Morgunblaðið - 27.01.1998, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Hársbreidd vantaði upp á að Evrópumetið í stangarstökki yrði bætt í Lauc
Meljöfnun Völu
var hápunkturinn
ÞAÐ var í mörg horn að líta í Laugardalshöll sl. laugardag er
ÍR hélt stórmót sitt í frjálsíþróttum annað árið í röð. Margt
fremsta frjálsíþróttafólk heims kom til leiks og skemmtileg
keppni var í öllum greinum. Engin met voru sett en óhætt er
að segja að aðeins hársbreidd hafi vantað upp á að Daniela
Bartova bætti Evrópumetið í stangarstökki um 3 cm. Fremstu
frjálsíþróttamenn landsins, Guðrún Arnardóttir, Ármanni, Jón
Arnar Magnússon, UMFT, og Vala Flosadóttir, ÍR, náðu einnig
góðum árangri og yljuðu rúmlega 1.000 áhorfendum sem
mættu.
■ ANDREA Miiller frá Þýskalandi
olli vonbrigðum með þátttöku sinni
í stangarstökki kvenna. Hún felldi
í þrígang byrjunarhæð sína 3,80 m
og var þar með úr leik. Hún virtist
í mesta basli með of mjúka stöng.
Miiller hefur hæst stokkið 4,30 um
ævina.
■ EINAR Þór Einarsson, sprett-
hlaupari úr Ármanni, keppti í 50
m hlaupi og varð í öðru sæti. Þetta
var í fyrsta skipti sem Einar kepp-
ir í spretthlaupum í þrjú og hálft
ár eftir að hafa lokið keppnisbanni.
■ REYNIR Logi Ólafsson, félagi
Einars úr Ármanni, sigraði í 50 m
hlaupi á 6,01 sek. en gerði betur í
undanriðli, fór þá vegalengdina á
5,98 sek.
■ THOMAS Hansson, hástökkvari
frá Sviþjóð setti persónulegt met
innanhúss er hann stökk yfir 2,16
m í annarri tilraun og sigraði í
greininni. Vegárd Hansen frá
Noregi var hins vegar nokkuð frá
sínu besta og komst aðeins yfir
2,05 m og varð í þriðja sæti.
■ JÓN Arnar Magnússon keppir í
sjöþraut í Tallin í Eistlandi á
föstudag og laugardag í þessari
viku á boðsmóti á vegum Erki
Nool tugþrautarmanns. Meðal
keppenda í þrautinni eru auk Jóns
og Nools, þeir Chris Huffins,
Bandaríkjunum, Tékkinn Robert
Zmelik, Pólverjinn Sebastian
Chmara og Lev Lobodin frá Rúss-
landi.
■ GÍSLI Sigurðsson, þjálfari Jóns,
sagði það vera kærkomið að fá
keppni á ÍR-mótinu og eins í
þrautinni í Tallin til þess að at-
huga hver staða Jóns er nákvæm-
lega nú þegar rúmur mánuður er í
Evrópumótið á Spáni þar sem Jón
verður að sjálfsögðu meðal kepp-
enda í sjöþraut.
■ ÞÓ að Evrópumet Ezster Szem-
eredi frá Ungveijalandi hafí stað-
ist atlöguna í Laugardalshöll
stóðst það ekki atlögu Szemeredi
og Anzhela Balachanova, tíkra-
ínu, á móti í Karlsruhe á sunnu-
daginn. Þá stukku þær stöllur 4,33
m og bættu Evrópumetið um 1 cm.
■ ÁRIÐ1998 er ár kvenna í frjálsí-
þróttum samkvæmt samþykkt Al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins. Af
því tilefni fengu nokkrar íslenskar
konur viðurkenningu áður en IR-
mótið hófst á laugardaginn.
■ GUÐRIJN Arnardóttir og Vala
Flosadóttir fengu viðurkenningu
fyrir frábæra frammistöðu í sínum
greinum en báðar eru með 20
bestu í sínum greinum í heiminum,
Guðrún í 400 m grindahlaupi og
Vala í stangarstökki.
