Morgunblaðið - 27.01.1998, Side 13

Morgunblaðið - 27.01.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 B 13 FOLK ■ AIME Jacquet landsliðsþjálfari Frakka í knattspyrnu valdi um helgina Patrick Vieira í landsliðið fyrir vináttuleik við Spán á morgun. Vieira, sem leikur með Arsenal, kemur í stað Didier Deschamps sem leikur með Juventus, en hann er meiddur og verður líklega ekki tilbúinn í leikinn á morgun. ■ FRAKKAR eru mjög óhressir með að þurfa að láta leikmenn frá Afríku lausa í næstu viku en þá hefst Afríkubikarinn. Tuttugu afrískir leikmenn leika í frönsku deildinni og getur þetta komið hart niður á nokkrum liðum. Carlo Mol- inari, forseti Metz, sem er í efsta sæti, sagðist aldrei aftur ætla að kaupa leikmenn frá Afríku vegna þessa. ■ ALAN Ba.ll var á laugardaginn ráðinn knattspyrnustjóri hjá Portsmouth, sem leikur í 1. deild, að því er rokkgítarleikarinn Brian Howe sagði fréttamanni BBC. Ball sagði af sér sem stjóri hjá Manchester City í ágúst 1996 og • sagði við það tækifæri að hann væri líklega hættur afskiptum af knatt- spyrnu. En hann er kominn heim því þegar hann byrjaði sem knatt- spymustjóri árið 1984 var það hjá Pourtsmouth og þar var hann til ársins 1989. ■ ERIC Cantona mun leika með Manchester United seint í næsta mánuði þegar liðið tekur á móti úr- valsliði frá Evrópu til minningar um þá leikmenn United sem fórust í flugslysi við Miinchen 6. febrúar 1958. Cantona verður fyrirliði Evr- ópuliðsins en mun skipta um peysu í leikhléi og leika með United í síð- ari hálfleik. ■ PAOLO Futre, fyrrum landsliðs- maður Portúgals, er á leið til Atlet- ico Madrid á ný eftir að ekkert varð úr fyrirhuguðum flutningi hans til annað hvort Portuguesa eða Santos í Brasiliu. ■ FUTRE, sem er 31 árs og þykir snjall framherji, kom til Atletico á ný í sumar, en hefur aðeins verið með í fímm leikjum í vetur. Vildi því breyta til en nú er ljóst að hann verður um kyrrt. ■ SÆNSKI landsliðsmaðurinn Jan Eriksson, sem Sunderland keypti á 250 þús. pund er farinn til Banda- ríkjanna eftir eitt misheppnað ár hjá liðinu. Eriksson mun leika með Tampa Bay Mutiny. ■ ÍRSKI landsliðsmaðurinn Gary Kelly, varnarleikmaður Leeds, hef- ur ski-ifað undir nýjan samning við liðið til ársins 2002. ■ ARGENTÍNSKI landsliðsmaður- inn Ariel Ortega, sem leikur með Valencia, hefur verið orðaður við Man. Utd. Alex Ferguson hefur lát- ið menn fylgjast með þessum 23 ára sóknarleikmanni, sem er metinn á sjö millj. punda. ■ JÚGOSLAVNESKA meistaraliðið Partizan Belgrade hefur hafnað til- boði frá franska liðinu Marseille, sem vildi kaupa fyrirliðann Ivan Tomic. Partizan er að byggja upp lið, sem á að vera eitt af bestu liðum Evrópu eftir tvö til þrjú ár. ■ GLASGOW Rangers rétt slapp fyrir horn með sigurmarki á síðustu mínútu í bikarleik við Hamilton Academical, sem leikur í 1. deild, og tókst að sigra 2:1. Lengi vel var útlit fyrir að leikmönnum „Accies“ ætlaði að takast að endurtaka fræknasta sigur félagsins, en það vann Rangers í 3. umferð bikar- keppninnar árið 1987. Hamilton komst yfir á 32. mínútu en tíu mín- útum síðar jöfnuðu meistararnir. ■ „ÉG er mjög feginn að við þurfum ekki að leika aftur við Hamilton," sagði Walter Sniith, knattspyi’nu- stjóri Rangers, en leikið var á leik- velli Motherwell þar sem öryggisat- riði á heimavelli Hamilton eru ekki nægilega góð. Reuter OLH GUNNAR Solskær og Andy Cole fagna öðru markinu sem Cole skoraði á móti Walsall. Þeir skoruðu hvor sín tvö mörkin í bikarleiknum, sem Man. Utd. vann 5:1. Newcastle í erfið- leikum í Stevenage STEVENAGE, hálfatvinnumannalið sem ieikur utan deildar, náði 1:1 jafntefli er liðið tók á móti Newcastle og mun sunnudagurinn 25. janúar 1998 vera skráður í sögubækur sem einn sá merki- legasti í 22 ára sögu félagsins. Afrekið er þó nokkurt því Stevenage er talið einum 100 sætum neðar en Newcastle á styrkleikalista enska knattspyrnusambandins. Það sem ef til vill er athyglisverðast við úrslitin er að heimamenn áttu skilið jafn- tefli því þeir léku vel; börðust eins og Ijón allan tímann og gáfu stjörnunum lítið eftir. Talið er að Newcastle liðið kosti um 60 milljónir sterlingspunda en lið Stevenage aðeins 200 þúsund pund. Það sást varla á sunnudaginn. Heimamönnum leist þó ekki á blikuna því Alan Shearer kom gestunum yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik. En með baráttuna og leikgleðina að vopni tókst