Morgunblaðið - 27.01.1998, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.01.1998, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 B 9 FRJALSIÞROTTIR gardalshöllinni annað árið í röð Morgunblaðið/Kristinn JÓN ARNAR Magnússon: „Langstökkið var skemmtilegt þó ég hefði viljað fara eitthvað lengra.“ Kem til ieiks að ári Grindahlaupið var ágætt, en kúluvarpið og Iangstökkið síðra og raunar lakara en ég hafði vonað,“ sagði Tomas Dvorak frá Tékklandi en hann bar sigur úr býtum í þríþraut, hlaut 2.888 stig, 51 stigi fleira en Jón Arnar Magn- ússon er hreppti annað sætið. Þrátt fyrir sigurinn í stigakeppninni vann Dvorak aðeins eina grein, 50 m grindahlaupið, varð annar í kúlu- varpi og jafn Jóni í 2.-3. sæti í lang- stökki. Jón varpaði kúlunni lengst allra, 15,50 m og Chris Huffins var sprækastur í langstökkinu - 7,35 m. „Það er alltaf gaman að vinna enda er það takmark mitt með þátt- töku í mótum. Þessi keppni var góður undirbúningur fyrir meist- aramót Tékklands sem fram fer í næstu viku, en í framhaldi af ár- angri þar verður valið í keppnislið okkar fyrir Evrópumeistaramótið innanhúss á Spáni í byrjun mars.“ Dvorak sagði ennfremur að þó mik- ilvægt yrði að sigra á EM innan- húss þá væri meginmarkmið sitt á þessu ári að verða Evrópumeistari utanhúss í Búdapest í ágúst nk. „Annar meistarinn varð að lúta í lægra haldi íyrir mér, en því miður tókst mér ekki að sigra,“ sagði Jón Ai’nar að keppni lokinni og vísaði til þess að hann var á undan fyrrum Norðurlanda- og íslandsmet sitt Morgunblaðið/Kristinn Allt lagt undir á EM „ÉG er ánægð með tilraunirnar við 4,35 þó hraðinn hefði mátt vera meiri hjá mér í atrennunum," sagði Vala Flosadóttir, en hún jafnaði eigið Norðurlanda- og íslandsmet er hún lyfti sér yfir 4,20 í þriðju tilraun. En í stað þess að hækka um 5 cm og freista þess að bæta met sitt lét hún slag standa með Danielu Bartovu í til- raunum að hnekkja Evrópumetinu, 4,32 m. En af hverju lét Vala ekki 5 cm í viðbót nægja? „Það var annaðhvort að bæta metið almennilega eða sleppa því,“ sagði Vala með bros á vör og sagði þetta hafa verið sameiginlega ákvörðun - að hækka í 4,35 m. „Framan af var ég að nota of mörg stökk og var orð- in þreytt undir lokin, en keppnin var skemmtileg og áhorfendur voru frábærir, stemmningin var einstök." Vala bætti sinn fyrri árangur á keppnistímabilinu um 5 cm, sem hún sagði vera jákvætt merki. Bak- meiðslin sem hefðu hrjáð hana síðari hluta sl. sumars væru á bak og burt og nú væri Evrópumeistaramótið framundan þar sem hún hefur titil að verja. „Ég stefni að sjálfsögðu á að vera í sem bestri æf- ingu þegar að því kemur og framundan eru nokkur mót bæði í Svíþjóð og Þýskalandi. Allt verður lagt und- ir til þess að verja titilinn." Ólympíumeistara í tugþraut og nú- verandi heimsmeistara í sjöþraut, Robert Zmelik, en heimsmeistarinn í tugþraut, Dvorak, hafði hins veg- ar betur. Langstökkið skemmtiiegast „Ég er sáttur við árangurinn en hefði á hinn bóginn viljað sjá fleiri áhorfendur. Þetta var fyrsta grindahlaup mitt á árinu og að því leyti í lagi þó tíminn væri lakari en í fyrra, kúluvarpið var í lagi og lang- stökkið var skemmtilegt þó ég hefði viljað fara eitthvað lengi-a. Mér fannst gaman að þessari keppni og held að mót sem þetta hafi fest sig í sessi.