■ BJÖRK Þorsteinsdóttir fékk
einnig viðurkenningu, ásamt
Ragnhildi Ingvarsdóttur, fyrir að
hafa verið stoð og stytta utan vall-
ar sem innan en þær hafa starfað
ötullega um áratugaskeið á frjálsí-
þróttamótum og fyrir sín félög.
■ EINNIG fengu viðurkenningu
Ragnhildur Ólafsdóttir, Islands-
methafi í millivegahlaupum, og
Guðrún Ágústsdóttir, forseti
borgarstjórnar.
Guðrún kom til landsins úr æf-
ingabúðum í Bandaríkjunum
og keppti í 50 m hlaupi og 50 m
■HiH grindahlaupi og sigr-
ívar aði af öryggi í síðar-
Benediktsson nefndu greininni en
skrifar varð að gera sér að
góðu annað sæti í 50
m hlaupi. Sem kunnugt er æfir
Guðrún fyrst og fremst 400 m
grindahlaup og hún sagði í mótslok
það vera kærkomið að koma heima
og keppa og gilti þá einu þótt hún
gæti ekki keppt í sinni eftirlætis-
grein. Þessi keppni hefði verið góð
byrjun á keppnistímabilinu hjá sér.
I báðum greinunum fékk hún
mikla keppni frá Þjóðverjanum
Ingeborg Leschnik og aðeins
skildu 2/100 úr sekúndu að í
grindahlaupinu, Guðrúnu í vil. I 50
m hlaupinu munaði einnig litlu, að-
eins 5/100 úr sekúndu, Leschnik í
hag.
Jón Arnar Magnússon varð að
gera sér 2. sætið að góðu í þríþraut
eftir jafna keppni við þrjá af
fremstu tugþrautarmönnum
essar greinar eru skemmtileg-
ar, en mjög ólíkar þeim sem ég
er aðallega í,“ sagði Guðrún Arnar:
dóttir í mótslok á laugardaginn. „í
þessum stuttu sprettum reynir
meira á snerpuna og taugarnar, en
það er fínt að fá aðeins að reyna sig
í grindahlaupi svo snemma á keppn-
istímabilinu," bætti Guðrún og
sagði að þátttakan hefði orðið til
þess að hún hefði þurft að breyta
örlítið æfingaáætlun sinni frá því
sem upphaflega var áætlað. „Það er
alltaf gaman að koma heim og
keppa svo það var alveg þess virði.“
Guðrún sagðist halda að nýju til
Bandaríkjanna á þriðjudaginn þar
sem æfingar héldu áfram. „Líklega
verður næsta mót hjá mér Evrópu-
meistaramótið í Valencia eftir rúm-
an mánuð, það er þó ekki alveg víst.
Svo gæti farið að ég sleppti því og
heims, Tomas Dvorak heimsmeist-
ara, er sigraði, Chris Huffins,
Bandaríkjunum, sem varð í þriðja
sæti, og fyrrum ólympíumeistar-
ann og núverandi heimsmeistara í
sjöþraut, Tékkann, Robert Zmelik,
sem rak lestina. I þríþrautinni var
keppt í 50 m grindahlaupi, kúlu-
varpi og langstökki. Dvorak tók
forystu í grindahlaupinu með því
að koma fyrstur í mark á 6,80 sek.
- 7/100 úr sekúndu á eftir landa
sínum, Zmelik. Jón varpaði kúlunni
lengst þein-a kappa og varð jafn
Dvorak í langstökki, báðir stukku
7,29 m en Huffins varð þar hlut-
skarpastur með 7,35 m. Dvorak
fékk 2.883 stig, Jón 2.832, Huffins
2.791 og Zmelik 2.737. Til þess að
sigra hefði Jón þurft að stökkva 25
cm lengra en Dvorak í síðustu
greininni, langstökki.
Vonbrigði Bartovu
Annað árið í röð undirstrikaði
Vala Flosadóttir að þar er á ferð-
inni frábær keppnismaður sem svo
sannarlega kann við sig í Laugar-
einbeitti mér bara að utanhússmót-
unum, en mér stendur til boð að
keppa á mótum við Karíbahaf og í
Brasilíu. En fari svo að ég verði
með á EM þá ætla ég að keppa þar í
400 m hlaupi.
Guðrún segist vera mun sterkari
en á sama tíma í fyrra og meginá-
stæðan sé sú að þá hafi hún átt í
meiðslum en sloppið við þau nú.
