Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 12
12 B PRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Juventus komið
Söguieg
félagaskipti
DAMLR Stojak, marká-
kóngur Vojvodina Novi Sad í
Jiígdslavíu, hefur samið við
Croatia Zagreb í Króatíu
skv. fréttum júgóslavneskra
fjölmiðla um helgina og
brýtur þar með blað í
samskiptum þjóðanna; er
fyrsti knattspymumaðurinn
sem flytur sig milli liða í
löndunum tveimur síðan
stríðið braust út á
Balkanskaga í Iq'ölfar þess
að Júgóslaviu leystist upp.
Ferdinand
reiður
LES Ferdinand, enski
landsliðsframheijinn hjá
Tottenham, brást hinn versti
við þegar honum var skipt út
af í bikarleiknum gegn
Barnsley á laugardag. Hann
rauk í fússi inn í
búningsklefa án þess að ræða
við kóng eða prest í
varamannaskýlinu. Sagði svo
við fjöhniðla að honum
fyndist það undarlegt. að vera
skipt út í stað varnarmanns,
þegar Iiðið þyrfti að skora,
en staðan var 1:1 og
leikurinn fór þannig. Colin
Calderwood fór inn á í stað
framherjans. Christian
Gross, knattspyrnustjóri
Tottenliain, sagðist liafa tjáð
Ferdinand fyrir leikinn að
hann myndi ekki leika nema í
60 minútur; hann væri ekki í
nægilega góðri æfíngu til að
leika lengur þar sem hann
væri nýfarinn að leika á ný
eftir að hafa náð sér af
meiðslum.
Kiko frá
í mánuð
KIKO Narvaez, framherjinn
siyalli hjá Atletico Madrid á
Spáni, verður frá keppni í
a.m.k. mánuð, eftir að hafa
meiðst á hné í leiknum gegn
Athletic Bilbao á laugardag.
Svo óheppilega vildi til að
hann lenti í samstuði við
Juninho, samherja sinn, með
þessum afleiðingum þegar
þeir reyndu samtfmis að ná
til knattarins.
Barcelona
og Real
Madrid
töpuðu
BARCELONA og Real Madrid
máttu sætta sig við tap á úti-
völlum á sunnudaginn. Leik-
menn Real Sociedad, sem
hafa ekki tapað leik á heima-
velli á keppnistímabilinu,
lögðu Real Madrid 4:2.
Barcelona gerði ekki góða ferð
til La Coruna, þar sem liðið
tapaði 3:1.
Real Madrid fékk óskabyrjun í
San Sebastian þegar Femando
Morientes skoraði eftir aðeins fímm
mín., en Didi Kuhbauer jafnaði fyrir
heimamenn og Francisco De Pedro
kom þeim yfír fimm mín. fyrir leik-
hlé. Júgóslavneski landsliðsmaður-
inn Darko Kovacevie skoraði þriðja
mark heimamanna á 47. mín. - hans
níunda deildarmark, 3:1. Brasilíu-
maðurinn Roberto Carlos svaraði
fyrir Real Madrid, en það var varn-
armaðurinn Agustin Aranzabel sem
gulltryggði Real Sociedad sigur,
4:2, á 76. mín.
„Við lékum ekki á sama krafti og
leikmenn Sociedad gerðu og í seinni
hálfleik misstum einbeitinguna,“
sagði Jupp Heynckes, þjálfari Ral
Madrid, sem hefur ekki tapað svo
illa í vetur.
Real Madrid heldur toppsætinu,
þar sem Barcelona tapaði í La Cor-
una. Heimamenn skoruðu fyrsta
mark sitt eftir aðeins þrjár mín. -
Fran Gonzalez. Leikmenn
Barcelona sóttu án stíft eftir það, en
þeir réðu ekki við Jacques Songo,
markvörður La Coruna, sem varði
hvað eftir annað meistaralega.
Sebastian Abreu frá Uruguay,
bætti öðru marki við við á 75. mín.,
eftir mikinn einleik. Brasilíumaður-
inn Djalminha bætti því þriðja við,
áður en Juan Pizzi náði að svara
fyrir Barcelona.
Rúmeninn Adrian Ilie skoraði
þrjú mörk þegar Valencia lagði
Racing Santander 6:1.
Italinn Christian Vieri skoraði
tvö mörk fyrir Atletico Madrid, sem
vann Athletic Bilbao 3:0.
Reuters
HOLLENSKI landsiiðsmaðurinn Edgar David, sem leikur með Juventus, hefur hér leikið á
Massimo Carrera hjá Atalanta.