“ Jón segir veturinn hafa verið góðan. Hann hafi alveg sloppið við meiðsli og því getað æft vel. Um leið hafi nokkur kíló fengið að sigla sína leið með breyttu og bættu mataræði. Framundan væri keppni í sjöþraut í Eistlandi um næstu helgi og síðan þátttaka í meistara- móti íslands innanhúss eftir hálfan mánuð. „Síðan tekur lokaundirbún- ingurinn fyrir EM við.“ „Ég keppti hér mér til gleði og ánægju og því er ég ekki að æsa mig yfir því að hafa verið nokkuð fjarri mínu besta,“ sagði Chris Huffins bronsverðlaunahafi í þrí- þrautinni. „Árangurinn í langstökkinu var viðunandi miðað við hvernig at- rennubrautin er, hún hefði þurft að vera harðari til þess að ná lengri stökkum. í tveimur fyi-stu tilraun- unum í kúluvarpi rann ég til og því gerði ég ógilt. Þess vegna kastaði ég meira af öryggi en upp á lengd- ina í síðustu tilraun til að falla ekki úr leik. En fyrst og fremst var þetta til ánægju og það er á hreinu að ég kem hingað að nýju á næsta ári.“ Huffins sagði ennfremur að tak- mark sitt á árinu væri að sigra í tugþrautarkeppni Friðarleikanna sem fram fara í New York í sumar. „Ég er fæddur í borginni og vonast til að vinna á heimavelli." Aðspurð- ur hvort hann vænti þess að Dan O’Brien heimsmethafi myndi keppa á Friðarleikunum svaraði hann: „Ég vona það svo sannarlega, ann- ars er ómögulegt að segja til um hvað hann gerir. O’Brien lifir í sín- um eigin draumaheimi." IAAF gerði stigatöflu ATHYGLI vakti að þrátt fyrir að Jón Arnar Magnús- son hafi verið með lakari ár- angur í öllum greinum þrí- þrautarinnar á IR-mótinu laugardaginn fékk hann fleiri stig en í samskonar þraut fyrir ári. Ástæðan er sú, að sögn Vésteins Haf- steinssonar, að eftir að Al- þjóða fijálsíþróttasamband- ið, IAAF, fékk í hendur úr- slit frá mótinu í fyrra bjó það til sérstaka stigatöflu fyrir þríþraut sem ekki var til áður. „Það eitt og sér er viss viðurkenning fyrir mótshald okkar,“ sagði Vé- steinn. I fyrra var notuð stiga- tafla fyrir sjöþraut en þar sem í henni er ekki gert ráð fyrir að keppt sé í 50 m grindahlaupi var tími í 60 m grindahlaupi reiknaður nið- ur í 50 m fyrir mótið. Nú var hins vegar nýja taflan notuð og Jón fékk t.d. 33 stigum meira fyrir grindahlaupið en í fyrra þrátt fyrir að hafa hlaupið á 13/100 úr sekúndu lakari tíma. „Að sjálfsögðu notum við nýju stigatöfluna í framtíð- inni og á næsta ári ætti ár- angurinn að vera sambæri- Iegri,“ sagði Vésteinn enn- fremur. „Islands- met!“ ÞESS má til gamans geta að hefði taflan sem nú var keppt, eftir verið í gildi í fyrra hefði Jón hlotið 2.924 stig, en að þessu sinn fékk hann 2.832. Sigurvegarinn Tomas Dvorak fékk nú 2.883 stig. Þar sem þríþraut er ekki viðurkennd keppnis- grein var ekki um íslands- met að ræða hjá Jóni í fyrra er keppt var í fyrsta skipti í þríþraut hér á landi. Þaðan af síður var um að ræða Is- landsmet að þessu sinni eins og ýmsir vildu meina í Laugrdalshöll á laugardag- inn. Ekki einatt þar sem þetta er ekki viðurkennd keppnis- grein lieldur einnig vegna þess að hann náði lakari ár- angri, þrátt fyrir að hafa fengið fleiri stig vegna breyttrar stigatöflu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.