínir menn mættu ekki með rétt hugar- far í leikinn og fyrri hálfleikurinn er einhver sá lélagasti síðan ég byrjaði að þjálfa Val. Eyjamenn léku skyn- samlega og þess vegna náðum við ekki að fylgja góðum kafla í síðari hálfleik eftir.“ Haukar og stuðningsmenn þeirra fögnuðu vel og lengi eft- ir að flautað var til leiksloka í ■■■■■■ grannaslagnum við Skapti FH, í 1. deild karla í Hallgrímsson handknattleik, í sknfar T, , . ., Kaplakrika a sunnu- dagskvöld. Haukar sigruðu 32:28 og stemmningin undir lokin var dæmigerð fyrir leik nágrannaliða; nokkrum mín. áður en flautað var til leiksloka streymdu áhangendur þeirra hvítu og svörtu úr húsinu en þeir rauðu risu úr sætum og hylltu sína menn, enda þrefóld ástæða fyrir Haukana að fagna; í fyrsta lagi að þeir sigruðu í leiknum, í öðra lagi að þeir komust upp að hlið FH í stigatöflunni og síðast, en líklega ekki síst, að þarna náðu þeir að hefna fyrir tapið í fyrri um- ferðinni þegar FH sigraði örugg- lega. Liðin hafa því unnið hvort sinn grannaslaginn og era jöfn að stig- um. Og þrátt fyrir tap, litu sumir FH-ingar bjartsýnir fram á veginn. Til að mynda þulurinn í Kaplakrika, sem kvaddi gestina með þessum orðum: „Sjáumst í úr- slitakeppninni" og tóninn var ekki hægt að misskilja; mætist liðin þar er a.m.k. hann öraggur um sigur sinna manna. Sigur Hauka var bæði sanngjarn og öraggur. Liðið var betra, bæði í vöm og sókn, meginhluta leiksins; sóknarleikurinn fjölbreyttari, ag- aðri, og öraggaiá og vamarleikur- inn mun skárri. I leikhléinu höfðu Haukar fimm marka forystu, 19:14, en FH-ingar gerðu reyndar einu marki meira en gestirnir eftir hlé en það dugði engan veginn til. FH-ingar gerðu fyrsta markið og komust síðan yfir 2:1 en eftir það tóku Haukar framkvæðið. FH- ingar sáu aldrei til sólar í fyrri hálfleik en komu tvíefldir fram á gólfið eftir leikhlé, börðust þá af meiri krafti en áður og náðu for- skoti gestanna niður í eitt mark - 24:25 þegar ellefu mín. voru eftir - en það var skammgóður vermii' því Haukar voru fljótlega komnir fjór- um mörkum yfir aftur og höfðu fimm marka forskot skömmu fyrir leikslok. Haukar, sem hafa verið í hálf- gerðu basli upp á síðkastið, eru greinilega á uppleið. Bjarni lék vel í markinu í seinni hálfleik og sókn- arleikur liðsins var hraður og líf- legur þar sem flestir gerðu laglega hluti, einkum í fyrri hálfleik. Lee markvörður FH náði sér ekki á strik í fyrri hálfleiknum en var mjög góður í þeim síðari; varði vel og lagði grunninn að nokkrum hraðaupphlaupum með frábæram sendingum fram völlinn. Vöm FH- liðsins var ekki eins og hún gerist best og sóknarleikurinn ekki held- ur. Því er þó ekki að neita að ýmis- legt gladdi augað í FH-sókninni, einkum þrumufleygar hins unga Sigurgeirs Árna Ægissonar. Guð- jón Arnason er meiddur og kom aðeins inná í skamma stund fyrir hlé, Sigurgeir lék því nánast allan leikinn í sókninni og gerði hvert glæsimarkið á fætur öðru. Þar er á ferðinni stórefnileg skytta. Þá var Hálfdán mjög öflugur á línunni. Mörkin 60 í leiknum segja sína sögu um gang mála; sóknarleikur var í fyrirrúmi hjá báðum en varn- irnar satt best að segja oft hálf- slakar. Markverðirnir náðu sér heldur engan veginn á strik í fyrri hálfleik - fimm skot vora þá skráð varin á hvort lið - en bæði Lee og Bjarni sýndu glæsileg tilþrif í seinni hálfleiknum. Dómararnir mættu ekki SÁ fáheyrði atburður átti sér stað á sunnudagskvöld að fresta varð leik Stjörnunnar og IR í 1. deild karla í handknattleik sök- um þess að engir dómarar mættu til leiks í Garðabænum. „Ég held að ég geti fullyrt að ég hafi ekki lent í neinu svipuðu þessu sfðan í 4. flokki. Þá var bara kallað á einhverja ofan úr stúku til þess að dæma, en það er nú víst ekki hægt í svona leik,“ sagði Valdimar Grímsson, leik- maður og þjálfari Stjörnunnar, þegar ljóst var orðið að ekkert yrði af Ieiknum á sunnudag. „Ég held nú samt sem áður að það hljóti einhver eðlileg skýr- ing að liggja hér að baki, en ég vona bara að ekkert alvarlegt hafi komið fyrir dómarana. Ég sé þó ekki alveg hvenær hand- knattleikssambandið ætlar að láta þennan leik fara fram því dagskráin í deildinni er mjög þétt á næstunni," sagði Valdi- mar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.