Eyjólfur ofarlega á blaði
Eyjólfur Sverrisson, landsliðs-
maður í knattspymu sem leik-
ur með Herthu Berlín, er ofarlega
á blaði í úttekt hjá þýska blaðinu
Kicker. Blaðið vegur og metur
alla leikmenn 1. deildarinnar í
knattspyrnu, eða 320 leikmenn og
gefur þeim einkunn fyrir fram-
göngu þeiira á knattspymuvellin-
um. Eyjólfur er í 43. sæti með
79,3% af 100% mögulegum. í
efsta sæti er Balakov hjá Stutt-
gart með 91,6%, þá koma Kirsten
hjá Bayer Leverkusen með
89,4%, Khan hjá Bayer Munchen
með 88,8% og Thon, Schalke, með
88,2%
Eyjólfur fær t.d. 90% fyrir mik-
ilvægi leikmanns fyrir liðið sem
hann leikur með. Þá fær hann
95% fyrir leikskipulag, hvernig
hann skilar því hlutverld sem
hann er látinn leika. Aðeins fjórir
leikmenn eru fyrir ofan hann -
þeir fá allir 100%. Það em þrír
leikmenn hjá Bayer Leverkusen,
Kirsten, Ramelov og Heintze, og
Olaf Thon hjá Schalke.
upp fyrir Inter
Kipketer
með
malaríu
HEIMSMETHAFINN í 800 m
hlaupi karla, hinn kenýskætt-
aði Dani, Wilson Kipketer, var
í gær lagður inn á sjúkrahús í
suðurhluta Portúgals vegna
tnalaríu. Talsmaður sjúkra-
hússins vildi ekkert gefa upp
livað atnaði að hlauparanum
en þjálfari Kipketers, Pólveij-
inn Slavomír Novak, staðfesti
að heimsmethafinn væri með
sjúdóminn. Hann sagði jafn-
framt að Kipketer hefði smit-
ast af honum við heimsókn til
föðurlandsins nýlega. „Auðvit-
að er ég áhyggjufullur, en
vona það besta,“ sagði Novak.
Italska deildin er nú hálfnuð og
meistarar Juventus era komnir í
efsta sæti í fyrsta sinn í vetur. Liðið
vann Atalanta 3:1 og Marcello Lippi,
þjálfari Juventus, var ánægður með
sína menn, sérstaklega með að þeir
náðu að halda ró sinni og leikskipu-
lagi allan tímann. Forysta Juventus
er aðeins eitt stig því Inter náði 1:1
jafntefli er liðið mætti Empoli og það
var Alvaro Recoba sem jafnaði með
marki frá miðlínu á 81. mínútu.
Juventus virtist í tvígang hafa fyr-
irgert stigunum þremur; fyrst þegar
Alberto Fontan varði vítaspyrnu frá
Alessandro Del Piero á 57. mínútu
og síðan þegar Nicola Caccia jafnaði,
1:1, fyrir Atalanta með marki á 71.
mínútu. En leikmenn meistaranna
héldu ró sinni þrátt fyrir að stutt
væri til leiksloka og tókst að skora
tvívegis áður en flautað var til
leiksloka, fyrst Angelo Di Livio og
síðan Zinedine Zidane.
Það má með sanni segja að lið Int-
er sé ekki svipur hjá sjón miðað við
hvemig liðið lék í upphafi tímabilsins
en þá lék liðið tólf leiki án þess að
tapa. Massimo Moratti, forseti fé-
lagsins, kennir Brasilíumanninum
Ronaldo um hversu illa hefur gengið
en kappinn hefur ekki skorað mark í
einn mánuð. „Ég veit ekki hvað er
að, en hann leikur illa,“ segir forset-
inn um Ronaldo.
Það var samt ekki Ronaldo að
kenna að Empoli komst yfír eftir
þijár mínútur því þá brást rangstöðu-
aðferð Inter og Carmine Esposito
nýtti sér það til fullnustu, skaust inn
fyrir vörnina og vippaði stórglæsilega
yfir Pagliuca markvörð. Skömmu síð-
ar var skotið í stöng Inter og þegar
Zamorano skaut í stöngina hinum
megin töldu margir að Empoli væri
búið að sigra. En Recoba skoraði
mark frá miðju og jafnaði.
Udinese, sem hefui' ekki tapað í
tíu leikjum í röð, er þremur stigum á
eftir Inter. Liðið vann Vicenza ör-
ugglega 3:0 um helgina og Þjóðverj-
inn Oliver Bierhoff gerði tvö marka
Udinese. Hann hefur nú gert 14
mörk í deildinni, jafnmörg og Gabr-
iel Batistuta hjá Fiorentina en þeir
tveir era markahæstir.
Roberto Baggio var ekki í byrjun-
arliði Bologna er liðið mætti Lazio.
Hann kom inná á 40. mínútu fyrir
Rússann Igor Kolyvanov, sem
meiddist. Hann var varla kominn
inná þegar Tékkinn Pavel Nedved
gerði eina mark leiksins, fyrir Lazio.
Liðið, sem lék án Alen Boksic og Pi-
erluigi Casiraghi, sem báðir eru
meiddir, vann þarna sinn áttunda
leik af síðustu níu og er komið í
fjórða sæti, næst á undan Parma,
sem tapaði 2:1 fyrir Brescia. Þar
gerði Dario Hubner bæði mörk
Brescia og hefur þessi þrítugi sókn-
armaður gert 11 mörk á sínu fyrsta
ári í efstu deild á Italíu.
■ Úrslit b 14
■ Staðan B 14