„Eg sigraði í grindahlaupinu og
það skipti meginmáli, en auðvitað
vill maður alltaf vinna.“
Hefðir þú ekki sigrað í 50 m
hlaupinu hefði það verið 10 m
lengra, þar sem þú varst að sækja
verulega á hana á Ingebrog
Leschnik á síðustu metrunum?
„Vera má að svo hefði orðið, en
þá hefði hún kannski bætt við hrað-
an hefði hlaupið verið lengra, það er
aldrei að vita.“
dalshöll þegar áhorfendur eru með
á nótunum. Hún jafnaði Norður-
landa- og Islandsmet sitt í stangar-
stökki, 4,20 m, og lét síðan slag
standa ásamt Danielu Bartovu,
Tékklandi, og lét hækka upp í 4,35
m, sem var tilraun við Evrópumet
innanhúss. Tvær fyrstu tilraunir
Völu voru ágætar, og reyndar
vantaði aðeins herslumuninn upp á
að hún færi yfir í 2. tilraun. En
henni tókst ekki að fara yfir 4,35 m
að þessu sinni en sýndi að ekki er
langt í land og hún er til alls líkleg
á Evrópumeistaramótinu á Spáni
eftir rúman mánuð.
Tilraunir Bartovu við 4,35 m
voru enn betri, en hún hafði haft
orð á því fyrir keppnina að hún
ætlaði að reyna við heimsmet. En
áður en til þess kom vildi hun gera
atlögu að Evrópumetinu. I fyi-stu
tilraun tókst ekki að fara yfir, en í
annarri tilraun vantaði ekki nema
herslumuninn. Bartova fór yfir og
allt virtist í lagi, en er Bartova var
að fagna og hneigja sig fyrii' áhorf-
endum nokkrum andartökum eftir
að hún hafði lent á dýnunni breytt-
ist gleðin í sorg. Sláin féll og metið
því úr sögunni og má nærri geta
hvílík vonbrigði það voru. Gárung-
ar sem fylgdust með mótinu sögðu
að það hefði munað gegnumtrekki
sem hefði verið! Vonbrigðin voru
slík að þriðja tilraun Bartovu fór í
vaskinn og ekkert Evrópu- né
heimsmet féll að þessu sinni í
Laugardalshöllinni. Hún setti Evr-
ópumet þar fyi’ir ári.
Þórey Edda Elísdóttir, FH,
keppti einnig í stangarstökkinu og
fór yfir 3,80 m af miklu öryggi.
Hún átti þrjár tilraunir við 3,90 m,
sem er 9 cm hærra en hún hefur
áður hæst stokkið innanhúss. Get-
an virtist til staðar til þess að kom-
ast yfir 3,90, en reynsluleysi skipti
sennilega mestu máh og kom í veg
fyrir að það tækist að þessu sinni.
Það er hins vegar álit margra að í
Þórey fari mikið efni sem með
ástund og aukinni reynslu verði
von bráðar komin yfir 4 m.
Þessar greinar voru hápunktur-
inn á stórskemmtilegu móti IR-
inga en einnig var keppt í hástökki
karla og 50 m hlaupi karla.
Einar Karl Hjartarson, ÍR,
stökk 2,10 m og varð annar í há-
stökki, en vantaði nokkuð upp á að
fara yfir 2,16 m og bæta tíu ára
gamalt Islandsmet Gunnlaugs
Grettissonar, IR, um 1 cm. Sigur-
vegari í greininni varð Svíinn
Thomas Hansson með því að fara
yfir 2,16 m.
I jöfnu og skemmtilegu 50 m
hlaupi sigraði Reynir Logi Olafs-
son úr Armannþ á 6,01 sek. Einar
Þór Einarsson, Ármanni, og Bjarni
Þór Traustason, FH, komu næstir
á 6,06 sek.
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐRÚN Arnardóttir (4) að koma yfir síðustu grindina og tryggja sér sigur. Á myndinni eru frá
vinstri, Helga Halldórsdóttir, Ingeborg Leschnik, Guðrún og Latisha Rivers.
Ég hef aldrei
verið sterkari
VALA Flosadóttir jafna