heimalið- inu að jafna skömmu fyrir leikhlé og þar við sat. Með smá heppni hefðu heimamenn getað bætt við marki, en Shaka Hislop, markvörður Newcastle, varð að taka á honum stóra sínum - er hann varði á elleftu stundu. Vonir Manchester United um að sigra bæði í deildar- og bikarkeppn- inni jukust enn um helgina er liðið komst í fimmtu umferð bikarkeppn- innar með því að bursta Walshall 5:1. United mætir Tottenham eða Barnsley í næstu umferð og miðað við stöðu liðanna í úrvalsdeildinni ætti það ekki að vefjast fyrir leik- mönnum United. Tottenham og Barnsley gerðu 1:1 jafntefli um helgina og leika aftur í næstu viku. Þau eru bæði í mikilli fallhættu í deildinni og eiga ekki góðar minn- ingar frá leikjum sínum við United í deildinni í vetur. Tottenham, sem hefur átta sinnum orðið bikarmeist- ari, tapaði 2:0 bæði fyrir United, bæði heima og á útivelli og Barns- ley tapaði 7:0 á Old Trafford. Ekki er þó allt sem sýnist því United er í mikilli keppni í Evrópukeppninni og þegar dregið var í 5. umferð ensku bikarkeppninnar á sunnudaginn lét Alex Ferguson, knattspymustjóri liðsins, að því liggja að bikarinn væri ekki það sem félagið legði mesta áherslu á. „Auðvitað munum við reyna okkar besta í bikarleikj- unum, en við þurfum að dreifa kröftum okkar talsvert mikið á næstunni," sagði Ferguson. Það var mikið fjör í leik West Ham og Manchester City þar sem gestirnir í West Ham höfðu betur, 2:1, og gerðu sigurmarkið 90 sek- úndum eftir að Þjóðverjinn Uwe Rosler misnotaði vítaspyrnu íyrir City. Sá sem gerði sigurmarkið var Steve Lomas fyrrum leikmaður City. West Ham var miklu betri að- ilinn í fyrri hálfleik og Israelinn Eyal Berkovic skoraði á 28. mínútu, raunar skoruðu gestirnir nokkru fyrr en markið var dæmt af vegna rangstöðu. City lék vel og mun betur en staða liðsins í fyrstu deildinni gefur tilefni til. Georgíumaðurinn Kink- ladze jafnaði með glæsilegu marki á 60. mínútu, en eftir misheppnaða vítaspymu var allur vindur úr heimamönnum. Arsenal komst áfram af öryggi,- sigraði Middlesbrough 2:1 og hefði sigurinn hæglega getað orðið mun stærri. Hollendingurinn Marc Overmars kom gestunum yfir eftir 67 sekúndur eftir frábæra sendingu landa síns Dennis Bergkamp, sem lék mjög vel. Middlesbrough hefur áður fengið mark á sig svo snemma í bikarleik því 1 úrslitaleiknum í fyrra tapaði liðið 2:0 fyrir Chelsea og þá kom Roberto Di Matteo Chelsea yfir eftir 43 sekúndur. Ray Parlour kom Arsenal í 2:0 en þá hefðu leikmenn Lundúnaliðsins átt að vera búnir að gera nokkur mörk enda var liðið mun betri aðil- inn í fyrri hálfleik en í þeim síðari jafnaðist leikurinn. Það var svo fyrrum Arsenalleikmaður, Paul Merson, sem gerði mark heima- manna og hann lagði upp gullið færi fyrir Danann Mikkel Beck, en skot hans var máttlaust. Eftir leikinn hljóp Merson, sem lék í 13 ár með Arsenal, til stuðningsmanna liðsins og henti keppnistreyju sinni til þeirra. „Fyrri hálfieikurinn var hræðilegur en ég naut hverrar mín- útu í þeim síðari," sagði Merson. Tvö úrvalsdeildarlið féllu úr keppni í þessari umferð. Derby tap- aði fyrir Coventry og gerði Dion Dublin bæði mörk Coventry og Bruce Dyer gerði þrennu þegar Crystal Palace sigraði deildarbikar- meistara Leicester. Það sem er merkilegt við þennan góða sigur Palace er að liðið lék á heimavelli, en þar hefur leikmönnum ekki tek- ist að sigra í deildinni. Cardiff City er eina liðið úr þriðju deild sem er enn með í keppninni, en liðið þarf að leggja Reading þar sem liðin gerðu 1:1 jafntefli um helgina og þurfa því að mætast að nýju. Jim Duffy knattspyrnustjóri Hibernian eftir tap í bikarleik sökkvandi skip Flý ekki „ÞAÐ er svo sannarlega ekki bjart framundan lyá Hibernian í Skotlandi, liði Ólafs Gott- skálkssonar og Bjarnólfs Lárus- sonar. Liðið er í neðsta sæti deild- arinnar og á laugardaginn var það slegið út úr 3. umferð bik- arkeppninnar af 1. deildar fé- laginu Raith Rovers. Gestirnir gerðu tvö mörk á fyrstu 20 mín- útunum og áhorfendur voru að vonum ekki ánægðir með gang mála og heimtuðu að Jim Duffy, knattspyrnustjóri, segði af sér hið snarasta. „Ég flý ekki sökkvandi skip,“ sagði hann og bætti við að hann myndi halda áfram og berjast fyrir betra gengi liðsins. „Leikmenn verða hins vegar að taka sig á ætli þeir ekki að breyta lélegu keppnistimabili í hreina martröð," sagði stjórinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.